Morgunblaðið - 18.02.2004, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.02.2004, Blaðsíða 16
Morgunblaðið/Eggert Vélin er 2,2 lítrar og dugar flestum. PEUGEOT 607, flaggskip franska framleiðandans, tók við af 605 bíln- um og kom á markað í Evrópu 2001. Nú fyrst hefur hann rekið á fjörur Íslendinga og hafa þegar nokkrir bílar með dísilvélum verið seldir til leigubílstjóra. 607 var tekinn til kostanna í síð- ustu viku með 2,2 lítra bensínvél og fjögurra þrepa sjálfskiptingu með handskiptivali. 607 er stór bíll og keppir helst við bíla eins og Mercedes-Benz E, Audi A6 og BMW 5. Útlínur bílsins eru óvenju „sleiktar“ og bíllinn straum- línulagaður og nútímalegur í hönn- un. Lengdin ein og sér, 4,87 metrar, setur svip á bílinn. Athygli vekja líka stórir a-póstar og stór fram- rúða með miklum halla. Rúmgóður í aftursætum En það er samt ekki fyrr en sest er inn í bílinn og hann ræstur sem maður verður áþreifanlega var við að hér hefur Peugeot tekist að nálg- ast mjög lúxusbílaklassann. Bíllinn er sérdeilis rúmgóður að innan og framsætin eru með rafstillingum. Jafnvel þegar leggjalangur maður situr undir stýri er nóg rými fyrir þrjá í aftursætum og þar er hugað vel að öryggi allra með þremur þriggja punkta beltum og hnakka- púðum. Setan í aftursætunum er líka löng sem er til þæginda og nóg pláss er meira að segja fyrir þriðja farþegann í miðjusæti. Af öllu má líka sjá að vandað er til innréttinga og efnisvalið eins og best verður á kosið. Prófunarbíllinn var reyndar með plussáklæði, sem ekki verður lengur boðið upp á. Núna verður staðalbúnaður í öllum 607 leðurinn- rétting ásamt bílsíma og fer verðið þá úr rúmum fjórum milljónum kr. í 4.360.000 kr. 607 er hefðbundinn stallbakur; sem sagt með fjórum hurðum og skottloki. Farangursrýmið er mikið, en þó ekki mjög djúpt. Opnunin á því er skemmtilega útfærð; þrýst er með fingri í 0-ið á 607-merkinu og lýkst þá skottið upp. Til að loka því er þrýst með fingri á þar til gerðan hnapp og lokast það þá sjálfkrafa. Afar hentugt þegar menn eru klyfj- aðir pjönkum. Einn af stóru kostunum við 607 er frábær hljóðeinangrun bílsins. Það verður varla vart við vélarhljóð nema þegar vel er gefið inn og veg- og vindhljóð eru í lágmarki. Þar líka hefur Peugeot skipað 607 á bekk með bestu bílum. Sambúð vélar og sjálfskiptingar Undir vélarhlífinni er 2,2 lítra, 160 hestafla, fjögurra strokka bens- ínvél. Við hana er tengd fjögurra þrepa sjálfskipting með handskipti- vali. Bíllinn verður seint sagður sprækur í upptakinu og þar vill undirritaður sakast við sjálfskipt- inguna því engu líkara er en bíllinn sé alltof lágt gíraður. Þessu má bjarga með því að nota handskipti- valið því mesta aflið fæst út úr vél- inni á talsvert háum snúningi, lík- lega í kringum 4.000–4.500 snúningum. Þessu hefði líka mátt breyta með fimm þrepa sjálfskipt- ingu, eins og margir bílar í þessum flokki eru komnir með, en upp á hana er ekki boðið. En sjálfskipt- ingin hefur reyndar líka sína kosti og hún er í raun talsvert flókin þeg- ar allt kemur til alls. Hún er t.a.m. tölvuvædd og lærir inn á ökumann- inn og skiptir sér því upp og niður í takt við akstursstíl hvers og eins. Hún er líka með vetrarstillingu sem gerir að verkum að bíllinn tekur af stað í hærri gír, og sportstillingu sem gefur kost á hærri snúningi sem hentar betur sportlegri akstri. Bíllinn er reyndar mun sprækari í sportstillingunni og í henni er hægt að ná vélinni upp á allt að 5.500 snúninga. Undirritaður stóð sig að því að nota einungis á víxl hand- skiptinguna í innanbæjarakstrinum til að ná því sem hægt var út úr vél- inni, og síðan sportstillinguna þegar komið var út úr mestu þrengslun- um. Á það verður samt að líta að lík- lega á 607 ekki að vera nein spyrnu- kerra sem unglingar og akstursfíkl- ar fá mikla ánægju út úr. Þetta er dálítið fágaður bíll með lúmska en jafna vinnslu sem fer fram að því er má segja í kyrrþey, svo vel er bíll- inn einangraður. Lægra verð en keppinautar Eins og fyrr segir er upptakið í 2,2 lítra bílnum ekki sérlega spenn- andi en bíllinn er engu að síður vel brúklegur með þessari vél. Meira spennandi kostur hlýtur að vera 3,0 lítra V6-vélin sem er 310 hestöfl. Því bíllinn sjálfur er hreint út sagt frábær akstursbíll með aksturseig- inleika sem jafnast á við það besta í evrópskum bílum í dag. Þar fer saman mikið veggrip, jöfn og ekki of mjúk fjöðrun og frábær einangr- un frá vegi. Verðið á 607 er nokkuð hagstætt fyrir þetta stóran og vel útbúinn bíl. Prófunarbíllinn, með plussáklæði og án síma, kostar rúmar fjórar milljónir, en næstu gerðir verða all- ar með leðurklæðningu og síma og fara upp í 4.360.000 kr. Það er ekki oft sem Peugeot, eða yfirleitt franskir bílar, eru bornir saman við rótgróna þýska eðalvagnaframleið- endur eins og BMW, Mercedes- Benz og Audi. Þetta eru þó helstu keppinautarnir ásamt Lexus. Keppinautar eru helstir BMW 520i, sem kostar 4.490.000 kr., Audi A6 2.4 V6, sem kostar 4.730.000 kr., Mercedes-Benz E200, sem kostar 4.990.000 kr. og Lexus GS 300 sem kostar 4.800.000 kr. Og það eitt skal fullyrt hér að Peugeot 607 2,2 er með einhverja ásættanlegustu akst- urseiginleika sem undirritaður hef- ur lengi reynt, en mætti að ósekju vera ögn villtari undir vélarhlífinni. Morgunblaðið/Eggert 607 er straumlínulagaður bíll. Peugeot 607 skipar sér í flokk með þeim bestu REYNSLUAKSTUR Peugeot 607 2.2 Guðjón Guðmundsson Fremur hár að aftan. Mikið farangursrými. Það er gott að ferðast í aftursætum í þessum bíl. Látlaus en stílhrein innrétting er í 607. gugu@mbl.is 16 B MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar Vél: 2.230 rúmsenti- metrar, fjórir strokkar, 16 ventlar. Afl: 160 hestöfl við 5.650 snúninga á mínútu. Tog: 217 Nm við 3.900 snúninga á mínútu. Gírskipting: Fjögurra þrepa sjálfskipting með handskiptivali. Hröðun: 11,5 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km. Hámarkshraði: 213 km/klst. Eyðsla: 9 lítrar í blönduðum akstri. Lengd: 4.870 mm. Breidd: 1.830 mm. Hæð : 1.450 mm. Farangursrými: 600 lítrar. Eigin þyngd: 1.460 kg. Fjöðrun: McPherson-gormafjöðrun að framan og fjölliða- gormafjöðrun að aftan. Hemlar: Diskar að framan og aftan, ABS og EBA. Verð: 4.070.000 kr. Umboð: Bernhard efh. Peugeot 607 2.2 Þurrkublöð sem tryggja útsýni Borgartúni, Reykjavík Bíldshöfða, Reykjavík Dalshrauni, Hafnarfirði Hrísmýri, Selfossi Dalbraut, Akureyri Grófinni, Keflavík Lyngási, Egilsstöðum Álaugarvegi, Hornafirði Smiðjuvegi, Kópavogi RSH.is Dalvegi, Kópavogi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.