Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FROST ACTIVITY
Ólafur Elíasson
Björgólfi Thor Björgólfssyni og Samson Eignarhaldsfélag, er sannur hei›ur a› veita s‡ningunni brautargengi.
Sunnudag 21. mars kl. 13 - 15
Listsmi›ja fyrir alla fjölskylduna
Sjáum vi› hlutina alltaf nákvæmlega eins og fleir eru e›a blekkir auga›
Börn og fullor›nir sko›a s‡ninguna og taka um lei› flátt í vísbendigaleik.
flátttakendur kanna blekkingar augans og búa sér til áhöld til a› gera eigin
tilraunir me› speglun.
fiátttakendafjöldi er takmarka›ur, skráning frá 10 til 17 í afgrei›slu
Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi, í síma 590 1200 e›a um netfang
fraedsludeild@reykjavik.is
flátttökugjald kr. 500 á mann.
FYRSTA umferðin á Reykjavík
Rapid, atskákmótinu var tefld á
NASA í gær. Keppendur tefldu
tvær skákir með 25 mínútur + við-
bót um 5 sekúndur fyrir hvern leik
sem þeir léku.
Allra augu beindust að viður-
eign hins 13 ára Magnúsar Carl-
sen við Garry Kasparov. Carlsen
hafði hvítt í fyrri skákinni og bar
greinilega enga virðingu fyrir and-
stæðingnum. Hann fékk betra tafl,
en skákin fjaraði út í jafntefli. Í
seinni skákinni réð Carlsen ekki
við meistarann, en ekki verður
annað sagt en að hann hafi staðið
sig með prýði í keppninni. Önnur
viðureign sem áhorfendur fylgd-
ust með af spenningi var einvígi
Hannesar Hlífars Stefánssonar og
Karpovs. Hannes Hlífar vann
öruggan sigur í fyrri skákinni og
héldu þá margir að björninn væri
unninn, en svo reyndist ekki vera.
Karpov jafnaði metin með hvítu
mönnunum og vann svo bráðaban-
ahraðskák. Þar með féll síðasti Ís-
lendingurinn úr keppni, en Jóhann
Hjartarson tapaði fyrir Timman,
Margeir Pétursson fyrir Drejev,
Helgi Ólafsson fyrir Aronjan og
Stefán Kristjánsson fyrir Short.
Úrslitin:
Kasparov-Carlsen, 1½ - ½
Timman-Jóhann, 1½ - ½
Nielsen-Epishin, 2-0
Drejev-Margeir, 1½ - ½
Short- Stefán, 1½ - ½
Sutovsky-Nataf, 1½ - ½
Aronjan-Helgi, 2-0
Karpov-Hannes Hlífar, 2-1
Í kvöld verður 2. umferð tefld á
Nasa og hefst taflmennskan kl.
18.00. Þá eigast við:
Levon Aronjan-Nigel Short,
Garry Kasparov-Jan Timman,
Emil Sutovsky-Peter Heine Niel-
sen, Alexey Drejev-Anatolij
Karpov.
Fyrri skákin:
Hvítt: Magnus Carlsen
Svart: Garry Kasparov
Hálfslavnesk vörn, Cambridge
Springs afbrigðið
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4.
Rc3 e6 5. Bg5 Rbd7 6. e3 Da5 7.
Rd2 Bb4 8. Dc2 0–0 9. Be2 e5 10.
0–0 exd4 11. Rb3 Db6 12. exd4
dxc4 13. Bxc4 a5 14. a4 Dc7 15.
Hae1 –
Nýr leikur. Þekkt er 15. Rd2 h6
16. Bh4 Df4 17. Rf3 Rh5 18. Re2
Dd6 19. Rg3 Rf4 20. Re4 Dg6 21.
Bg3 He8 22. Bxf4 Dxe4 23. Dxe4
Hxe4 24. Bc7 He7 25. Hfd1 Rf8
26. Bb6 Bd6 27. d5 c5 28. He1
Hxe1+ 29. Hxe1 Bg4, jafntefli
(Kishnev-Smagin, Þýskalandi
1999).
15. ...h6 16. Bh4 Bd6 17. h3 Rb6
18. Bxf6 Rxc4 19. Re4 Bh2+ 20.
Kh1 Rd6 21. Kxh2 Rxe4+ 22. Be5
Rd6 23. Dc5 Hd8 24. d5 Dd7 25.
Rd4 Rf5 26. dxc6 bxc6 27. Rxc6
He8 28. Hd1 De6 29. Hfe1 Bb7.
Kasparov á peði minna og á í
nokkrum vandræðum.
30.Rd4 –
Magnúsi líst ekki á 30.Rxa5!?,
vegan 30.-- Bxg2! og hann má ekki
drepa biskupinn: 31.Kxg2 Rh4+
32.Kh2 Rf3+ 33.Kg2, t.d. 33.--
Hac8 34.Db5 Rh4+ 35.Kh2 Df5
36.Dd5 Hc2 37.Hf1 Hxf2+
38.Hxf2 Dxf2+ 39.Kh1 Hxe5 og
svartur vinnur.
Hvítur þarf að vísu ekki að
drepa biskupinn, en veikingin á
kóngsstöðunni gæti reynst hættu-
leg. Í framhaldi skákarinnar held-
ur Magnús peði meira, en einföld-
un stöðunnar og mislitir biskupar
gera vinningsvonir hans að engu.
Í lokin var tími keppenda orðinn
mjög lítill, en einföld staðan vafð-
ist ekki fyrir teflendum.
30...Rxd4 31.Dxd4 Dg6
32.Dg4?! Dxg4 33.hxg4 Bc6 34.b3
f6 35.Bc3 Hxe1 36.Hxe1 Bd5
37.Hb1 Kf7 38.Kg3 Hb8 39.b4
axb4 40.Bxb4 Bc4 41.a5 Ba6 42.f3
Kg6 43.Kf4 h5 44.gxh5+ Kxh5
45.Hh1+ Kg6 46.Bc5 Hb2 47.Kg3
Ha2 48.Bb6 Kf7 49.Hc1 g5
50.Hc7+ Kg6 51.Hc6 Bf1 52.Bf2
og keppendur sömdu um jafntefli.
Íslendingar úr leik
ARNÓR Sigurjónsson, skrifstofu-
stjóri friðargæsluskrifstofu utanrík-
isráðuneytisins, segir að engar
breytingar hafi verið gerðar á fyr-
irætlunum um að Íslendingar af-
hendi flugvöllinn í Pristina í Kosovo
stofnun Sameinuðu þjóðanna UN-
MIK 1. apríl nk., þrátt fyrir átökin í
héraðinu nú. Stofnunin muni þá taka
við rekstri flugvallarins samkvæmt
sérstöku samkomulagi.
Arnór segir að Flugmálastjórn Ís-
lands fyrir hönd samgönguráðuneyt-
isins muni taka að sér að tryggja að
flugvöllurinn verði rekinn sam-
kvæmt alþjóðlegum stöðlum og
skyldum ICAO, þannig að hann
verði öruggur. Það þýddi væntan-
lega að þrír til fimm starfsmenn flug-
málastjórnar myndu þurfa að vera
áfram í Pristina.
Óbreytt skil
á Pristina-
flugvelli
MAGNÚS Carlsen, sem í skák-
heimi gengur undir nafninu
„norska undrabarnið“, varð að
lúta í lægra haldi í gærkvöldi fyr-
ir sterkasta skákmanni heims,
Garrí Kasparov, í fyrstu umferð
alþjóðlega atskákmótsins, Reykja-
vík Rapid, sem fer fram á
skemmtistaðnum NASA við Aust-
urvöll. Carlsen velgdi þó skák-
snillingnum undir uggum og
gerði jafntefli við hann í fyrri
skák umferðarinnar. Norðmað-
urinn var þar með úr leik í
mótinu, sem er með útsláttarfyr-
irkomulagi.
Magnus Carlsen er 13 ára, frá
bænum Lommedal í Bærum í Nor-
egi, og verður 14 ára í lok nóv-
ember næstkomandi.
Faðir hans kenndi honum
mannganginn fimm ára gömlum
og átta ára tefldi hann á sínu
fyrsta alvöru skákmóti. Fyrir
rúmu ári varð hann alþjóðlegur
meistari.
Góð tilfinning
að sigra Karpov
Að umferðinni lokinni í gær-
kvöldi sagðist hann í samtali við
Morgunblaðið hafa komið til Ís-
lands með þá von í brjósti að ná
stórmeistaratitli en á Reykjavík-
urskákmótinu, sem lauk á miðviku-
dag, var hann ekki langt frá því. Í
byrjun þessa árs náði hann tveim-
ur stórmeistaraáföngum á sterkum
mótum í Hollandi og Rússlandi og
takist honum að ná markmiði sínu
næsta hálfa árið eða svo verður
hann næstyngstur í allri skáksög-
unni til að verða stórmeistari.
Hann er af mörgum talinn efni-
legasti og umtalaðasti skákmeistari
í heiminum í dag, ekki síst eftir
jafnteflið við Kasparov í gærkvöldi
og sigur á Karpov á hraðskákmóti
í fyrrakvöld, sem notað var til að
raða mönnum saman í fyrstu um-
ferð atskákmótsins.
Spurður hvort hann stefndi síðar
meir að heimsmeistaratitli í skák
svaraði Magnús því játandi án þess
að hika, það væri sitt markmið.
Hann var ánægður með skipulagn-
inguna á Reykjavíkurskákmótinu
en sagðist ekki vera jafn ánægður
með eigin frammistöðu. Vonaðist
hann til að ná stórmeistaratitlinum
á sterku skákmóti í Malmö í Sví-
þjóð í vor.
Aðspurður hvernig það hefði
verið að leggja Karpov að velli í
fyrrakvöld sagði hann það hafa
verið góða tilfinningu. Hann hefði
haft örlitla heppni með sér þar
sem Karpov hefði klúðrað góðri
stöðu. „Það er bara hluti af leikn-
um,“ sagði Magnús, pollrólegur.
Er Morgunblaðið ræddi við
hann í gærkvöldi var um það bil
hálftími liðinn frá því að seinni
skák þeirra Kasparovs lauk. Í
fyrstu mátti sjá vonbrigði á svip
þessa unga keppnismanns en
hann var farinn að jafna sig á úr-
slitunum er frá leið og sagðist
geta vel við þau unað. Að ná jafn-
tefli í annarri skákinni væri „bara
allt í lagi“. Magnús vonaðist til
þess að koma aftur til Íslands að
tefla, sér hefði gengið ágætlega
gegn íslenskum skákmönnum.
Fyrir Reykjavíkurskákmótið hefði
hann t.d. tvisvar teflt við Hannes
Hlífar og haft sigur í annað skipt-
ið.
Fjölskylda Magnúsar var með
honum í för til Íslands, foreldrar
og þrjár systur, enda tók hún sér
ársfrí til að fylgja honum eftir á
skákmótum. Leigði íbúðina sína í
Lommedal og seldi annan fjöl-
skyldubílinn.
Henrik Carlsen, faðir hans,
sagði við Morgunblaðið að ákveð-
ið hefði verið að nota tækifærið í
leiðinni og ferðast með fjölskyld-
una um Evrópu. Fríið hófst í júlí í
fyrra og er því farið að síga á
seinni hlutann. Á þessum tíma
hefur fjölskyldan komið til 16
landa.
„Þau eru ágætis kennarar“
Henrik sagðist sjá um kennslu
fyrir börnin ásamt móðurinni,
Sigrúnu Øen, en saman eiga þau
þrjár dætur, auk Magnúsar. „Þau
eru bara ágætis kennarar en ég
tek mér góðan tíma í að æfa mig í
skákinni,“ sagði Magnús en þjálf-
ari hans á þeim vettvangi síðustu
tvö árin hefur verið norski stór-
meistarinn Símon Agdestein.
Henrik starfar allajafna sjálf-
stætt sem ráðgjafi í tölvumálum á
meðan Sigrún hefur gætt bús og
barna.
Hann sagði skákáhugann vera
mikinn í fjölskyldunni, sjálfur
hefði hann teflt mikið á yngri ár-
um og síðan aftur með Magnúsi
síðustu árin.
Þó að Magnús hafi fengið sína
fyrstu kennslu í skák fimm ára
gamall fékk hann ekki áhugann
fyrir alvöru fyrr en hann fylgdist
átta ára með pabba sínum tefla
við systur sína sem er einu ári
eldri. Eftir þetta sökkti hann sér
í taflmennskuna og náði fljótt
góðum árangri í Noregi.
„Systur hans tefla einnig tölu-
vert en við erum öll nokkuð
langt á eftir honum. Ætli ég
hefði ekki hafnað neðstur á
Reykjavíkurskákmótinu, hefði ég
tekið þátt,“ sagði Henrik og
brosti.
Þekkti alla þjóðfána
heims sjö ára gamall
Hann sagði síðustu árin í lífi
sonar síns hafa snúist um skák.
Fyrst Magnús hefði náð svona
langt væri ekkert óeðlilegt að
hann vildi gerast atvinnumaður í
skák. Hann væri mjög einbeittur
og sýndi snemma að hann bjó yf-
ir skarpri hugsun og góðu minni.
Sem dæmi gat hann á áttunda
ári þekkt alla þjóðfána heims og
munað nöfn allra helstu sveitar-
félaga Noregs og íbúafjölda í
þeim
„Við Sigrún munum að sjálf-
sögðu sjá til þess að hann ljúki
sinni skólagöngu og fái tækifæri
til að eignast venjulegt líf,“ sagði
Henrik Carlsen um soninn unga.
Fjölskylda Magnúsar Carlsen tók sér ársfrí til að fylgja undrabarninu eftir í skákinni
Stefnir að
því að verða
heimsmeistari
Morgunblaðið/Ómar
Fjölskylda Magnúsar Carlsen við skákborðið sem hann tefldi á við sjálfan Kasparov í gærkvöldi og tapaði naum-
lega. Lengst til vinstri er faðirinn, Henrik Carlsen, fyrir aftan Magnús eru systurnar Ingrid, 9 ára, Ellen, 14 ára,
og Signe, 7 ára, og loks móðirin, Sigrún Øen.
♦♦♦
Bragi Kristjánsson