Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
GEFA 65 MILLJÓNIR
Líknar- og mannúðarfélagið
Hringurinn hefur gefið 50 milljónir
króna til Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans og 15 millj-
ónir til Barnaspítala Hringsins. Á
að nota framlagið til byggingar
göngudeildar hjá BUGL og kaupa
á húsnæði fyrir foreldra barna utan
af landi á meðan börn þeirra fá
þjónustu á spítalanum. Hringurinn
er 100 ára í dag.
Metávöxtun
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
skilaði bestu afkomu á síðasta ári
frá því sjóðurinn var stofnaður árið
1956. Var ávöxtunin á árinu 15,2%
sem samsvarar 12,1% raunávöxtun.
Árið 2002 var raunávöxtun nei-
kvæð um 2,7%. Stjórnarformaður
sjóðsins segir umskipti á gengi
hlutabréfa og gott starfsfólk skýr-
inguna á góðri útkomu á síðasta
ári.
Ís lensk tónl ist í Cannes
Níu íslensk fyrirtæki eru nú að
kynna tónlist fyrir erlendum útgef-
endum á MIDEM-kaupstefnunni í
Cannes í Frakklandi. Alls taka þrjú
þúsund fyrirtæki þátt í sýningunni
og eru annað hvort að kynna tónlist
eða leita að nýrri tónlist til að gefa
út. Töluvert var um gesti í íslenska
básnum fyrsta sýningardaginn í
gær og kom Jóakim krónprins
Dana í heimsókn og ræddi við við-
stadda um íslenska tónlist.
Sleppi við aðfinnslur
Talið er að Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, muni ekki
verða alvarlega gagnrýndur þegar
niðurstaðan í máli vopnasérfræð-
ingsins Davids Kelly verður birt á
miðvikudag. Blair hefur ekki feng-
ið viðvörunarbréf frá stjórnendum
rannsóknarinnar en nokkrir sem
tengjast málinu hafa fengið slík
bréf þar sem þeim er sagt að þeir
geti átt von á gagnrýni.
Annað könnunarfar lent
Myndir hafa borist frá könn-
unarfarinu Opportunity sem lent er
á Mars. Farið er um 10.600 km frá
þeim stað sem könnunarfarið Spirit
lenti á.
Yngsti þjóðarleiðtoginn
Mikhail Saakashvili sór embætt-
iseið sem forseti Georgíu í Tblisi í
gær. Hann er 36 ára og þar með
yngsti þjóðarleiðtogi Evrópu.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 25
Vesturland 11 Bréf 26
Erlent 12 Dagbók 28/29
Listir 15/16 Leikhús 30
Umræðan 16/17 Fólk 30/33
Forystugrein 18 Bíó 30/33
Skoðun 20 Ljósvakar 34
Minningar 20/23 Veður 35
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@m-
bl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, fréttastjóri guna@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is
Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SÓLHEIMAJÖKULL er skriðjökull vestur úr Mýrdals-
jökli. Hægt er að komast langleiðina upp að jöklinum
á bíl en á undanförnum árum hefur hann minnkað
mjög hratt. Sést það best á því að sífellt lengist spott-
inn sem þarf að ganga frá bílastæðinu til að komast í
snertingu við jökulinn sjálfan.
Oft má þarna sjá fallega liti og skemmtilegar
klakamyndir og núna eru t.d. víða langar sprungur
upp eftir jöklinum þar sem vatn hefur runnið og
brætt ísinn. Hægt er að ganga upp eftir þessum rás-
um og horfa inn í ískristallana í klakaveggjunum
beggja vegna.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólheimajökull minnkar
Morgunblaðið. Fagridalur
MILLJÓNA króna tjón varð í stór-
bruna á bænum Stóruvöllum í Bárð-
ardal í S-Þingeyjarsýslu seint á
laugardagskvöld. Sambyggð
skemma og gamalt fjós brunnu til
grunna en þar hefur verið unnið að
tólgarframleiðslu og kertagerð. Til-
kynning um eldinn barst til Neyð-
arlínunnar um kl. 23.20 á laugar-
dagskvöld en þá var fullorðna fólkið
á bænum, sveitungar þess og gestir
á þorrablóti í félagsheimilinu Kiða-
gili, sem stendur í túnfætinum við
Stóruvelli.
Þorrablótsgestir urðu fljótlega
varir við eldinn og þustu á staðinn
og fóru m.a. í að færa bíla frá
skemmunni. Slökkviliðsmenn frá
Húsavík, Stórutjörnum og Reykja-
dal, alls um 30 manns, komu á stað-
inn um klukkustund eftir að tilkynn-
ingin barst en var þá mikill eldur í
húsunum. Karl Sveinsson, sem býr í
Mývatnssveit, var í heimsókn hjá
bróður sínum Garðari, sem býr á
Stóruvöllum ásamt sambýliskonu og
þremur börnum. Hann var með
þeim á þorrablótinu þegar eldurinn
kom upp. Karl sagði í samtali við
Morgunblaðið að slökkviliðsmenn
hefðu þurft að ná í vatn í Skjálfanda-
fljót um 500 metra vegalengd. Hann
sagði að slökkvistarfi hefði að mestu
verið lokið um kl. þrjú aðfaranótt
sunnudags en að vakt hefði verið á
staðnum til kl. 10 í gærmorgun.
Íbúðarhús í hættu
Karl sagði að kalt hefði verið í
veðri um nóttina og töluverður vind-
ur á norðan. Því hefði íbúðarhúsið á
bænum verið í hættu þegar eldurinn
var sem mestur en þá rigndi eld-
glæringum yfir húsið. Eldurinn náði
ekki í íbúðarhúsið en þar var mikil
reykjarlykt. Mikil verðmæti voru í
tækjabúnaði tólgar- og kertagerðar-
innar, auk þess sem í húsinu voru
15–20 tonn af tólg og mör, bæði unn-
um og óunnum. Framleiðslan var
eina starfsemin á bænum og gaf af
sér um fjögur ársverk. Að sögn
Karls komu 8–10 manns að fram-
leiðslunni með einhverjum hætti.
Málið er í rannsókn hjá lögregl-
unni á Húsavík.
Stórtjón í bruna á Stóruvöllum
Morgunblaðið/Kristján
Félagar í björgunarsveitinni Þingey hreinsuðu til í gær.
STEINN Eiríksson viðskiptafræð-
ingur hefur keypt eignir og rekstur
þrotabús Álfasteins á Borgarfirði
eystra, en fimm tilboð bárust í
þrotabúið. Að sögn Steins er reiknað
með að fyrirtækið hefji starfsemi að
nýju 18. mars næstkomandi.
Álfasteinn var stofnaður fyrir
rúmum 20 árum og fljótlega varð
fyrirtækið vel þekkt um allt land fyr-
ir framleiðslu á gjafavörum, minja-
gripum og fleiru, unnu úr borgfirsku
grjóti.
Steinn er 38 ára brottfluttur Aust-
firðingur frá Brimnesi í Fáskrúðs-
firði. Hann hefur síðustu fimm mán-
uði verið með starfsstöð á Aust-
urlandi og unnið sem einyrki við
viðhald og tæknimál fyrir austfirska
verktaka, auk tækni- og rekstrarráð-
gjafar í Reykjavík. Um nokkurt
skeið var Steinn framkvæmdastjóri
Damstahl á Íslandi, sem seldi stál og
iðnaðarvarning.
Steinn kaup-
ir Álfastein
BROTIST var inn í skartgripaversl-
un í Bergstaðastræti um 9:30 í gær-
morgun. Þjófurinn eða þjófarnir
brutu sýningarglugga og gripu
skartgripi sem voru í glugganum, að
verðmæti um 200.000 krónur, að
sögn lögreglu. Þjófavarnakerfi í
versluninni fór í gang, en þegar lög-
reglan kom á staðinn var þjófurinn
eða þjófarnir á bak og burt. Málið er
í rannsókn.
Skartgripum
rænt úr glugga
ÞESSIR ungu drengir, Tómas
14 ára og Maciej 15 ára, voru
að stíga sín fyrstu skref sem
beitningarmenn og voru
drengirnir að beita sitt fyrsta
bjóð þegar þessi mynd var tek-
in af þeim, er þeir beittu línuna
á Petri Jacob SH frá Ólafsvík.
Gekk fyrsta beitningin vel
hjá þeim félögum og voru þeir
aðeins um 1,5 tíma með balann
sem þykir afar gott af byrj-
endum að vera. Drengirnir
eiga greinilega framtíðina fyr-
ir sér sem beitningarmenn og
beittu þeir hvor um sig þrjú
bjóð sinn fyrsta dag og þótti
þeim gott að vinna sér inn eigin
vasapening sjálfir. En að sjálf-
sögðu gengur skólagangan fyr-
ir og hyggjast þeir taka í bjóð
annað slagið, þegar stund gefst
frá bókalestri.
Fyrsta bjóðið beitt
Morgunblaðið/Alfons
Þeir Tómas og Maciej þóttu standa sig vel
við beitninguna þótt ungir væru að árum.
Morgunblaðið. Ólafsvík
♦♦♦