Morgunblaðið - 18.02.2004, Page 23
lengri ferðir; góð áseta er lykilatriði,
ásamt því að þægilegt sé að standa
þegar það á við. Í þeim efnum er erfitt
að búa til einn sleða sem hentar öllum.
Ég verð að segja að fyrir minn smekk
er ásetan á RX-1 í hæsta gæðaflokki.
Sætið er hæfilega stíft og vel lagað og
útsýni á mælana mjög gott. Stýrið
sjálft mætti þó að skaðlausu vera
bæði hærra og jafnvel breiðara. Með
hærra stýri væri auðveldara að ráða
við sleðann í hliðarhalla og skáskera
brekkur.
Það sem kom mér mest á óvart er
hversu léttur og meðfærilegur sleð-
inn í raun virkar. Hann beygir vel og
lætur að flestu leyti vel að stjórn.
Helsti gallinn er að menn verða að
hafa varann á sér í kröppum beygj-
um. Innra skíðið vill fara á loft og
jafnvel ber á að sleðinn skriki út und-
an sér. Þarna kemur þyngdin án efa
til sögunnar en þetta kann að vera
hægt að leysa með því að stilla fjöðr-
unina betur.
Ég gerði reyndar engar sérstakar
tilraunir með mismunandi uppsetn-
ingu á fjöðrun. Heilt yfir fannst mér
sleðinn vel upp settur og hef raunar
alla tíð verið ágætlega sáttur við Pro
Action-afturfjöðrunina frá Yamaha.
Hún hefur reyndar ekki þróast mikið
í gegnum árin en eins og fram hefur
komið verða verulegar breytingar á
henni frá og með 2005-árgerðinni.
Þetta er ágætlega burðarmikil fjöðr-
un, stendur sig mjög vel á meðan ekki
er mjög óslétt færi, en á virkilegum
karga eru aðrar útfærslur betri. Galli
við þá Yamaha-sleða sem ég hef haft
kynni af hefur verið óþarflega mikið
slit á meiðum og ekki er ég frá því að
RX-1 geti verið sama marki brennd-
ur. A.m.k. þóttist ég nokkrum sinnum
finna smáplastlykt ef færið var hart.
Nýtur sín vel í hraðakstri
Best nýtur RX-1 sín venjulegum
„trail-akstri“. Þannig er líka senni-
lega bróðurparturinn af öllum akstri
sleðamanna. Og hraðinn er ekki
vandamál. Því hraðar sem var ekið
því betur naut sleðinn sín. Uppi á
Vaðlaheiði gafst kostur á að gefa dug-
lega í. Færið var talsvert rifið á köfl-
um en það var svo sannarlega ekki
vandamál. Þótt mælirinn sýndi vel yf-
ir 100 km hraða haggaðist maður ekki
á sætinu. Framfjöðrunin stóð sig frá-
bærlega og ég fullyrði að ég hef engan
sleða keyrt sem lætur jafn vel að
stjórn á mikilli ferð. Við þessar að-
stæður fannst mér sleðinn njóta sín
hvað best og skapaði tilfinningu sem
ég hef ekki áður notið á 30 ára sleða-
ferli. Ég viðurkenni fúslega að vera
frekar huglaus þegar kemur að hrað-
akstri á vélsleða en á RX-1 fannst mér
mér allir vegir færir.
Vert er að hafa á hreinu að RX-1 er
ekki besti púðursleðinn eða fjallaklifr-
arinn á markaðinum, enda ekki ætlað
að vera það. Þetta á auðvitað ekki síst
við um stutta sleðann sem prófaður
var að þessu sinni. Mín upplifun á
sleðanum er hins vegar sú að hann sé
vel meðfærilegur í hliðarhalla og á
meðan hann hefur spyrnu klifrar
hann endalaust upp brekkur. Stutta
beltið hentar ekki í púðursnjó, frekar
en hjá öðrum stuttum sleðum, en mér
fannst hann samt ótrúlega duglegur.
Gríðarlega spennandi ferð upp Geld-
ingsárgilið í Vaðlaheiði, í miklum
lausasnjó, var einn af hápunktum
helgarinnar en fékk snöggan og sorg-
legan endi þegar ökumaðurinn fipað-
ist eitt augnablik í þröngum skorn-
ingi.
Útlit og frágangur
Útlit er nokkuð sem menn verða
aldrei sammála um. Einnig getur
smekkur manns breyst. Mér fannst
t.d. Firecat til að byrja með einhver
ljótasti sleði sem ég hafði séð. Nú,
tveimur árum seinna, finnst mér hann
einhver sá fallegasti á markaðinum.
Mér hefur hins vegar frá upphafi þótt
RX-1 hreint ótrúlega flottur og það
álit dofnaði ekki við að prófa gripinn.
Það er helst að manni finnist hlutföll-
in í stutta sleðanum svolítið skrítin.
Að framendinn beri það sem fyrir aft-
an er hálfgerðu ofurliði. En hér ræður
smekkur hvers og eins. Rúðan er
ágætlega heppnuð en mætti þó fyrir
minn smekk vera aðeins breiðari.
Mér fannst gusta heldur mikið um
hendurnar. Sleðinn er til í nokkrum
litasamsetningum en sá sem undirrit-
aður hafði til afnota var svartur.
Yamaha hefur alltaf haft orð á sér
fyrir vandaðan frágang og þar er
RX-1 engin undantekning. Það er
hrein unun að sjá hversu allt virðist
vandað og vel hugsað. Digital-mæla-
borðið er ótrúlega „kúl“ auk þess að
virka vel. Hitastilling fyrir handföng
og bensíngjöf er stiglaus og vel fyrir
komið sitthvorumegin á stýrinu.
Takki til að hækka og lækka ljós er
einnig vel staðsettur og ljósið sjálft er
mjög gott. Hái geislinn lýsir vel fram-
fyrir sleðann og ef ljósin eru lækkuð
fæst mjórri og lægri geisli sem ætti að
nýtast vel ef keyra þarf í vondu veðri.
Útfærsla á púströrunum er ótrú-
lega flott en á sama tíma dálítið pirr-
andi. Þegar þú t.d. setur sleðann í
gang á morgnana eftir að hann hefur
staðið úti þarftu að lofa honum að
ganga í smástund. Þú vilt hins vegar
nota tímann til að losa aðeins um sleð-
ann, lyfta honum upp að aftan og láta
hann detta niður til að losa um klaka í
beltinu. Á RX-1 færðu hins vegar
pústið beint í andlitið við þessa at-
höfn. Stærsti ókostur þessa fyrir-
komulags með púströrin er hins veg-
ar alger skortur á farangursrými. Þú
getur ekki tekið með þér nesti til
dagsins nema þá að fá þér tanktösku
eða aðra lausa hirslu sem þú hengir
utan á sleðann. Fyrir þá sem stunda
langferðir skapa púströrin einnig
vandamál upp á farangursgindur.
Fyrir hverja?
Í heild líkaði mér frábærlega vel við
sleðann þótt alltaf megi finna eitthvað
til að setja út á. Það eru til sleðar sem
standa sig mjög vel á tilteknu sviði og
myndu þ.a.l. standa sig betur á því en
RX-1. Hins vegar hef ég trú á að þessi
sleði ætti að geta hentað mjög stórum
hópi sleðamanna því hann gerir
marga hluti mjög vel. Nóg afl, góð
áseta, góðir alhliða aksturseiginleikar
og vönduð smíði er nokkuð sem ég
held að margir sækist eftir. Flott útlit
og 30% minni eyðsla en félaginn á tví-
gengissleðanum ætti heldur ekki að
skemma fyrir. Fyrir þá sem stunda
langferðir um hálendið er sleði sem
þessi augljós kostur og í raun und-
arlegt að ekki skuli fleiri hafa valið
þessa leið. Ég er hins vegar sann-
færður um að þeim mun fjölga.
Að lokum
Eins og fram hefur komið mun
Yamaha leggja aukna áherslu á fjór-
gengistæknina á næsta tímabili og
ætlar greinilega að veðja á hana. Á
þessu hafa menn mismunandi skoð-
anir eins og gengur. Ég segi hins veg-
ar: Frábært! Þó ekki væri nema fyrir
það eitt að ekki séu allir framleiðend-
ur að matreiða sama grautinn í svip-
uðum skálum. Yamaha sýndi okkur
með RX-1 að fjórgengistæknin er og
verður alvöru valkostur í sleðum.
Fyrir að vilja, þora, geta og gera fær
Yamaha mitt atkvæði.
Halldór Arinbjarnarson.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 2004 23
Bíldshöfða 18, 110 Reykjavík
Opið: mánudaga-föstudaga 8-18
Varahlutir
fyrir Evrópu- og
Asíubíla
NÝTT
Ó
TR
Ú
LE
G
V
ER
Ð
1 4 4 4
w w w. g u l a l i n a n . i s
Borgartúni, Reykjavík
Bíldshöfða, Reykjavík
Dalshrauni, Hafnarfirði
Hrísmýri, Selfossi
Dalbraut, Akureyri
Grófinni, Keflavík
Lyngási, Egilsstöðum
Álaugarvegi, Hornafirði
Smiðjuvegi, Kópavogi
RSH.is
Dalvegi, Kópavogi