Morgunblaðið - 15.01.2004, Qupperneq 20
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Loksins - loksins
Eumenia þvottavélar og þurrkarar aftur á Íslandi
T I L B O Ð S D A G A R
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavík - Sími 588 0200 - eirvik.is
EURONOVA 600
600 snú/mín, þvær 3 kg.
67,5 cm h. x 46 cm br. x 46 cm d.
Verðlistaverð kr. 69.500
EURONOVA 1000
1000 snú/mín, þvær 3 kg.
67,5 cm h. x 46 cm br. x 46 cm d.
Verðlistaverð kr. 91.400
EUDORA 302
Þurrkari með tímastilli og útblæstri,
þurrkar 3 kg.
67,5 cm h. x 50 cm br. x 47 cm d.
Verðlistaverð kr. 37.400
Eumenia vélarnar eru afar vandaðar og
vel hannaðar. Þær henta allstaðar þar sem
pláss er lítið og ekki er gerð krafa um
mikla afkastagetu. Nú í janúar bjóðum
við þessar frábæru vélar á sérstöku
kynningarverði á meðan byrgðir endast.
Lítið við og kynnist Eumenia af eigin raun.
TILBOÐ kr. 55.600 stgr. TILBOÐ kr. 73.120 stgr. TILBOÐ kr. 29.920 stgr.
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Hafnarfjörður | Í Setbergsskóla
hefur undanfarið staðið yfir
undirbúningur fyrir átak í eflingu
lesskilnings nemenda.
Í öllum árgöngum verður til-
teknum kennslutíma varið í tíu
vikur til að þjálfa nemendur í
ákveðinni tækni, námsaðferð sem
kallast gagnvirkur lestur. Þetta
kemur fram á fréttavef Hafnar-
fjarðarbæjar, www.hafnar-
fjordur.is.
Þá er sagt frá því að nú séu þær
áherslur að breytast sem hafa
verið á að veita nær eingöngu
staðgóða grunnkunnáttu í lestri
en vanrækja lesskilning á efri
stigum grunnskólans. Kennarar
kenni nemendum í auknum mæli
leiðir til að skilja betur texta,
ekki síst upplýsinga- og fræði-
texta.
Ein hentugra aðferða til að
kenna nemendum betri lesskiln-
ing er nefnd gagnvirkur lestur.
Þegar nemendur beita aðferðinni
rifja þeir upp nýlesinn texta, búa
til spurningar úr honum, skýra út
orð og orðasambönd og spá um
hvað textinn fjallar um næst. Þeg-
ar nemendur hafa lært að beita
aðferðinni eru þeir hvattir til að
nota hana við heimanám og undir-
búning fyrir próf.
Þar sem gagnvirkur lestur hef-
ur verið tekinn upp hafa for-
eldrar verið hvattir til að kynna
sér aðferðina til að geta stutt við
börn sín. Telur starfsfólk Set-
bergsskóla þarna um bæði ein-
falda og áhrifaríka aðferð að
ræða.
Lestrarátak
í Setbergsskóla
Sjónarhóll kaupir húsnæði |
Gengið var frá kaupum Sjónarhóls á
húsnæði Sambands íslenskra sveit-
arfélaga og samstarfsstofnana þess
á Háaleitisbraut 11 síðastliðinn
föstudag, og verður þar til húsa ráð-
gjafarmiðstöð fyrir aðstandendur
barna sem stríða við langavandi
veikindi, fötlun, þroskahömlun eða
önnur þroskafrávik.
Einnig keyptu Landssamtökin
Þroskahjálp, Umhyggja, félag til
stuðnings langveikum börnum og
Foreldrafélag barna með AD/HD
hlut í húsinu, en fyrir er þar Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra.
Samband íslenskra sveitarfélaga
hafa keypt húsnæði í Borgartúni.
Reykjavík | Spurningakeppnin
„Nema hvað?“ hófst síðasta mánu-
dag með tilþrifum þegar Austurbæj-
arskóli lagði Tjarnarskóla með 19
stigum gegn 12.
„Nema hvað?“ er árleg spurn-
ingakeppni ÍTR (Íþrótta-og tóm-
stundaráðs Reykjavíkur) fyrir
grunnskólana í Reykjavík. Keppnin
er tvískipt. Fyrri hluti keppninnar
er riðlakeppni þar sem keppt er inn-
an fjögurra borgarhluta með útslátt-
arfyrirkomulagi um hverfismeist-
aratitil. Seinni hluti keppninnar eru
undanúrslit og úrslit þar sem hverf-
ismeistararnir fjórir keppa um
„Mímisbrunninn“, veglegan farand-
grip keppninnar. Edda – útgáfa
styrkir úrslitakeppnina með bóka-
verðlaunum.
26 grunnskólar eru skráðir til
leiks að þessu sinni. Þátttakendur
eru því alls 82 auk þess sem stuðn-
ingslið skólanna mæta á hverja við-
ureign til að hvetja sitt lið.
Fyrirkomulag keppninnar er tölu-
vert breytt frá því í fyrra þar sem
liðin geta nú valið spurningaflokka,
fá krossaspurningar sem liðsmenn
svara játandi eða neitandi á stuttum
tíma auk þess sem liðsmenn svara
eftir sem áður hraðaspurningum á
tíma, vísbendingaspurningum og
hlusta á hljóðdæmi. Þessi nýbreytni
mælist vel fyrir enda var þessi
fyrsta viðureign í keppninni lífleg og
áhorfendum til mikillar skemmt-
unar.
Úrslitakeppni „Nema hvað?“
hefst 23. febrúar og verður hún í
beinni útsendingu í Útvarpi SAM-
FÉS á Rás 2. Öll úrslit og umfjöllun
um keppnina verður birt á heima-
síðu ÍTR www.itr.is.
Ljósmynd/Eygló Rúnarsdóttir
Klárir ungir menn: Sigurlið Austurbæjarskóla stóð sig með stökustu prýði.
Árleg spurningakeppni ÍTR hafin
Lífleg viðureign
Hlíðar | Framkvæmdir eru nú í fullum gangi við
nýja leikskólabyggingu sem rís við hliðina á
Blindrafélaginu í Stakkahlíð. Á lóðinni var áður
gæsluleikvöllur sem var lagður niður fyrir nokkr-
um misserum.
Bergur Felixson, framkvæmdastjóri Leikskóla
Reykjavíkur, segir nýja leikskólanum ætlað að
koma í stað leikskólans Sólbakka sem er staddur á
Landspítalalóðinni, hér um bil á miðju vegarstæði
nýrrar Hringbrautar. „Ég á alveg eins von á því
að leikskólinn haldi nafninu, því þetta verða sömu
börn, foreldrar og starfsmenn,“ segir Bergur, en
tekur fram að börnunum fjölgi aðeins við innflutn-
inginn, „því nýja húsið rúmar fleiri börn og þar
með starfsmenn.“
Minni leikskóli en hentugt þykir
Bergur segir upprunalegar hugmyndir hafa
gert ráð fyrir færanlegu timburhúsi, en það hafi
ekki þótt samræmast umhverfi Hlíðanna. „Við
höfðum því steypt hús. Þetta er tveggja deilda
leikskóli, heldur minni en það sem við erum helst
að byggja núna, en við fengum ekki stærri lóð
undir hann. Á stærri lóðum þykir hentugra að
byggja fjögurra deilda leikskóla með tilliti til
kostnaðar, stjórnunar og fleiri þátta.
Ég er handviss um að leikskólinn muni pluma
sig ágætlega, við erum bæði með góð börn og gott
starfsfólk,“ segir Bergur.
Gert er ráð fyrir að hið nýja húsnæði Sólbakka
verði tekið í notkun í apríl næstkomandi og segir
Bergur fólk almennt mjög fegið að flytja inn í það,
enda hafi það staðið til nokkuð lengi að færa
Hringbrautina og fólk orðið langeygt eftir nýjum
kostum í húsnæðismálum. „Það var líka orðið mik-
ið viðhald í gamla húsinu með tilheyrandi kostnaði
sem menn voru ekki tilbúnir að fara í til skamms
tíma. En það er ljóst að starfsfólk og börn fá
þarna mun betra hús og betri aðstöðu,“ segir
Bergur að lokum.
Nýr tveggja deilda
leikskóli í Stakkahlíð
Morgunblaðið/Þorkell
Leikskóli í smíðum: Iðnaðarmenn og byggingaverkamenn eru á fullu við að koma nýjum leikskóla við
Stakkahlíð í gagnið, þrátt fyrir að kuldaboli láti vel í sér heyra þessa dagana.
Kemur í stað Sólbakka við flugvallarsvæðið
ÍÞRÓTTAMAÐUR Mosfellsbæjar 2003 var á dög-
unum kjörinn Heiðar D. Bragason, golfmaður úr
Golfklúbbnum Kili. Afhending viðurkenningar-
innar fór fram í hófi sem haldið var fyrir íþrótta-
fólk Mosfellsbæjar í Hlégarði nýlega. Þetta var í
tólfta skiptið sem íþróttamaður Mosfellsbæjar
var útnefndur. Einnig voru veittar viðurkenn-
ingar til Íslandsmeistara, bikarmeistara og deild-
armeistara, fyrir æfingar með landsliði og þátt-
töku í landsliði. Einnig voru veittar viðurkenn-
ingar til efnilegra unglinga yngri en 16 ára í
hverri íþróttagrein. Valinn var skáti ársins 2003
og tveir efnilegir skátar 16 ára og yngri.
Heiðar hefur verið í landsliðshópi í golfi frá
árinu 1999. Hann var valinn í allar keppnisferðir
sem landsliðið fór árið 2003, þar á meðal á Evr-
ópumót einstaklinga, Norðurlandamót landsliða
og Evrópumót landsliða.
Meðal afreka Heiðars á síðasta ári má nefna að
hann varð sigurvegari á stigamóti GSÍ, Toyota
mótaröðinni, með samanlagðan besta árangur
keppanda. Hann var í fyrsta sæti á stigamóti á
Korpúlfsstaðavelli og í öðru sæti á stigamóti á
Grafarholtsvelli. Hann var í landsliði Íslands sem
var í þriðja sæti á Norðurlandamóti í Svíþjóð.
Hann var í fimmta sæti á Íslandsmóti einstakl-
inga sem fram fór í Vestmannaeyjum. Heiðar tók
þátt í Opna þýska áhugamanna-mótinu í Þýska-
landi og lenti þar í sjöunda sæti.
Heiðar er klúbbmeistari Golfklúbbsins Kjalar
þriðja árið í röð.
Í öðru sæti í kjörinu um íþróttamann Mosfells-
bæjar 2003 var Einar Ingi Hrafnsson, handknatt-
leiksmaður úr Aftureldingu, en í þriðja sæti var
Brynja Finnsdóttir, frjálsíþróttakona úr Aftur-
eldingu.
Einnig var veitt viðurkenning fyrir frábær
störf að skátamálum en hana hlaut Gunnar Atla-
son úr skátafélaginu Mosverjum.
Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2003: Heiðar D.
Bragason golfmaður stendur hróðugur með bik-
ara sem hann fékk í viðurkenningarskyni.
Heiðar D. Braga-
son íþróttamaður
Mosfellsbæjar