Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 17

Morgunblaðið - 26.01.2004, Side 17
Hvað er í staðlinum? ISO15489 gefur nákvæmar leiðbein- ingar um hvernig gera á flokk- unarkerfi vinnustaðar (filing system), hvernig hanna má skjalaáætlun um ráðstöfun eldri skjala í lang- tímavistun eða eyðingu, hvernig tölvuskrá á bæði rafræn skjöl og pappírsskjöl og hvernig byggja á upp safn formlegrar þekkingar (know- ledge depository) með daglegri skjalaskráningu og skjalavistun. Auð- velt og aðgengilegt á að vera að leita í þekkingarsafnið í dagsins önn. Fjölmargir aðrir hagnýtir þættir eru í staðlinum en ég læt nægja að segja frá þessu hér. Þeir sem vilja fræðast um þetta frekar geta keypt staðalinn hjá Staðlaráði Íslands eða sótt námskeið Skipulags og skjala ehf. sem haldin eru reglulega. Hugbúnaður til skjalastjórnunar Íslenskir stjórnendur virðast margir af vilja gerðir að taka á skjalaóreiðu vinnustaða sinna. En þrátt fyrir góða viðleitni hafa oft dýr mistök verið gerð. Kannski var þá ekki tekið nógu faglega á málum. Allt of margir hafa t.d. keypt kött- inn í sekknum þegar þeir töldu sig vera að kaupa hugbúnað til skjala- stjórnunar. Sem dæmi þá var hér um skeið seldur hugbúnaður sem átti ein- faldlega að „koma pappírsskjölunum í tölvu.“ Seldur var einfaldur skönn- unarbúnaður til að taka mynd af pappírsskjölum og vista síðan skjölin á rafrænu formi inni í tölvu. Sölu- mennska á þessum búnaði fór fram undir því yfirskini að með þessu væri verið að taka á skjalavanda; að skjölin yrðu aðgengilegri en áður. En eftir að búið var að skanna með lítilli eða lélegri skráningu fundust skjölin seint í tölvunni. Það vantaði kannski að huga að skjalastjórn- unarþáttum líkt og samræmdri skráningu og flokkun skjalsins. Fyr- irtækið sat stundum uppi með bæði upphaflega pappírseintakið af skjal- inu (sem ekki mátti eyða t.d. af laga- legum ástæðum) og einnig rafrænt skjal, sem kannski fannst svo seint eða illa í tölvunni. Mikill tími, vinna og peningar fóru í sýsl í kringum tölvuhugbúnað sem síðan lítið hag- ræði var af. Ekki þarf hinsvegar að endurtaka mistök af þessu tagi ef menn innleiða ISO15489. Staðallinn leggur áherslu á samræmd skipuleg vinnubrögð frekar en tölvukaup. Í staðlinum eru taldar fram lágmarkskröfur sem gera þarf til hugbúnaðar sem nota á til skjalastjórnunar. ISO15489 lýsir einnig kröfum um skjalaskráningu rafrænna skjala., en öflug skjala- skráning er lykillinn að skjalastjórn- un. Íslendingar og upplýsingabyltingin Upplýsingabyltingin, alþjóða- viðskipti, alþjóðavæðing, allt hellist þetta yfir okkur Íslendinga. Erfitt getur verið að átta sig á þessum miklu umbreytingum. Við viljum nýta okkur kosti umbreytinganna, en þá þarf oft að bæta og breyta hjá okkur sjálfum. En við þurfum að vanda okk- ur, bregðast rétt við, fjárfesta í því sem hagræði hefur og gildi til langs tíma. Nú er mörgum til dæmis ljóst að upplýsingabyltingin snýst ekki mikið um tölvu- og hugbúnaðarkaup. Bylt- ing þessi er vissulega stór en gerir fremur þá kröfur til okkar að við lær- um nýjar vinnuaðferðir, bætum stjórnun og nýtum betur þau tæki og tól sem keypt hafa verið á skrifstof- una. Innleiðing alþjóðlegra staðla þarf að vera forgangsatriði. Íslenskir stjórnendur hafa hinsvegar verið seinir til að nýta sér staðla eða því heldur Guðlaug Richter fram í bók sinni „Staðlar, styrkur stjórnand- ans“. 2004, ár ISO15489 á Íslandi? Nú eru hinsvegar breyttir tímar, nýj- ar áherslur á skrifstofunni og skyn- samleg vinnubrögð í sókn. ISO15489 alþjóðlegur skjalastjórnunarstaðall hefur því stóru hlutverki að gegna í íslensku atvinnulífi. Höfundur er framkvæmdastjóri Skipulags og skjala ehf. Hann situr í tækninefnd Staðlaráðs um íslenska þýðingu á ISO15489. UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 17 Fallegar setur í úrvali Einnig vanda›ar festingar AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 FYRIRTÆKI TIL SÖLU www.fyrirtaekjasala.is FYRIRTÆKJASALA ÍSLANDS Síðumúla 15 • Sími 588 5160 Gunnar Jón Yngvason lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.