Morgunblaðið - 15.01.2004, Síða 66
66 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra
tíma.“
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
HJ MBL
VG. DV
Frábær rómantísk gamanmynd
með ótrúlegum eikkonum
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Yfir 73.000 gestir
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg
mynd.“
VG. DV
mona lisa
smile
Sýnd kl. 4.30 og 8. B.i. 12.
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
Sýnd kl. 4.
Íslenskt tal.
Kvikmyndir.com
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Frábær rómantísk
gamanmynd
með ótrúlegum
leikkonum
Frumsýning
Stórskemmtileg gamanmynd með Brittany Murphy (8 Mile og
Just Married) sem fer að passa ríka litla stelpu eftir að hún
stendur uppi peningalaus. Með hinni frábæru Dakotu Fanning.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 12 ára.
kl. 6 og 10.
EPÓ kvikmyndir.com
„Besta ævintýramynd allra tíma.“
HJ MBL
ÞÞ FBL
„VÁ. Stórfengleg mynd.“
„Besta mynd ársins.“
SV MBL
Yfir 73.000 gestir
VG. DV
ARI Í ÖGRI: Dúettinn Acoustics
föstudag og laugardag.
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Harmon-
ikuball/ Þorrablót laugardag kl. 22.
Fyrir dansi leika 5 hljómsveitir: Suð-
urnesjamenn, Stormurinn og hljóm-
sveitir Corina Cubid, Hildar Friðriks-
dóttur og Ulrics Falkner. Fjölbreytt
dansmúsík við allra hæfi. Þorrablót
félagsins er á sama stað kl. 19. Nokkr-
ir miðar lausir. Dansleikur, Caprí-tríó
leikur fyrir dansi sunnudag kl. 20 til
23.30.
BÚÁLFURINN, Hólagarði, Breið-
holti: Gulli Reynis föstudag og laug-
ardag.
BÚÐARKLETTUR, Borgarnesi:
Þúsöld spilar laugardag.
CAFÉ 22: Tríóið Hvanndalsbræður
og Rögnvaldur gáfaði með útgáfutón-
leika laugardag kl. 21 til 23. Leikin
verða lög af nýútkomnum diski þeirra
félaga sem ber heitið Út úr kú.
CAFÉ AROMA, Verslunarmið-
stöðinni Firði: Stuðbandið Regn
laugardag kl. 23 til 03.
CAFÉ CATALÍNA, Hamraborg
11: Ingi jr. ásamt gestum föstudag og
laugardag.
CELTIC CROSS: Hljómsveitin 3-
Some á neðri hæðinni föstudag og
laugardag.
DÁTINN, Akureyri: MTV-tónlist á
öllum tjöldum og Dj Andri í búrinu
fimmtudag kl. 22 til 01. DJ Leibbi
laugardag.
FELIX: Dj Valdi föstudag. Atli
skemmtanalögga laugardag.
FJÖRUKRÁIN: Hilmar Sverrisson
föstudag kl. 23 til 03. Rut Reginalds
og hljómsveit laugardag kl. 23 til 03.
GAUKUR Á STÖNG: Tónleikar
með Dúndurfréttum fimmtudag kl.
21. Kung Fú föstudag. Írafár laug-
ardag.
GLAUMBAR: Einar Ágúst og
Gunni Óla til 23 og Atli skemmtana-
lögga eftir það fimmtudag. Dj Bjarki
Batman föstudag. Einar Ágúst og
Gunnar Óla spila á milli Idol-þáttanna
á Stöð 2 og á eftir til kl. 01. Óvæntur
gestur kemur og tekur lagið og unga
söngkonan Guffa kemur og tekur
nokkra létta slagara. Dj Bjarki Bat-
man laugardag.
GRANDROKK: Mínus, Jan Mayen,
Manhattan laugardag kl. 23.
GRÆNI HATTURINN, Akureyri:
Finnbogi Marinósson heldur uppi
stuðinu föstudag og laugardag.
GULLÖLDIN: Stuðboltarnir Sven-
sen og Hallfunkel sjá um fjörið föstu-
dag og laugardag. Boltinn er í beinni
á breiðtjaldinu.
HITT HÚSIÐ: Dj-arnir Exos,
Impulse, Gunni, Ewok (breakbeat.is),
Kalli (breakbeat.is) og Dj Gestur
fimmtudag kl. 20 á Drum & bass
techno-kvöldi. Allir 16 ára og eldri
eru velkomnir.
HVERFISBARINN: Ari & Gunni
fimmtudag. Atli skemmtanalögga
föstudag. Dj Benni laugardag.
KAFFI LIST: B-3 tríó fimmtudag
kl. 21:30 til 00.
KAFFI-LÆKUR: Björn bóndi með
tónlist á fóninum föstudag og laug-
ardag.
KAFFI-STRÆTÓ, Mjódd: Tú og ég
föstudag og laugardag.
KAPITAL: Brian Stillwater, Dj
Ricardo Cuellar og dj Exos fimmtu-
dag kl. 21 til 01.
KRINGLUKRÁIN: Geirmundur
Valtýsson föstudag og laugardag.
LAUGAVEGUR 22: Plötusnúðarn-
ir Benni og Doddi litli leiða saman
hesta sína föstudag.
NASA VIÐ AUSTURVÖLL: Ný
Dönsk spilar föstudag. Idol á risa-
skjá, byrjar 20.00. Línudansball laug-
ardag kl. 21 til 00:30. Það verða
kenndir tveir til þrír léttir dansar.
Svo verður smá sýning í lok kvöldsins
þar sem fram koma bestu línudans-
ararnir og sýna keppnisdansana sína.
Ný Dönsk spilar í húsinu eftir kl.
00.30.
NIKKABAR, Hraunbergi 4: Blátt
áfram spila laugardag.
PAKKHÚSIÐ, Selfossi: Hljóm-
sveitin Miðnes fimmtudag og föstu-
dag. Gilitrutt leikur laugardag.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Stuðmenn spila föstudag. Saga-
klass spilar laugardag.
RAUÐA LJÓNIÐ: Stórtríóið Spila-
fíklarnir föstudag og laugardag. Tríó-
ið skipa Binni bassi, Guðni gítar og
söngur og Siggi H. trommur.
RÁIN, Reykjanesbæ: Danssveitin
„SÍN“ leikur föstudag. Danssveitin
leikur laugardag.
SETUSTOFAN, Lækjargötu 10:
Sammi Jagúar föstudag. Dj b ruff og
dj Magic laugardag.
SJALLINN – DÁTINN: Idol
Stjörnuleit á öllum tjöldum föstudag
kl. 20.
Úrslitin í Idol eru í beinni útstend-
ingu á Stöð 2 úr Vetrargarði Smára-
lindar á föstudag kl. 20.30. Síðan kem-
ur Páll Óskar og spilar og tekur sjóið
sitt.
SNÚLLABAR, Hveragerði: Frikki
og Sigurjón spila föstudag og laug-
ardag.
STÚDENTAKJALLARINN: Al-
þjóðakvöld. Forgotten Lores halda
uppi stuðinu fimmtudag. Helgi og
hljóðfæraleikararnir með árlega tón-
leika föstudag og laugardag.
FráAtilÖ
Morgunblaðið/Jim Smart
Hljómsveitin Nýdönsk verður á
Nasa um helgina. „Brasilíski“ út-
gerðarmaðurinn Björn Jörundur
verður með í þetta sinnið.
BANDARÍSKI plötusnúð-
urinn Brian Stillwater mun
spila á skemmtistaðnum
Kapital í kvöld frá kl. 21–1.
Brian mun þeyta skífur
ásamt rafteininum Exos og
framsækna hússnúðinum
dj Ricardo Cuellar.
Brian hefur komið víða
við, hann hefur spilað þvers
og kruss um Bandaríkin ásamt því
að hafa plötusnúðast í Bretlandi,
Sviss, Slóveníu, Tékklandi, Hollandi
og Asíu.
Brian Stillwater er kennd-
ur við tónlistarstefnuna
„Progressive house“ en hann
spilar einnig „breakz“ og
„techouse“. Hann hefur
fengið góðan stuðning frá
köppum eins og John Dig-
weed, Nick Warren, og
Danny Howells ásamt fleir-
um sem spilað hafa plötur og
endurhljóðblandanir eftir Brian
Stillwater og Alex Gardels.
18 ára aldurstakmark er á Kapital
og aðgangseyrir 500 kr.
Erlendir plötusnúðar á Kapital í kvöld
Framsækinn Stillwater
ÞÁ HEFUR hin sjálfskipaða tísku-
lögga og fyrrum hönnuður, Mr.
Blackwell, tilnefnt verst klæddu
konurnar fyrir árið 2003. Efst á
lista trónir hótelerfinginn og leik-
konan, hin 22 ára Paris Hilton, sem
varð hvað frægust fyrir að vera án
klæða í ástarleik með fyrrum kær-
asta á heimamyndbandi sem birtist
á Netinu á síðasta ári. Litla mis-
kunn er að finna í heimi slúðursins í
Ameríku og hefur fyrrnefndur
Blackwell veitt Paris þá vafasömu
nafnbót að vera „Hin bragðlausa
Venus Beverly Hills hæða“.
En fast á hæla Paris á lista yfir
verst klæddu konur síðasta árs
koma ekki minni stjörnur en söng-
konurnar Madonna og Britney
Spears og kallar Blackwell þær
„Hinar kyssandi glæpakvendis-
frænkur kvenfatatískunnar“ og vís-
ar þar í títtnefndan koss þeirra
söngkvennanna á tónlistarverð-
launahátíð nokkurri.
Í þriðja sæti er svo sveita-
söngkonan Shania Twain sem hann
kallar „Hörmungar Twain“ fyrir að
klæðast spjátrungslegum fótabún-
aði og hafa steiktan sveitastíl.
Í fjórða sæti
kemur svo
leikkonan
Diane Keaton
sem átti góða
endurkomu á
árinu í mynd-
inni „Some-
thing’s Gotta
Give“ með
mótleik-
aranum Jack
Nicholson, en
Blackwell þyk-
ir ekki mikið til
Diane koma og
sparar ekki fúkyrðin, segir hana
„ósmekklega klædda, digra og
subbulega“.
Þær sem verma sætin fyrir neðan
þessar fjórar efstu, eru í réttri röð
eftirfarandi: Poppstjarnan Jessica
Simpsons, söngkonan Celine Dion,
rapparastjarnan Missy Elliott, leik-
konan Melanie Griffith, söngkonan
Courtney Love og leikkonan Lara
Flynn Boyle sem þótti hafa gert
hrapalleg mistök með því að mæta
til verðlaunaafhendingar eins og
ballerína. Margar konur sluppu við
skrekkinn um að vera úthúðað
þetta árið af Blackwell og lentu
ekki á skelfingarlistanum yfir þær
verst klæddu og má þar nefna
nokkur af fyrrum fórnarlömbum,
eins og Cher, Barbru Streisand og
ýmsa meðlimi bresku konungsfjöl-
skyldunnar.
Paris Hilt-
on þykir
verst klædd
Móðurleg Madonna
deilir öðru sæti með
Britney Spears yfir
verst klæddu kon-
urnar.