Morgunblaðið - 26.01.2004, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 26. JANÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
EPÓ
Kvikmyndir.com
Roger Ebert
AE. Dv
Skonrokk
FM909
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
Tilnefnd til 5 Golden Globe verðlauna
meðal annars besta
mynd ársins
Kvikmyndir.is
GH. Kvikmyndir.com
HJ.MBL
HJ. MBL
The Rolling Stone
SV. Mbl
Sýnd kl. 5.30.
ÓHT. Rás2
Magnþrungin erótísk
spennumynd með
Meg Ryan eins og þið
hafið aldrei
séð hana áður.
Tónlist myndarinnar er eftir
Hilmar Örn Hilmarsson
Sýnd kl. 6.45 OG 10.45. B.i. 16 ára.
VG DV
MEG RYAN
XMARK RUFFALO
JENNIFER JASON LEIGH
Nýjasta mynd leikstjóra „THE PIANO“
a film by JANE CAMPION
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 14 ára.
Sannkölluð stórmynd sem hlotið hefur
frábæra dóma og viðtökur um allan heim.
Tom Cruise hefur aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT. Rás2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.Sýnd kl. 5 og 9
Stórskemmtileg og sprenghlægileg gamanmynd með
Eddie Murphy sem kemst í hann krappann ásamt fjölskyldu
sinni þegar þau gista á gömlu draugasetri!
kl. 5.50. Bon Voyage/Góða ferð
kl. 8. Mademoiselle/Fröken
kl. 8. Le mystére de la chambre
jaune/Leyndardómar gula herbergisins
kl. 10.20. Stupeur et tremblements/
Undrun og skjálfti
KRINGLAN
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. b.i. 14 ára.
Sannkölluð stórmynd
sem hlotið hefur
frábæra dóma og
viðtökur um allan
heim.
Tom Cruise hefur
aldrei verið betri!
Besti aðalleikari
Tom Cruise
Besti leikari í
aukahlutverki
Ken Watanabe
Besta frumsamda
tónlistin
Hans Zimmer
3
Tilnefningar til Golden Globe verðlauna
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 8.
Kvikmyndir.is
DV
ÓHT. Rás2
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Arnardalur á
Akranesi bar sigur úr býtum í söng-
keppni Samfés á laugardagskvöld.
Það var Skagamærin Rakel Páls-
dóttir sem kom fram fyrir hönd Arn-
ardals með lagið „That’s the way it
is“ með Celine Dion.
Alls tóku tvöhundruð og fimmtíu
einstaklingar frá sextíu og tveimur
félagsmiðstöðvum þátt í keppninni,
sem var afar vel sótt. Um þrjúþúsund
og tvöhundruð ungmenni fylgdust
með keppninni og hvöttu sína félaga
til dáða.
Í öðru sæti var félagsmiðstöðin
Þróttheimar, en þeirra keppandi var
söngkonan Katrina Mogensen, sem
söng lagið „Over“ með bresku trip-
hop sveitinni Portishead. Í þriðja
sæti var síðan Félagsmiðstöðin Óðal
frá Borgarnesi, en fulltrúi Óðals var
Halldór Óli Gunnarsson sem söng
lagið „Over“ með bandarísku sveit-
inni Foo Fighters.
Besta atriði keppninnar var valið
atriði Félagsmiðstöðvarinnar Svít-
unnar frá Þorlákshöfn, en þeir Sig-
þór Ási Þórðarson og Baldur Rafn
Gissurarson sungu Titanicóðinn „My
heart will go on“ með Celine Dion.
Besta frumsamda lagið var síðan val-
ið lagið „Psychologically Mentally
Hydrir“ með þeim Ara Braga Kára-
syni og Oddi Júlíussyni úr Frosta-
skjóli í Reykjavík. Vinsælasta lagið í
salnum var einnig valið af áhorf-
endum með nútímatækni, SMS-
skilaboðum, og var það Fé-
lagsmiðstöðin Ózon frá Hólmavík
sem tefldi fram Árdísi Rut Ein-
arsdóttur, sem söng „Þú sem ert mér
allt“ með Í svörtum fötum. Bestu
klapplið keppninnar þóttu koma frá
félagsmiðstöðvunum Jemen í Kópa-
vogi og Vitanum Lækjó í Hafnarfirði.
Félagarnir Simmi og Auddi
kynntu keppnina og gerðu góða
lukku með almennri kæti og sprelli á
meðan Páll Óskar Hjálmtýsson,
Magni, söngvari Á móti sól og Guð-
mundur Kristinn Jónsson gítarleik-
ari Fálkanna og upptökustjóri í
Geimsteini sinntu því erfiða hlut-
skipti að dæma atriðin.
Tíu atriði úr keppninni fara í upp-
tökuver þar sem geisladiskur söng-
keppninnar verður tekinn upp og
gefinn út. Einnig verður keppnin
sýnd í sjónvarpsþætti á Popptíví eftir
tvær vikur, dagana 7. og 8. febrúar
næstkomandi.
Söngkeppni Samfés haldin fyrir fullu húsi ofsakátra unglinga í Laugardalshöll
Arnardalur
hlutskarpastur
Grindvíkingar mættu í íþróttabúningum Grindavíkur og gerðu sitt vel.
Besta atriði keppninnar þótti rokkuð útgáfa af Titanicsmellinum „My he-
art will go on“. Það var Svítan frá Þorlákshöfn sem flutti.
Rakel Pálsdóttir frá Arnardal tekur við verðlaunum fyrir frábæran söng.
Rakel Pálsdóttir frá Arnardal á Akranesi syngur sigurlagið af innlifun.
Margt var um hæfileikafólk í söngkeppni Samfés og lék þessi fallega stúlka
aldeilis prýðisvel á kassagítar undir einu söngatriðinu.