Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 14

Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 14
Styttur: Eru nauðsynlegar og það skiptir máli hvar og hvernig þær eru klipptar í hárið. Spurningin snýst ekki umhvort hárið eigi að verastutt, sítt eða millisítt, held- ur er hárið hluti af einstaklingnum og þarf fyrst og fremst að klæða hann. Hugmyndin sem við síðan vinnum út frá er svo þetta þema: breytingar og ummyndun. Og til að klippingin sé ný og fersk ásýnd- ar þarf hún að búa yfir sveigj- anleikanum sem felst í þeirri hug- mynd. Það þarf að vera hægt að breyta henni með lítilli fyrirhöfn, sama í hvaða sídd hárið er,“ segir Gregory Karlen, sem ásamt Nonna Quest sýndi á NASA sl. föstudag það nýjasta frá hárlínufyrirtækinu I.C.O.N. Sýningin var haldin á vegum hárgreiðslustofanna Kristu og Quest, sem kynntu þar með aðstoð 30 fyrirsætna, fatahönnuðarins Rögnu Fróða og förðunarmeist- arans Guðbjargar Huldísar það nýjasta frá bandaríska fyrirtækinu I.C.O.N. En á sýningunni mátti finna jafnt neytendavænar greiðslur og klippingar sem og öfgakenndar greiðslur í anda há- tískunnar - og allt unnið í anda breytinga og ummyndana. Að sögn þeirra Karlen og Nonna byggðist sýningin um margt á kynningu sem I.C.O.N. efndi til fyrir hárgreiðslufólk á Spáni síðla síð- asta haust. „Hér einblíndum við hins vegar ekki bara á stóru hugmyndirnar heldur unnum með þær og gerðum notendavænar. Þar sem sýningin var bæði fyrir almenning og fag- fólk þá var nauðsynlegt fyrir okk- ur að nálgast raunveruleikann. Það sem fagfólki kann nefnilega að finnast spennandi getur virkað allt of fjarstæðukennt fyrir notand- ann,“ útskýrir Karlen. Nonni og Karlen eru báðir hluti hóps sem sér um að leggja lín- urnar hjá I.C.O.N. ár hvert og leit- ast fyrirtækið við að vinna með óljós þemu sem eiga að hvetja hárgreiðslu- fólk til að nýta eigin sköpunargáfu í stað þess að fylgja hugs- unarlaust eftir fyrirframgefnum formúlum um línur ársins. „Við viljum endurnýja tengslin milli hárgreiðslufólksins og við- skiptavina þess því okkur finnst það samband hafa glatast í al- þjóðavæðingu stórfyrirtækja þar sem hárvörurnar og sala þeirra hefur orðið að aðalatriðinu,“ segir Karlen. „Þetta er í raun ný að- ferð við að líta á hlut- ina. Núna spyrjum við ekki hvað er nýtt eða hvað er í tísku,“ segir Nonni. „Þess í stað eru frumhugmyndirnar túlkaðar útfrá persónu hvers og eins.“ Eitt af undirstöðuatriðunum þemans í ár er hreyfing sem þarf að virðast hárinu eðlislæg. „Sítt hár má til að mynda ekki bara vera sítt því þannig skapast engin hreyfing,“ segir Karlen og bætir við að þar komi styttur til sögunnar. „Styttur eru nauðsyn- legar til þess að þetta virki og það skiptir töluverðu máli hvar og hvernig þær eru klipptar inn í hár- ið. Það þarf að vera rétt gert svo klippingin virki nútímaleg og það hefur ekkert með það að gera hvort hárið er stutt eða sítt. Stytt- urnar geta svo látið klippinguna virka spennandi og um leið verður hreyfingin í hárinu önnur en áður og með þessu móti má gjörbreyta manneskjunni og samt taka tillit til einstaklingsins.“ Ástríðan var horfin Nonni segir hugmyndafræði I.C.O.N. óneitanlega hafa verið breytingu frá því sem hann hafi átt að venjast. „Ég hafði verulega gaman af þessu starfi þegar ég byrjaði en svo var eins og ástríðan væri horfin. Þessi stóru risafyr- irtæki sem gleyptu allt og gerðu ópersónlegt tóku líka sköp- unarkraftinn sem á að fylgja starf- inu. Ég var hins vegar ekki einn um að finna fyrir þessu því I.C.O.N. er stofnað út frá slíkum hugmyndum. Þess vegna var það alveg ótrúlegt tækifæri þegar mér bauðst að vinna í innsta hring í þessum hóp af svo reynslumiklu fólki. Hér þarf maður virkilega að vera á tánum og það er alveg æðislegt.“ Hann er líka bjartsýnn á að Ís- lendingar taki slíkum nýjungum vel. „Íslendingar eru mjög opnir fyr- ir breytingum, en samt hættir okk- ur líka til að vera svolítið eins. Það er mikið sama tískan hjá öllum og persónulega hefði ég gaman af að sjá meiri fjölbreytni. Við erum hins vegar upp til hópa mjög smart og meðvituð um hvað er í tísku og ég er alveg sannfærður um að hugmyndir á borð við þess- ar þar sem sköpunargáfan er virkjuð á ný eiga þess vegna eftir að falla í góðan jarðveg.“  TÍSKA Styttur og náttúruleg hreyfing Breytingar og ummynd- un eru lykilorðin í hár- tískunni þetta árið að mati sérfræðinganna hjá I.C.O.N. sem segja klippinguna eiga að vera klæðskerasniðna að hverjum einstaklingi fyrir sig. Morgunblaðið/Jim Smart Sköpunargáfan: Þeir Gregory Karlen og Nonni Quest. Morgunblaðið/Árni SæbergMorgunblaðið/Árni Sæberg Sítt hár: Má ekki bara vera sítt því þannig skapast engin hreyfing. Þá koma styttur til sögunnar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hárið: Er hluti af einstaklingnum og þarf fyrst og fremst að klæða hann. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hárið: Það þarf að vera hægt að breyta klippingunni með lítilli fyrirhöfn. DAGLEGT LÍF 14 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚTSALAN ER HAFIN Allt að 50% afsláttur Fálkahúsinu, Suðurlandsbraut 8 Iðnaðarmenn af öllum stærðum og gerðum 1 4 4 4 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s annaei@mbl.is Til að klippingin sé ný og fersk ásýndar þarf hún að búa yfir sveigjanleika. Þema: Breytingar og ummyndun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.