Morgunblaðið - 16.01.2004, Page 6
6 | FÓLKIÐ | FÖSTUDAGUR 16|1|2004 MORGUNBLAÐIÐ
Um strætin dansa glysklæddar dömur og stællegir
herrar. Ráðabrugg ráða ríkjum og enginn er lævísari
en Billi Bé, lögmaðurinn útsmogni. Sveinn Geirsson
leikur Billa Bé í söngleiknum Chicago, sem frum-
sýndur er í Borgarleikhúsinu á sunnudag.
Þetta er sama hlutverk og Richard Gere hlaut lof
fyrir í kvikmyndinni Chicago, sem Sveinn var reyndar
ekki hrifinn af. „Ég hraðspólaði í gegnum hana. Hún
er ofmetin, það hlýtur að hafa verð gúrkutíð hjá aka-
demíunni.“
Sveinn heitir skemmtilegri sýningu, sem er í þetta
sinn ekki á hvíta tjaldinu heldur á sviði í leikstjórn
Þórhildar Þorleifsdóttur og er um að ræða þýðingu og
leikgerð Gísla Rúnars Jónssonar.
Er þetta skemmtilegur söngleikur?
„Mér finnst þetta virkilega skemmtilegur söng-
leikur en hann er mikið fyrir bæði augu og eyru,“ segir
Sveinn, sem fær líka að vera í glimmerfötum eins og
stelpurnar. „Ég kem inn í skrautbúningi,“ segir hann
og sýnir gullbuxur og pallíettuvesti. „Ég hef alltaf ver-
ið mjög glysgjarn og tek því fegins hendi að fara í
smáglys. En ég er líka sáttur við jakkafötin mín,“ seg-
ir Sveinn.
Hvernig persóna er Billi Bé?
„Hann er mjög útsmoginn, lymskulegur, frekur,
ágjarn, sjálfselskur. Hann dáir bara einn hlut í þessum
heimi, fyrst og fremst sjálfan sig og frægð og pen-
inga. Að hans mati er hann guðs gjöf til veraldarinnar.
Hann er alltaf við stjórnvölinn og gengur í gegnum
sýninguna eins og brúðumeistari og kippir í spotta.“
Hvernig er að leika svona mann?
„Það er bara mjög skemmtilegt. Hann er stöðugt
að „performera“ og spegla sjálfan sig í því fólki sem
hann er að tala við.“
Hefurðu gaman af söngleikjum almennt?
„Já, ég hef mjög gaman af mörgum söngleikjum, þó
ekki öllum. Þegar vel tekst til og mikið er lagt í eru
þeir frábær skemmtun. Söngleikir virka ekki þegar
þeir eru fátæklegir og Chicago er langt í frá að vera
fátæklegur. Nóg af öllu þarna.“
|ingarun@mbl.is
Alltaf verið GlysgjArn
Morgunblaðið/Eggert
SVEINN GEIRSSON LEIKUR ÚTSMOGNA LÖGMANNINN BILLA BÉ.
18. janúar
Söngleikurinn
Chicago frum-
sýndur í Borg-
arleikhúsinu
Bardaga-
íþrótt á
Gauknum
Strákarnir í Kung
Fú ætla að hrista
upp í stuðinu
langt fram eftir
nóttu.
Glaumbar
DJ Bjarki Batman
skrúfar frá stuð-
krananum á
Glaumbar.
Mold himinn gras
Jóhannes Dagsson opnar sýningu sína,
Mold himinn gras, í Teits galleríi á
sunnudaginn kl. 14.00.
Enski á mánudaginn
Bein útsending frá leik Newcastle og
Fulham á Sýn á mánudaginn
kl. 19.50.
V
I
K
A
N
1
6
.
-
2
2
.
j
a
n
.
LaugardagurFöstudagur
Útgáfutónleikar
Hvanndalsbræðra
Tríóið Hvanndalsbræður, með
Rögnvald gáfaða í far-
arbroddi, heldur útgáfu-
tónleika á Kaffi 22 á Lauga-
vegi frá kl. 21.00
til 23.00. Leikin
verða lög af nýútkomnum
diski þeirra félaga sem ber
heitið Út úr kú.
Party Zone í útvarpinu
Tommi White og Lewis Copeland hita all hressilega
upp fyrir New Icon partýið sem að verður á Kapital
um kvöldið. Rás 2 kl. 20.20.
Aston
Villa -
Arsenal
Henry og félagar ferðast
til Birmingham og sækja
Villa-menn heim. Sýn
kl. 13.45 á
sunnudaginn.
Klassík í Háskólabíói
Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur tónleika í Háskólabíói
kl. 19.30miðvikudag og fimmtudag. Hljómsveitarstjóri
Guðmundur Óli Gunnarsson og einleikari Sigurgeir Agnarsson. Verk
eftir Brahms, Haydn og fleiri.
Bla bla bla
Hulda Björk, Ólafur Kjartan Sigurð-
arson og Kurt Kopecky flytja brot af
því besta úr smiðju Gershwins á há-
degistónleikaröð Íslensku óperunnar
- Bla bla bla, á þriðjudaginn.
fo
lk
id
@
m
bl
.is
Frá sunnudegi til fimmtudags
Hápunktur í Idol-
Stjörnuleit
Úrslitaþáttur í Idol-Stjörnuleit á Stöð 2
kl. 20.30. Atkvæðagreiðsla í
beinni kl. 22.00. Aðeins þrír kepp-
endur eftir; Jón Sigurðsson, Karl Bjarni og
Anna Katrín. Idol verður í beinni á Nasa við
Austurvöll, Players í Kópavogi og Dátanum á
Akureyri.
Miðnes á Selfossi
Hljómsveitin Miðnes heiðrar Selfyssinga með tón-
rænni nærveru sinni í Pakkhúsinu.
Svensen og Hall-
funkel á Gullöldinni
Svensen og Hallfunkel hella
úr skálum stuðs síns í Graf-
arvoginum.
Rauðu
skórnir
frumsýndir
í Borgar-
leikhúsinu
„Ævintýraleikhús
fyrir unglinga og
annað fólk“.
Kl. 17.00.
Rokk og aft-
ur rokk á
Grandrokk
Mínus, Jan Mayen
og Manhattan
skekja Grandrokk
og næsta nágrenni
með öskrandi
rokki.
Tár, bros og
takkaskór
Wolves - Manchest-
er United á Sýn
kl. 12.15.