Morgunblaðið - 23.12.2003, Síða 4

Morgunblaðið - 23.12.2003, Síða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÆKUR Breyttu einungis eftir þeirri lífsreglu semþú getur á sama tíma viljað að verði aðalgildu lögmáli.“ (421). Svo hljómarskilyrðislausa skylduboðið sem þýski heimspekingurinn Immanúel Kant (1724–1804) setti fram í bók sinni Grundvöllur að frumspeki siðlegrar breytni (1785). Nú er þetta fræga verk komið út á vegum Hins íslenska bók- menntafélags sem Lærdómsrit. Íslensk þýðing er eftir Guðmund Heiðar Frímannsson sem einnig ritar inngang. Kant er í hópi merkustu hugsuða heimspekisögunnar, en þekktasta verk hans er Gagnrýni hreinnar skynsemi (1781). Ritstjóri Lærdómsritanna er Ólafur Páll Jónsson heimspekingur. Hann segir að gildi þess að gefa út klassískt verk eins og þetta sé m.a. fólgið í því að þá verði þau hugtök og hugsun sem þarna birtist lifandi hluti af mál- inu: „Þarna birtast mikilvæg hugtök í sínu rétta samhengi og ef eitthvað er málvernd- arstefna er það einmitt þetta. Það er ekki nóg að hafa hugtakaskýringar í orðabókum, ef þau koma ekki fyrir í sínu eiginlega samhengi verða þau varla nema dauðir bókstafir.“ Hann bætir við: „Lærdómsritin birta hugsun sem var ný á sínum tíma og með útgáfunni er hún gerð aðgengileg þannig að hægt er að nota hana í rökræðum í samtímanum. Það þarf ekki að samþykkja kenningarnar sem höfundarnir setja fram. Það er einmitt aðalsmerki rita eins og Grundvallar að frumspeki siðlegrar breytni að í þau má sækja margvíslegan efnivið sem maður getur síðan notað til að hugsa sjálfstætt, oft um ólíka hluti.“ Kant um siðlega breytni Ólafur segir að verk Kants sem nú komi út sé ein af þremur grundvallarstoðum vestrænn- ar siðfræði – ásamt verkum Johns Stuarts Mill og Aristótelesar. „Það er gífurlega gott að Kant er kominn út á íslensku,“ segir hann og bætir við: „Áhersla Kants í þessu verki er á frumspeki siðlegrar breytni, á þær frum- forsendur sem við ræðum siðferðileg efni útfrá. Hann leggur til orðaforða og tæki sem menn eru að nota enn í dag.“ En Kant er alræmdur fyrir langar og snúnar setningar og þótt oft sé freistandi að einfalda framsetninguna hefur sú leið ekki verið farin. Hins vegar hafa hinar löngu setningar stundum verið brotnar upp. Í inngang er greint frá ævi og störfum Kants en auk þess er gerð grein fyrir meginefni bók- arinnar. „Texti Kants getur vissulega verið tyrfinn, en hann er einnig flottur á köflum“ segir Ólaf- ur, „ég held að Kant hafi verið góður stílisti, en hann lætur stílinn víkja fyrir alvöru málsins og missir aldrei sjónar á rökræðunni.“ Verk Kants er ekki eina stórvirkið í ritröð Lærdómsritanna sem kemur út í lok árs, einnig kemur út Um ánauð viljans eftir Martein Lúth- er, í þýðingu Jóns Árna Jónssonar og Gott- skálks Þórs Jenssonar með inngangsköflum eftir Gottskálk og Sigurjón Árna Eyjólfsson. Þriðja verkið er Framfaragoðsögnin eftir Georg Henrik von Wright í þýðingu Þorleifs Haukssonar með inngangi eftir Sigríði Þor- geirsdóttur. Wright um framfarir Georg Henrik von Wright var einn merkasti heimspekingur Norðurlönda á 20. öld, en hann lést á árinu, 87 ára gamall. Hann fór til náms í Cambridge í Englandi og varð nemandi Witt- gensteins. Síðar tók hann við prófessorstöðu Wittgensteins og var annar af ritstjórum eft- irlátinna verka hans. „Wright var upphaflega mjög tæknilega hugsandi, hann er einn af höf- undum nútímarökfræði,“ segir Ólafur, „en svo tók hann að hugsa um athafnir og loks siðfræði og olli þá enn straumhvörfum í fræðunum.“ Framfaragoðsögnin er safn nokkurra greina þar sem von Wright beinir sjónum að samtím- anum og gagnrýnir vissa þætti í ríkjandi hug- myndaheimi. „Aðalsmerki hans er að vera framúrskarandi skýr og frjór heimspekingur. Hann hefur auga fyrir óvæntum flötum á mál- unum og vegna skýrleikans veit maður jafnan hvort maður er sammála honum eða ósam- mála,“ segir Ólafur. Framfaragoðsögnin er afar aðgengileg bók, meginþemað er gagnrýni á þá hugmynd að nú- tíminn einkennist af framförum. „Framfarir er gildishlaðið hugtak eins og hugtakið góður,“ segir Ólafur, „en mælikvarðarnir á framfarir eru hinsvegar ekki gildishlaðnir, þeir tengjast tæknilegum atriðum eins og launum og fram- leiðslugetu. Wright bendir á að menn eigi til að rugla saman tæknilegum framförum og batn- andi mannlífi.“ Wright ritar einnig í bókinni um alþjóðavæðingu, tæknihyggju og stöðu náttúrunnar í heimi mannsins. Lúther um ánauð viljans Um ánauð viljans (útg. 1525) eftir Martein Lúther er eitt umdeildasta og mikilvægasta guðfræðirit Vesturheims, en það er samið sem andsvar við riti Erasmusar frá Rotterdam, Um frelsi viljans. „Erasmus afmarkar frelsi viljans algjörlega við siðferðilega breytni eða getu mannsins frá því að velja milli tveggja kosta. Lúther túlkar viljann aftur á móti eingöngu út frá stöðu mannsins frammi fyrir Guði“ (11). Ólafur segir að Lúther haldi því fram að vilji mannsins sé ánauðugur og verði ekki frjáls nema fyrir trú á Guð. „Lúther og Erasmuns voru í raun mikilvirkir samherjar, en um leið algjörlega á öndverðum meiðu um viljann,“ segir Ólafur. „Lúther var lengi að koma sér að því að svara Erasmusi, en lét loks til leiðast fyrir áeggjan konu sinnar.“ Um ánauð viljans er merkileg ritskýring á Biblíunni og textum kirkjufeðranna. Ritið hefur auk þess siðfræðilega vídd þar sem spurt er um hjálpræði mannsins: „Verður maðurinn hólpinn af eigin verkum eða eingöngu fyrir trú sína á Guð?“ Verk Lúthers er einnig mjög merkileg menningarsöguleg heimild, það veitir margíslega innsýn í fræðaheim 16. aldar, eins og inngangur Gottskálks um Lúther og lat- ínuna dregur fram. Þar er verkið einnig sett í samhengi við íslenskan veruleika. Nefna má að lokum þá umgjörð sem Lær- dómsritin veita þessum verkum. Í þeim er ávallt ítarlegur inngangur og skýringar sem hjálpa lesendum að skilja þá hugsun sem þar er sett fram. Hugsuðir sem breyttu menningu  Hið Íslenska bókmenntafélag hefur gefið út Lærdóms- ritin Grundvöllur að frumspeki siðlegrar breytni, Um ánauð viljans og Framfaragoðsögnin. Morgunblaðið/Ásdís Ólafur Páll Jónsson, ritstjóri Lærdómsritanna. Eftir Gunnar Hersvein Alþjóðlegir mann- réttindasamn- ingar sem Ísland er aðili að. Í rit- inu eru birtir allir helstu alþjóðlegu mannréttinda- samningar sem gerðir hafa verið á vettvangi Sam- einuðu þjóðanna og Evrópuráðsins frá árinu 1950, alls 20 talsins auk Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna frá 1948. Umsjón með út- gáfu hafði Björg Thorarensen pró- fessor við Háskóla Íslands. Markmið með útgáfu bókarinnar er að gera aðgengilega á einum stað helstu alþjóðlegu mannrétt- indasamninga sem Ísland er aðili að. Útgefandi er Háskólaútgáfan og Mannréttindastofnun Háskóla Ís- lands. Bókin er 200 bls., kilja. Verð: 1.980 kr. Mannréttindi Markús Árelíus eftir Helga Guð- mundsson er komin út á geisla- disk í lestri höf- undar. Þríleik- urinn um þennan góðviljaða en breyska heimiliskött kom út á árunum 1990–1993. Tvær af bókunum eru ófáanlegar, en örfá eintök munu vera til af þeirri þriðju. Helgi las sögurnar í útvarpi á sínum tíma. Heimiliskötturinn segir sögu sína og fjölskyldunnar. Ýmislegt í fari mannanna skilur hann alls ekki: „Ég veit ekki hvernig mennirnir fara að því að biðjast afsökunar í öðrum húsum, en ég sé það á Ólafi vini mínum að honum þykir það á Ólafi vini mínum að honum þykir það ekki skemmti- legt. Ég held að stundum sé erfiðara að vera maður en köttur og líklega eru mennirnir ekki jafn vitrir og af er lát- ið.“ Útgefandi er Ráp – bókaforlag en Hönnun og umbrot dreifir: Design@design.is. Hljóðbók Hin lagalega að- ferð og rétt- arheimildirnar – Fimm ritgerðir í almennri lög- fræði og rétt- arheimspeki er eftir Skúla Magn- ússon, dósent við lagadeild Há- skóla Íslands. Í bókinni er hin lagalega aðferð og álitamál henni tengd krufin í fimm sjálfstæðum greinum. Í fyrstu tveimur greinunum er athyglinni beint að afmörkun lagahugtaksins og hvernig hugmyndir manna um lögin tengjast fullyrðingum um gild- andi rétt. Meðal annars er rætt um þær stefnur í réttarheimspeki sem kenndar hafa verið við vildarrétt og náttúrurétt og færð að því rök að þessar stefnur feli ekki nauðsyn- lega í sér ólíkar kenningar um hina lagalegu aðferð eins og oft er hald- ið fram. Í þriðju greininni eru við- teknar skoðanir íslenskra lögfræð- inga um hina lagalegu aðferð ræddar og útskýrðar í ljósi al- mennra kenninga um lögin. Í þessu sambandi er réttarheimildarhugtakið og gagnrýni á það sérstaklega rædd, en umfjöllun íslenskra fræði- manna um hina lagalegu aðferð hef- ur mjög beinst að því að gera grein fyrir réttarheimildunum. Í fjórðu greininni er fjallað sérstaklega um þýðingu fordæma Hæstaréttar Ís- lands við lagalega niðurstöðu að ís- lenskum rétti og viðteknar skoðanir um það efni gagnrýndar. Í fimmtu og síðustu greininni er spurningin um hina einu lagalegu réttu niðurstöðu rædd með hliðsjón af kenningum er- lendra fræðimanna. Útgefandi er Háskólaútgáfan. Bókin er 202 bls., kilja. Verð: 3.150 kr. Lög ÁRIÐ 1998 kom út Skólasaga Reyðarfjarðar 1897-1997 (126 bls.) eftir Guðmund Magnússon og telst sú bók fyrri hluti Sögu Reyðarfjarð- ar og hefði raunar átt vel heima sem kafli í þeirri bók, ef hún hefði ekki þegar verið komin á prent. Guðmundur Magnússon, eitt sinn skólastjóri á Reyðarfirði, síðar í Reykjavík og síðasta hluta starfs- ævi sinnar í opinberri þjónustu fræðslustjóri Austurlands með bú- setu á Reyðarfirði – er borinn og barnfæddur Reyðfirðingur og því öllum hnútum þar kunnugur. Bók hans ber þess líka glögg merki. Hún er af hæfilegri stærð að því er mér finnst, vel og skipulega skrifuð og prýdd miklum fjölda mynda, sum- um hverjum áreiðanlega fágætra, sem ekki hafa fyrr komið fyrir sjón- ir almennings. Bókin skiptist í fjórtán kafla auk stutts formála og eftirmála. Eftir að greint hefur verið stutt- lega frá landnámi og landnáms- mönnum, en um það er ekki mikið vitað, kemur kafli um hreppaskipt- ingu við Reyðarfjörð. Það var flókið og langdregið mál og skoðanir skiptar. Er ég ekki viss um að ég hafi náð því öllu, enda áhuginn kannski í minna lagi. Þó held ég að ég hafi lesið það rétt, að upphaflega var gríðarstór Reyð- arfjarðarhreppur (hinn forni), síðan, eft- ir mikið bardús, kom Reyðarfjarðarhrepp- ur hinn nýi, miklu minni, er tók aðallega til kauptúnsins og nú er svo komin Fjarða- byggð – langstærsta stjórnsýslueiningin. Frá þessu öllu greinir höfundur skilmerkilega. Í þeim sama kafla er rætt um helstu verkefni Reyðar- fjarðarhrepps hins nýja. Búðareyri nefndist verslunar- staðurinn (nú Reyðarfjörður). Saga hans er stuttlega rakin í einum kafla. Á seinni hluta nítjándu aldar voru Norðmenn umsvifamiklir í síldveiðum og höfðu bækistöðvar víða um Reyðarfjörð. Sjást frá þeim tíma ýmsar minjar. Höfundur lýsir þessum stöðum frá sunnanverðu Hólmanesi að Eyri í máli og mynd- um. Þá koma tveir kafla þar sem þró- un þorpsins er rakin í tímaröð. Fyrra tímabilið nefnist Wathne- tímabilið 1883-1905. Þá er Reyðarfjarðarþorp að verða til. Frum- byggjar og burðarásar í verslun og atvinnu- málum voru bræðurnir Ottó og Friðrik Wathne og segir all- nokkuð af þeim. Maður að nafni Albert J. Finn- bogason, sonur versl- unarstjóra Wathne- bræðra, lét í té fágætar myndir til þessa kafla og veitti ýmsar gagn- legar upplýsingar. Seinna tímabilið er frá 1905 til 1939. Það er eins konar yfirlit, en mest er vikið að verslunarrekstri kaupmanna og kaupfélags og at- vinnustarfsemi sem því fylgdi. Frá fyrstu iðnaðarmönnun er og lítillega greint. Frá og með sjötta kafla dregur nær nútímanum og er mestur hluti bókarinnar sem eftir er, um 200 bls., frásögn af einstökum mála- flokkum (samgöngur, sjávarút- vegur, félagasamtök, fólk og fyrir- tæki, póstur og sími, kirkjumál og opinberar stofnanir). Einn langur kafli er um hernámsárin 1940-1945 og síðasti kaflinn er stutt viðtöl við átta manns, sem komið hafa mikið við sögu staðarins. Að sjálfsögðu er ógjörlegt að gera grein fyrir efni einstakra kafla í þessari umsögn. Og undirritaður, sem ekki þekkir neitt til sögu Reyð- arfjarðar fyrir, getur ekkert sagt til um hvort hér vantar eitthvað í eða hvort áherslur er aðrar en heima- mönnum líkar. Það sem helst vakti athygli mína við hraðan lestur var hin rækilega skipaskrá í sjávarút- vegskaflanum. Líklegt þykir mér að mörgum heimamönnum þyki það fróðleg lesning. Þá finnst mér nokk- uð til um hversu félagsmálakaflinn er vandaður og ítarlegur. Hápunkt- ur frásagnarinnar er þó að mínu viti hinn langi og skemmtilega skrifaði kafli um hernámsárin. Þar finnst mér höfundur hafa notið sín best. Ætli það sé ekki fáum kunnugt utan heimamönnum að hermenn á Reyð- arfirði voru tífalt fleiri en íbúarnir og samt bar svo til ekkert á sambúð- arerfiðleikum eða ,,ástandi. Fróð- legar eru endurminningar breska hermannsins í lok þess kafla. Í bókarlok er skrá yfir manna- nöfn. Heimildarskrá er ekki, hins vegar er heimilda getið jafnóðum og til þeirra er vitnað í texta. Eins og áður segir er mikill fjöldi mynda í bókinni, bæði gamalla og nýrra. Hefur höfundur sjálfur tekið margar hinna nýrri mynda. Ytri búnaður bókarinnar er hinn prýði- legasti. Reyðarfjarðarsaga HÉRAÐSSAGA Saga Reyðarfjarðar 1883–2003 GUÐMUNDUR MAGNÚSSON 332 bls. Útg. Fjarðabyggð, 2003. Sigurjón Björnsson Guðmundur Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.