Vísir - 03.02.1981, Side 14
Þriðjudagur 3. febrúar 1981
Þriðjudagur 3. febrúar 1981
VlSIR
ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR -
„Eins mikið að
gera og í
Ríkinu á
Þorlðksmessu’
?
Okkar landsfrægu —
okkar viðurkenndu —
okkar vinsæla — okkar
stórkostlega......!!
Setningar i þessum dúr hefur
mátt sjá á siðum dagblaðanna
að undanförnu, og hafa þær oft-
ar en ekki staðið i sambandi við
auglýsingar verslana á þvi
skemmtilega fyrirbrigði sem
nefnist ÚTSALA. bar er oftast
boðið upp á verulegan afslátt á
vörum og þeir eru margir sem
rjúka upp til handa og fóta og
gripa tækifærið.
Aðallega'hefur þetta átt við
fatnað fram til þessa, en nú eru
þess dæmi að útsölur séu hafnar
i skartgripaverslunum, bygg-
ingavöruverslunum og jafnvel i
verksmiðjum, en þá heitir fyrir-
brigðið vist verksmiðjuútsala
og þykir vist ekki eins fint.
Annars þótti það vist fremur -
„ófint” til skamms tima að
versla á útsölum, og það þýddi
til dæmis litið að bjóða ungling-
um upp á slikt hér áður fyrr.
,,Fólk á öllum aldri”
Verslað á bóndana!
Þá eru lika til fleiri afbrigði af
söluaðferðum verslana. Nefna
má rýmingasölur og bútasölur
sem dæmi og allt virðist þetta
hafa jafnmikið aðdráttarafl.-
1 gær brugðum við okkur i
nokkrar verslanir i höfuðborg-
inni þar sem boðið var upp á
vörur á útsölu, og var viðast
1 Karnabæ á Laugavegi hófst
útsala i gær, og þar hittum við
verslunarstjórann Jón Bjark-
lind.
„bað má segja aö allar þær
vörur sem við vorum með i
versluninni hér hafi farið á út-
söluna”, sagði Jón. ,,Við bjóð-
um afslátt sem er á bilinu
16—60%, og erum svo með
jakkafötá sérstöku tilboðsverði.
Við erum ekki með jakkaíötin á
útsölunni, þetta eru alveg ný föt,
en við gefum þó 15—20% af látt á
þeim”.
— Jón sagði að tilgangur út-
sölunnarhjá þeim væri aö rýma
til fyrir nýjum sumarfatnaði og
fólk fengi gott tækifæri til að
versla vandaðan fatnaö á hag
stæðu verði. „Það er liðin tið að
það sé eingöngu sett eitthvert
gamaltdraslá útsölurnar, þetta
eruallt nýlegar og góðar vörur”
sagði hann, þegar við spurðum
hann hvað þeir hefðu til sins
máls sem segðu að á útsölum
væri bara drasl.
Ólafla Ingvarsdóttir og Sæunn Grendal sem versluðu á eiginmennina
i Karnabæ.
I Karnabæ hittum við tvær
ungar konur sem voru á leiðinni
út úr versluninni meö poka i
höndum.
„Við förum á útsölu einu sinni
„Ég náði I nokkrar skræpóttar”. —
vanda.
Hermann Gunnarsson hress aO
þröngt á þingi og mikið skoðað,
þuklað og gramsað.
á ári, og förum þá hingað”
sögðu þær. „Hér fást góð herra-
föt á góðu verði eða á helmings-
afslætti og við erum báðar bún-
ar að kaupa buxur og skyrtu á
eiginmanninn” sögðu þær
Ólafia Ingvarsdóttir og Sæunn
Grendal.
,,Meira slegið af”
„stelpur sjáið þið þessar
peysur, þær eru alveg æði!!....
Þessi setning og fleiri i svip-
uöum dúr flugu um loftið i versl-
uninni 17 á Laugaveginum. Þar
hófst útsala i gær sem standa
mun út þessa viku, og þröngt
var á þingi. — Að sögn af-
greiðslustúlknanna er veittur
um 50% afsláttur á öllum vör-
um, ,,og það er alveg vitlaust að
gera” eins og þær orðuðu það.
„Já það kemur fyrir að ég fer
á útsölu” sagði Jóhanna Sumar-
liðadóttir sem var þar að versla
ásamt dóttur sinni. „Það er
„Nóg aö gera viö aö pakka inn”
sagöi Sæbjörn Valdimarsson i
Herrahúsinu.
Vísismyndir. E.P.S.
miklu betri vara á útsölunum i
dag en áður var, og meira slegið
af, og aðallega kaupi ég peysur
og skyrtur” sagði hún.
„Skræpótt”
,',Ég gleymdi alveg að kaupa
sumarfatnaðinn 1979 og hafði
þess vegna vaðið fyrir neðan
mig núna” sagði útvarps-
maðurinn kunni Hermann
Gunnarsson sem við hittum
klyfjaðan á leiðinni út úr einni
útsölunni, nánar tiltekið i Adam
á Laugavegi.
„Eg lagði áhersluna á að
kaupa skræptóttan fatnað núna,
það er siðasta hálmstráiö að
kaupa skræpótt þegar maður er
að reyna að halda i táninga-
aldurinn” sagði Hermann og
þeysti niður Laugaveginn,
sennilega i leit að fleiri útsölum.
„Miklu betri vara en áöur var á útsölum" sagöi Jóhanna Sumar-
liöadóttir.
„Eins og i Rikinu”.
„Viðerum sem betur fer bún-
ir með okkar útsölu að þessu
sinni” sagði Sæbjörn
Valdimarsson verslunarstjóri i
Herrabúðinni i Aðalstræti er við
rákumst þar inn.
„Útsölur hljóta að vera nokk-
uð gamalt fyrirbrigði hérlend-
is” sagði Sæbjörn. „Þær hafa
verið við lýði svo lengi sem ég
man eftir, sennilega hefur þetta
verið tekið upp á striðsárun-
um”.
„Það er búið að vera vitlaust
að gera, þetta var eins og i Rik-
inu á Þorláksmessu, maöur
hafði bara nóg aö gera við að
pakka innfólkiö afgreiddi sig að
mestu leyti sjálft. Þetta er sama
fólkið sem kemur til okkar ár
eftir ár á útsölurnar enda
afslátturinn ver'ulegur eða allt
upp i 60%.”
— Sæbjörn sagði að á útsölun-
um hjá þeim væru „restar”
hreinsaðar upp og litir og væri
þetta mjög góð vara. beir hefðu
tvær útsölur á ári, aðra i janúar
en hina um mánáðarmótin ág-
úst/september þvi þaö væri sá
timi sem leyfðar væru útsölur.
—gk.—.
Jón Bjarklind aöstoöar viöskiptavin i Karnabæ
UTSOLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSOLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR - ÚTSÖLUR