Morgunblaðið - 15.01.2004, Qupperneq 23
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 23
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Mjög falleg og vel skipulögð 100 fm
neðri hæð í góðu steinhúsi auk 31 fm
bílskúrs. Íbúðin er mikið endurnýjuð
og skiptist m.a. í hol með góðu ská-
paplássi, samliggjandi stofur, eldhús
með nýjum innréttingum úr kirsuberja-
viði, vönduðum tækjum og góðri
borðaðstöðu, 2 svefnherbergi og ný-
lega endurnýjað flísalagt baðherbergi. Parket og flísar á gólfum. Íbúð
sem vert er að skoða. Áhv. húsbr. 6,3 millj. Verð 20,7 millj.
Kvisthagi
neðri hæð með bílskúr
Falleg 5 herbergja íbúð á 2. hæð í fjór-
býli ásamt 22 fm bílskúr. Eldhús með
nýlegri beykiinnréttingu, nýlegum
tækjum og góðri borðaðstöðu, sam-
liggjandi stórar stofur með útsýni yfir
sjóinn, 3 herbergi og flísalagt baðher-
bergi. Tvennar svalir í suður og vestur.
Parket og flísar á gólfum. Sérgeymsla
í kj. Hús nýlega lagað að utan. Laus í mars nk. Verð 23,5 millj.
Tómasarhagi
5 herb. með bílskúr
RAFMAGNSLÍNUR fóru í sundur í
Eyjafirði og Ljósavatnshreppi í
óveðrinu síðustu daga en ekki urðu
þó umtalsverðar rafmagnstruflanir
vegna þessa. Tveir félagar í Björg-
unarsveitinni Súlum á Akureyri fóru
á snjóbíl sveitarinnar til að aðstoða
starfsmenn Rarik yfir Víkurskarð
seinni partinn í gær. Víkurskarð hef-
ur verið kolófært síðustu daga en
snjóbíllinn, sem er með tönn, er gríð-
arlega öflugur og fátt sem stendur í
vegi fyrir honum. Helgi Jónsson
starfsmaður Rarik sagði að menn
ætluðu að freista þess að hefja við-
gerð á línunni frá Laxá til Akureyr-
ar, sem fór í sundur við Stórutjarnir í
Ljósavatnshreppi. Rafmagnslína fór
einnig í sundur á Látraströnd og var
bærinn Finnastaðir norðan Greni-
víkur án rafmagns. Starfsmenn Ra-
rik ætluðu að reyna viðgerð þar í
fyrradag en urðu frá að hverfa vegna
veðurs og svipuð staða var uppi
seinni partinn í gær, að sögn Helga.
Þá er línan milli Ólafsfjarðar og Dal-
víkur úti en Helgi sagði að vegna
veðurs hefði ekki verið hægt að
skoða línuna. „Það gæti hafa fallið
snjóflóð á línuna en við munum
skoða málið um leið og veður leyfir.
Að öðru leyti er ástandið þokklegt,“
sagði Helgi.
Rafmagnslínur fóru í sundur
Morgunblaðið/Kristján
Þórhallur Birgisson og Svavar Tuliníus halda á Víkurskarðið á snjóbíl Björgunarsveitarinnar Súlna seinni partinn
í gær. Snjóbíllinn, sem er með snjótönn, er gríðarlega öflugur og er fátt sem stendur í vegi fyrir honum.
DILBERT mbl.is