Vísir - 21.11.1980, Blaðsíða 1
Föstudagur 21. nóvember 1980, 273. tbl. 70. árg.
úlafur W. Stefánsson í dómsmálaráðuneytinu um Gervasoni:
„Samkvæmt lögum Dana
má ekki framselja hann'
„Það eru skýr ákvæði I fram-
salslögum Dana um þaðað þeir
megi ekki framselja menn fyrir
brot á lögum um þaö sem er
kailaö militære forbrydelser",
sagði ólafur W. Stefánsson,
skrifstofustjriri i dómsmála-
ráöuneytinu, enhann hefur unn-
ið að skýrslu um mál franska
fldttamannsins Gervasoni.
Olafur itrekaði að lög þessi
hlytu að gilda ofar reglugerð-
um, og ættu þvi að ganga yfir
mál Gervasonis, þar sem hann
neitar aö gegna herskyldu.
Mannréttindasamtökin, Am-
nesty International hafa gefið út
þá yfirlýsingu, að þau myndu
taka Frakkann Patrick Gerva-
soni að sér sem samviskufanga,
yrði hann fangelsaður fyrir aö
neita að gegna herþjónustu.
Aðalstöðvarnar I London hafa
athugað mál Gervasoni og kom-
ist að ofangreindri niðurstöðu.
Samtökin telja það fullreynt að
neitun Gervasonis er byggð á
samviskuástæðum.
Stjórn tslandsdeildar Am-
nesty hefur bent á að ef menn
neiti að gegna herþjtínustu i
Frakklandi, þá er önnur þjon-
usta er kemur i hennar stað bein
refsing, þar sem hún er mun
lengri en herþjónustutiminn.
Einnig er aðeins gefinn 30 daga
frestur á þvi að sækja um
undanþágu frá herþjónustu eftir
að kvaðning hefur borist.
Islandsdeildin fór á fund
Gunnars Thoroddsen og óskaði
eftir. að Gervasoni færi ekki úr
landi nema tryggt væri að hann
lenti ekki I fangelsi vegna skoð-
ana sinna. Gunnar gegnir starfi
dómsmálaráðherra i fjarveru
Friðjöns Þórðarsonar. Gunnar
Thoroddsenmunhafa tekið vel i
þeirra mál, enda virðist svo
vera, samkvæmt athugun
dómsmálaráöuneytis, að fari
Gervasoni til Danmerkur, verði
hann ekki framseldur til Frakk-
lands.
— AS.
Frá landsfundi Alþýðubandalagsins I morgun:
REKSTRARHALLI
ÞJÓÐVIUANS
50 MILUÓNIR
Halli á rekstri Þjóðviljans á
siðasta ári nam um 50 milljónum
krona, en heildar-rekstrar-
kostnaður var um 520 milljónir
króna.
Þetta kom fram á landsfundi
Alþýðubandalagsins i morgun, en
hann var settur sfðdegis i gær að
Hótel Loftleiðum.
Lúðvik Jósepsson, fráfarandi
formaður Alþýðubandalagsins,
hélt ræðu i upphafi landsfundar-
ins, þar sem hann sagöi meðal
annars, að „gjörsamlega yrði
tekið fyrir það að lög yröu sett um
almennt kaup, nema með sam-
þykki launafólks sjálfs". Lúövik
Lúðvik Jósepsson formaður Al-
þýðubandalagsins flutti siðustu
formannsræðu sina á landsfund-
inum I gær. Fyrir framan borðið
má sjá Svavar Gestsson ábúðar-
mikinn á svip.en hann tekur við
formennskunni af Lúðvik nú um
helgina. Visismynd: BG
sagöi ennfremur, aö samkvæmt
stjórnarsáttmálanum ætti að
telja niður verðlag en ekki kaup.
Það væri því með öllu ástæðu-
laust fyrir verðlagsmálaráðherra
Framsóknarflokksins að lýsa
hrolli vegna 1. desember næst-
komandi, hann hlyti að vita hvaö
hann hefði samþykkt á siöustu
þremur mánuðum.
Meðal tillagna til ályktana sem
liggja fyrir landsfundinum, er
krafa um að Alþýöubandalagið
segi sig úr rikisstjórninni, ef af
framkvæmdum verður við smfði
ollubirgðastöðvar i Helguvik.
Þessi tillaga kemur frá kjör-
dæmisráði Alþýðubandalagsins i
Reykjaneskjördæmi.
A fundinum I gær var einnig
lögð fram fjárhagsáætlun Al-
þýðubandalagsins fyrir næsta ár
og eru niðurstöðutölur hennar
37.6 milljónir króna sem er tæp-
lega tiu milljón króna hækkun frá
yfirstandandi ári. P.M.
Starfsmenn Fisklðjunnar I Keflavfk mótmæia of mlklu vinnuálagl:
„Mönnum þeytt til og frá
innan fyrirtækis og utan
PP
Litið þokaði á fundinum sem
sáttasemjari hélt með aðilum
Fiskiðjudeilunnar i gær. Stóð
fundurinn I tvo tima og hefur
annar verið boðaður i dag kl.
3.30
Ýmis atriði, auk óánægju
starfsmanna með aöbúnað á
vinnustað, valda þessari deilu.
Rikir almenn óánægja með
vinnuálag á starfsmönnum og
sagöi einn þeirra i viðtali við
Visi i gær, aö ástandið I þeim
efnum væri hreint óviðunandi.
Fyrir tveim árum hefði
starfsmönnum veriö fækkað,
þrátt fyrir aö afköst fyrirtækis-
ins ykjust, ef eitthvað væri.
Þannig þyrftu sömu mennirnir
að anna útskipun á mjöli og
löndun á Joönu, jafnvel hvoru
tveggja á sama tíma. „Það er
verið að þeyta mönnum til og
frá innan fyrirtækisins og utan
til þess að gera það sem þarf að
gera", sagði þessi starfsmaöur i
samtaiinu viö Visi.
Þá leggja starfsmenn fram
kröfu um, að starfsþjálfun veröi
metin, aö tilgreint veröi,
hvernig staðið skuli aö verki i
verksmiðjunni og aö fram náist
atriöi um vinnuvernd. Loks er
þess krafist aö atvinnurekendur
standi við ýmis atriði i
samningum, svo sem greiðslu á
orlofi.
1 Fiskiðjunni vinna nú 35
manns og hefur verkfall verið
boöaö frá og með næsta mánu-
degi.
—JSS