Morgunblaðið - 15.01.2004, Blaðsíða 22
AKUREYRI
22 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Kennt er hvernig hægt er að útbúa fjárhagsskema með mismunandi
upplýsingum og lykiltölum úr bókhaldi fyrirtækisins. Greining helstu
lykiltalna ásamt uppgjöri og skil bókhaldsgagna til endurskoðenda.
Lengd: 24 stundir Verð: kr. 28.000
Næsta kvöldnámskeið hefst 19. janúar.
Kennslutími:
- mánudags- og miðvikudagskvöld kl. 18 – 22 og
- laugardagar kl. 8:30 – 12:30
HÁIR snjóruðningar hafa hlaðist
upp um allan um bæinn, eftir um-
fangsmikinn snjómokstur tuga
snjóruðningstækja síðustu daga.
Umferðin hefur þó gengið þokka-
lega miðað við aðstæður og óhappa-
laust, að sögn lögreglu. Áfram er
gert ráð fyrir norðaustlægum
áttum með éljagangi í dag en að
veður fari kólnandi þegar líður á
daginn.
Morgunblaðið/Kristján
Ekki eru allir jafnánægðir með hversu mikið hefur snjóað síðustu daga, en börnin á leikskólanum Sunnubóli voru
hin ánægðustu með tíðarfarið og léku við hvern sinn fingur á skólalóðinni.
Gaman og
alvara í
snjónum
Morgunblaðið/Kristján
Snjóruðningstæki voru fyrirferðarmikil á götum Akureyrar í gær og víða
hafa myndast háir skaflar eftir snjómoksturinn síðustu daga.
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt karlmann á þrítugsaldri í
5 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyr-
ir að sýna tveimur stúlkubörnum kyn-
ferðislega áreitni. Maðurinn var einn-
ig dæmdur til að greiða stúlkunum
150 þúsund kr. hvorri í miskabætur.
Maðurinn var fundinn sekur fyrir
að hafa árið 2000 eða 2001 káfað á
stúlku sem fædd er árið 1992 og fyrir
að hafa í janúar 2002 káfað á annarri
stúlku, fæddri 1989. Við rannsókn
þess máls fundust í tölvu á heimili
mannsins 59 myndir sem sýndu börn
á kynferðislegan og klámfenginn
hátt, en hann neitaði því að hafa
nokkru sinni séð eða vitað af mynd-
unum og var sýknaður af ákæru
vegna þeirra. Dómurinn segir að þær
hafi að öllum líkindum verið svokall-
aðar „thumbnails“ en slík myndform
séu notuð sem myndayfirlit þegar far-
ið sé á netsíður sem bjóði upp á að
skoða myndasöfn. Mikið af slíkum
myndum vistist sjálfvirkt og taldi
dómurinn ósannað að maðurinn hefði
vistað myndirnar meðvitað. Þvert á
móti væri líklegt að þær hefðu vistast
sjálfkrafa við netnotkun mannsins.
Skilorð fyrir áreitni
„ÞETTA kom mér mjög á óvart, ég
hafði ekki heyrt neitt um að þessir
menn væru í viðræðum um kaup á
fyrirtækinu,“ sagði Anna Júlíusdótt-
ir, trúnaðarmaður starfsfólks Út-
gerðarfélags Akureyringa. Hún var
ekki á vinnustaðnum í gær eftir að
fréttir bárust um eigendaskiptin, var
á leið á fund í Reykjavík. „Ég held
samt að menn séu svolítið „sjokk-
eraðir“ vegna þess að allir héldu að
heimamenn myndu kaupa fyrirtæk-
ið, KEA var alltaf inni í myndinni.
Fólk veit ekki einu sinni hvaða menn
þetta eru, hefur aldrei séð þá,“ sagði
Anna.
Hún sagði að talað hefði verið um
að nýju eigendurnir hefðu keypt fyr-
irtæki annars staðar á landinu „og
splundrað þeim upp,“ eins og hún
orðaði það. „Fólk er hrætt, ég verð
að viðurkenna það. En það er eðli-
legt, slíkt gerist alltaf þegar svona
miklar breytingar verða. Ég vona
bara það besta og reksturinn verði í
svipuðu horfi og verið hefur,“ sagði
Anna.
Trúnaðarmaður
starfsfólks ÚA
Fólk er hrætt
en vonar
það besta
BJÖRN Snæbjörnsson, formaður
Verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju,
sagðist bjóða nýja eigendur Útgerð-
arfélags Akureyringa velkomna til
bæjarins. „Ég vona að haldi áfram
svipuð starfsemi hjá fyrirtækinu og
verið hefur. Það hefur gefist vel fram
til þessa,“ sagði Björn.
Hann sagði einnig að hann vænti
þess að gott samstarf yrði áfram
milli eigenda ÚA og stéttarfélagsins.
„Það hefur alltaf verið gott samstarf
þar á milli og ég vona að það haldi
áfram,“ sagði Björn. Hann sagðist
ekki hafa heyrt neitt um áform nýrra
eigenda, „en ég vona að þeir haldi
hinu góða merki ÚA á lofti.
Þeir eru með eitt stærsta frysti-
hús landsins sem gengið hefur vel og
starfsfólkið er í hópi bestu sérfræð-
inga í fiskvinnslu á landinu,“ sagði
formaður Einingar-Iðju.
Hann sagði að vissulega hefðu
þessar málalyktir komið á óvart og
menn hefðu margir vonað að fyrir-
tækið lenti í höndum heimamanna,
„en ég tek fagnandi á móti þessum
nýju eigendum, við sjáum bara til
hvernig málin þróast“.
Formaður Verkalýðs-
félagsins Einingar-Iðju
Vona að sam-
starfið verði
áfram gott
„ÉG hefði kosið að heimamenn
hefðu keypt fyrirtækið, það hefði
mér þótt ákjósanlegra,“ sagði Ok-
tavía Jóhannesdóttir oddviti Sam-
fylkingarinnar í bæjarstjórn Akur-
eyrar. „Ég leyni því ekki að mér
hefði þótt betra að heimamenn
hefðu eignarhald á þessu fyrirtæki
sem skiptir okkur bæjarbúa svo
miklu máli.“
Hún sagði ekki ólíklegt að í
tengslum við þetta mál myndu
ókostir kvótakerfisins renna upp
fyrir mönnum. „Við hérna á Ak-
ureyri höfum álitið okkur nokkuð
örugg í þessum efnum, með þennan
mikla kvóta. Nú erum við í raun
komin í sömu stöðu og mörg
smærri byggðarlög á landsbyggð-
inni, við vitum ekkert hvað við mun-
um hafa hér til framtíðar,“ sagði
Oktavía.
Hún sagði enga ástæðu til þess
að ætla nýjum eigendum það að
flytja kvóta á brott úr byggðarlag-
inu.
„Það er eðlilegt að gefa þeim
tækifæri til að sýna hvað í þeim býr
og hvað þeir ætla sér.“
Oktavía sagði að vissulega hefði
hún heyrt að mikill urgur væri í
fólki vegna þess að heimamönnum
gafst ekki tækifæri á að kaupa fyr-
irtækið, en hún benti einnig á að
það hefði raunar ekki verið í eigu
heimamanna um nokkurra ára
skeið, „en samt gengið ágætlega og
ég býst við að svo verði áfram“.
Oddviti Samfylking-
arinnar í bæjarstjórn
Hefði kosið
að heimamenn
ættu ÚA
KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjarstjóri á Ak-
ureyri kvaðst vonast til þess að nýr eigandi
myndi nýta sér þá möguleika sem fyrir hendi
væru í rekstri Útgerðarfélags Akureyringa
og til að gera áfram út öflugt sjávarútvegs-
fyrirtæki. „Ég ætla honum ekki annað og vil
bjóða hann velkomin til bæjarins,“ sagði
Kristján Þór. Hann sagði ekkert nýtt að fyr-
irtæki skiptu um eigendur, en það væri
breytilegt með hvaða hætti slíkt væri gert.
„Það sem mér finnst athugunarvert í þessu
og visst áhyggjuefni er með hvaða hætti
Landsbanki Íslands gengst í þetta verk,“
sagði bæjarstjóri.
Hann sagði það viðurkennt af þeim sem til
þekktu að kaupverð upp á 9 milljarða króna
væri af þeirri stærðargráðu að núverandi
rekstur ÚA þyldi ekki slíkt
verð, það væri alltof hátt.
„Það þarf að gera ein-
hverjar tilfæringar þarna
inni og það er umhugs-
unarefni hvað og yfirleitt
hvort Landsbanki Íslands
er eitthvað að hugsa í því
sambandi. Það virðist ekki
vera, þannig að að öllu
óbreyttu eru skilaboð
Landsbankans til starfs-
manna ÚA og bæjarbúa að honum er nokkuð
sama hvað um þennan atvinnurekstur verð-
ur. Bankinn er bara að tryggja sitt fé,“ sagði
Kristján Þór.
Hann sagði öllum vissulega gott að græða
og það væri í góðu lagi, „en það er ein-
kennilegt ef bankastofnanir eru farnar að
gangast fyrir því að fyrirtæki séu seld á upp-
lausnarverði, þannig að atvinnureksturinn
sem af þeim leiðir leggist í dvala.“
Þetta sagði bæjarstjóri nýjan veruleika og
menn gætu velt fyrir sér yfirlýsingum for-
svarsmanna Landsbankans um að þeir vildu
gjarnan vinna með heimamönnum að eflingu
atvinnulífs. Slík orð hefðu fallið við hátíðlegt
tækifæri á liðnu hausti.
„Mér finnst líka einkennilegt að horfa upp
á þennan gjörning í ljósi þess langa og far-
sæla viðskiptasamband sem verið hefur á
milli Akureyrarbæjar og Landsbankans, sem
spannar nú yfir 100 ár,“ sagði Kristján Þór.
Hann sagðist ekkert geta sagt um á þessari
stundu hvort breyting yrði þar á í framtíð-
inni, en sem stæði væri bærinn samnings-
bundinn í viðskiptum við Landsbankann.
Hann benti á að bankinn væri með sölu á
fyrirtækjum sínum á Akureyri, Akranesi og
Skagaströnd að leysa til sín líklega um 3
milljarða í beinan hagnað, „og mun upp-
spretta þessa hagnaðar njóta þessara fjár-
muna í eflingu atvinnulífs á svæðinu? Það er
ekkert sem bendir til að svo verði og veldur
vissulega áhyggjum. Og þá spyr maður sig:
Er löngunin í þessa fjármuni slík að menn
skirrast ekkert við að taka til sín þennan arð
sem þarna verður til og flytja hann burt af
svæðinu? Því miður virðist margt benda til að
svo sé og fólk hefur af þessu miklar áhyggj-
ur,“ sagði Kristján Þór.
Bæjarstjóri gagnrýnir Landsbankann
Kristján Þór
Júlíusson
Nýstárlegar gönguferðir | Ís-
lenskir fjallaleiðsögumenn efna til
myndasýningar í kvöld, fimmtudags-
kvöld, á Hótel KEA og hefst hún kl.
20.
Á sýningunni fjallar Einar Torfi
Finnsson um nýstárlegar göngu-ferð-
ir íslenskra fjallaleiðsögumanna um
Marokkó og Níger í Norður-Afríku.