Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 9

Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 9 Útsala útsala 20% aukaafsláttur við kassa Seltjarnarnesi, sími 561 1680 Kringlunni, sími 588 1680. iðunn tískuverslun Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–16.00. Engjateigi 5, sími 581 2141. 15% aukaafsláttur Stórútsala Viðbótarafsláttur Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Enn betri útsala Kr. 500, kr. 1.000, kr. 1.500 og kr. 2.000 Stærðir 36—60 Útsala Síðasta vikan Útsölulok 31. janúar Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-16 Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433 Á VÆNTANLEGU námskeiði hjá Endurmenntun Háskóla Íslands verður fjallað um stjórnsýslureglur um meðferð mála hjá sveitarfélög- um, en auk Endurmenntunar HÍ standa Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Samband íslenskra sveitarfélaga að námskeiðinu. Nánskeiðið fer fram 29. og 30. jan- úar í HÍ, og 12. og 13. febrúar verður námskeiðið endurtekið á Akureyri. Á námskeiðinu verður fjallað um hvaða kröfur sveitarstjórnarlög, stjórnsýslulög og upplýsingalög gera til málsmeðferðar í sveitar- félögum og hvernig þessi lög skarast og samtvinnast. Í tilkynningu frá aðstandendum námskeiðsins kemur fram að stjórn- sýsla sveitarfélaganna er ólík stjórn- sýslu ríkisins að því leyti að ákvarð- anir eru yfirleitt teknar á fundum af fjölskipuðu stjórnvaldi. Kjörnir sveitarstjórnarmenn standa yfirleitt að ákvarðanatöku en undirnefndir og starfsmenn sjá um að leggja grundvöll að þeim. Þessar aðstæður kalla á sérstaka skoðun á því hvernig almennar málsmeðferðarreglur stjórnsýslunnar eiga við um máls- meðferð hjá sveitarfélögum. Fyrirlesarar verða m.a. umboðs- maður Alþingis og aðstoðarmaður hans, lögfræðingar, bæjarlögmaður á Akureyri og fleiri. Námskeið um stjórnsýslu sveitarfélaga STJÓRN Knattspyrnusambands Ís- lands ákvað á stjórnarfundi 20. jan- úar sl. að greiða tæpar 10 milljónir króna til aðildarfélaga KSÍ, sem gjaldfærist á starfsárið 2003. Þetta er þriðja árið í röð sem aðildarfélög njóta slíks framlags. Endurskoðaður ársreikningur KSÍ liggur ekki fyrir, en ljóst er að rekstur sambandsins gekk vel á síðasta starfsári. Rekstur KSÍ hefur gengið vel undanfarin ár og fjárhagur sambandsins hefur styrkst. Alls munu 57 aðildarfélög KSÍ, sem sendu lið til keppni í mót á veg- um KSÍ í yngri aldursflokkum utan- húss 2003, fá framlag frá samband- inu. Félög sem sendu lið til keppni í yngri flokkum beggja kynja fá 200 þúsund kr. hvert, en félög sem sendu aðeins lið til keppni í yngri flokkum annars hvors kynsins 125 þúsund kr. hvert. Þá fá félög sem voru aðilar að einu samvinnufélagi 62.500 kr. hvert. Samkvæmt þessu fær 41 félag 200 þúsund kr., 11 félög fá 125 þúsund kr. og 5 félög 62.500 kr., alls 9.887.500 kr. KSÍ greiðir 10 milljónir til aðildarfélaganna ÁRNI M. Mathiesen sjávarútvegs- ráðherra efnir til almennra funda um sjávarútvegsmál á Akureyri og Siglufirði í kvöld og annað kvöld. Fundurinn á Akureyri verður í kvöld, mánudagskvöld, kl. 20 á Hótel KEA. Fundurinn á Siglufirði verður annað kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20 á Kaffi Torgi. Sjávarútvegsráðherra ræðir almennt um sjávarútvegsmál og er síðan reiðubúinn að svara spurningum fundarmanna. Sjávarútvegs- ráðherra fund- ar á Akureyri BJÖRGUNARSVEITIR sóttu fót- brotinn vélsleðamann inn að Skjald- breið á áttunda tímanum á laugar- dagskvöldið, en félagar mannsins höfðu þá komið honum í fjallaskála á svæðinu. Björgunarsveitirnar Ingunn frá Laugarvatni og Tintron í Grímsnesi voru kallaðar út eftir að tilkynning barst um vélsleðamanninn um kl 18. Tveir björgunarsveitarjeppar voru sendir á vettvang og voru þeir komn- ir á staðinn tveim tímum síðar. Veð- ur var gott á svæðinu en mjög kalt. Sóttu fót- brotinn vél- sleðamann ♦♦♦ Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.