Morgunblaðið - 05.03.2004, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5|3|2004 | FÓLKIÐ | 7
ð
?
ir
a
ar
o
d
-
ar
ð
ð-
-
?
urjón. Ég var þá hans Oprah Winfrey, að horfa á árangurinn. „So
what happened, man?““
En þú hefur ekki spurt hann út í atvikið á klósettinu, Jón?
J: „Ég ætlaði að fara að gera það. Ég var kynntur fyrir honum.
Hann sýndi glæsilegan gerviáhuga þegar hann heilsaði mér, en
ef hann hefði sýnt mér aðeins meiri áhuga hefði ég sagt: „Yeah,
it’s a funny thing because my friend he met you when you were
exiting the toilet ten years ago.“ Þetta hefði orðið mjög löng og
óáhugaverð saga fyrir hann.“
S: „Ég man þegar ég hitti Fisher Stevens, sem lék í Cold Fever.
Ég hafði samið tónlist fyrir stuttmynd sem var sýnd á undan
Cold Fever. Stevens sýndi mér mjög góðan gerviáhuga þegar ég
var kynntur fyrir honum.“
En eruð þið ekki svona, þegar þið hittið almúgann hér?
S: „Nei nei, við erum mjög alþýðlegir.“
J: „Já, ég er ekki svoleiðis.“
S: „Við erum ekkert í því að fara til Ítalíu til að flýja frægðina.“
Hver er Jörgen Sörensen?
J: „Hann er bróðir Bogomils Fonts og pabbi Love Guru. Þetta er
náttúrulega fyrst og fremst alþjóðlegt og skemmtilegt nafn.
Jörgen er mikið að skrifast á við fólk og tala við það.“
Hann hefur mikinn áhuga á Idi Amin.
J: „Mikinn áhuga á honum og afrískri menningu. Við höfum ein-
mitt verið að skrifast á við nígeríska svindlara í nafni Jörgens.
Við áttum einmitt mjög gott samtal í morgun við Peter
Okinwowowogwawa, sem hringdi til okkar.“
S: „Við vorum báðir Jörgen Sörensen, skiptumst á að tala.“
J: „Hann fattaði aldrei muninn.“
S: „Svo hefur Jón líka verið að skrifast á við konu, Susanne eitt-
hvað, sem Rod Stewart, ekki Jörgen.“
J: „Einhvern veginn greip hún þann misskilning, því Jörgen
Sörensen er mikill Rod Stewart-áhugamaður. Hún byrjaði fyrst
að skrifast á við Jörgen og hann sagði í bréfinu að hann væri að
byggja Rod Stewart-kirkju í Grindavík. Þetta yrði stærsta Rod
Stewart-kirkja í heimi. Þar með fór hún að skrifa: „Dearest Rod
Stewart.“ Þá var náttúrulega tilvalið að þykjast vera Rod Stew-
art. Hún veit auðvitað ekkert hver það er.“
En hvenær ætlið þið að gera áramótaskaup?
J: „Já, hvenær ætlar RÚV að bjóða okkur það?“
S: „Einmitt, síminn minn er alltaf opinn, en ég hef ekki ennþá
fengið símtal frá þessum vitleysingum. Á meðan geta þeir bara
látið Arnar Jónsson og félaga hans …“
J: „Og Ingibjörgu Sólrúnu …“
S: „Nei, ekki Ingibjörgu Sólrúnu, en Arnar Jónsson, Róbert Arn-
finnsson og svona fyndna karla sjá um þetta. Það er þá bara allt
í lagi. Á meðan þeir sem ráða hafa ekki vit á því að láta þekking-
armenn gera skaupið verður þjóðin að sætta sig við þetta.“
J: „Þetta er náttúrulega móðgun við sakleysið. Við lífið …“
S: „Móðgun við grínið.“
J: „Ef við værum í einhverjum samtökum myndum við mótmæla
þessu. Svo er reyndar spurning hvort við hefðum eitthvað að
gera í skaupið. Það er komin svo rík hefð fyrir því að það sé leið-
inlegt. Viljum við brjóta þá hefð?“ | ivarpall@mbl.is
EÞÍÓPÍSKA FJÖLSKYLDAN Í ATRIÐI SEM HEITIR BENÓKONGÓ.
SIMMI OG
JÓI Í FRAM-
HALDS-
LEIKRITINU
KLEÓPÖTRU.
Lausleg þýðing:
Halló fólk hjá Nýju Las Vegas brúðkaupum
Ég heiti Jörgen Sörensen. Ég bý hjá móður minni
sem er 89 ára gömul. Hún er með Knutsens-
sjúkdóminn. Við eigum heima á Íslandi, nærri her-
stöðinni í Keflavík. Mér var sagt að samkvæmt
bandarískum lögum geti karlmaður kvænst móður
sinni. Er það rétt? Og ef svo er, hvað myndi það
kosta?
Fyrirfram þakkir!
Jorgen Sorensen
SVAR:
Jorgen:
Það er EKKI löglegt í Nevada að kvænast móður
sinni.
Caroline :)
Ólöglegt að kvænast
móður sinni!
Bréfaskipti Jörgens Sörensens
Hver er Jörgen Sörensen? Er hann rugludallur eða snillingur? Hvað er Knutsen-heilkenni?
Aðeins með því að lesa bréfin hans fáum við mynd af manninum og lífi hans og öðlumst inn-
sýn í líf manns sem er ekki alveg í lagi.
Nöfnum fyrirtækja og fólks hefur verið breytt samkvæmt alþjóðlegum lögum um per-
sónuvernd.
Hver er Jörgen?
Ég fæ seint gleymt svipnum á ökukennara mínum þegar
ég kom honum fyrir sjónir í fyrsta ökutíma mínum, þá 16
ára gömul. Fyrr þann dag hafði ég notað dágóðan skerf
sumarlauna minna til að fjárfesta í mjög svo móðins
skóm, ef skó má kalla. Þykkt sólans gerði það kraftaverk
að ég hækkaði um 10 sm við það eitt að kunna að
reima! Líf gelgjunnar gat ekki orðið miklu betra en þetta.
Ef mál hefðu hins vegar atvikast þannig að ég hefði mis-
stigið mig væri aflimun neðan hnés að öllum líkindum
óhjákvæmileg – en hverju fórnar maður svo sem ekki á
altari tískunnar?
En strax þá stund er ég sá ökukennara minn þótti mér
ljóst að stultugangur minn framkallaði ekki sömu viðbrögð hjá mér annars vegar og
ágætum ökukennara mínum hins vegar. Gott ef ég sá ekki umkomulausa manngreyið
signa sig með tilheyrandi óskum um að algóður Guð kæmi honum heim í kjötfars til
konunnar að lokinni þessari örlagaferð! Það er þó skemmst frá því að segja að frammi-
staða mín í jómfrúferð minni var með afburðum ágæt. Þrátt fyrir að hafa ekki snefil af
tilfinningu fyrir bensíngjöfinni í gegnum skóklumpana ók ég aðeins einu sinni utan í
gangstéttarbrún, drap á bílnum fjórum sinnum (eða var það fjórtán … skiptir ekki – tal-
an hafði a.m.k. fjóra í nafni sínu) og keyrði yfir á rauðu ljósi … sem ég taldi alfarið af-
sakanlegt, enda var ég að gera mitt besta til að ná grænu svo déskotans kennarinn
kæmi nú ekki heim í kalt kjötfars konunnar!
Svo lengi lærir reyndar sem lifir og ég hef nú verið stoltur ökuskírteiniseigandi í nær
átta ár. Að fenginni reynslu hef ég aðeins tvennt að segja: Schumaker, smúmaker! Þeg-
ar ég þeysist um götur borgarinnar á rósrauða fáknum fyllist ég stolti. Gúmmíilmurinn
og vælið í spólandi dekkjum sem stígur upp frá götunni þegar ég tek af stað á litlu doll-
unni minni er sem músík í eyrum mér – róandi og taktföst í senn. Unun áhorfs.
En það er síður en svo dans á rósum að vera góður, vökull og hreint einstakur öku-
maður. Það eru nefnilega ökumenn þarna úti sem hafa hreinlega ekki tamið sér færn-
ina að aka bíl og skapa því mikla hættu fyrir okkur snillingana. Þeir keyra of hægt, eru
hikandi og læðast líkt og köttur í kringum heitan graut ef örlítill rigningarúði gerir vart við
sig. Eins og gefur að skilja aftrar þetta mér mikið og því hef ég hugsað mér að leggja þá
tillögu fram við þar til gerð stjórnvöld að ófærum ökumönnum verði gert að setja við-
vörun á bíla sína. Hugmyndin er algerlega byltingarkennd og mun gera það að verkum
að ég get áhyggjulaus keyrt, sönglað með lögum í útvarpinu, klínt maskara á augun á
mér og talað í símann, allt á sömu stundinni. Ákjósanlegast þætti mér auðvitað að
menn sem aðeins geta einbeitt sér að einum hlut í einu, þ.e. akstrinum, væru alls ekki
með ökuréttindi. Réttlætiskennd mín ristir hins vegar djúpt og því get ég um sinn sætt
mig við blikkandi ljósaskilti á bílþaki vanhæfra ökumanna sem aðeins er fært að fram-
kvæma einn hlut í einu.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Riddari götunnar
JÁRNSKVÍSAN
ir fjöldann
„Matt Dillon var
á klósettinu og
ég var að bíða
eftir að komast
þangað inn.“
„Hugleikur
er 26 ára.“
„Ég verð
oft reiður.
Sigurjón er að
fara eitthvað
með konunni
sinni í sumar.
Ég fór að velta
fyrir mér:
„Hvað hefur
hún sem ég hef
ekki? Er hún í
útvarpinu?“
From: jorgensorensen@simnet.is
To: rooms2@newlasvegasweddings.com
Subject:
Hello people at New Las Vegas weddings
My name is Jorgen Sorensen. I live with
my mother who is 89 years old. She has
knutsens disease. We live in Iceland,
close to the Keflavik airforce base. I was
told that according to the law of the USA a
man can marry his mother. Is that right?
And if so how much would that cost?
Beforehand thanks!
Jorgen Sorensen
SVAR:
From: rooms2@newlasvegaswedd-
ings.com
To: jorgensorensen@simnet.is
Subject:
Jorgen:
Marrying your Mother is NOT legal in Ne-
vada.
Caroline :)