Morgunblaðið - 16.12.2003, Page 2

Morgunblaðið - 16.12.2003, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN 1 2 0 3 trufla ekki. Einu sinni las ég mikið af glæpareyfurum en ég fékk alveg upp í kok og þoli ekki glæpasögur. Nema bækurnar eftir Arnald. Ég les þær en það er af því hann er svo góður höf- undur og nær að búa til svo sterkt andrúmsloft og ég umber söguþráð- inn.“ Ætlaði ekki að skrifa meira – Það eru sjö ár síðan þú sendir frá þér Íslandsförina. Er Náðarkraftur af- rakstur yfirlegu og umskrifta í sjö ár? „Nei, síður en svo. Ég skrifaði ekki neitt árum saman eftir að Íslands- förin kom út.“ – Hvers vegna? „Mér fannst ég ekki hafa neitt að segja við samtíma minn. Ég fann mig ekki í tímanum. Þetta voru tímar sem hentuðu öðrum höfundum betur en mér. Ég vil hafa eitthvað að segja. Ég vil ekki kreista út úr mér bók bara til að vera með bók. Að skrifa skáldsögu er ekki eins og að vinna í uppmæl- ingu.“ – Er það tilviljun að fjölskyldan býr í Karfavoginum? Götunni sem þú ert sjálfur alinn upp í. „Tja, það er nú það. Lengi vel var hús fjölskyldunnar í Hlíðunum og svo flutti ég það inn í Smáíbúðahverfi, þar sem þetta hús hefði sómt sér vel. Einn góðan veðurdag færði ég svo húsið og alla íbúa þess inn í Karfavog. Þetta er nú það skemmtilega við að skrifa skáldsögu. Maður getur ráðsk- ast með fólk og fasteignir. Þetta hef- ur í sjálfu sér enga merkingu nema Karfavogurinn var að vísu einu sinni geysileg kommagata, þar voru í mínu ungdæmi bornir út fleiri Þjóðviljar miðað við íbúafjölda en í nokkurri annarri götu í Reykjavík. Svo hæfa Vogarnir svona fólki mjög vel. Ég orða það þannig í bókinni að Vogarnir hættu að vera úthverfi en þeir urðu aldrei innhverfi. Svona eins og vinstrimenn.“ – Þetta er ekki fyrsta skipti sem Vogarnir verða bakgrunnur skáld- sögu. „Umræðan um að ekki mætti skrifa bernskuminningar sínar úr Vogunum fannst mér svo óbærilega vitlaus að ég er að hugsa um að láta allar þær sögur sem ég á eftir að skrifa gerast þar. Ég hef einhverja tilfinningu fyrir hverfinu sem ég á eftir að skila. En fólk þarf samt að átta sig á því að þetta er skáldsaga, allt skáldað. Staðsetning sögunnar í Vogunum er ekki lykill að fyrir- myndum persónanna. Þetta er skáld- saga um hugmyndir og hvernig hug- myndir birtast í fólki en ekki leyni- saga um Mumma og Jónu á númer þrettán eða eitthvað annað fólk sem uppi hefur verið. Ég þykist svo sem vita að það þýði ekkert fyrir mig að segja þetta því Íslendingar líta á allar skáldsögur sem dulbúnar ævisögur – en svona er þetta nú samt: Náðar- kraftur er ekki um fólk sem var til, heldur um fólk sem gæti hafa verið til.“  Mál og menning hefur gefið út skáld- söguna Náðarkraft eftir Guðmund Andra Thorsson. MÆLSKUMENN og ræðusnilling- ar hafa löngum notið virðingar í mann- heimum. Á miðöldum var mælskulist (eða mælskufræði) talin til hinna sjö frjálsu lista sem kenndar voru í klaust- ur- og dómskólum um alla Evrópu og Rómverjar hinir fornu höfðu mælsku- list í hávegum. Á síðari öldum hefur vegur þessarar fornu listgreinar dalað nokkuð, ef til vill vegna útbreiðslu prentaðs máls og síðan útvarps og sjónvarps. Þetta kann að hljóma mót- sagnakennt, en mælska er hið sama og munnræpa. Mikil mælskumaður er sá sem segir það sem segja þarf, þegar það á við og á þann hátt að eftir er tek- ið. Orð hans hafa áhrif á áheyrendur, festast þeim í minni og stundum hrífur mikill mælskumaður fólk, jafnvel heilar þjóð- ir, með sér. Skiptir þá miklu máli hvernig hlutir eru sagðir en einnig rödd og fas ræðumanns. Af fræg- um ræðu- og mælsku- mönnum síðari tíma má nefna Sir Winston Churchill. Í samanburði við hann bliknuðu margir helstu stjórn- málamenn veraldar, urðu að hálfgerðum blaðurskjóðum. Churc- hill var hins vegar ekki einn þeirra sem tóku til máls við hvert tækifæri. Þessar hugleiðingar sóttu að mér þegar ég sat og las bókina, sem hér er til umfjöllunar. Í henni er mikið efni og fróðlegt, margar skemmtilegar og hnyttnar athugasemdir, ræðubrot og tilsvör, en ósköp lítið um eiginlega mælsku. Það kann að stafa af ein- hverju leyti af því að list mælsku- manna kemst ekki alltaf til skila á prenti og kannski hefur ekki verið svo mikið um mælsku- menn á Alþingi Íslend- inga síðustu áratugina þótt margir hafi talað mikið. Bókin Með leyfi for- seta hefur að geyma eins konar úrval úr ræðum þingmanna, eða öllu held- ur Alþingistíðindum frá árunum 1944–2000. Mjög misjafnt er hve mikið er haft eftir einstökum þing- mönnum og ýmsir þeir er sátu lengi á þingi á þessum tíma kom- ast ekki á blað. Við því er auðvitað ekk- ert að segja en vandasamt hlýtur að vera að velja efni í svona bók og verður líklega aldrei gert svo öllum líki. Margt er gagnlegt við þessa bók en helsti gallinn við hana er sá, að hún verður varla lesin nema fólk hafi ann- aðhvort næsta óbrigðult minni og hafi fylgst náið með þingsögunni, eða hafi gott uppflettirit um sögu Íslands á 20. öld við höndina. Bókinni er skipt í kafla eftir þingum og síðan birt ræðu- brot eða -bútar frá hverju þingi fyrir sig. Ræðumanns er vitaskuld alltaf getið og listabókstafs (sem segir þó ekki alltaf mikið) og á eftir hverju ræðubroti segir í mjög stuttu máli hvenær viðkomandi orð hafi fallið og af hvaða tilefni. Þessar skýringar hefðu þurft að vera ýtarlegri, enda hætt við að lesendur eigi oft erfitt með að átta sig á samhenginu. Nútím- inn er fljótur að gleyma og þingmenn og afstaða þeirra gleymist nánast jafnskjótt og þeir hverfa úr sviðsljós- inu, ef ekki fyrr. Af þeim sökum er hætt við að fólk sem enn hefur ekki náð miðjum aldri eigi t.a.m. erfitt með að skilja hvers vegna Einar Olgeirs- son var svona mikið á móti hernum og NATO eða hvers vegna Pétur Otte- sen var svo ákafur í landhelgismálum. Og hverjir voru þeir? Mörg fleiri slík dæmi mætti nefna. Mælskumenn og þrasarar BÆKUR Ræðubrot MEÐ LEYFI FORSETA Hugsjónir, hnyttni, tíðarandi. Leifur Hauksson valdi efnið. Útgefandi: Al- menna bókafélagið 2003, Reykjavík. 526 bls. Jón Þ. Þór Leifur Hauksson FRAMTÍÐ handan hafs er í meg- indráttum cand.mag.-ritgerð Helga Skúla Kjartanssonar frá árinu 1976. En það eru fleiri sem koma að verk- inu, því Steinþór Heiðarsson sagn- fræðinemi á MA-stigi við Háskóla Ís- lands bjó bókina til prentunar og það er Sagnfræðistofnun Háskóla Ís- lands sem gefur út, undir ritstjórn Gunnars Karlssonar. Steinþór telst einnig meðhöfundur Helga Skúla að bókinni, því saman endurunnu þeir tölfræðihluta ritgerðarinnar. Sú end- urskoðun var byggð á Vesturfara- skrá Júníusar Kristinssonar frá árinu 1983, þar sem vönduð heimild- arvinna liggur að baki lista yfir Ís- lendinga sem sigldu vestur um haf á tímabilinu. Steinþór og Helgi Skúli hafa útbúið 19 töflur yfir fjölda vest- urfara eftir árum, aldursskiptingu hópsins, flokkun eftir starfi og stöðu, siglingar til Íslands og fleiri atriði sem máli skipta fyrir sögu og sam- hengi þessa mestu mannflutninga Ís- landssögunnar eftir landnámið sjálft. Það er gagnlegt fyrir sagnfræðinga og fróðlegt fyrir aðra áhugamenn um Ameríkuferðir Íslendinga að geta nú nálgast þessar tölur á því formi sem þarna er að finna. Þetta er í þremur af níu köflum bókarinnar, en kafli sem fjallar um heimildir er einnig endurunninn að miklu leyti. Þá eru enn ótaldir hinir fimm kafl- arnir sem reifa sögu vesturferða, bæði í alþjóðlegu og íslensku samhengi og velt er upp spurningum um orsakir og afleiðingar. Þeir kaflar eru lítt endur- unnir. Í heimildaskránni taldist mér að 12 heimildir væru yngri en frá 1976. Þar af eru fjórar greinar eftir Helga Skúla, en hinar eru flestar töl- og lýð- fræðilegs eðlis og tilheyra því töl- fræðihlutanum og er Vesturfaraskrá Júníusar þar meðtalin. Ein þeirra er reyndar talin tvisvar og fækkar því nýjum heimildum niður í 11. Af þeim eru fimm yngri en frá 1990. Helgi Skúli segir í formálanum: „Á háskólaritgerð, sem farin er að halla í þrítugt, hljóta ellimörkin að vera nokkuð tilfinnanleg, ekki síst í því að þar er talað framhjá heilli kynslóð fræðirita, en umræðu haldið uppi við eldri höfunda um sjónarmið sem síðan hafa breyst.“ (10) Þetta má til sanns vegar færa, því rit sagnfræðings er ekki annað en innskot í alda- langt samtal um heim- ildir sem breytast lítið eða ekki, en hvert inn- legg ber keim af þeim tíðaranda og þeirri samræðu sem á sér stað innan greinarinn- ar og í skyldum grein- um um þær mundir. Til þess að sagnfræðibæk- ur séu gefnar út löngu eftir að þær eru skrifaðar þurfa þær oftast að hafa sannað að þær standi enn fyrir sínu þrátt fyrir þetta. Þess vegna nægir ekki að hafa fyrirvara á ellimörkum til þess að uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir fræðilegri útgáfu. Því er óhjákvæmilegt að spyrja hvað hafi ráðið því að Sagnfræði- stofnun ákvað að gefa út svo gamla rannsókn í ritröð fræðirita, en frá því er ekki sagt. Fyrst sú leið var farin að endurskoða ekki alla bókina, hefði verið nauðsynlegt að hafa fræðilegan formála þar sem gerð væri skýr grein fyrir stöðu rannsóknarinnar í samhengi fræðaumhverfi samtím- ans. Ef til vill mætti slaka á þeim kröfum ef útgáfan væri hjá einhverju almennu bókafélagi, en jafnvel þá græfi formálaleysið undan trausti lesandans, því hann getur engan veg- inn verið viss um hvað hann hefur í höndunum nema lesa sér mikið til annarstaðar. Það er ekki aðeins að fjölmargt hafi bæst við vesturferða- rannsóknir Íslendinga á síðastliðn- um árum, eins og talið er í formál- anum, heldur hafa slíkar rannsóknir einnig blómstrað í öðrum löndum undanfarið og fræðileg umræða hef- ur tekið stakkaskiptum ef litið er á málin í stærra samhengi, bæði í fé- lagssögunni og almennt í vísinda- heiminum. Heimildaskráin er kapítuli út af fyrir sig. Á einum stað er heimild tví- tekin, eins og áður var getið, og furðulegt hlýtur að teljast að notast sé við tvær leiðir til að skrá ártöl í jafn stuttri skrá og samt er í því ósamræmi. Kommur vantar sum- staðar, svigi lokast óforvarendis og stafabil eru stundum tvö og stundum eitt. Í einni færslu taldi ég tíu villur! Það hvarflar að manni að óvart hafi gamalt vinnueintak lent í útgáfu. Hvar var prófarkalesarinn? Það kann að vera að sumir kunni að telja svona athugasemdir smámunasemi, en það er nú einu sinni hún sem er stolt og leiðarljós sagnfræðinnar. Framtíð handan hafs er tvískipt bók. Hluti hennar stendur fyrir sínu sem sagnfræðiútgáfa á 21. öldinni, en hinn hlutinn er heimild um vandaða aðferðafræði og umræður eins og gerðist í byrjun síðasta fjórðungs 20. aldar. Hvor hlutinn um sig er áhuga- verður á sinn hátt, en gildi hennar hefði aukist til muna ef fræðilegur formáli hefði fylgt. Vesturfræði – nýtt og bætt SAGNFRÆÐI Framtíð handan hafs. Vesturfarir frá Íslandi 1870–1914 Helgi Skúli Kjartansson og Steinþór Heið- arsson Studia historica, ritstjóri Gunnar Karls- son, 176 bls. Útgefandi Sagn- fræðistofnun og Háskólaútgáfan 2003 Lára Magnúsardóttir Helgi Skúli Kjartansson Steinþór Heiðarsson ÉG VEIT af hverju trén eru með lauf og sitthvað fleira um plöntur nefnist fræðibók sem þýdd hefur verið á íslensku. Mun hún vera ein úr flokki slíkra bóka sem gefnar hafa verið út undanfarin ár og ætlað er að koma til móts við fróðleiksfúsa unga lesendur. Fá þeir enda að vita hvað plöntur eru, hvar þær vaxa og hvert eðli þeirra er, svo dæmi séu tekin af fyrstu síðunum, en á hverri opnu eru 2-4 spurningar ásamt svörum, stutt- um fróðleiksmolum og góðum mynd- skreytingum. Spurt er hvaða blóm lykti verst, hvaða plöntu fylgi einka- sundlaug, hvaða planta vaxi hraðast, hvaða plöntur séu elstar, af hverju tré séu með þyrna og svo framvegis. En þeir sem hafa gleymt af hverju trén fella laufin á haustin og annarri grundvallarvitneskju úr líffræði verða líka margs vísari. Bókin hentar bæði börnum sem farin eru að lesa og þeim sem yngri eru og spá mikið í lífið og tilveruna. Textinn er léttur og vel unninn. Trén eru með lauf er í stuttu máli sagt fræðandi og skemmtileg lesning fyrir börn og fullorðna. Fræðsla fyrir stóra og smáa BÖRN Trén eru með lauf ANDREW CHARMAN 32 bls. Þýðing Sigrún Á. Eiríksdóttir. Æskan 2003 Helga K. Einarsdóttir Víkingslækj- arætt VIII bindi er komið út. „Nú er enn fram haldið út- gáfu þessa merka og mikla ætt- fræðiverks sem hófst að nýju á síðast- liðnu ári eftir nokkurt hlé. Ættin er kennd við Vík- ingslæk í Rangárvallasýslu og er út- gáfan núna byggð á fyrri útgáfum Péturs Zophaníassonar með mikl- um viðbótum. Í þessu bindi er 3. hluti h-liðar ættarinnar, niðjar Stefáns Bjarna- sonar, í þessari lotu niðjar Guð- mundar Brynjólfssonar á Keldum og fyrstu konu hans, Ingiríðar Árna- dóttur,“ segir í fréttatilkynningu frá útgefanda. Útgefandi er Skjaldborg ehf. Bókin er 333 bls. Verð: 5.480 kr. Ættfræði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.