Vísir - 20.12.1980, Síða 15

Vísir - 20.12.1980, Síða 15
 vtsm Laugardagur 20. desember 1980 •* * | -í -s, I ~ | ÓLASTÓLL HINN NÝI Þar verði á ný aflstöð fyrir norðlenska kristni og menningu ;,Heim að Hólum" er orðtæki á Norðurlandi/ þeg- ar talað er um Hóla í Hjaltadal. Þetta sýnir kær- leika þann og virðingu/ sem enn í dag eru borin fyr- ir þessum aldna höfuðstað Norðlendinga. En hvað liður endurreisn Hólastaðar sem svo lengi hefur verið til umræðu? Forystumenn þjóöarinnar, bæði andlegir og veraldlegir,hafa talið það aðkallandi og nauðsyn- legt að Hólastóll yrði endurreistur hið fyrsta. Lof- orð hafa verið gef in og samþykktir gerðar. En ekki hefur málið náð fram að ganga enn sem komið er. Rætt hefur verið um það á málf undum og menn- ingarsamkomum, að endurreisa þyrfti báða hina fornu biskupsstóla á Hólum og í Skálholti. I þvi tilefni hafa báðir staðirnir verið byggðir upp svo að búsetuskilyrði eru þar fyrir hendi og í Skál- holti hefur þegar risið kristilegur skóli. Núverandi biskup Islands, herra Sigurbjörn Einarsson ,hefur hrundið málum þessum mikið áleiðis ásamt öðrum góðum mönnum. Nú, þegar þessi ágæti biskup telur sig innan skamms þurfa að láta af embætti, er kominn hinn hentugi timi til þess að skipta embættinu og láta nýja skipan fylgja í kjölfar hugsjónanna. , Sjö alda saga Hólar i Hjaltadal uröu biskupssetur áriö 1106 er Jón helgi Ogmundsson tók biskups- dóm i hinu nýstofnaöa Hóla- stifti. Jón biskup helgi stofnaði á Hólum fyrsta skóla á Norður- landi, sem átti eftir að hafa ómetanlega þýðingu fyrir menntun og manndóm Norð- lendinga um sjö alda skeið. Nokkuð hafði verið óákveðið hvarbiskupssetur Norðlendinga ætti að vera, þar til Illugi prest- ur Bjarnason gaf höfuðbólið Hóla i Hjaltadal til biskupsset- urs. „Gerði hann það fyrir guðs sakir og nauðsyn heilagrar kirkju.” Var það mikil rausnar- gjöf. Voldug menningar- og trúar- alda reis á Hólum strax i tið hins fyrsta biskups. Jóni er svo lýst að hann hafi verið afbragð ann- arra manna að glæsileik, gáfum og skörungsskap. Minning hans er fögur og þjóðinni dýrmæt, sem annarra afburðamanna hennar. Auk þess að koma skipulagi á kirkjumál Norðlend- inga og stofnun skólans á Hól- um, stofnaði hann hið fyrsta klaustur á landinu — hið fræga Þingeyraklaustur. Þar er talið að mörg hin dýrmætustu fornrit okkar hafi verið rituð. Klaustrið varð voldug stofnun og áhrifa- mikið menntasetur. Margir skörungar Margir framúrskarandi skörungar og mikilmenni urðu biskupar á hinum háa Hólastóli. Hvaða íslendingur man ekki dýrling tslendinga og þjóðhetju, Jón Arason biskup? Hann var einn af glæsilegustu persónum tslandssögunnar og einn ástsæl- asti sonur þjóöarinnar. Barátta hans fyrir sjálfstæði þjóðarinn- ar og heilög herferð hans i þágu kirkjunnar gleymast ekki. 7. nóv. 1550 er Jón og synir hans voru af lifi teknir, ,,án dóms og laga” er einn dimmasti dagur sögunnar. Hver minnist ekki tjúnvetningsins fræga Guð- brands biskups Þorlákssonar, er sat á biskupsstóli i 56 ár? Hann var afreksmaður að stjórnsemi og hyggindum og bókaútgáfa hans er eitthvert mesta framlag til islenskrar menningar fyrr og siðar. Talið er að hann hafi látið prenta milli 90 og 100 bækur. Guðbrands- biblia, sem prentuð var 1584, er fegursta bók, sem ennþá hefur verið gefin út á tslandi. I henni er þýðing biskupssonarins frá Hólum,Odds Gottskálkssonar,á Nýja testamentinu. Þetta brautryðjandaverk Odds hefur haft ómetanlegt gildi fyrir þjóð- ina og guðs kristni i landinu fram á vora daga. Söngmennt tslendinga varð fyrir vakningu frá áhrifum Hólastóls, allt frá dögum hins mikla söngmanns Jóns helga ögmundssonar. Arið 1594, i biskupstið Guðbrands Þorláks- sonar.var gefin út hin fyrsta bók islensk, sem nótur eru prentað- ar i. Það var messusöngsbókin Graduale („grallarinn”). Talið er að kaþólskir biskupar á Hólum hafi verið 23 að tölu og lútherskir biskupar 13, eða alls 36. Siðasti Hólabiskupinn var Sigurður Stefánsson frá Höskuldsstöðum á Skagaströnd. Hann andaðist 1798. Kirkja og turn 1 biskupstið Gisla Magnússon- ar (1755-1779) var Hóladóm- kirkja byggb. Bygging hennar stóð i 6 ár (1757-1763). Hún er elsta steinkirkja á landinu og með elstu byggingum, sem enn eru viö lýöi. Kirkjan á Hólum er eitt fegursta guðshús landsins og þjóðargersemi. Hún hefur að geyma marga forna muni og er hin mikla altaristafla frá dögum Jóns Arasonar mesti dýrgripur- inn. Þar „Glóir á gullið hreina, grafnar brikur og steina.” Hólafélag var stofnað fyrir nokkrum árum. A starfsskrá þess er frami og upphefð Hóla. Hólanefnd, sem starfaði áður, gekkst fyrir þvi að reistur var 27 m hár klukknaturn til minning- ar um Jón biskup Arason og syni hans. A fjögur hundruð ára ártið þeirra feðga var hann vigður að viðstöddum helstu forustumönnum kirkjunnar i landinu og fulltrúum hins ver- aldlega valds, ásamt miklu fjöl- menni viðsvegar að af landinu. Er hann hin mesta staðarprýði. Miöstöð menntunar Menntasetrið Hólar i Hjalta- dal átti sér fræga sögu og við það eru tengd nöfn margra af- burða kennara og lærdóms- manna. Biskuparnir á Hólum voru margir mikilhæfir höfð- ingjar og lærdómsmenn, sem voru eins og ókrýndir konungar Norð1endinga. Skóla- meistararnir á Hólum urðu margir frægir fyrir kunnáttu og Þ. Ragnar Jónasson á Siglufirði skrifar í greininni f jallar Ragnar um þörfina á endurreisn Hólastóls í Hjaltadal. Þar segir hann að nýr biskupsstóll þurfi að risa og geti hann orðið nýr af I- gjafi fyrir norðlenska kristni og menningu með þeim áhrifum til góðs, sem frá Hólum hafi jafn- an stafað. skörungsskap. Má þar til nefna Arngrim lærða Jónsson, Þorleif prófast Skaftason, Halfdán Einarsson og Pál Hjálmarsson. Á Hólum var miðstöð menntun- ar Norðlendinga, þar réði kynngi hins talaða orðs og seið- magn helgra tóna, þar voru ráð ráðin og örlög ákveðin. Þangað fóru ungir og framgjarnir menn til þess að læra og verða foringj- ar þjóðarinnar i veraldlegum og andlegum málum. Þar var lagður grundvöllurinn að mál- hreinsun og endurbættri staf- setningu, sem borið hefur uppi hina dýrmætu feðratungu okk- ar. Þrautin þunga En hin mikla kristna menn- ingarmiðstöð Norðlendinga — Hólar i Hjaltadal — var lögð niður um aldamótin 1800. 1 einu vetfangi var Norðurland svipt latinuskóla og biskupsstóli. Aldrei hafa Norðlendingar orðið fyrir meira áfalli en þá, né þyngri þraut. Bestu menn Norð- lendinga, með sjálfan amt- manninn Stefán Þórarinsson i fararbroddi börðust hetjulegri baráttu gegn niðurlægingu þessari, en fengu þessu óláni ekki forðað. Það tók Norðlendinga 127 ár að fá endurheimtan latinuskóla sinn — að Akureyri. Skagfirðingar og Húnvetning- ar keyptu Hóla i Hjaltadal 1881 og stofnuöu þar bændaskóla árið 1882, sem siðan hefur starfað þar við mikinn orðstir, undir stjórn gdðra manna. „Og sist má þjóð i heimsins ystu höfum slá hendi á móti nýjum sumargjöfum. Til nýrra dáða knýr það margan mest að minnast þess, sem fortið gerði best.” (D.St.). Nýr biskupsstóll Minningin um fornt menn- ingarsetur og höfuðból kristinn- ar trúar á Norðurlandi, er það fræ, sem nýr meiður skal upp af vaxa. Norðlendingar hafa löngum verið taldir djarfir menn og stoltir. Þeir höfðu fyrrum biskup sinn á Hólum, sem skap- aði þeim reisn og traust, og þeir höfðu að nokkru leyti lögsögu út af fyrir sig. Þeir vilja engir ætt- lerar verða. A Hólum skal nýr biskupsstóll risa.Þar þarf nýja aflstöð fyrir norðlenska kristni og menningu, með þeim miklu áhrifurr til góðs, sem þaðan hafa jafnan stafað. Það er metnaðarmál norð- lenskra manna, að Hólar i Hjaltadal verði á ný hið mikla höfuðból kristni og mennta. Menning þjóðarinnar og islensk þjóðrækni krefjast þess, að endurreistur verði á Hólum biskupsstóll Norðlendinga. Norðlendingar krefjast réttar sins. Þeir hafa löngum verið málafylgjumenn góðir og sjálf- stæð hugsun og frelsisþrá hefur einkennt þá öðrum mönnum fremur. Þetta er eitt af sjálf- stæðismálum Norðlendinga. „Heim að Hólum” var orðtak, sem átti hljómgrunn i huga Norðlfendinga, i lifi þeirra og venjum. Það var sagt með lotn- ingu fyrir hinum mikla stað og þeim minningum, sem við hann eru tengdar. Tuttugustu aldar menn segja þetta lika. Svo rik itök eiga Hól- ar i Norðlendingum. Ásókn hins horfna kallar til okkar á hinum helga stað. Hlutverk okkar er að reisa nýjan Hólastól svo allir islensk- ir menn geti sótt traust sitt „heim að Hólum”. — ÞRJ.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.