Vísir - 03.02.1981, Blaðsíða 23

Vísir - 03.02.1981, Blaðsíða 23
Þriðjudagur 3. febrúar 1981 23 VÍSLR ídag íkvold dánaríregnlr Davið Margrét Sigurðsson. Gunnarsdótt ir. Davið Sigurðsson lést 24. janúar sl. Hann fæddist 26. nóvember 1919 i Syðsta Hvammi á Vatnsnesi i V-Húnavatnssýslu. Foreldrar hans voru hjónin Margrét Hall- dórsdóttir, sem nú lifir son sinn i hárri elli. og Sigurður Daviðsson kaupmaður á Hvammstanga. Davið stundaði nám við Héraðs- skólann að Keykjum og lauk iþróttakennaraprófi frá iþrótta- skólanum á Laugarvatni vorið 1939. Næstu ár starfaði hann sem iþróttakennari á ýmsum stöðum á landinu, lengst af hjá Iþrótta- félagi Reykjavikur, auk þess sem hann var við framhaldsnám á Norðurlöndum. Davið varð fyrst- ur manna til að setja a stofn bif- reiðasölu með notaöa bila. Siðar stofnaði hann Fiat-umboðið Davið Sigurðsson hf. og stjórnaði þvi meðan heilsan leyfði. Davið var tvikvæntur. Fyrri kona hans var Jóna Ingimarsdóttir. Þau eignuðust þrjá syni. Eftirlifandi kona hans er Anna Einarsdóttir. Þau eignuðust fimm syni. en ólu upp syni Onnu af fyrra hjóna- bandi. Davið verður jarðsunginn i dag 3. febrúar frá Domkirkjunni kl. 13.30. Margrét Gunnarsdóttir lést 25. janúar sl. Hún fæddist 22. mars 1923 i Reykjavik. Foreldrar hennar voru Ingi- björg Einarsdóttir og Gunnar Brynjólfsson, Arið 1948 giftist Margrét Jóni Olafssyni forstjóra, en hann dó langt um aldur fram árið 1962. Margrét og Jón eignuð- ust þrjú börn. Ariö 1964 réðst Margrét til starfa hjá Rauða krossinum og allt til dauðadags veitti Margrét skrifstofu Reykja- vikurdeildarinnar aö Oldugötu 4 forstöðu. Margrét var jarðsungin i kyrrþey sl. föstudag. Guðný Steinþór Jakobsdóttir. Þórðarson. Guðný Jakobsdóttir lést 27. janú- ar sl. Hún fæddist 12. mars 1917 á Akureyri. Foreldrar hennar voru Kristin Sigurðardóttir og Jakob Karlsson.bóndi i Lundi. Guðný tók gagnfræðapróf við M.A. 1934 og fór til Englands tii náms 1938. Hún vann á skrifstoíu bæjarfóget- ans á Akureyri i nokkur ar. Árið 1941 giftist hún eftirlifandi manni sinum Jónasi Hallgrimssyni. Þau eignuðust þrjú börn. Guöny tók þátt i félagsmálum. Starfaði i Oddfellow-stúkunni Rebekku og i kvenfélaginu Framtiðinni. Steinþór Þórðarson.Hala lést ný- lega. Hann fæddist 10. júni 1892 á Hala i Suðursveit. Foreldrar hans voru Anna Benediktsdóttir og Þórður Steinsson. Bræður Stein- þórs á Hala voru tveir, Þórbergur rithöfundur og Benedikt bóndi á Kálfafelli. Systir léstá fyrsta ári. Steinþór tók mikinn þátt i félags- málum. Arið 1911 stofnar Stein- þór lestrarfélagið i Suðursveit og ári siðar ungmennafélagið Visi. Árið 1918 er hann kjörinn formað- ur Búnaðarfélagsins einnig var kjörinn i stjórn Kaupfélags Aust- ur-Skaftfellinga við stofnun þess og i stjórn Menningarfélags Aust- ur-Skaftfellinga. 1 öllum þessum félögum starlaði Steinþór um langa tið. Steinþór gegndi for- mennsku i Búnaöarsambandinu til ársins 1976 eða nálæga i fjórð- ung aldar og hafði þá íélagsíerill hans staðið i samfleytt að minnsta kosti 65 ár. Arið 1914 kvæntist hann eftirliíandi eigin- konu sinni Steinunni Guömunds- dóttur. Þau eignuöust tvö börn. Arið 1915 tók Steinþor viö öllum búsforráðum á Hala af fööur sin- um. En árið 1945 hóf Torfi sonur þeirra hjóna og kona hans búskap á Hala i sambýli viö Steinþór og Steinunni i Suðursveit. minningarspjöld Minningarkort Bustaðakirk ju eru seld á eftirtöldum stöðum: i versluninni Áskjöri, Ásgarði 22, versluninni Austur- borg, Búðargerði 10, Bókabúð Fossvogs, Grimsbæ við Eista- land, Garðs-Apóteki, og hjá Stellu Gúðmundsdóttúr, sima 33675. tOkynningar Kvenfélag Hallgrimskirkju: Að- alfundur félagsins verður haldinn fimmtud. 5. febrúar i félagsheim- ilinu kl. 20.30. Félagsvist i Hallgrimskirkju Spiluð verður félagsvist i félags- heimilinu kl. 21 i kvöld (þriðjud) til styrktar kirkjubyggingar. Spilaðer annan hvern þriöjudag á sama tima og sama staö. Kvenfélag Langholtssóknar Aðalfundur þriðjudaginn 3. febr. kl. 20.30 i safnaðarheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf. Um- ræður um ár fatlaðra 1981. Kaffiveitingar.Stjórnin. I I I I í I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I I L Hvað lannsl lolki um helgar- dagskrá rfkisfjdlmíOlanna? Siónvarpsleikrlt- | Ið mjög lélegt i ólafur Þorvaldssori/ Reykjavík: Ég hlustaði á Böðvar Guð- mundsson i Daglegu máli i gær og þótti hann ágætur og sömu sögu hef ég að segja um þáttinn Daginn og veginn, sem ég hlust- aði lika á. 1 sjónvarpinu sá ég iþróttaþáttinn og fannst gaman að leik Vikings og Lugi, en ann- að þótti mér heldur lélegt. Nú, ég hafði nokkuð gaman af sjón- varpsieikritinu i gær og fannst það alveg ágætt. ólöf Guðmundsdóttir, Reykjavik: Mér fannst sjónvarpið i gær alger hörmung. Leikritið þótti mér svo leiðinlegt, að sjónvarp- inu hlýtur að hafa verið borgað fyrir að sýna það. A útvarp hlustaði ég ekkert. Dagný Steinsdóttir, I Keflavik: | Ég horfði á leikritið i sjón- * varpinu i gær og fannst það I mjög lélegt. A annað horfði ég I ekki, enda sé ég sjónvarpið sjaldan. Egnlustaði ekkert á út- I varp i gær. Bernharð Hjaltalin, Isafirði: Ég horfði á fréttirnar i gær og I siðan iþróttaþáttinn, sem var I svona þokkalegur, Leikritið leist mér ekkert á svo ég slökkti I nú bara á þvi. Teiknimyndin um I goðin eftir fréttir finnst mér leiðinleg, nenni vfirleitt ekki að I horfa á hana,aftur á móti horfði I ég alltaf á Tomma og Jenna. I útvarpinu hlustaði ég aðeins á I fréttir. I (Smáauglýsingar — simi 86611 OPIÐ: Mánudaga til föstudaga kl. 9-22 Laugardaga kl. 9-14 — sunnudaga kl. 18 22 J Sportmarkaðurinn Grensásvegi 50 auglýsir: Hjá okkur er endalaus hljóm- tækjasala, seljum hljómtækin strax, séu þau á staðnum. ATH: mikil eftirspurn eftir flestum tegundum hljómtækja. Höfum ávallt úrval hljómtækja á staðnum. Greiðsluskilmálar við allra hæfi. Verið velkomin. Opið frá kl. 10-12 og 1-6 laugardaga kl. 10-12. Tekið á móti póstkröfupönt- unum i simsvara allan sólar- hringinn. Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 simi 31290. Heimilistgki Óska eftir að kaupa lítinn isskáp ca. 1.50 á hæð. Einnig þurrkara. Uppl. I sima 66090 og 72262 á kvöldin. Frystikista 410 litra, til sölu. Uppl. i sima 32691. Verslun Bókaútgáfan Rökkur. titsala á kjarakaupabókum og til- tölulega nýjum bókum. Afgreiðsl- an, Flókagötu 15, miðhæð er opin kl. 4-7. Simi 18768. Útsölur v---------i-------------ý Útsala hefst mánudaginn 2. februar. Barnaföt, úlpur, buxur, peysur, náttföt, mikill afsláttur, ódýr herranær- föt, bolir á 26 kr. og buxur siöar á kr. 38. Falur, Austurveri, Háaleitisbraut 68. Vétrarvörur Vetrarvörur. Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 auglýsir: Skiðamarkaðurinn á fulla ferð. Eins og áður tökum við i umboðssölu skiði, skiðaskó, skiðagalla, skauta o.fl. Athugið höfum einnig nýjar skiðavörur i úrvali á hagstæðu verði. Opið frá kl. 10-12 og 1-6, laugardaga ki. 10-12. Tekið á móti póstkröfupönt- unum i simsvara allan sólar- hringinn. Sportmarkaðurinn, Grensásvegi 50 simi 31290. Skemmtanir Einkasamkvæmi. Tek að mér pianóleik i einkasam- kvæmum. Baldur Kristjánsson (Prince Fatsi. Nánari uppl. i sima 20942. (Kennsla Enska, franska, þýska, spænska, sænska o.fl. Talmál, bréfáskriftir og þýðingar. Einka- timar og smáhópar. Hraðritun á erlendum málum. Málakennslan, simi 26128. 1W Sumarbústaðir ' Vantar þig sumarbústað á lóöina þina? 1 afmælisgetraun Visis er sumarbústaður frá Húsasmiðjunni einn af vinning- unum. ERTU ORÐINN ÁSKRIFANDI? Ef ekki þá er siminn 86611. 'J\ ti02.. Hreingerningar Gólftepnahreinsun Hreinsum teppi og húsgögn með háþrýstitæki og sogkrafti. Erum einnig með þurrhreinsun á ullar- teppi ef þarf. Það er fátt sem stenst tækin okkar. Nú eins og alltaf áður, tryggjum við fljóta og vandaða vinnu. Ath. afsláttur á fermetra i tómu húsnæði. Erna og Þorsteinn, simi 20888. Hreingerningarþjónusta Stefáns Péturssonar tekur að sér hreingerningar á einkahúsnæði, fyrirtækjum og stofnunum. Menn með margra ára starfsreynsiu. Uppl. i'sima 11595milli kl. 12 og 13 og e. kl. 19. Þrif, hreingerningaþjónusta. Tek að mér hreingerningar og gólfteppahreinsun á ibúðum, stigagöngum, stofnunum o.fl. með nýrri háþrýsti djúphreinsi- vél. Þurrhreinsun fyrir ullarteppi ef með þarf. Vanir og vandvirkir menn. Upplýsingar hjá Bjarna i sima 77035. __________ Dýrahakl Fiskabúr óskast keypt. Vinsamlegast hringið i sima 38782 e. kl. 20. Kettlingar fást og kettlingar óskast. Viö útvegum kettlingum góð heimili. Komið og skoöið kettlingabúrið. Gullfiskabúðin, Aöalstræti 4, Fischersundi, Talsimi 11757. (Spákonur Les i lófa og spil og spái i bolla. Uppl. i sima 12574. Geymið auglýsinguna. Til byggii Til sölu 2x4”, 1x6” og 1x5” einnotað mótatimbur. Uppl. i simum 14779 og 12879. Þjónusta Tveir hiisasmiðir geta bætt við sig verkefnum, allt kemur til greina. Uppl. i sima '73713 og 72520. Dyrasimaþjónusta önnumsí uppsetningar og viðhald á öllum geröum dyrasima. Ger- um tilboð i nýlagnir. Uppl. i sima 39118. Múrverk — Flisalagnir —Steypur Tökum að okkur múrverk, flisa- lagnir, múrviðgerðir, steypur, nýbyggingar. Skrifum á teikning- ar. Múrarameistarinn. Simi 19672. Tek að mér að skrifa eftirmæli og afmælis- greinar. Pantið timanlega. Helgi Vigfússon, Bólstaðarhlið 50, simi 36638. Pipulagnir. Viðhald og viðgerðir á hita- og vatnslögnum og hreinlætistækj- um. Danfosskranar settir á hita- kerfi,stillum hitakerfiog lækkum hitakostnað. Erum pipulagninga- menn. Simar 86316 og 32607. Geymið auglýsinguna. Bilaþjónusta Höfum opnað bilaþjónustu ,að Borgartúni 29. Aðstaða til smá- viðgerða, boddýviðgerða og sprautunar. Höfum kerti, platin- ur o.fl. Berg sf. Borgartúni 29, simi 19620. Efnalaugar Efnalaugin Hjálp, Bergstaðarstræti 28 a. Simi 11755. Fljót og góð þjónusta. Safnarinn Kaupi gamla peningaseðla (Landssjóður lslands, Islands bankinn og Rikissjóður Islands). Aðeins góð eintök. Tilboð sendist augld. Visis, Si'ðumúla 8, merkt „Staðgreitt 36598”. Allt fyrir safnarann hjá Magna. Til að auka fjölbreytnina fyrir safnarann kaupi ég sel og skipti: Frimerki, stimpluð og óstimpluð, gömul póstsend umslög (frá 1960 og eldri), póstkort með/eða án lrimerkja, einnig erlend kort ef þau eru gömul. Prjónmerki (léiagsmerki, 17. júni og önnur slik). Peningaseðla og kórónu- mynt, gömul isl. landakort. Skömmtunarseðlar eru lika vin- sælt söfnunarsvið. Innstungubæk- ur og albiím fyrir frimerki i fjöl- breyttu úrvali. Myntalbúm og myntskápar fyrirliggjandi. Verð- lis'ar og annað um írimerki og mvntir i miklu úrvali. Hjá Magna, Laugavegi 15, simi 23011. Atvinnaíboði Sölubörn óskast. Vinsamlega hafið samband eftir kl. 7 á kvöldin i sima 38223. Stúlkuróskast til afgreiðslustarfa i söluturna i Reykjavik og Hafnarfirði. Þurfa að geta byrjað semfyrst. Um hlutastörf gæti verið að ræða. Uppl. i sima 84372 milli k'l. 6 og 8 'i dag. Ritari. Opinber stofnun óskar eítir ritara fyrirhádegifimm daga vikunnar. Góð vélritunarkunnátta nauðsyn- leg. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf merkt- ar „Vélritun” sendist blaðinu fyr- ir 6. febrúar næst komandi. -------------^

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.