Vísir - 21.11.1980, Blaðsíða 1
Ólafur w. Stefánsson í dómsmálaráðuneyfinu um Gervasoni:
„Samkvæmt lögum Dana
má ekki framsella hann"
„Það eru skýr ákvæði I fram-
salslögum Dana um það að þeir
megi ekki framselja menn fyrir
brot á lögum um það sem er
kallað militære forbrydelser”,
sagði ólafur W. Stefánsson,
skrifstofustjóri i dómsmála-
ráðuneytinu, en hann hefur unn-
ið að skýrslu um mál franska
flóttamannsins Gervasoni.
Ólafur itrekaði að lög þessi
hlytu að gilda ofar reglugerð-
um, og ættu þvi að ganga yfir
mál Gervasonis, þar sem hann
neitar að gegna herskyldu.
Mannréttindasamtökin, Am-
nesty Intemational hafa gefið út
þá yfirlýsingu, að þau myndu
taka Frakkann Patrick Gerva-
soni að sér sem samviskufanga,
yrðí hann fangelsaður fyrir að
neita að gegna herþjónustu.
Aðalstöövamar i London hafa
athugað mál Gervasoni og kom-
ist að ofangreindri niðurstöðu.
Samtökin telja það fullreynt að
neitun Gervasonis er byggð á
samviskuástæðum.
Stjórn Islandsdeildar Am-
nesty hefur bent á að ef menn
neiti að gegna herþjónustu i
Frakklandi, þá er önnur þjón-
usta er kemur i hennar stað bein
refsing, þar sem hún er mun
lengri en herþjónustutiminn.
Einnig er aðeins gefinn 30 daga
frestur á þvi að sækja um
undanþágufrá herþjónustu eftir
að kvaðning hefur borist.
Islandsdeildin fór á fund
Gunnars Thoroddsen og óskaði
eftir að Gervasoni færi ekki úr
landi nema tryggt væri að hann
lenti ekki i fangelsi vegna skoð-
ana sinna. Gunnar gegnir starfi
dómsmálaráðherra i fjarveru
Friðjóns Þórðarsonar. Gunnar
Thoroddsen munhafa tekiö vel i
þeirra mál, enda viröist svo
vera, samkvæmt athugun
dómsmálaráðuneytis, að fari
Gervasoni til Danmerkur, verði
hann ekki framseldur til Frakk-
lands.
— AS.
Frá landsfundí Albýðubandalagsíns í morgun:
REKSTRARHALLI
ÞJÓDVILJANS
50 MILUÚNIR
Halli á rekstri Þjóðviljans á
siðasta ári nam um 50 milljónum
króna, en heildar-rekstrar-
kostnaður var um 520 milljónir
króna.
Þetta kom fram á landsfundi
Alþýðubandalagsins i morgun, en
hann var settur siðdegis i gær að
Hótel Loftleiðum.
Lúðvik Jósepsson. fráfarandi
formaður Alþýðubandalagsins,
hélt ræðu i upphafi landsfundar-
ins, þar sem hann sagði meðal
annars, að „gjörsamlega yrði
tekið fyrir það aö lög yröu sett um
almennt kaup, nema með sam-
þykki launafólks sjálfs”. Lúðvik
------------
Lúðvik Jósepsson formaður Al-
þýðubandatagsins flutti siðustu
formannsræðu sina á iandsfund-
inum I gær. Fyrir framan borðið
má sjá Svavar Gestsson ábúðar-
mikinn á svip.en hann tekur við
formennskunni af Lúðvik nú um
helgina. Visismynd: BG
sagði ennfremur, aö samkvæmt
stjórnarsáttmálanum ætti að
telja niður verðlag en ekki kaup.
Þaö væri þvi með öllu ástæðu-
laust fyrir verölagsmálaráðherra
Framsóknarflokksins að lýsa
hrolli vegna 1. desember næst-
komandi, hann hlyti að vita hvaö
hann hefði samþykkt á siðustu
þremur mánuðum.
Meðal tillagna til ályktana sem
liggja fyrir landsfundinum, er
krafa um að Alþýðubandalagiö
segi sig úr rikisstjórninni, ef af
framkvæmdum verður viö smiði
oliubirgöastöðvar i Helguvik.
Þessi tillaga kemur frá kjör-
dæmisráöi Alþýðubandalagsins i
Rey kj anesk jördæmi.
A fundinum í gær var einnig
lögö fram fjárhagsáætlun Al-
þýðubandalagsins fyrir næsta ár
og eru niðurstöðutölur hennar
37.6 milljónir króna sem er tæp-
lega tíu milljón króna hækkun frá
yfirstandandi ári. P.M.
Starfsmenn Fisklðjunnar í Keflavík mðtmæla ol miklu vlnnuálagl:
„Mðnnum beytt tii og frá
innan fyrirtækis og uian”
Litiö þokaði á fundinum sem
sáttasemjari hélt með aðilum
Fiskiðjudeilunnar i gær. Stóð
fundurinn i tvo tima og hefur
annar verið boðaður i dag kl.
3.30
Ýmis atriði, auk óánægju
starfsmanna með aðbúnað á
vinnustað, valda þessari deilu.
Rikir almenn óánægja með
vinnuálag á starfsmönnum og
sagði einn þeirra i viðtali við
VIsi i gær, að ástandið I þeim
efnum væri hreint óviðunandi.
Fyrir tveim árum hefði
starfsmönnum verið fækkað,
þrátt fyrir að afköst fyrirtækis-
ins ykjust, ef eitthvað væri.
Þannig þyrftu sömu mennirnir
að anna útskipun á mjöli og
löndun á Joðnu, jafnvel hvoru
tveggja á sama tima. „Það er
verið að þeyta mönnum til og
frá innan fyrirtækisins og utan
til þess að gera það sem þarf að
gera”, sagöi þessi starfsmaður i
samtalinu við Visi.
Þá leggja starfsmenn fram
kröfu um, aö starfsþjálfun veröi
metin, að tilgreint verði,
hvernig staðið skuli að verki i
verksmiðjunni og að fram náist
atriði um vinnuvernd. Loks er
þess krafist að atvinnurekendur
standi viö ýmis atriöi i
samningum, svo sem greiðslu á
orlofi.
I Fiskiðjunni vinna nú 35
manns og hefur verkfall verið
boðað frá og með næsta mánu-
degi.
—JSS
1