Morgunblaðið - 18.02.2004, Qupperneq 13
Allt fyrir mótorsport
upplifðu frelsi
Einstakt Factory-hjól
Sími 567 6116 - Baughúsum 6
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 B 13
bílar
FRAMLEIÐENDURmættust í kvart-
mílukeppni nýrra óbreyttra vélsleða
og sleðar frá Arctic Cat sigruðu í öll-
um flokkum.
Sleðarnir frá Arctic Cat náðu bestu
tímunum í öllum flokkum í þessum
óformlega kappakstri milli helstu vél-
sleðaframleiðenda heims.
Það var biblía bandarískra vélsleða-
manna, „American snowmobiler“ vél-
sleðablaðið, sem efndi til einvígis milli
nýjustu sleðanna. Í hefðbundnum vél-
sleðakeppnum er ávallt búið að
breyta, bæta og stilla sleðana þannig
að þeir standi sig betur í keppni. Blaðið
efnir því árlega til einvígja á milli nýj-
ustu sleðanna þannig að kaupendur
geti áttað sig á hvaða sleðar eru hrað-
skreiðastir „eins og þeir koma úr
kassanum“ frá framleiðendunum.
Það voru Firecat F6, Firecat F7 og
ZR 900 sleðarnir sem voru fulltrúar
Arctic Cat í keppninni að þessu sinni
en þetta er í fjórtánda sinn sem hún er
haldin. Keppnin fer þannig fram að
sami ökumaðurinn ekur öllum sleð-
unum á kvartmílubraut. Hámarks-
hraði og tími í mark er síðan mældur
til að skera úr um sigurvegarann.
Firecat F6 sleðinn keppti í 600 kúb-
ika flokki og fór kvartmíluna á 12,89
sekúndum. Firecat F7 sleðinn skaut
helstu keppinautum sína í 700 kúbika
flokknum ref fyrir rass og fór kvart-
míluna á ¾ hlutum úr sekúndu hraðar
en sá sem lenti í öðru sæti. ZR 900
sleðinn var svo hraðskreiðastur allra
þennan dag og náði tímanum 12,37
sekúndum í yfir 800 kúbika flokknum.
ZR 900 sleðinn er enda búinn bylting-
arkenndum drifbúnaði sem kallast
ACT Diamond Drive og skilar ýtrustu
nýtingu á 150 hestafla Suzuki-vélinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
F7 Firecat frá Arctic Cat.
Arctic Cat
sigraði í keppni
framleiðenda
HÁLKA, vatn á akbraut eða lausa-
möl geta verið hættulegar aðstæður,
einkum fyrir óreynda ökumenn. Hvað
getum við gert til að gera þá hæfari til
að mæta slíkum aðstæðum?
TUP Norden, Transport Under-
visnings Park i Norden, eru samtök
aðila á Norðurlöndum sem starfrækja
sérstök aksturskennslusvæði með
hálkubrautum.
Nú ber svo við að TUP Norden
heldur stjórnarfund hér á landi 19. til
22. febrúar nk. Af því tilefni hefur ver-
ið ákveðið að halda ráðstefnu þar
sem fulltrúar hinna Norðurlandanna
kynna framkvæmd þessara mála í
hverju landi fyrir sig.
Ráðstefnan fer fram á Grand Hótel
Reykjavík við Sigtún og hefst fund-
urinn föstudaginn 20. feb. kl. 09:30.
Yfirskrift ráðstefnunnar er:
Eru aksturstæknilegar æfingar sem
framkvæmdar eru á sérhönnuðu akst-
urskennslusvæði nauðsynlegur þáttur
í nútíma ökunámi? Á ráðstefnuna eru
boðnir aðilar sem standa næst um-
ferðarmálefnum ásamt ökukennurum.
Framsöguerindi halda Kurt Erlands
frá Finnlandi, Rune Gustavsson frá
Svíþjóð, Helge Tingelstad frá Noregi
og Claus Søder frá Danmörku. Í pall-
borðsumræðum verður síðan leitast
við að svara spurningunni: „Hver yrði
ávinningur af því að taka upp skipu-
lagða kennslu í hálkuakstri á Íslandi?“
Hálka – Lífshætta!
♦♦♦