Vísir - 03.02.1981, Side 11

Vísir - 03.02.1981, Side 11
Þriöjudagur 3. febrúar 1981 Framtalseyðublöö eru borin til landsmanna þessa dagana. Leiðbeiningar um sKattaframtal: 100.000 bæklingum dreift með eyðublöðum ,,Ég hef ekki tiltækar heildar- tölur um kostnaðinn og get þvi ekki gefið neinar hugmyndir um hann. En það er ljóst að hann er lýgilega litill, bæði hvað varðar prentun og dreifingu, og má geta þess, að leiðbeiningunum var dreift með framtalseyðublöðun- um", sagði Kristján Ossur Jónas- son skrifstofustjóri hjá Rikis- skattstjóra, er Visir ræddi við hann um leiðbeiningabæklinga þá, sem aö þessu sinni var dreift með eyðublöðum til skattafram- tals. Voru prentuð um 100.000 ein- tök og þeim dreift á nánast hvert húshald. Fram til þessa hafa leiðbein- ingar um skattaframtal verið birtar i fjölmiðlum, en i ár voru þær prentaðar sérstaklega og dreift með framtalseyðublöðun- um. Aðspurður um, hvers vegna þessi hátturinn hefði verið hafður á nú, sagði Kristján, að það væri gert m.a. til að koma upplýsing- um beint til fólks. Væru þær hafðar i þvi formi, að hentugt væri að geyma þær og hafa til- tækar þegar kæmi að þvi að út- fylla framtalið. Þá gæti fólk geymt leiðbeiningarnar með sinu framtali og hugsanlega haft gagn af þeim, þegar álagning lægi fyrir. „Þótt ég vilji alls ekki lasta þá þjónustu sem fjölmiðlar hafa veitt, þá vona ég að þarna sé um enn betri þjónustu að ræða”, sagði Kristján. ,,Ég geri ráð fyrir að það hefði orðið ódýrara að greiða blöðunum fyrir birtingu, eins og áður var gert. En þá er eftir að meta hvort leiðbeiningarn ar komi ekki að betra gagni með þessu fyrirkomulagi”. — JSS Gleraugnamidstödin Laugavegi 5*Simar 20800*22702 Gleraugnadeildin Xiisturstra’li 211. — Simi llátitii k j VÍSIR r--------------------- 11 TALSVERT ATVINNU- í LEVSI A AKUREYRI A rætur að rekja til samdráttar í byggingariðnaði „Atvinnuleysið hér er talsvert meira nú, en verið hefur á sama tima á undanförnum árum”, sagði Heiðrekur Guðmundsson á Vinnumiðlunar- skrifstofu Akureyrar, i samtali við Visi. Svipaða sögu var að segja á Dal- vik, olaísfirði, Húsavik, Raufarhöfn og Þórshöfn, en á þeim stöðum má að nokkru rekja atvinnuleysið til gæftaleysis, sem ekki er óalgengt á þessum árstima eða bilana i togurum. 20. janúar voru 120 manns skráðir atvinnulausir á Akur- eyri, 98 karlar og 22 konur. Ber þar mest á verkamönnum úr byggingariðnaðinum, en einnig er um að ræða 17 vörubilstjóra, 15 verkakonur og 7 iðnaðar- menn svo einhverjir séu nefndir. Þá sagði Heiörekuj; að ljóst væri, að atvinnuleysið væri meira hjá iðnaðarmönnum en þessi taía gæfi til kynna, þvi margir þeirra heföu ekki bóta- rétt og létu þeir þvi ekki skrá sig. Er atvinnuleysiö mest hjá múrurum og máiurum, en einnig hjá smiöum. „Það sem er eítirtektarverð- ast núna, er að karlar eru mun fleiri en konur, en þaö hefur ekki verið óalgengt, aö konur hafi átt við timabundiö atvinnu- leysi á þessum árstima. Hér er nær eingöngu um verkamenn ur byggingariönaöinum aö ræöa, en hann heíur dregist mikið saman og risjótt tiöarfar hetur lika gert erfitt fyrir um uti- vinnu", sagði Heiörekur. A Dalvik voru 10 á atvinnu- leysisskrá, en þar hefur annar togarinn veriö bilaöur. 1 Olaís- firði er ekkert atvinnuleysi eins og er, en „aðeins” unnir 8 timar ifrystihúsunum. Eitthvað hefur borið á atvinnuleysi hjá bygg- ingariðnaðarmönnum, en þeir hafa þá íarið i fiskvinnu. A Rauíarhöfn voru 14 á atvinnu- leysisskrá og á Þórshöln hefur verið viöloðandi atvinnuleysi, eins og titt er þar á þessum árs- tima. Til aömynda voru þar 30 á skrá á mánudaginn, en færri i gær, þar sem bátar hafa róðið. Atvinnuástand var slæmt á Húsavik framan af mánuöinum, þar sem Fiskiöjusamlagiö var stopp. Þar er hafin vinna á ný, en samdráttur er i byggingum og atvinnuleysi af þeim sökum. Einnig hefur veriö atvinnuleysi hjásjómönnum á smærri bátun- um vegna gæltaleysis. Nýr Samúel á nœsta blaðsölustað

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.