Vísir - 03.02.1981, Page 17
Þriðjudagur 3. febrúar 1981
VISLR
52. þáttur. Umsjón:
Hálfdán Helgason.
IIPPBOÐ F.F. OG
FÉLAG FRÍMERKJA-
SAFNARA A AKUREYRI
Fyrsta frimerkjauppboð ársins
hérlendis verður haldið laugar-
daginn 14. februar n.k. Fyrir þvi
gengst Félag frimerkjasafnara
og er þaö hið 34. i röðinni sam-
kvæmt upplýsingum á forsiðu
uppboðslistans. Eins og að venju
verður uppboðið haldið i ráð-
stefnusal Hótels Loftleiða og hefst
það kl. 13.30. Rétt er að vekja at-
hygli á meinlegri prentvillu á for-
siðu uppboðsskrárinnar þar sem
segir að uppboðið fari fram þann
7. febrúar. Þetta getur verið
bagaleg villa lesi menn ekki
áfram en neðar á siðunni kemur
réttilega fram að uppboðsefnið
verði til sýnis að Amtmannsstig 2,
laugardaginn 7. febrúar kl. 15—17
og á uppboðsstað þann 14. febrúar
kl. 11—13. Sem sagt: UPPBOÐIÐ
VERÐUR HALDIÐ LAUGAR-
DAGINN 14. FEB.
Á uppboðinu verða boðin upp
455 númer ásamt aukanúmeri og
eins og ávallt á uppboðum finna
þar flestir eitthvað við sitt hæfi.
Að undanskilinni áðurnefndri
prentvillu er skráin skýr og
aðgengileg fyrir bjóðendur, efni
flokkað og vel lýst. Sú nýung
verður viðhöfð að þessu sinni að
ekkert lágmarksverð er á
uppboðsnúmerum en listaverð er
til viðmiðunar og er það i
nýkrónum. Þeir sem ekki hafa
tök á að vera viðstaddir uppboðið
geta sent skrifleg boð og verða
þau að hafa borist uppboðsnefnd
Félags frimerkjasafnara, póst-
hólf 171, Reykjavlk fyrir fimmtu-
daginn 12. febrúar.
Frá Félagi frimerkjasafnara á
FÉLAQ FRlMERKJASAFNARA
PÓSTHÖLF171
REYKJAVÍK - iSLANO
FRÍMERKJAUPPBOÐ
ÍSLAND
n
i
rAdstefnusal hútels LOFTLEIÐA
LAUGARDAGINN Þ. 7. FEB. 1981
KL. 13.30
FF«
* AOAMTMANNSSrtQí
LAUQARDAQINN Þ. 7. FEBflÚAfl kl. 1S-17
O&A OPPBOOSSTAO Þ. 1«. FEBRÚAR
Forsfða uppboðsskrárinnar en
þar slæddist inn meinleg prent-
villa þar sem segir að uppboðið
fari fram 7. febrúar. Hið rétta er
að UPPBOÐIÐ VERÐUR
HALDIÐ LAUGARDAGINN 14.
FEBRCAR.
rf Iti W rm w /1TB\
ll 8HF3IÍH] apo.j 0 HUIfH rfmm m m m m uj
MENNTASKÓLINN Á AKUREYRI
Akureyri berast þær fréttir að
næstkomandi fimmtudag verði
aðalfundur félagsins haldinn. 1
félaginu munu vera rúmlega
fimmtiu félagar og er vonandi, já
reyndar mjög trúlegt, að þeir séu
samhentir i stuðningi við stjórn
félagsins, sem á undanförnum
árum hefur unnið mikið og gott
starfiþágu safnara ogfrimerkja-
söfnunar. Nýjasta framtak
hennar verður mjög liklega til
þess að afla félaginu enn fleiri
liðsmanna þvi nú i vetur hafa
birst i Akureyrarblaðinu Degi,
frimerkjaþættir i nafni félagsins.
Munu þeir birtast mánaðarlega
og vekja athygli á félaginu og
starfi þess. I þáttum þessum er
komiðviðavið og t.d. fjallaði einn
þeirra um jólamerki, sem mun
vera vinsælt söfnunarefni i félag-
inu, annar þáttur tók fyrir
sýninguna FRIM 80, sem haldin
var hér i Reykjavik og nokkrar
hugleiðingar um hana, sem
gaman væri að kikja nokkru
nánar á við tækifæri, og i þriðja
þættinum, sem mér hefur nýlega
borist er fjallað nokkuð um fri-
merkjaútgáfuna á siðastliðnu ári.
Til gamans læt ég fylgja með hér
nokkrar linur úr niðurlagi
þáttarins: „En eitt er það mynd-
efnið, sem orðið hefur útundan á
árinu. Arftaki Hólaskóla hins
forna — Menntaskólinn á Akur-
eyri —átti 100 ára afmæliá árinu.
Mynd hins stilhreina skólahúss
með aldamótareisn sina, myndi
ekki siður sóma sér á frimerki en
Landspitalinn og Alþingishúsið.
Hér með er skorað á póststjórn-
ina að gefa út á næsta ári írimerki
með mynd Menntaskólans á
Akureyri.” Rétt þykir mér að
taka það fram að þáttur þessi
mun hafa birst fyrir áramótin.
í.fiROYAR
FftR-OYAR
l OltO’i YR
FOROYAR'
Nýjar útgáfur
Frá Póst- og sima-
málastofnuninni hefur
borist eftirfarandi
fréttatilkynning um um
ný frimerki.
,,Fyrstu frímerki
ársins koma út i febrúar
og hafa að myndefni tvo
merka íslendinga, þá
Finn Magnússon
(1781—1847) og Magnús
Stephensen, dómstjóra
(1762—1833). Verðgildi
þeirra verða 170 og 190
aurar.
Næstu frimerki verða
hin svonefndu Evrópu-
frimerki, sem fyrir-
hugað er að komi út i
byrjun mái. Myndefni
þeirra verður að þessu
sinni sótt i Þjóðsögur.
Önnur frimerki, sem
ákvörðun hefur verið
tekin um, eru frimerki i
tilefni af Alþjóðaári fatl-
aðra, frimerki i tilefni af
1000 ára afmæli kristni-
boðs á íslandi og frí-
merki með jarðstöðina
„Skyggni” að myndefni,
en i haust verða liðin 75
ár frá þvi ísland komst i
símasamband við önnur
lönd.
í undirbúningi eru ennfremur
nokkur frimerki með islensk dýr
að myndefni og verður nánar til-
kynnt um þau síðar.”
Postverk Föroya hefur einnig
kynnt útgáfuáætlun sina fyrir
þetta ár og fyrstu merkin sem út
koma eru 4 talsins með myndum
frá Tinganes, sem mun vera elsti
bæjarhluti Þórshafnar. Merkin
eru teiknuð af færeyska lista-
manninum Ingálvur av Reyni og
grafin af engum öðrum en Slania
sjálfum. Siðan koma Evrópu-
merkin út i júnimánuði. Þau
verða tvö og myndefni þeirra
verður færeyski hringdansinn
sem sagöur er eiga uppruna sinn i
þeim hringdönsum sem dansaðir
voru viða i Evrópu á miðöidum.
Þessi merki verða einnig grafin
af Slania, en hann mun nú vera
ráðgjafi færeysku póststjórnar-
innar i' útgáfumálum. Er greini-
legt að póststjórnin leggur kapp á
að koma þvi á framfæri og sem
dæmi um það má nefna að með
útgáfuáætlun sinni sendi hún
nýútkominn bækling „Czeslaw
Slania, liv og viriíe”, sem er listi
yfir öll þau 500 frimerki, sem
hann hefur grafið. Nú, siðla árs,
eða I október mun koma út ný
seria en vegna væntanlegra
burðargjaldahækkana 1. október,
hefur ekkienn verið tekin ákvörð-
un um fjölda merkja eða verð-
gildi. Og að venju lýkur svo. út-
gáfuárinu i nóvember en þá koma
út jólamerkin og ársmappan
verður tiibúin en eins og allir vita
er hún orðin mjög vinsæl safn-
gripur.
Þann 26. febrúar gefa Sviar út
frimerki með mynd af fálka
(Falco rusticolus). Verðgildið er
mjög hátt, það hæsta sem um
geturá frimerki a.m.k. á Norður-
löndunum, eöa 50 kr. sænskar en
það jafngildir tæpum 70 kr.
islenskum. Ekki kæmi það mér á
óvart þótt þetta frimerki eigi eftir
að vera hátt skrifað i frimerkja-
verðlistum.
V-Þjóðverjar minna á
umhverfisvernd með frimerki,
sem þeir gefa út 12. feb. n.k. og er
verðgildið 60Pf.
17
I» • .• i/ L/ \
LramiOauRí!
Frímerki
Islensk og erlend,
notuð, ónotuð og umslög
Albúm, tangir, stækkunar -
gler o.fl. ávallt fyrirliggjandi.
Póstsendum.
FRIMEmOAMIÐITOÐIN
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 21A, PÓSTHÓLF 78, 121 RVK. SfMI 21170
Skrifstofuhúsnæði
á Akranesi óskast
Óskað er eftir að taka á leigu skrifstofu-
húsnæði fyrir skattstofu Vesturlandsum-
dæmis, Akranesi, frá 1. janúar 1982 að
telja. Æskileg stærð 300-500 ferm. Góð
bilastæði þurfa að fylgja. Aðeins gott og
hentugt húsnæði kemur til greina.
Tilboð óskast send undirrituðum.
Akranesi 20. janúar 1981
Skattstjóri Vesturlandsumdæmis
Jón Eiriksson
DLADDURÐADÖRK
óskast í
KEFLAVÍK
Upplýsingar í símo 0466