Morgunblaðið - 18.02.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 18.02.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 B 9 bílar GUNNAR Kristdórsson, eigandi Dekkjahallarinnar á Akureyri, á lík- lega einn magnaðasta fjallabíl norð- an heiða og þó víðar væri leitað. Þetta er Dodge Ram pallbíll sem hann hefur látið Ljónsstaðabræður breyta eftir kúnstarinnar reglum. Í bílnum er nánast allt sem nöfnum tjáir að nefna og núna er hann að fara setja undir bílinn 49 tomma Super Swamper dekk, sem gera bíl- inn líklega færan í flestan sjó og hvern hól. „Þau komast ágætlega undir þennan bíl enda er hann nýlega kominn á loftpúða og gert ráð fyrir svona dekkjum. Ljónsstaðabræður sáu um breytingarnar á bílnum. Svona dekk eru náttúrulega ekki fyrir alla bíla,“ segir Gunnar. Hann segist vera búinn að eyða nokkrum milljónum í að breyta bílnum en kveðst ekki sjá eftir einni krónu og ber mikið lof á þá Ljónsstaðabræð- ur, sem hann segir gaman að eiga viðskipti við. Hann hefur ekki verið mikið á fjöllum en segist vera að byrja aftur núna. Það er tölvustýrður úrhleypi- búnaður í bílnum og hann ýtir bara á takka á tölvunni til að setja loft aftur í dekkin. Vélin er 476 hestöfl og togar 1.150 Newtonmetra. Sla- grýmið er 5,9 lítrar en búið er að auka aflið úr 238 hestöflum með túrbínu, tölvukubb og nýju púst- kerfi. Gunnar var á leið í fjallaferð þegar talað var við hann. „Ég verð að fara að keyra, ég er orðinn svo gamall. Ég er búinn að vera á haus í þessum fyrirtæki og kominn tími til að fara að gera eitthvað fyrir sjálfan mig.“ Morgunblaðið/Kristján Einn sá magnaðasti norðan heiða Gunnar Kristdórsson í Dekkjahöllinni á Akureyri í bíl sínum. Það er allt í bílnum sem nöfnum tjáir að nefna. Kominn á 49 tommurnar en einungis einn annar bíll, Econoline Marteins Péturs- sonar, er á slíkum börðum.  BÍLASÝNINGIN í Genf verður haldin í 74. sinn í næsta mánuði. Þar verður Mazda með heims- frumsýningu á nýjum hugmyndabíl sem kallast MX-Flexa. Þetta er sex sæta fólksbíll og sýnir hvaða leið hugsanlegt er að Mazda velji fyrir sinn næsta fjölnotabíl. Mazda hefur lítið gefið upp um bílinn eða fyr- irætlanir sínar með hann og verða menn að bíða þolinmóðir eftir að hann verði kynntur í Genf. Mazda MX-Flex. Sex sæta Mazda MX-Flex  B&L hefur fengið til landsins Renault Laguna í nýrri Turbo-útgáfu með sprækri 2.0 lítra vél sem skilar allt að 165 hestöflum. Laguna Turbo er ríku- lega útbúinn bíl. Sem dæmi um stað- albúnað í þessari útgáfu af Laguna má nefna leðurinnréttingu, bakkskynjara, sóllúgu, vindskeið, Xenon-ljósabúnað og 17 tommu felgur. Renault Laguna varð á sínum tíma sá fyrsti í heiminum til að hljóta fimm stjörnur í einkunnagjöf í árekstrarpróf- un Euro NCAP. Það sem tryggir bílnum þennan sess eru sérstakar styrkingar en í yfirbyggingu Laguna eru rösklega 70 kg af hástyrktarstáli. Bíllinn er auk þess búinn átta líknarbelgjum og ABS- hemlum með sérstakri átaksdreifingu til að tryggja hámarksöryggi. Renault Laguna er kominn með 165 hestafla vél. Laguna Turbó Kauptu næsta bílinn þinn beint frá Kanada - Pallbílar á tilboði www.natcars.com Borgartúni, Reykjavík Bíldshöfða, Reykjavík Dalshrauni, Hafnarfirði Hrísmýri, Selfossi Dalbraut, Akureyri Grófinni, Keflavík Lyngási, Egilsstöðum Álaugarvegi, Hornafirði Smiðjuvegi, Kópavogi RSH.is Dalvegi, Kópavogi Loft- og vatnsmiðstöðvar fyrir alla bíla og báta upplifðu frelsi Sími 567 6116 - Baughúsum 6 Allt fyrir mótorsport MITSUBISHI sýndi hugmynd að pallbíl á bílasýningunni í Detroit í síðasta mánuði og það sem var ekki síður athyglisvert en óvenjulegt og sportlegt útlit bílsins er sú stað- reynd að hann kann að verða fram- leiddur einnig með merkinu Dodge. Hugsanlega verður þessi laglegi hugmyndabíll því upphafið að enn nánara samstarfi milli Daimler- Chrysler og Mitsubishi í Japan. Þetta er fyrsti pallbíll sem Mitsub- ishi hefur hannað fyrir Bandaríkja- markað og hefst sala á honum seint á næsta ári. Hann verður framleiddur í verk- smiðju Chrysler í Warren í Michigan og verður að stórum hluta byggður á hugmyndabílnum sem Mitsubishi sýndi í Detroit. Bíllinn var sýndur með 4,7 lítra V8-vél, 325 hestafla og fimm þrepa sjálfskiptingu. Vélin kemur ekki frá Mitsubishi heldur Chrysler. Hann er með sjálfstæða fjöðrun og situr á stórum álfelgum. Mitsu Sport Truck Pallbíll byggður á hugmyndabílnum kemur á markað á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.