Morgunblaðið - 15.01.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
BOÐAR TUNGLSTÖÐ
George W. Bush Bandaríkja-
forseti kynnti í gærkvöldi áætlun
um að senda bandaríska geimfara
til tunglsins ekki síðar en árið 2020
og koma þar upp fastri bækistöð
sem yrði síðar notuð til að senda
geimfara til Mars. Ennfremur á að
leggja bandarísku geimferjunum,
sem nú eru notaðar, fyrir árið 2010
og taka í notkun nýtt geimskip sem
geti flutt menn til tunglsins.
ÚA og HB seld
Eimskipafélag Íslands gekk í
gær frá samningum um sölu Har-
aldar Böðvarssonar hf. og Útgerð-
arfélags Akureyrar og hafa samn-
ingarnir þegar verið samþykktir í
stjórn Eimskipafélagsins. Söluverð
fyrirtækjanna er 16,8 milljarðar
króna og áætlaður söluhagnaður
Eimskipafélagsins um 2,5 millj-
arðar. Bæjarstjóri Akureyrar
gagnrýnir Landsbankann og segir
að fyrirtækið hafi verið selt á upp-
lausnarverði.
Lög um tónlistarsjóð
Menntamálaráðherra ráðgerir að
leggja fram frumvarp til laga um
tónlistarsjóð á vorþingi. sem ætlað
er að efla markaðssetningu ís-
lenskrar tónlistar.
Líklega ekki efnavopn
Danski herinn skýrði frá því í
gær að sprengikúlurnar, sem
danskir og íslenskir vopnasérfræð-
ingar fundu í Suður-Írak á föstu-
dag, innihéldu líklega ekki efna-
vopn eins og talið var í fyrstu. Sýni
úr sprengikúlunum verða send til
frekari rannsóknar í Bandaríkj-
unum og endanleg niðurstaða henn-
ar ætti að liggja fyrir innan 3–5
daga.
Mesti hvellur í áraraðir
Talsmenn vöruflutningafyr-
irtækja sem sem Mbl. ræddi við í
gær segja að óveðrið á Vestfjörðum
og Norðurlandi síðustu daga sé
mesti „hvellur“ sem þeir hafi
kynnst í mörg ár. Langt sé t.d. síð-
an bílar hafi ekki komist á fjallvegi
svo dögum skipti.
Réttarhöld í Lindh-málinu
Réttarhöld hófust í gær yfir Mij-
ailo Mijailovic, 25 ára Svía sem hef-
ur viðurkennt að hafa orðið Önnu
Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóð-
ar, að bana. Hann lýsti sig hins veg-
ar saklausan af ákæru um morð að
yfirlögðu ráði og kvaðst ekki hafa
ætlað sér að valda dauða Lindh.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Viðhorf 40
Erlent 12/14 Minningar 40/51
Höfuðborgin 20 Skák 53
Akureyri 22 Bréf 56
Suðurnes 24/25 Kirkjustarf 55
Landið 27 Dagbók 58/59
Neytendur 28/29 Fólk 64/71
Listir 30/32 Bíó 66/69
Umræðan 33/35 Ljósvakamiðlar 70
Forystugrein 36 Veður 71
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@-
mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@-
mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MÆÐGUR á Suðureyri við Súg-
andafjörð björguðust naumlega úr
brennandi húsi við Stefnisgötu í
fyrrinótt. Á flóttanum brutust þær á
móti hríðarbyl í kafsnjó á náttföt-
unum einum saman. Þær sakaði ekki
og dvelja nú hjá vinafólki.
Eldurinn kom upp kl. 2.47 í fyrri-
nótt og voru mæðgurnar, Valgerður
Kristjánsdóttir og 11 ára dóttir
hennar, Eydís Sævarsdóttir, einar í
húsinu. Virðist einskær tilviljun hafa
ráðið því að Valgerður vaknaði og
varð eldsins vör.
„Ég vaknaði en vissi ekki að það
væri kviknað í,“ segir hún. Húsið er
þriggja hæða timburhús og komið til
ára sinna en hefur verið gert upp á
síðustu árum. „Við sváfum á efstu
hæðinni en einhverra hluta vegna
vaknaði ég og fór niður. Þar var
hellingsreykur og þá áttaði ég mig á
hvað var á seyði. Ég vissi ekki hvað
ég átti til bragðs að taka en sá strax
að útgönguleiðin hafði ekki lokast.
Ég sneri til baka inn í herbergi og
þreif í dóttur mína og við hlupum út.
Þá logaði hæðin öll og eldurinn ætl-
aði að gleypa okkur.“ Þær mæðgur
sluppu út án meiðsla ef frá eru taldir
marblettir sem þær fengu við að
rekast utan í hluti á flóttanum. En
þegar út var komið mætti þeim hríð-
arbylur og mittisdjúpur snjór. Þeim
tókst þó að brjótast í gegnum ófærð-
ina á náttfötunum til vinafólks sem
býr í næsta nágrenni. Slökkvilið Ísa-
fjarðarbæjar er með dælubíl og út-
kallslið á Suðureyri og komust
slökkviliðsmenn fljótlega á vett-
vang. „Þeir stóðu sig eins og hetjur,“
segir Valgerður um slökkviliðs-
mennina. Ófærðin varnaði hins veg-
ar slökkviliði frá Ísafirði för. Einar
Ómarsson, flokksstjóri slökkviliðs-
ins á Suðureyri, segir slökkvistarfið
hafa gengið fljótt og vel og dælubíll-
inn hafi ekki átt í teljandi vandræð-
um með að komast á staðinn. Hins
vegar hafi slökkviliðsmenn komið
hlaupandi í útkallið niður á slökkvi-
stöð þar sem ekki var fólksbílafært í
bænum. Reykskynjari var í húsinu
en Valgerður segist ekki hafa heyrt í
honum.
Tildrög þess að hún vaknaði af
sjálfsdáðum og uppgötvaði eldinn
fyrir hreina tilviljun eru henni enn
hulin ráðgáta, en helst hallast hún
að því að „einhver góður maður“
hafi vakað yfir sér. Innbúið varð eld-
inum að bráð og miklar skemmdir
urðu á húsinu en Valgerður segir
tryggingamál sín þó í góðu lagi.
Mæðgur björguðust naumlega úr brennandi húsi
„Eldurinn ætlaði
að gleypa okkur“
Mæðgurnar Valgerður Kristjánsdóttir og Eydís Sævarsdóttir dvelja nú hjá
vinafólki en þær misstu allt sitt innbú í brunanum á Suðureyri í fyrrinótt.
RAGNAR Aðalsteinsson, lögmaður
Jóns Ólafssonar, fyrrv. eiganda
Norðurljósa, hefur farið fram á það
við ríkissaksóknara að hann rann-
saki hvort embætti skattrannsókn-
arstjóra ríkisins og ríkislögreglu-
stjóra hafi brotið lög með því að
koma til fjölmiðla, beint eða með
milligöngu þriðja aðila, upplýsingum
um að skattamál Jóns Ólafssonar
væru komin til meðferðar hjá efna-
hagsbrotadeild ríkislögreglustjóra.
Ragnar hefur einnig óskað eftir því
að ríkissaksóknari rannsaki hvers
vegna skattrannsóknarstjóri hafi
ekki kynnt Jóni Ólafssyni ákvörð-
unina um að senda mál hans til rík-
islögreglustjóra „fyrr en löngu eftir
að ákvörðunin var tekin og fram-
kvæmd og fjölmiðlar höfðu fjallað
um efnið,“ að því er segir í bréfi
Ragnars til ríkissaksóknara. Krefst
Ragnar þess að þeir sem kunni að
bera ábyrgð í þessum efnum verði
látnir sæta ábyrgð lögum sam-
kvæmt. Ragnar sendi embættunum
tveimur, þ.e. ríkislögreglustjóra og
skattrannsóknarstjóra, bréf þar sem
fullyrt er að annað hvort embættið
hafi haft samband við fjölmiðla og
greint frá kærumálinu á hendur Jóni
Ólafssyni. Í svarbréfum embætt-
anna er þessum fullyrðingum hins
vegar vísað á bug.
Lögmaður Jóns Ólafssonar,
fyrrverandi eiganda Norðurljósa
Krefst opinberr-
ar rannsóknar
LÖGREGLAN í Reykjavík
hefur upplýst eitt stærsta
fíkniefnamál í seinni tíð sem
varðar smygl á 15 kg af hassi
til landsins í þremur send-
ingum. Þrír menn bera sök í
málinu og voru úrskurðaðir í
tveggja vikna gæsluvarðhald
7. janúar. Alls voru fjórir
menn handteknir vegna máls-
ins en þeim fjórða sleppt að
loknum yfirheyrslum.
Hassið kom í þremur send-
ingum, fyrst 2 kg í fyrra með
Norrænu til Seyðisfjarðar,
því næst 5 kg sem falin voru í
hjólbörðum í vörusendingu.
Þessum efnum tókst smygl-
urunum að koma á markað en
lögreglan segir rannsókn
málsins hafa leitt í ljós að
sakborningarnir beri ábyrgð
á smyglinu. Síðasta sending-
in, og sú stærsta, eða 8 kg,
var þó stöðvuð áður en hún
fór í dreifingu.
Að sögn Harðar Jóhannes-
sonar yfirlögregluþjóns hafa
sakborningarnir ekki komið
við sögu lögreglunnar áður.
Að lokinni rannsókn verður
málið sent ákæruvaldi til
frekari meðferðar.
Götuverðmæti 15 kg af
hassi er um 35 milljónir
króna miðað við 2.340 kr. á
grammið samkvæmt verð-
könnun SÁÁ 31. nóvember
2003.
Verð á hassi hefur farið
hækkandi undanfarin misseri.
Smygl á
15 kg af
hassi
upplýst
LÖGREGLAN í Kópavogi handtók í
gær tvo karlmenn og eina konu á þrí-
tugsaldri grunuð um grófa líkams-
árás, frelsissviptingu og rán í vest-
urbæ Kópavogs rétt fyrir miðnætti á
þriðjudagskvöld. Nokkrir menn
vopnaðir stórum sveðjum og hafna-
boltakylfum réðust inn í íbúð, beittu
vopnum sínum á húsráðanda og réð-
ust einnig á sambýliskonu hans. Þeir
stálu fartölvu og unnu skemmdir á
íbúðinni og námu konuna á brott með
valdi. Var hún flutt nauðug viljug í
hraðbanka í bænum og þvinguð til að
taka út peninga af bankareikningi
sínum. Lögreglan segir ekki hafa ver-
ið um háa fjárhæð að ræða. Mennirnir
óku konunni síðan heim aftur.
Lögreglan fékk greinargóða lýs-
ingu af árásarmönnunum og bifreið
þeirra. Eftir töluverða leit fann lög-
reglan í Reykjavík bifreiðina fyrir ut-
an hús í austurhluta Reykjavíkur. Í
framhaldi af því voru maður og kona á
þrítugsaldri handtekin, grunuð um
aðild að árásinni. Þá fannst hin stolna
fartölva einnig í íbúðinni. Síðar um
daginn var þriðji aðilinn handtekinn.
Öll voru þau yfirheyrð í gær en ekki lá
fyrir hvort rannsóknarhagsmunir
krefðust þess að gerð yrði krafa um
gæsluvarðhald yfir þeim. Hin hand-
teknu hafa komið við sögu hjá lög-
reglunni áður. Grunur leikur á að
árásin hafi tengst innheimtu skuldar
en ekki er ljóst hvers konar skuld um
er að ræða. Sambýlisfólkið sem ráðist
var á leitaði sér sjálft aðstoðar á slysa-
deild. Rannsókn málsins heldur
áfram hjá lögreglu.
Þrír handteknir grunaðir
um grófa líkamsárás og rán