Vísir - 03.02.1981, Side 1

Vísir - 03.02.1981, Side 1
Keppa við bestu ðku- Póraheims Bræðurnir Ómar og Jón Ragn- arssynir héldu utan ineð Flug- leiðaþotu í morgun til að taka þátt i alþjóðlegri rall-keppni erlendis, fyrstir islendinga. Keppnin er haldin i Sviþjóð og nefnist Swedish International. og er eitt af meiri háttarröllum, sem haldin eru og taka allir helstu rall-öku- þórar heims þátt í því. Ómar og Jón munu undirbúa sig og læra keppnisleiðina, sem er 1350 kilómetra löng, þar til rallið hefst 13. febrúar. Þeir bræður voru nokkuð spenntir, er þeir lögðu af stað i morgun, en þreyttir. Til dæmis svaf Ómar ekkert i nótt. Hann var að vinna við undirbúning, vinnu, sem hann tafðist frá vegna elds- umbrotanna i Gjástykki. Sagði Ómar, að þetta væri i fimmta skipti, sem eldsumbrot hæfust, þegar hann væri að fara i rall- keppni. —ATA Þriöjudagur 3. febrúar 1981, 27. tbl. 71. arg. Bensínkaupin skýrast Rannsókn Kötlufelismálsins er haldið áfram, og að sögn Þóris Oddssonar, vararannsóknarlög- reglustjóra, telur lögreglan sig nú hafa vissu fyrir þvi, hvar og hve- nær bensinið var keypt, sem not- að var til voðaverksins. Eins og Visir skýrði frá i gær hafði rannsóknarlögreglan spurst fyrir um það hjá leigubilstjórum, hvort þeir hefðu skömmu fyrir at- burðinn ekið með konuna á bensinstöð og siðan til heimilis hennar með bensinbrúsa. —AS Allt tast í uærkvdld Litiðgekk i samningaviðræðum Vinnumálanefndar rikisins og samninganefndar starfsmanna rikisverksmiðjanna i gærkvöldi. Eiga samningaaðilar eftir að ganga frá nokkrum atriðum varðandi heildarsamningsdrögin og héldu báðir fast við sinar kröf- ur i þeim efnum. Var i morgun óljóst, hvaða stefnu málin kynnu að taka á fundinum, sem boðaður hafði verið kl. hálf ellefu i dag. —JSS Jón og Ómar Ragnarssynir ásamt Renault-bflnum sinum um borð í Flugleiðaþotunni i morgun. Visismynd: Ólafur Guðmundsson. Tllraunlr með nvja pakkningu hjá SH: „STÆKKUÐ ÚTFÆRSLA fl GÖMLU PAKKNINGUNNI” „Fimm punda pakkningin er áratugagömul og hefur dugað vel, en við verðum að fyIgja þróuninni og erum að reyna að þróa upp nýja pakkningu sem segja má að sé stækkuð útfærsla á þeirri gömlu”, sagði Markús Waage deildarstjóri Eftirlitsdeildar Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- annai samtali við Visi i morgun. Að undanförnu hafa menn frá SH unnið að þvi i húsakynnum Bæjarútgerðar Reykjavikur að gera tilraunir með hinar nýju pakkningar. Að sögn Markúsar Waage er verið að leita eftir hag- kvæmum leiðum sem geta fallið vel að vinnslunni án þess að vera of dýrar, en nokkuð ör þróun hef- ur verið i þessum málum i Bandarikjunum að undanförnu. Heyrst hefur að ástæðan fyrir þessum tilraunum SH sé að Kan- adamenn hafi boðið mun hag- kvæmari pakkningar á Banda- rikjamarkaði og hafi forráða- menn SH nú hafið tilraunir til að vera með i þeirri þróun en taliö er að þessi mál geti haft talsverð áhrif á sölumöguleika okkar i samkeppninni við Kanadamenn á Bandarikjamarkaðinum. gk—• Ráðherra hefnir harma sinna Úmar og Jón héldu utan í morgun: Pelsar úr mannshári BIS. 18 Reykjavík undir ráðstjórn BIS. 27 Annríki á útsðlum BIS. 14-15 Kona forsætis- ráðherra Noregs? Bls. 5 og RÍKISSTJÚRNIN RÆÐIR VAXTAMALIN: TILLÖGIIM SEBLA- BANKANS HAFNAÐI Rikisstjórnin ræddi tillögur Seðlabankans i vaxtamálum á fundi sinum i morgun, en Visir hefur eftir áreiðanlegum heimildum að þær verði ekki samþykktar óbreyttar. Helstu athugasemdirnar, sem gerðar hafa -verið i rikisstjórn- mm við þessar tillögur Seðla- bankans, varða það atriði, að allt niður i eins árs lán skuli vera verðtryggð. Ef svo stutt lán verða verðtryggð.hljóti það óhjákvæmilega að hafa áhrif til hækkunar vaxta á vixillánum og öðrum skammtimalánum, og slikt gengi þvert á stefnu rikis- stjórnarinnar. Óttast menn að bankarnir myndu hafa tilhneigingu til þess að verðtryggja svo gott sem öll útlán, en innan rikisstjórnarinn- ar eru menn þeirrar skoðunar að verðtryggðu lánin skuli ekki vera til skemmri tima en þriggja ára. Búist er við að rikisstjórnin taki ákvörðun i dag eða á morg- un um verðtryggingu á sex mánaða innlánsreikningum i samræmi við bráðabirgðalögin, en aðrir þættir i tillögum Seðla- bankans sem Visir greindi frá i gær, verði látnir biða. —P.M.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.