Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
31 FALLINN Í KOSOVO
Þrjátíu og einn hefur fallið og um
500 særst undanfarna tvo daga í
hörðustu átökum sem blossað hafa
upp í Kosovo-héraði frá því stríðinu
þar lauk 1999. Fróði Jónsson,
slökkviliðsstjóri á flugvellinum í hér-
aðshöfuðstaðnum Pristina, sagði að
serbneskir og albanskir íbúar
kveiktu í húsum hver fyrir öðrum.
Staðbundið bensínstríð
Staðbundið bensínstríð hófst í
gær með því að ÓB-bensín auglýsti
þriggja daga kynningartilboð á nýrri
sjálfsafgreiðslustöð við Háaleitis-
braut. Bensínorkan fylgdi í kjölfarið
og bauð lægra verð á tveimur stöðv-
um við Miklubraut skammt frá. Olíu-
félagið Esso lækkaði síðan bensín-
verð í sjálfsafgreiðslu á þremur
stöðvum, þar af einni í Fellsmúla.
Al-Zawahri umkringdur?
Pakistanskir hermenn voru í gær
sagðir hafa umkringt Ayman al-
Zawahri, næstráðanda Osama bin
Ladens í al-Qaeda, í fjallahéraði
nyrst í Pakistan. Átök hafa geisað
þar síðan á þriðjudag milli pakist-
anskra hermanna og vopnaðra víga-
manna.
Sigruðu MR
Lið Borgarholtsskóla sigraði lið
MR í Gettu betur í fjögurra liða úr-
slitum í gær. Þar með er endi bund-
inn á ellefu ára sigurgöngu Mennta-
skólans í Reykjavík.
Fjórir handteknir á Spáni
Spænska lögreglan handtók fjóra
menn til viðbótar í gær í tengslum
við rannsóknina á hryðjuverkunum í
Madríd í síðustu viku. Alls hafa þá
tíu manns verið handteknir.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Minningar 42/52
Viðskipti 12/13 Staksteinar 60
Erlent 14/19 Bréf 58
Höfuðborgin 22 Skák 57
Akureyri 23 Dagbók 60/61
Suðurnes 24 Brids 59
Landið 26 Leikhús 66
Listir 30/32 Fólk 67/73
Umræðan 33/37 Bíó 70/73
Forystugrein 38 Ljósvakamiðlar 74
Viðhorf 42 Veður 75
* * *
Morgunblaðinu í dag fylgir auglýs-
ingablað frá Símanum.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi, orri@mbl.is
Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport-
@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Hryðjuverk – andlit
ógnarinnar
Hugmyndaríkur
búningahönnuður
Nýr leikhússtjóri
Íslendingur á Spáni
Kornabörnin með í bíó
Litrík eldhúsáhöld
Föt og förðun Gallianos
Ritlistin á gluggum
Á SUNNUDAGINN
Bagdad 2004
Casablanca 2003
Tora Bora 2001
Quetta 2004
Madríd 2004
Jerúsalem 2002
Balí 2002
Karbala 2004
Bagdad 2003
New York 2001
München 1972
Moskva 2002
Istanbul 2003
Gaza 2000
Londonderry 1999
Sunnudagur 21.03.04
ÓGN SAMTÍMANS
HRYÐJUVERK
GUÐNÝ Jónsdóttir, yfirsjúkraþjálf-
ari á endurhæfingardeild Landspítala
– háskólasjúkrahúss fyrir fjölfatlaða í
Kópavogi, hefur lýst áhuga á að taka
yfir rekstur deildarinnar í bréfi sem
lagt hefur verið fram í stjórnarnefnd
LSH. Ákveðið hefur verið í heilbrigð-
isráðuneytinu að ganga til viðræðna
við Guðnýju en jafnframt eru fyrir-
hugaðar viðræður við Styrktarfélag
lamaðra og fatlaðra um að tryggja
reksturinn áfram.
Eins og fram hefur komið var gert
ráð fyrir lokun endurhæfingardeild-
arinnar í sparnaðartillögum sjúkra-
hússins en fyrir skömmu tók heil-
brigðisráðherra þá ákvörðun á
grundvelli tillagna sérstaks starfs-
hóps að leitað verði allra leiða til að
tryggja áframhaldandi starfsemi end-
urhæfingarþjónustunnar í Kópavogi.
Vilja tryggja reksturinn áfram
Guðný segir í samtali við Morgun-
blaðið að hún og fleiri starfsmenn
deildarinnar hafi sýnt áhuga á að
tryggja áframhaldandi rekstur deild-
arinnar í Kópavogi. Yrði reksturinn
þá á ábyrgð hennar en fleiri starfs-
menn kæmu að því að halda uppi
þjónustunni sem þar fer fram. Hún
segir að viðræður séu í gangi, ýmsir
kostir séu í stöðunni og málin hafi því
ekki verið til lykta leidd. Kveðst hún
vænta niðurstöðu fljótlega. Það sé
mikilvægt bæði vegna skjólstæðinga
deildarinnar og starfsfólksins.
Átta og hálft stöðugildi tengist
starfseminni í Kópavogi með einum
eða öðrum hætti.
Guðný segir mestu máli skipta að
tryggja áframhaldandi starfsemi
hvort sem niðurstaðan verði sú að hún
eða einhver annar aðili komi til með
að annast reksturinn.
Endurhæfingarþjónusta við fjölfatlaða í Kópavogi
Rætt við starfsmenn um
að taka yfir reksturinn
HÁKON, krónprins Noregs, og
Mette-Marit krónprinsessa koma í
opinbera heimsókn til Íslands dag-
ana 28.–30. júní nk. Þetta var
ákveðið á fundi Ólafs Ragnars
Grímssonar, forseta Íslands, og Há-
konar í konungshöllinni í Ósló í
gær. Hákon gegnir störfum þjóð-
höfðingja Noregs í veikinda-
forföllum Haraldar föður síns.
Í tilkynningu frá skrifstofu for-
seta Íslands segir, að á fundinum í
Ósló í gær hafi komið fram að heim-
sóknin fæli í sér skilaboð um hve
mikilvægt væri af hálfu Norð-
manna að rækta sambandið við Ís-
land og yrði dagskrá heimsókn-
arinnar miðuð við að fara á slóðir
sem tengdust sameiginlegri sögu
þjóðanna og einnig að kynna
norska ríkisarfanum Ísland nú-
tímans, listir, vísindi og viðskipti og
þær hugmyndir sem nýjar kyn-
slóðir beri í brjósti.
Ljósmynd/Scanpix
Ólafur Ragnar Grímsson ásamt Hákoni krónprinsi og Sonju drottningu.
Forsetinn hitti
norska krónprinsinn
VERJANDI eins sakborningsins í
líkfundarmálinu fær aðgang að um-
beðnum rannsóknargögnum sam-
kvæmt dómi Hæstaréttar sem í gær
hafnaði kröfu ríkislögreglustjóra um
að synja verjandanum um aðgang að
gögnunum.
Ríkislögreglustjóri fékk kröfu
sína samþykkta í héraðsdómi hinn
11. mars en Hæstiréttur hnekkti
þeim úrskurði. Segir í dóminum að
ríkislögreglustjóri hafi leitt varnar-
aðila og aðra sakborninga fyrir dóm-
ara til skýrslugjafar lögum sam-
kvæmt. Hefði ríkislögreglustjóri
haft nægt ráðrúm til að fara fram á
frekari skýrslutöku fyrir dómi. Ekki
væri nóg að hann vísaði til þess að
hann myndi leiða hina grunuðu fyrir
dóm til skýrslugjafar um leið og mik-
ilvæg gögn lægju fyrir.
Málið dæmdu hæstaréttardómar-
arnir Gunnlaugur Claessen, Árni
Kolbeinsson og Ingibjörg Bene-
diktsdóttir. Af hálfu ríkislögreglu-
stjóra flutti Jón H. Snorrason sak-
sóknari málið en Björgvin Jónsson
hdl. fyrir varnaraðila.
Neskaupstaðarmál
Verjandi fær
aðgang að
gögnum
ÞÝSKA flugfélagið LTU hefur af-
ráðið að hætta áætlunarflugi til Eg-
ilsstaða. Undanfarin tvö sumur hef-
ur verið flogið vikulega frá júní til
september milli Düsseldorf og Egils-
staða, með viðkomu í Keflavík.
Reyna átti flugleiðina í þrjú ár og
endurmeta þá forsendur. Forsvars-
menn LTU segja að aukning í bók-
unum milli Keflavíkur og Düssel-
dorf, sem og erfið tímaáætlun, ráði
ákvörðuninni nú. Búið var að selja
250 farmiða frá Egilsstöðum og út.
Ekki er ljóst hvernig það verður
leyst.
LTU hættir
beinu flugi til
Egilsstaða
KARLMAÐUR sem fór inn á heimili
fjögurra ára telpu á Seyðisfirði á
Þorláksmessu 2003 og tók hana sof-
andi og hafði á brott með sér út úr
húsinu, hefur verið ákærður af rík-
issaksóknara fyrir húsbrot, sifskap-
arbrot og brot gegn frjálsræði. Um-
rædda nótt tókst föður telpunnar að
ná dóttur sinni frá ákærða. Ákærði
er 36 ára gamall og krefst ákæru-
valdið refsingar yfir honum.
Ákærður fyrir
brottnám
sofandi barns
♦♦♦
♦♦♦