Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 1
Fólkið í dag
Fólkið | Berfætta ballerínan
Aðalheiður Halldórsdóttir Hvað
segja bolirnir? Blindur hnífakastari
Lífið eftir
boltann
Andri Sigþórsson er búinn að fá
sig fullsaddan á fótbolta | Íþróttir
Bumbur í
tískufötum
Loksins almennilegt úrval af
óléttufatnaði í búðum | Daglegt líf
STOFNAÐ 1913 78. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
SVEITARSTJÓRN Þingeyjarsveit-
ar tók fyrir á fundi sínum í gær
beiðni Norðurorku um viðræður við
sveitarstjórnina vegna virkjunar-
möguleika í Skjálfandafljóti. Já-
kvætt var tekið í erindið og sveit-
arstjóra falið að hafa milligöngu um
að fundur yrði haldinn með Norður-
orku. Fyrr í mánuðinum samþykkti
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur að
sækja um leyfi stjórnvalda til að
rannsaka hagkvæmni vatnsaflsvirkj-
unar í Skjálfandafljóti og fyrirheit
um forgang að nýtingarleyfi, reynist
virkjun þar hagkvæm. OR sagði þá í
tilkynningu að ekki væri vitað um
áhuga annarra orkufyrirtækja á að
virkja Skjálfandafljót.
Franz Árnason, forstjóri Norður-
orku, sagði við Morgunblaðið að
stjórn fyrirtækisins hefði á fundi sín-
um á miðvikudag samþykkt að óska
eftir þessum viðræðum. Þær væru
fyrst og fremst hugsaðar til að kanna
hug landeigenda, þ.e. Þingeyjar-
sveitar, á mögulegu virkjunarsvæði.
Norðurorka hefði ekki uppi áform
um að ráðast í gerð virkjunar á eigin
spýtur en Franz útilokaði ekki
möguleika um samstarf við önnur
orkufyrirtæki.
„Okkur er ljóst að Orkuveita
Reykjavíkur hefur ákveðið að sækja
um virkjunarleyfi og við erum ekk-
ert að reyna að koma í veg fyrir það.
Við viljum bara ræða við landeigend-
ur um hvaða hugmyndir þeir hafa og
hvort þeir hafa einhvern áhuga á að
skipta sér af því hver sé að sækjast
eftir virkjunarkostum,“ sagði Franz.
Viðræður með opnum hug
Jóhann Guðni Reynisson, sveitar-
stjóri Þingeyjarsveitar, segir áhuga
á virkjun á þessum slóðum ekki
koma heimamönnum á óvart. Áhug-
inn hafi fyrst kviknað fyrir rúmum
30 árum. Sveitarstjórnin muni ræða
við áhugasama aðila með opnum
huga, Norðurorku sem aðra.
Jóhann Guðni segir að virkjun í
Skjálfandafljót hafi samkvæmt fyrri
rannsóknum verið talið hagkvæmur
kostur en þarna séu náttúruperlur
eins og Aldeyjarfoss, Suðurá og
fleiri. Hann segir Orkuveitu Reykja-
víkur ekki hafa haft samband við
sveitarfélagið, aðeins hafi heyrst af
áhuga veitunnar í fjölmiðlum.
Bæði OR og Norðurorka
vilja virkja Skjálfandafljót
Forstjóri Norður-
orku útilokar ekki
samstarf við önnur
orkufyrirtæki
NORSKA undrabarnið Magnus
Carlsen, 13 ára gamall, gerði jafn-
tefli við Garrí Kasparov, sterkasta
skákmann heims, í fyrri skák þeirra
í fyrstu umferð atskákmótsins
Reykjavík Rapid í gærkvöldi. Kasp-
arov hafði svo betur í seinni skákinni
og Carlsen var þar með úr leik.
„Þetta er frábær strákur og á bjarta
framtíð fyrir sér,“ sagði Kasparov
við Morgunblaðið. Carlsen sagðist
þokkalega ánægður með árangur
sinn hér. Hann sagðist stefna að því
að verða heimsmeistari í skák, en
hann á aðeins einn áfanga eftir að
stórmeistaratitli og gæti orðið næst-
yngsti skákmaður sögunnar sem
næði þeim titli.
Morgunblaðið/Ómar
„Strákur með bjarta framtíð“
Stefnir að því/4
PAKISTANSKAR hersveitir hafa umkringt
og jafnvel sært Ayman al-Zawahri, helsta
ráðgjafa Osama bin Ladens, leiðtoga hryðju-
verkasamtakanna al-
Qaeda, skammt frá afg-
önsku landamærunum,
sögðu háttsettir pakist-
anskir embættismenn í
gær.
Pakistanar hafa barist
hart við vopnaða víga-
menn í landamærahér-
aðinu Waziristan undan-
farna daga, og segja
embættismennirnir að
þessi harða mótspyrna sem pakistönsku her-
mennirnir mæti bendi til að verið sé að verja
háttsettan mann. Njósn hafi borist af því, að
þar sé að líkindum um al-Zawahri að ræða.
Pervez Musharraf, forseti Pakistans, sagði
þó að ekki væri unnt að staðfesta það.
Segja næst-
ráðanda bin
Ladens um-
kringdan
Islamabad. AP.
Ayman al-Zawahri
SERBAR og Albanar kveikja í
húsum, kirkjum og moskum hverj-
ir fyrir öðrum í átökunum, sem nú
geisa í Kosovo og eru orðin þau
mannskæðustu frá því stríðinu þar
lauk 1999. Yfir þrjátíu manns hafa
fallið í valinn og hundruð særst.
Fróði Jónsson, slökkviliðsstjóri
á Pristina-flug-
velli, fór ásamt
mönnum sínum
í fyrrinótt að
slökkva elda í
Fushkosova,
sem er bær sem
liggur milli
Pristina og
flugvallarins og
er bæði byggð-
ur Serbum og
Albönum. Skotið var viðvörunar-
skotum að þeim við slökkvistörfin
og ákváðu þeir þá frá að hverfa.
„Ástandið hefur verið mjög
slæmt þar. Þeir hafa mikið verið
að brenna, kveikja í mörgum hús-
um,“ segir Fróði í samtali við
Morgunblaðið. „Slökkviliðið í
Pristina hafði nógu að sinna niðri í
Pristina og þess vegna kölluðu
þeir nú í okkur og báðu um aðstoð.
Við gátum líka fengum vopnaða
fylgd lögreglumanna og fórum
þarna niður eftir og slökktum í
nokkrum húsum, þangað til þeir
fóru að skjóta á okkur. Þá fórum
við bara heim.“
Fróði segir að skotið hafi verið í
átt að slökkviliðsmönnunum. „Þeir
hafa nú sjálfsagt bara verið að
gefa einhver viðvörunarskot hugsa
ég nú. Hefðu sjálfsagt hitt okkur
hefðu þeir viljað það,“ segir hann.
Fróði segir að þegar þarna var
komið sögu, hafi verið ákveðið að
fara heim með liðið, enda búið að
slökkva eldana að mestu hvort
sem var. Auk þess hafi eldar
brunnið víða í bænum og ekki
hægt að slökkva alla. Áhersla hafi
verið lögð á að slökkva þá elda sem
hætta var á að breiddust út.
Fróði var eini Íslendingurinn í
hópnum. Hann segist ekki telja að
slökkviliðsmennirnir hafi verið í
beinni hættu vegna viðvörunar-
skotanna, en til þess hefði vissulega
getað komið. „Það er þannig að
Albanarnir kveikja í Serbahúsum,
svo ætlum við að slökkva í þeim og
þá eru þeir ekki hrifnir af því og öf-
ugt,“ segir Fróði.
Skotið að íslenskum slökkviliðsmanni við störf í Kosovo
Kveikja í húsum
hverjir fyrir öðrum
Kosovo-Albani reynir með garðslöngunni hjá sér að slökkva eld í húsi serbnesks nágranna síns í þorpinu
Polje, skammt frá Pristina, í gær. Það voru Albanar sem kveiktu í húsinu, og fleiri byggingum.STARFSMANNI Neyðarlínunnar brá held-
ur í brún þegar hann tók á móti símtali seint
á miðvikudagskvöld. Þegar svarað var í sím-
ann heyrðist þungur andardráttur og
skringilegar stunur, og hélt starfsmaðurinn,
ýmsu vanur, að hér væri símadóni á ferð.
Starfsmaðurinn gafst ekki upp við að
reyna að ná sambandi við viðmælandann, og
heyrði loks mannsrödd á hinni línunni sem
sagði: „Svona kallinn, hvað ertu að gera?“ og
fleira í þá veru. Í ljós kom að hundur hafði
gert sér lítið fyrir, tekið þráðlausan síma
traustataki og hringt í neyðarnúmerið 112.
Eigandi hundsins, eldri maður, var að von-
um ánægður með klókindi seppa, enda gott
að vita að besti vinur mannsins geti hringt
eftir hjálp ef eitthvað kemur fyrir.
Hundurinn
hringdi í 112
♦♦♦
UM 1.000 hermenn á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) voru
sendir til Kosovo í gær til að aðstoða við að binda enda á átökin í hér-
aðinu. Friðargæsluliðum NATO var heimilað að beita valdi til að kveða
niður óeirðir, og Bandaríkjamenn, Bretar og Ítalir féllust á að senda
þangað liðsauka á vegum NATO. Um 17 þúsund friðargæsluliðar eru
þar fyrir. Háttsettur foringi í NATO-liðinu sagði í gær, að atburðarásin
undanfarna daga benti til að átökin hefðu verið skipulögð fyrirfram.
NATO sendir liðsauka
Brussel, Pristina. AFP.
Fróði Jónsson
AP
Allt starf SÞ/14
Óbreytt/4