Morgunblaðið - 16.01.2004, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16|1|2004 | FÓLKÐ | 9
Alltaf þurfa einhverjir að komast á milli staða á nóttunni og ekki allir í ökufæru
ástandi og hóa því í leigubíl. Arnar Þórisson vinnur sem rafvirki virka daga en und-
anfarin þrjú ár hefur hann líka keyrt leigubíl á nóttunni um helgar til að drýgja tekj-
urnar. „Þetta er alls konar fólk sem ég keyri og í hinum ýmsu erindagjörðum. Sumir
eru að fara í vinnuna, aðrir eru að fara í flug til útlanda en vissulega eru flestir að
koma sér heim af skemmtistöðunum.“ Arnar keyrir í tólf tíma á næturvöktunum,
frá klukkan átta til átta á laugardags- og sunnudagsnóttum og notar síðan sunnu-
daginn til að snúa sólarhringnum aftur við. „Ég passa mig að sofa þá ekki lengur en
til hádegis svo ég geti örugglega sofnað aftur um kvöldið og komið ferskur í raf-
virkjavinnuna á mánudagsmorgni.“
Arnar segir starfsandann góðan hjá bifreiðastöðinni BSR. „Þetta eru fínir félagar
og stundum göntumst við okkar á milli í talstöðinni svo okkur leiðist ekki.“
Arnar segist lítið finna fyrir syfju í næturvinnunni en vissulega halli sumir félaga
hans sér í sætinu þegar komið er undir morgun. „En ég vil frekar keyra enda er nóg
að gera á þeim tíma því fólk er að koma sér heim af skemmtistöðunum alveg til
klukkan sex og sjö á morgnana. Auðvitað er fólk í misjöfnu skapi þegar það sest
upp í bíl hjá mér um miðjar nætur eða undir morgun, en ég hef aldrei lent í vandræð-
um,“ segir Arnar, sem finnst mjög gott að vinna á nóttunni. „Ég vann í sveit þegar
ég var unglingur og þá vorum við stundum að bera áburð á túnin á næturnar og það
voru bestu stundirnar. Kyrrðin í nóttinni er alveg sérstök og ég kann vel við hana.“
Keyrir aðra um nætur
Sjúkdómar og veikindi herja á mannfólkið á öllum tímum sólarhringsins og því
þarf ævinlega að vera einvalalið á bráðavaktinni. Hrönn Steingrímsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur á Bráðamóttökunni á Lansanum við Hringbraut, vinnur oft á næt-
urvöktum og kann vel við það. „Á nóttunni er rólegra yfir öllu og það skapast
sérstök stemning þegar allir aðrir eru sofandi. Þá eru færri á vaktinni en yfir
daginn og samstarfsfólkið kynnist betur.“ Næturvaktirnar byrja ýmist klukkan
átta eða ellefu að kvöldi og þeim lýkur klukkan hálfníu að morgni. Hrönn segir
algengast að til þeirra komi sjúklingar með hjarta- og kviðvandamál. „Það er
frekar mikill erill seinnipart kvölds og frameftir nóttu en yfirleitt rólegt yfir miðja
nóttina. Svo er aftur meira að gera undir morgun. Við verðum alltaf að vera í við-
bragðsstöðu því við sinnum bráðveikum einstaklingum og vitum aldrei hvenær
næsti sjúklingur kemur inn. Þess vegna megum við ekki leggja okkur þótt svefn-
inn sæki stundum á. Þá verðum við bara að fá okkur kaffi, opna glugga og anda
djúpt.“ Hrönn segist alltaf fara beint heim að sofa þegar næturvöktum lýkur og
hún fer ekki á fætur fyrr en um fimmleytið síðdegis.
„Þetta hentar mér vel núna, launin eru betri á næturvöktum en dagvöktum,
en þetta er vissulega slítandi og ég ætla mér aðeins að vinna tímabundið svona
mikið á nóttunni.“ |khk@mbl.is |bryndis@mbl.is
Bráðavaktin
Morgunblaðið/Jim Smart
Umferðarmiðstöðin
Ef þig langar í svið eftir miðnætti þá er þetta stað-
urinn til að heimsækja. Þau eru seld hérna allan
sólarhringinn og töluvert margir sem nýta sér þá
þjónustu. Bílar bíða í röð eftir að komast að lúgunni
og er stríður straumur viðskiptavina allt til klukkan
þrjú um nóttina. Þetta er samt ekki staðurinn til að
hitta fólk, allir sitja inni í bílum og fremur örðugt að
ætla að hefja samræður.
Afgreiðslufólkinu á BSÍ finnst fyndið að fólk sem
kemur á næturnar til að kaupa smokka er alltaf
jafn vandræðalegt. „Það kemur sér aldrei að efn-
inu, biður fyrst um kók eða eitthvert sælgæti, spyr
svo loksins um smokka og verður eldrautt í fram-
an. Eins og smokkakaup séu ekki jafneðlileg og allt
annað,“ segir Rán sem afgreiðir í sjoppunni á BSÍ.
Hvað gerist eftir miðnætti á þriðjudagskvöldi?
Nonnabiti
Hér er hægt að fá sér í svanginn til klukkan tvö á næturnar. Viðskiptavinir
eru sex talsins, allt karlmenn. Ljúf og róleg stemmning, tiltölulega lágt
stillt fm-tónlist og viðskiptavinir sitja og háma í sig. Þeir virðast ekki
áfjáðir í að spjalla heldur vilja bara sitja með sinn mat og lesa kámug
Andrésblöð og gömul Séð og heyrt. Afgreiðslukonan segist hæstánægð
með að vinna þarna á nóttunni en segir ennþá skemmtilegra um helgar
því þá sé meira fjör.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Tíu–ellefu Lágmúla
Hér er greinilega fjörið! Hef satt að segja
aldrei nokkurn tíma séð jafn marga við-
skiptavini í tíu–ellefu-verslun í einu.
Örugglega fjörutíu–fimmtíu manns í búð-
inni að kaupa inn á fullu við dúndrandi
hressa fm-tónlist. Báðir kassarnir opnir
og fimm manna raðir báðum megin. Þrír
eldri menn eru önnum kafnir við að velja
sér kræsingar úr salatbarnum í takt við
tónlistina. Sumir segja að matvörubúðir
séu bestu staðirnir til að hitta tilvonandi
maka. Ég efast um þá kenningu en ef
hún stenst þá mun þetta vera besta búð-
in og besti tíminn.
„Það er alltaf fullt af alls konar fólki
hérna á nóttunni, jafnvel mömmur sem
eru að kaupa inn og eru með fullar inn-
kaupakörfur,“ segir afgreiðslustúlkan,
sem er eldhress.
Vörður frá Securitas stendur vaktina
og fylgist með því að allt fari skikkanlega
fram. Hann virðist þreyttur og andvarpar.
Stundum er fjörið of mikið og hann þarf
að grípa inn í, enda alls konar fólk sem
þarna kemur, segir hann. Fyrir kemur að
fíklar mæta á nóttunni til að ná sér í syk-
ur. Menntaskólakrakkar koma líka
stundum eftir skólaböll og þá getur verið
hasar.
Vídeóhöllin Lágmúla
Hér er ekki sála nema afgreiðslufólk og lúpulegur
eldri maður sem stendur stjarfur við spilakassa og
hreyfir sig hvergi. Ungur maður afgreiðir og segir
hann kvöldið afar rólegt, að jafnaði sé mikið að gera
á leigunni eftir miðnætti.
Hann segist einu sinni hafa komið að manni sof-
andi á efri hæð leigunnar. Hann hafði ráfað beina leið
upp, komið sér fyrir í sófa og sofnað.
1.08
0.00
0.54
1.32