Vísir


Vísir - 06.03.1981, Qupperneq 12

Vísir - 06.03.1981, Qupperneq 12
12 Föstudagur 6. mars, 1981 VÍSIR Hárgreidsla vikunnar Su hargreiðsla, sem mikið hefur borið a i samkvæmislifinu að undanförnu, er svokölluð ,,flettugreiðsla". Þegar harið er tilhaft a svipaðan máta og sest a myndinni, er hægt að nota alls konar skraut. Mikið tiðkast að nota gler- eða trékulur og f jaðrir, svo eittvað se nefnt. Þa er þessi greiðsla hentug að þvi leytinu til, að hun helst vel a.m.k. i nokkra daga. Blaðamaður fékk að fylgjast með Erlu Sigurbjarnardóttur hargreiðslumeistara á dögunum, þegar hun tók fléttugreiðsluna fyrir og var óhætt aö segja að verkið væri vel unnið, þegar upp var staðið. Þess ma svo geta til gamans. að umrædd greiðsla er upprunnin i Suður-Afriku Hun hefur einnig verið kennd við ekki obekktari personu en Bo Derek. Falleg greiðsla ekki satt? Enda tekur litlar tvær klukkustundir að fullgera hana. Konur úr Bandalagi kvenna í Reykjavík undirbúa söfnunina. Bandalag kvenna í Reykjavík: íeldhúsinu Fisléitur há- tíðarréttur RÆKJUKOKKTEILL FORRÉTTUR Rækjur eru bleyttar upp i hvítvini, settar í kampavínsglas. Síðan smásaxaðar maður lauk og hrærir hann út í tómat- sósu og bætir hvftvíni útí. Setur yfir rækjurnar og sítrónusneið ofaná og salatblöð meðfram og tvo sítrónubáta sömuleiðis. Siðan eru herlegheitin borin fram með ristuðu brauði og smjöri. STEIKTAR LÆRISSNEIÐAR AÐALRÉTTUR Steiktar lærissneiðar með hvítlaukssm jöri, bök. kartöflum og bernaissósu. Kjötið er steikt á pönnu og kryddað með grillkryddi, salti og „Italian seasoning". Kartöflurnar, steiktar á pönnu og krydddaðar með papriku, salti og percil stráð yfir. Bernaissósan fyrir fjóra: 4 eggjarauður, hræra þær upp, bræðið 400 gr. smjör, og hellið því úti í smáskömmtum og passiðað hafa smjörið ekki of heitt. Bragðbætt með kjötkrafti. Bætt er úti bernaisessense og percil. — Hvítlaukssmjör þýðir smjör hrært saman við aromat og hvítlauksduft. SÚKKULAÐIÍS MEÐ JARÐARBERJUM OG RJÓMA — EFTIRRÉTTUR Skyrir sig sjálft. Gengst fyrir söf- nun í bágu fatlaöra í tilefni af því að Sameinuðu þjóðirnar hafa valið árið 1981 sem Alþjóðlegt ár fatlaðra hef- ur Bandalag kvenna í Reykjavík afráðið, að málefni fatlaðra skuli hafa forgang á verkefna- skrá þess í ár. Á islandi mun 10. hver maður búa við fötlun í ein- hverri mynd og orsakir fötlunar svo sem slys eða önnur áföll gera ekki boð á undan sér. Enginn getur vitað hver verður næst kallaður i hópinn. Úrbætur og aðstoð i þessu ef ni er því í verkahring allra lands- manna. Bandalag kvenna í Reykjavík gengst nú fyrir söfnun til kaupa á „tauga- greini" til afhendingar á Endurhæf ingardeild Borgarspítalans við Grensás í Reykjavík. Hér er um að ræða almenna einingu af nýjustu gerð með viðbótarmöguleikum. Ekkert heildartæki af þessu tagi er til hér á landi. Taugagreinir mælir starf- rænar truflanir í heila, mænu og taugakerfi — margþætt tæki sem gefur mikla möguleika til endur- hæfingar og stuðlar meðal annars að betri nýtingu sérhæfðs starfsfólks á sjúkrastof nunum. Tækið hef ur verið pantað frá fyrirtækinu Nicolet í Wisconsin, Bandaríkjun- un: og er kaupverð þess miðoð við markaðsverð þar í jan,— febr. í ár $ 83.025.- eða rúmlega 60 milljónir gamalla króna. Söfnunin er haf in og for- göngumenn hennar heita á fólk að bregðast vel við þegar til þess verður leitað. Bréf hafa verið send félagasamtökum, starfs- fólki stórfyrirtækja sendir söfnunarlistar og föstu- daginn 6. mars til sunnu- dags 8. mars verður sér- hannað merki selt á almannafæri og í íbúðar- hverf um. Kjörorð söfnunarinnar er: EFLUM FRAMFARIR FATLAÐRA

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.