Morgunblaðið - 15.01.2004, Side 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
575 1230
5.900fl.
N‡skr.10.2002,
5400cc vél.
5 dyra, sjsk.
Hvítur, ekinn 22.fl.
LINCOLN NAVIGATOR
í notuðum bíl frá okkur
Hafðu það notalegt
Opi› mán-fös 10-18
Laugard. 12-16
PÁLMI Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði, segir að skorpulaus
ostur sé um 90% af ostaneyslu Íslendinga og verðið
sé um 10,6% hærra hérlendis en í Danmörku en
ekki 100 til 200% eins og fram hafi komið í könnun
Neytendasamtakanna fyrir helgi, en þessi munur
jafnist út þegar virðisaukaskattur sé lagður á
vegna hærri skatts í Danmörku.
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði sendu frá
sér yfirlýsingu um málið í gær. Þar kemur meðal
annars fram að í fyrra hafi selst 2.340 tonn af
skorpulausum osti hérlendis en sjö tonn af osti með
skorpu. „Það væri mjög miður ef tækist að telja
landsmönnum trú um að daglegur neysluostur
þeirra væri 100–200% dýrari hér á landi en annars
staðar á Norðurlöndum,“ segir í yfirlýsingunni og
Pálmi bætir um betur: „Svona tölur endurspegla
ekki verðlag á þessum vörum til neytenda í ná-
grannalöndum okkar,“ segir hann. „Það eru
kannski 10 tölur erlendis frá í könnun Neytenda-
samtakanna en þau taka eina tölu frá verslun í Hol-
landi sem er með 50% afslátt daginn sem könnunin
er gerð.“ Að sama skapi segir Pálmi að þrjár við-
miðunartölur séu teknar frá Danmörku og með-
alverðið sé um 10% ódýrara en á Íslandi. Fram-
setning Neytendasamtakanna sé því ekki
sanngjörn.
Óhagkvæm framleiðsla
Í verðkönnun Neytendasamtakanna kom m.a.
fram að verðmunur á hvítmygluosti hafi mestur
verið 371% og blámygluostur hafi verið 207% dýr-
ari hér á landi en í Danmörku. Pálmi segir að því sé
ekki mótmælt að mygluostar séu umtalsvert dýrari
hérlendis en í nágrannalöndunum. „Það er þannig,
hefur verið þannig og verður líklega þannig á með-
an þeir eru framleiddir hér á landi,“ segir hann en í
yfirlýsingunni kemur fram að samanburðurinn sé
bundinn margvíslegum vandkvæðum og vafa-
málum eins og fjölda tegunda, stuttum ending-
artíma, mismunandi flutningsmáta og margs konar
tilboðum og framleiðslu. „Þetta er sambland
margra þátta en mygluostarnir eru dýrari hérna
vegna mun minni framleiðslu. Á Íslandi eru búin til
500 kíló til eitt tonn á mánuði. Þetta er handavinna
sem fólk situr við því ekki er hægt að vélvæða fyrir
svona lítið magn. Í nágrannalöndum okkar er þetta
verksmiðjuframleiðsla nánast allan sólarhringinn.
Þarna liggur mikill munur.“
„Sú skoðun hefur verið sett fram að mjólkuriðn-
aðurinn á Íslandi ætti að laga sig að komandi samn-
ingum ríkja innan Heimsviðskiptastofnunarinnar,
WTO. Í því fælist að hætt yrði að leggja áherslu á
fjölbreytni og vöruþróun og framleiðslunni einbeitt
að fáum tegundum sem staðist gætu samkeppni við
frjálsan innflutning. Slík stefna leiddi til óheilla
vegna þess að enginn iðnaður lifir morgundaginn
nema að vera í stöðugri framþróun. Fram hefur
komið að auka beri innflutning mjólkurvara hér-
lendis. Á það skal bent að í milliríkjaviðskiptum
með landbúnaðarvörur fer Ísland eftir þeim leik-
reglum sem samið er um í alþjóðasamningum eins
og WTO, og hefur þá um leið tryggingu fyrir því að
jafnræðis sé gætt í markaðsaðgangi og viðskiptum
milli landa. Meðan lönd heimsins hafa ekki náð
saman um aðrar leikreglur en nú eru í gildi verður
íslenskur mjólkuriðnaður að starfa í samræmi við
umhverfið eins og það er í raun.
Á það hefur verið bent að Osta- og smjörsalan sé
stærsti innflytjandi á ostum til landsins. Í því sam-
bandi er rétt að það komi fram að fyrirtækið hefur
ekki stundað yfirboð á þeim markaði en hefur reynt
að stuðla að jöfnu og nægu framboði af eftirsóttum
erlendum ostategundum,“ segir m.a. í yfirlýsing-
unni. Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsöl-
unnar sf., segir að heildarkvótinn sé 119 tonn og til-
kostnaður sé helsta skýringin á verðmuni á
innfluttum osti, en flutningur með flugi hleypi verð-
inu mikið upp. Ekki sé heldur sama hvenær ost-
urinn sé keyptur. Til dæmis sé 25% hærra verð á
ostinum Gamle Ole 50 vikna gömlum en 35 vikna
gömlum.
Samkvæmt könnun Neytendasamtakanna var
danskur FlØde-Havarti 417% dýrari í klukkuversl-
un hér en í Danmörku og segir Magnús að kanna
þurfi þennan verðmun nánar en ljóst sé að þarna
hafi álagning eitthvað að segja.
Í yfirlýsingunni kemur fram að mikil hagræðing
hafi átt sér stað innan mjólkuriðnaðarins á Íslandi
undanfarin 12 ár. Afurðastöðvum hafi t.d. fækkað
úr 17 í 9 og hagræðing hafi skilað um 400 milljóna
kr. árlegum sparnaði á verðlagi til neytenda, en það
samsvari um 40 kr. á kg af osti eða um 4 kr. á hvern
lítra af neyslumjólk. „Við höfum hagrætt umtals-
vert undanfarinn áratug og sjáum mörg teikn um
það í starfsemi afurðastöðvanna,“ segir Pálmi.
Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði um verðmun á osti í verðkönnun
Segja daglegan neysluost
á svipuðu verði og í Danmörku
vikur eða þangað til stærð stofnsins
hefur verið mæld á ný. Stofnunin mun
á grundvelli niðurstöðu væntanlegra
mælinga gera frekari tillögur í þess-
um efnum. Enda þótt víða yrði vart
við loðnu út af Norður- og Norðaust-
urlandi var hún mjög dreifð. Niður-
staða mælingarinnar var því sú að
stofninum gæti stafað hætta af ef
veiðunum verði nú fram haldið.
„Það kom líklega í okkar hlut á
Guðmundi Ólafi að lenda í sennilega
því mesta sem sást í mælingunum.
Það sást loðna á stærstum hluta
MARON Björnsson, skipstjóri á
loðnuskipinu Guðmundi Ólafi ÓF91,
gagnrýnir harðlega tveggja vikna
bann sem sjávarútvegsráðuneytið
hefur lagt við loðnuveiðum. Lýsir
hann vanþóknun á vinnubrögðum
Hafrannsóknastofnunarinnar í mál-
inu en hann var einn 10 loðnuskip-
stjóra sem könnuðu hugsanlegt út-
breiðslusvæði loðnunnar í samvinnu
við stofnunina 3.–5. janúar.
Sjávarútvegsráðherra hefur að til-
lögu Hafrannsóknastofnunar ákveðið
að loðnuveiðar verði stöðvaðar í tvær svæðisins, að vísu mismikið. Austast
og syðst á veiðislóðinni sáu menn ekk-
ert og vestast sást lítið. Á svæðinu
austan við Kolbeinsey og allt austur
úr Langanesi sást loðna. Við máttum
taka prufur úr þessum lóðningum
sem við sáum og fengum 80 tonn á
togtíma af mjög góðri loðnu. Þó lóðaði
mjög illa á hana, hún kom mjög illa
fram á dýptarmælum. Magnið sem
við fengum í trollið var margfalt
meira en við reiknuðum með.
Eftir að gögnum hafði verið safnað
saman var leyfi til veiða gefið út og
hófust þær á þremur stöðum. Austan
við Kolbeinsey, norður af Sléttu og
austur úr Langanesi. Veiðin var mjög
góð 5. og 6. janúar, sérstaklega norð-
ur af Sléttu. Þar var um mjög góða
loðnu að ræða og þar vorum við líka
sl. sunnudag í mjög góðri veiði, þar
voru mjög stórar og miklar torfur. Og
hún var ennþá betri en sú loðna sem
við fengum útaf Kolbeinsey í mæling-
unum og skipin að fá upp í 250 tonn á
klukkutíma í togi.“
Stórloðna fékkst
norður af Sléttu
„Á þennan stað kom Árni Friðriks-
son ekki, þá var hann kominn austur
úr Langanesi og það er alveg klárt í
mínum huga að loðnan sem við feng-
um á þessum tímapunkti var allt önn-
ur loðna en við fengum dagana á und-
an. Ennþá stærri, hrein stórloðna. Að
mínu mati er það algjört ábyrgðar-
leysi hjá Hafró að stoppa veiðarnar,
ekki síst þar sem byrjunarkvótinn er
mjög lítill, 362 þúsund tonn.
Vísindin geta ekki talið fiskinn í
sjónum og munu ekki gera það. Það
er nauðsynlegt að halda skipunum
úti, meðal annars vegna þess að nú
stendur yfir frysting á Rússlands-
markað sem hefur aldrei verið stærri
vegna loðnubanns í Barentshafi.
Hann verður alveg lagður í rúst með
þessum aðgerðum Hafró sem getur
ekki endað með öðru en fjöldaupp-
sögnum og fólk verður atvinnulaust.“
„Aðstæður til stofnmælinga í byrj-
un janúar voru afleitar en þessi staða
hefur oft komið upp og janúarleiðang-
ur Hafró mistekist áður. En það sem
er verra í mínum huga er að ég held
það sé nánast útilokað að mæla stofn-
inn með því að stöðva veiðarnar og
hafa einungis eitt skip við mælingar.
Ég hef enga trú á því að þeir nái
nokkurn tímann utan um þetta núna
ef vertíð verður langt komin og þeir
hafa ekki veiðiskipin áfram á sjó,“
sagði Maron.
Stöðva loðnuveiðar í tvær vikur
Engin vinnu-
brögð að reka
skipin heim
Morgunblaðið/Kristinn
Maron Björnsson, skipstjóri á loðnuskipinu Guðmundi Ólafi ÓF 91, gagn-
rýnir harðlega tveggja vikna bann við loðnuveiðum. Myndin er frá loðnu-
löndun úr Víkingi á Akranesi.
PITTS S1S listflugvél, sem
fórst skammt frá Akureyrar-
flugvelli í júní 2002, missti
hreyfilafl vegna bensínleysis,
að mati Rannsóknarnefndar
flugslysa (RNF). Flugmaður-
inn gekk ekki úr skugga um,
með þar til gerðri stiku, að
nægjanlegt eldsneyti væri í
tönkum flugvélarinnar fyrir
brottför segir nýútkominni
skýrslu RNF um atvikið.
Tilgangur flugsins var
reynsluflug í kjölfar viðgerð-
ar á hreyfli flugvélarinnar.
Þegar hreyfillinn reyndist
starfa eðlilega tók við æfinga-
flug með listflugsæfingum.
Í undirbúningi flugsins not-
aði flugmaðurinn ekki þar til
gerða stiku sem staðsett var í
flugvélinni til þess að mæla
eldsneytismagn í tönkum
hennar heldur notaði hann
eldsneytismæli flugvélarinnar
eins og hann var vanur að
gera á sinni eigin flugvél. Til
viðmiðunar á mælingu elds-
neytisins studdist hann við
reynslu af sinni flugvél sem
er útbúin með svipuðum
hætti, segir í skýrslu RNF.
Notaði ekki stiku
Það er álit RNF að orsök
slyssins hefi verið sú að
hreyfill flugvélarinnar missti
afl sökum þess að eldsneytið
gekk til þurrðar. Það var
flugmannsins að ganga úr
skugga um að nægjanlegt
eldsneyti væri í eldsneytis-
tönkum flugvélarinnar fyrir
brottför og nota til þess þar
til gerða stiku sem var um
borð í flugvélinni.
Það er og álit RNF að
óáreiðanleiki eldsneytismæl-
isins hafi verið meðverkandi
þáttur í slysinu og hafi líklega
orðið til þess að flugmaðurinn
ofmat eldsneytismagnið í
tönkunum.
Varðandi tillögur í öryggis-
átt leggur Rannsóknarnefnd-
in til að Flugmálastjórn sjái
til þess að í prófunaráætlun-
um heimasmíðaðra loftfara
verði gert ráð fyrir að elds-
neytismælar séu sérstaklega
prófaðir og áreiðanleiki
þeirra staðfestur. Hið sama
skuli gilda þegar meiriháttar
breytingar eru gerðar á elds-
neytiskerfi heimasmíðaðra
loftfara eftir útgáfu lofthæfi-
skírteinis.
Flugslys-
ið rakið
til bens-
ínleysis