Morgunblaðið - 18.12.2003, Side 1
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 2003 Á netinu mbl.is/vidskipti BLAÐ B
Bankaútibú í þínu fyrirtæki
Fyrirtækjabanki Landsbankans
Þú stundar öll bankaviðskipti fyrirtækisins á einfaldan og þægilegan
hátt á Netinu – hvenær sem þér hentar.
Í Fyrirtækjabanka Landsbankans býðst þér m.a. að:
• Framkvæma allar almennar bankaaðgerðir (millifæra, sækja yfirlit, greiða reikninga o.s.frv.).
• Safna greiðslum saman í greiðslubunka sem hægt er að greiða strax eða geyma til úrvinnslu síðar.
• Framkvæma greiðslur með því að senda inn greiðsluskrár úr t.d. bókhaldsforritum.
• Stofna og fella niður innheimtukröfur.
• Greiða erlenda reikninga (SWIFT).
Nánari upplýsingar um Fyrirtækjabankann getur þú fengið í næsta útibúi Landsbankans,
í Þjónustuveri bankans í síma 560 6000 eða á vefsetri bankans, www.landsbanki.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
20
51
08
/2
00
3
ÚTGÁFA húsbréfa á fyrstu ell-
efu mánuðum þessa árs er meiri
en heildarútgáfan á síðasta ári.
Útgáfan á því ári var sú mesta frá
því húsbréfakerfinu var komið á
fót á árinu 1989. Reiknað verð út-
gefinna húsbréfa í lok nóvember-
mánaðar var um 44,5 milljarðar
króna og gerir Íbúðalánasjóður
ráð fyrir að heildarútgáfan á
árinu öllu verði um 49 milljarðar
króna. Þetta kemur fram í mán-
aðarskýrslu sjóðsins fyrir nóvem-
ber.
Í mánaðarskýrslunni segir að
tvær ástæður séu fyrir því að út-
gáfa húsbréfa verði meiri en
nokkru sinni á þessu ári. Í fyrsta
lagi hafi meðalhúsbréfalán hækk-
að um 20% frá fyrra ári, en auk
þess séu umsóknir á þessu ári um
20% fleiri en á því síðasta.
Aukin uppgreiðsla á eldri útlán-
um Íbúðalánasjóðs er megin-
ástæða þess að meðalhúsbréfa-
lánið hefur hækkað, að því er
segir í mánaðarskýrslunni. Heild-
aruppgreiðsla á eldri lánum sjóðs-
ins stefnir í 12 milljarða króna á
þessu ári, sem nær bæði til pen-
ingalána og húsbréfalána, en var
tæpir 5 milljarðar á síðasta ári.
Á árinu 1999 var einnig meira
um uppgreiðslu á útlánum Íbúða-
lánasjóðs en að jafnaði. Þá var
ávöxtunarkrafa húsbréfa einmitt
lægri en önnur ár, eins og verið
hefur á þessu ári.
Samkvæmt mánaðarskýrslunni
er um helmingur af uppgreiðslum
lána Íbúðalánasjóðs úr húsbréfa-
kerfinu en hinn helmingurinn er
uppgreiðsla á gömlum Bygginga-
sjóðslánum, þ.e. Byggingasjóðs
ríkisins og Byggingasjóðs verka-
manna.
Á þessu ári hefur Íbúðalána-
sjóður tvisvar hætt við fyrirhuguð
útboð á húsnæðisbréfum vegna
þess að staða sjóðsins hefur verið
umfram áætlanir vegna aukinnar
uppgreiðslu á lánum.
Fjöldi umsókna um
11 þúsund
Íbúðalánasjóði bárust tæplega
11.200 umsóknir um lánafyrir-
greiðslu á fyrstu ellefu mánuðum
þessa árs. Í fyrra var heildarfjöldi
umsókna um 10 þúsund.
Á árinu 1991 var heildarfjöldi
umsókna um húsnæðislán hjá
Húsnæðisstofnun ríkisins, for-
vera Íbúðalánasjóðs, rúmlega 8
þúsund. Umsóknum fækkaði
nokkuð eftir það því þær voru á
bilinu 5–7 þúsund á árunum frá
1992 til 1997, en voru aftur rúm-
lega 8 þúsund á árinu 1998. Íbúða-
lánasjóður tók til starfa í ársbyrj-
un 1999 en fyrstu þrjú árin var
fjöldi umsókna sem sjóðnum
barst rúmlega 9 þúsund.
Vanskil liðlega
einn milljarður
Heildarskuldir íbúðaeigenda við
Íbúðalánasjóð eru 435,5 milljarð-
ar króna í lok nóvember síðastlið-
inn og er fjöldi lántakenda 74.906.
Af þeim eru 2.596 með vanskil,
sem hafa staðið lengur en í þrjá
mánuði. Heildarfjárhæð vanskila
er liðlega einn milljarður króna.
Heildarskuldir þeirra sem hafa
fengið viðbótarlán hjá Íbúðalána-
sjóði við sjóðinn eru um 71 millj-
arður króna. Þar af eru húsbréfa-
lán um 49 milljarðar, lán frá
Byggingasjóði ríkisins um 5 millj-
arðar og viðbótarlán um 17 millj-
arðar.
Vanskil af viðbótarlánum
Íbúðalánasjóðs, sem staðið hafa
lengur en í þrjá mánuði, eru um
20 milljónir króna, eða um 0,12%
af heildarviðbótarlánunum. Það
er lægra hlutfall en hlutfall heild-
arvanskila af heildarútlánum
sjóðsins, sem er 0,24%.
Skuldabréfaútgáfa
um 68 milljarðar
Í endurskoðaðri áætlun Íbúða-
lánasjóðs frá því í októbermánuði
síðastliðnum kemur fram að áætl-
uð skuldabréfaútgáfa sjóðsins á
næsta ári verði um 68 milljarðar
króna. Á móti er áætlað að Íbúða-
lánasjóður muni greiða lánveit-
endum sínum rúma 47 milljarða.
Þar af er gert ráð fyrir að inn-
lausn húsbréfa muni nema rúm-
um 24 milljörðum og að upp-
greiðslur á eldri skuldbindingum
sjóðsins verði um 6 milljarðar. Þá
verða greiðslur af húsnæðisbréf-
um um 7 milljarðar, greiðslur til
lífeyrissjóða vegna beinna lána-
samninga tæpir 7 milljarðar og
greiðslur til ríkisins um 3 millj-
arðar.
Útgáfa húsbréfa
meiri en nokkru sinni
Útgáfa húsbréfa verður um 40% meiri á þessu ári en í fyrra, sem var metár
Morgunblaðið/Árni Torfason
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
GUÐMUNDA Kristjánsdóttir, sérfræð-
ingur á greiningardeild Landsbanka Íslands,
segir að vöxtur í útgáfu húsbréfa hafi verið
mikill og enn einu sinni mun meiri en upp-
haflegar áætlanir Íbúðalánasjóðs hafi gert
ráð fyrir. Nóvembermánuður hafi hins vegar
komið á óvart en svo virðist sem dregið hafi
úr vexti húsbréfa á sama tíma og ávöxt-
unarkrafa húsbréfa hafi hækkað.
„Íbúðalánasjóður hefur ekki komið inn á
markaðinn í samræmi við hinar auknu upp-
greiðslur á eldri lánum sjóðsins,“ segir Guð-
munda. „Sjóðstaðan hjá Íbúðalánasjóði hef-
ur verið að aukast en sjóðurinn minnkaði
áætlaða útgáfu húsnæðisbréfa vegna þessa á
fyrri hluta ársins, sem er af hinu góða fyrir
markaðinn. Hins vegar hafa uppgreiðslur
haldið áfram að aukast á seinni hluta ársins
en samkvæmt Íbúðalánasjóði hefur ekki ver-
ið svigrúm til frekari lækkunar á útgáfu,
m.a. vegna stöðugrar aukningar í eftirspurn
viðbótarlána.“
Guðmunda segir erfitt að áætla hver út-
gáfa húsbréfa muni verða á næsta ári, því
enn sé óvíst um hver endanleg niðurstaða
varðandi fyrirhugaðar breytingar á hús-
bréfakerfinu verður. „Hins vegar er ljóst að
ef af fyrirhuguðum breytingum verður, mun
verða tilfærsla úr bankakerfinu og sjóð-
félagalánum lífeyrissjóða yfir til Íbúðalána-
sjóðs. Útgáfan mun því væntanlega halda
áfram að aukast,“ segir Guðmunda.
Jafet Ólafsson, forstjóri Verðbréfastof-
unnar, segir að aukin útgáfa húsbréfa á
þessu ári hafi ekki stór áhrif á markaðinn.
Tvennt valdi því. Í fyrsta lagi hafi mjög mik-
ið verið selt af húsbréfum til útlanda, sem
hafi þá farið af markaðinum. Í öðru lagi sé
mun meira fjármagn í umferð en oftast áður.
„Þrátt fyrir aukna útgáfu húsbréfa hefur yf-
irverð á húsbréfum haldist nokkurn veginn.
Það hefur verið að sveiflast frá einu og upp í
fjögur prósent og er nú í tæplega þremur
prósentum. Jafnvægið á markaðinum hefur
því verið þokkalega gott. Þetta bendir til
þess að fasteignaviðskipti séu mjög lífleg.“
H Ú S B R É F
Útgáfan
meiri en
áætlað var
Markaðsaðilar spá áfram
mikilli útgáfu húsbréfa
S É R B L A Ð U M V I Ð S K I P T I , E F N A H A G S M Á L O G A T V I N N U L Í F Á S A M T S J Á V A R Ú T V E G S B L A Ð I
Launakjör bankastjóra
Forstjóri Kaupþings var meðal launahæstu 2
Nýtt fyrirtæki
GEM, dótturfélag Heklu, selur lækningatæki 12
ENDURVAKINN
ÁHUGI Á DECODE