Vísir


Vísir - 06.03.1981, Qupperneq 15

Vísir - 06.03.1981, Qupperneq 15
14. Allir fengu popp. Glatt á hjalla í Múlaborg á öskudaginn: Grímubaii og dopp Það er ekkert bakk, nema menn tuskist aðcins. Visismyndir Emil. Það var heldur betur glatt á hjalla á barnaheimilinu Múla- borg í fyrradag. Þá var öskudag- urinn haldinn hátiðlegur með til- heyrandi uppákomum. Krakkarnir mættu grimu- klæddir eftir hádegið og þá byrj- aði ballið i þess orðs fyllstu merk- ingu. Það var nefnilega grimuball á dagskránni. Fóstrurnar létu sitt ekki eftir liggja og höfðu a.m.k. sumar farið i „betri fötin” i tilefni dagsins. Svo var dansað og sungið fram eftir degi og mátti sjá hinar óvenjulegustu verur á gólfinu. Þarna voru álfmeyjar, kúrekar, álfakóngar, indiánar, ballerinur og öll gervi sem nöfnum tjáir að nefna. Krakkarnir fengu lika að fara i leiki og ekki mátti poppið vanta. Þvi var poppað i grið og erg, þar til allir höfðu fengið eitthvað i sinn maga. Grimuböllin, sem eru árviss at- burður á Múlaborg, hafa ekki minna gildi fyrir það, að á einni deild barnaheimilisins af þrem eru einungis fötluð börn. Þau mættu vitaskuld, uppábúin eins og aðrir I salinn þessa dagstund og skemmtu sér hið besta við söng og leik. Er ekki að efa að margir hafa farið þreyttir heim eftir ánægjulegan og atburðarrik- an dag á Múlaborg. —JSS * Þetta gæti allt eins verið einn af geimgrlsunum. Þau yngstu urðu sum obbolltiöhrædd viö alla álfana og tröllin. Föstudagur 6. mars ’981 r ostuaagur 6. mars 1981 - Alltaf sama stemmingin á Akureyri á ösku daglnn. bðtt siðlrnlr hafi breysi l timanna rás „Sú skal fá það óþvegið”. ,,Megum við syngja manni”, spurðu nokkrir snaggaralegir strákar, sem snöruðu sér inn i Hafnarbúðina á Akur- eyri i gær, á öskudaginn. ,,Já, alveg sjálfsagt, en þið verið að syngja ein 10 lög”, svaraði Guð- mundur Stefánsson, verslunarstjóri. ,,En við kunnum ekki nema þrjú”, sögðu þá strák- arnir heldur lúpulegir. Vlsismyndir G.S. / Akureyri. Það var fjölmenni við kattarslaginn á Káðhústorgi og hér er jeppi Rafvcitunnar notaður fyrir útsýnispall. En þó lagavalið væri ekki fjölbreytt, þá kom það ekki að sök. Guð- mundur lét sér nægja 3 lög. Þessisiður Akureyrskra barna, að ganga syngjandi um bæinn i alls konar múnderingum á ösku- daginn, er sennilega nærri þvi að vera jafngamall Akureyri, sem kaupstað. Fyrirkomulagið hefur þó breyst mikið i timanna rás. A öðrum áratug aldarinnar voru til dæmis ekki nema tvö lið, lið Inn- bæinga og lið Otbæinga. Hélst hverfaskijjtingin lengi vel, til að mynda stóðu Innbæingar saman fyrir 20 árum eða svo, þegar undirritaður blaðamaður skipaði lið þess bæjarhluta. Oftast var um hænu að ræða Þá voru liðsmenn ræstir kl. 6 um morguninn. Að sofa yfir sig á sjálfan öskudaginn, það var eitt að þvi verstasem fyrirgat komið. Var einn liðsmanna, sá áririsulasti, látinn hlaupa um hverfið og þeyta lúður til að ræsa. Siöan var kötturinn sleginn úr tunnunni. Varð sá tunnukóngur sem sló siðasta botnstafinn úr tunnunni, en sá kattarkóngur, sem hjó i sundur kaðalinn er hélt „kettinum” uppi, en i minni sveit var það oftast um hænu að ræða. Eftir kattarslaginn var gengið um hverfið og sungið fyrir þá sem T e x t i o g myndir: GIsli Sigurgeirs- son, Akureyri vildu, en að sjálfsögðu varð aö greiða fyrir sönginn. Þegar búð- irnar höfðu verið opnaðar var stormað i bæinn og sungið og þar voru launin venjulegast i ein- hverskonar gotterii. Svo var lika farið i verksmiðjurnar og ekki þótti nú dónalegt að fá pylsur i Pylsugerð KEA eða belgja sig út af gosi i Sana. jlelgubll í helmsökn tll kvennaskolastulkna Þessu var lokið um hádegið, en eftir matinn var gotteriinu skipt bróðurlega, en það var allur gangur á hvaö menn gerðu við peningana. Ef vel aflaðist kom fyrirað splæst var i leigubil fyrir liðið og siðan ekið fram að Lauga- landi og kvennaskólastúlkur heimsóttar. Var biltúrinn há- punktur dagsins, enda drossiur ekki i eigu hverrar fjölskyldu i þá daga. Þá þóttumst við lika menn með mönnum, þegar við vorum „Litill, stærri stærstur”, sagöi einhver. Akureyringar fylgdust spenntir meö úrslitum kattarslagsins. sestir við hlaðið veisluborð hjá kvennaskólastúlkunum. Er mér ekki alveg grunlaust um að ein- hverjir okkar hafi siðar á lifsleiö- inni lagt leið að Laugalandi og þá i öðrum erindum. í samræmi vlð annan tlðaranúa Yfirbragð öskudagsins á Akur- eyri var meö nokkuð öðrum hætti sl. miðvikudag, en hér hefur veriö lýst. Liðsskipanir eru ekki eins fastbundnar og mun færri eru i hverju liði. Fámennasta „liðið” sem ég rakst á taldi tvo. Nokkur lið skera sig hins vegar úr hvað varðar söng og annað yfirbragð, en þeim virðist fara fækkandi, þvi miður. Þá hefur aldur þeirra sem taka þátt í gleði öskudagsins lækkað, en það er ef til vil I sam- ræmi við annan tiðaranda. Þá heyrir til undantekninga, ef þær undantekningar eru þá einu sinni til, að kötturinn sé sleginn úr- tunnunni i hverju hverfi fyrir sig. Hins vegar hafa starfsmenn raf- veitunnar seð til þess að þessi sið- urhefurekki aflagast með þvl að efna til kattarslags á Ráðhús- torgi. Er það vel, því ekki veitir af aö viðhalda þeim fáu uppákom- um, sem hressa upp á gráan hversdagsleikánn. Þrátt fyrir að siöimir breytist, þá er alltaf sama stemmingin á Akureyri á öskudaginn. Og þótt söngæfingar séu ekki haldnar oft I viku, 1 einhverju „vaskahúsinu” i hverfinu, eins og titt var, þá efast ég um að söngurinn sé almennt nokkuð verri. Allavega ekki ef sungið er af hjartans lyst. G.S./Aureyri

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.