Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 11

Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 11 SIV Friðleifsdóttir um- hverfisráðherra kveðst ekki sjá annmarka á starfsemi Landmæl- inga Íslands. Siv segist ekki átta sig á gagnrýni forsvarsmanna korta- gerðarfyrirækisins Loftmynda sem fram kom í Viðskiptablaði Morgunblaðsins sl. fimmtudag, en þar var m.a. haft eftir Arnari Sigurðssyni, sem starf- ar að viðskiptamótun hjá kortagerðarfyrir- tækinu Loftmyndum, að fyrirtækið standi frammi fyrir ósanngjarnri sam- keppni frá Landmælingum. Siv segir þróunina í starfsemi Landmælinga vera í þá átt að auka útboð verkefna og svo hafi verið síðustu ár. „Landmælingar eru að fara með sín verkefni meira og minna á mark- að í útboði. Loftmyndir geta boðið í þau verkefni eins og aðrir og hafa gert og fengið verkefni. Það er alveg ljóst samkvæmt lögun- um um landmælingar og kortagerð að það er hlutverk Landmælinga að tryggja að það séu ávallt til nauðsynlegar staðfræðilegar og land- fræðilegar upplýsingar um landið og unnið sé að söfnun og úrvinnslu upplýsinga sem hafa gildi fyrir landmæling- ar og kortagerð á Ís- landi. Það er auðvitað mjög mikilvægt að það sé til samræmingaraðili sem getur haldið utan um þetta hlutverk.“ Mikilvægt að reka öfluga kortastofnun Haft var eftir Arnari og Erni Arnari Ingólfssyni, eiganda Loft- mynda, í frétt Viðskiptablaðs Mbl. sl. fimmtudag að að kortagerð sé fyrir löngu orðin samkeppnisiðnaður er- lendis en að verið sé að fara í öfuga átt til ríkisvæðingar hér á landi. Þá gagnrýndu þeir Örn og Arnar að Landmælingar hafi stjórnsýsluhlut- verk á sama tíma og þær keppi við önnur fyrirtæki. „Það skiptir okkur mjög máli að hafa hér öfluga kortastofnun. Hún hefur samfélagslegt hlutverk og ör- yggishlutverk. Ég átta mig ekki al- veg á þessum tón sem núna kemur frá Loftmyndum. Samkvæmt mínum upplýsingum þá eru Landmælingar með útboð á verkefnum og Loft- myndir hafa boðið í þau eins og önn- ur fyrirtæki. Ég sé ekki þá stóru annmarka á starfsemi Landmælinga sem Loftmyndir eru að gefa í skyn. Ég tel eðlilegt að við Íslendingar rekum stjórnsýslustofnun sem hefur með landmælingar að gera. Það gera önnur ríki líka. Landmælingar eru ríkisfyrirtæki í öllum nágrannaríkj- um okkar. Ég þekki ekkert ríki í ná- grannalöndum okkar sem er að fara út í það að leggja niður sínar land- mælingar. Í stórum dráttum er ég mjög sátt við starfsemi Landmæl- inga Íslands.“ segir Siv. Umhverfisráðherra um gagnrýni á Landmælingar Kveðst ekki sjá ann- marka á starfseminni Siv Friðleifsdóttir HVER er þróun tækninnar og hvort er það mannkynið eða tæknin sjálf sem ræður ferðinni? Þessum spurningum og mörgum fleiri um tengsl tækni og samfélagsins var velt upp í hátíðarsal Háskóla Ís- lands í gær, við setningu þverfag- legrar ráðstefnu um tækni og sam- félag sem lýkur í dag. „Við vitum aldrei hvert tæknin leiðir okkur fyrr en við erum stödd frammi fyrir vandanum. Það er því erfitt að taka ákvörðun um hvert við viljum fara fyrir fram, á annan hátt en á almennum siðferð- isgrundvelli. Það eru ákveðnir hlut- ir sem maður gerir ekki, eins og t.d. að drepa fólk í milljónatali með at- ómsprengju. Þegar maður er kom- inn með tækni til að búa til svoleiðis sprengju segir maður stopp, lengra förum við ekki,“ segir Þráinn Egg- ertsson, prófessor í hagfræði, einn fyrirlesara við setningu ráðstefn- unnar, í samtali við Morgunblaðið. Páll Skúlason, háskólarektor og heimspekingur, sem einnig flutti þar erindi, segir það undir mönn- unum sjálfum komið hvert þeir láti tæknina leiða sig. „Við sjálf verðum að reyna að sjá til þess að tæknin geri okkur betri, spilli okkur ekki eða að við látum hana ekki leiða okkur í vitleysu. Við þurfum sjálf að hafa stjórn á henni um leið og hún er farin að stjórna okkur líka.“ Líffræði og tækni tengjast í sífellt ríkari mæli W. Brian Arthur, fyrsti for- stöðumaður hagfræðistofnunar há- skólans í Santa Fe í Nýju Mexíkó, fjallaði í sínum fyrirlestri um þróun tækninnar. Hann er búsettur í Silí- kondalnum í Kaliforníu og segir að hátækni sé sífellt að taka á sig líf- rænna form. Þannig sé tæknin að verða gagnvirkari, tæki geti stillt sig sjálf eða gert við sig og séu búin gervigreind. Hann tekur sem dæmi að mögu- legt er að merkja vörur í mat- vöruverslunum með sendimerki. Þannig geti dós með matvælum sent skilaboð þegar hún er tekin úr hillunni, þannig að hægt sé að fylla á hilluna, eins geti dósirnar sent merki sín á milli. Hann segir tækni og líffræði tengjast í sífellt ríkari mæli. Það hafi vakið ýmsar siðferði- legar spurningar sem sé nauðsyn- legt að taka á. „Tækni er að hætta að vera bara vélar, verksmiðjur, tæki og tól og fara inn í nýtt skeið þar sem tækni og líffræði tengjast í sífellt meiri mæli. Ef vélbúnaður er að hluta til lífrænn, að hversu miklu leyti hefur hann þá t.d. réttindi sem „lífvera“. Ef hægt er að búa til vef úr frumum mannslíkamans, að hve miklu leyti er afraksturinn tækni- legur og að hve miklu leyti líf- rænn?“ spyr Arthur. Hann nefnir einnig möguleikann á því að rækta stofnfrumur, sem eru fyrstu frumurnar sem myndast í fóstrum og sem hafa þann eig- inleika að geta þróast sem hvers konar frumur sem er að finna í mannslíkamanum. „Spurningin er hvort við getum ræktað stofn- frumur sem aðrar frumur, eða hvort stofnfrumurnar séu litlar „verur“ sem hafi einhvern rétt.“ Arthur nefnir einnig tækni til að lengja líf manna eða tækni sem ger- ir verðandi foreldrum mögulegt að velja kyn barna sinna. „Eftir því sem tækninni fleygir fram þróast hún yfir á svæði sem við töldum áður vera vandamál náttúrunnar og lífræðinnar. Hvað ef við getum lifað með gervilíffæri og gerviheila, erum við þá enn mann- eskjur? Hvar stoppar líffræðin og hvar byrjar tæknin? Við höfum litla leiðsögn um þetta ef við skoðum sögu mannkynsins og stöndum því frammi fyrir ýmsum nýjum vanda- málum,“ segir Arthur. Hann segir mikilvægt að þverfag- leg umræða um þessi mál eigi sér stað. „Við þurfum að halda áfram að spyrja okkur hvað við viljum í raun sem manneskjur, það er grundvall- arspurning. Erum við aðeins tann- hjól í vél? Getum við haldið áfram að þróa tækni, sem heldur okkur lif- andi í anda, í stað þess að gera okk- ur að einhvers konar tannhjólum í vél?“ spyr Arthur. Getum ekki búið til fyrirmyndarþjóðfélagið Þráinn fjallaði í sínum fyrirlestri um að þekking á félagstækni sé komin mun skemur á veg en almenn tækniþekking. Með félagstækni á hann við skipulag og uppbyggingu þjóðfélagsins og hagkerfisins. „Við getum ekki t.d. búið til fyrirmynd- arhagkerfi í Afríku og látið það virka,“ segir Þráinn. „Við skiljum ekki hvernig það er hægt að stjórna þjóðfélagsgerðum og það er senni- lega tiltölulega lítið svigrúm fyrir einhverja umbótamenn til að breyta þjóðfélaginu.“ Hann bætir því við að gangverki þjóðfélagsins sé erfitt að stjórna eða breyta, þjóðfélög bygg- ist á hugmyndum manna, skoðunum og siðvenju. Þessir hlutir breytist frekar hægt og lúti ekki stjórn rík- isins. Páll bætir við að það hafi vissu- lega komið fram á sjónarsviðið menn sem hafa talið sig vita hvernig hægt sé að „byggja“ þjóðfélög. Len- ín hafi reynt það, en hann hafi trúað því að ríkið ætti að virka eins og vél. „Oftrú á tæknina, sem þarna birt- ist, er mjög hættuleg, að mínum dómi. Þannig að um leið og við ræktum með okkur tæknilega hugs- un og nýtum okkur tæknina, þurf- um við að temja okkur fræðilega hugsun almennt, sem og um tæknina sjálfa og siðferðið. Það er það sem ég tel brýnast í dag. Reyn- um sífellt að nýta tæknina betur til góðs,“ segir Páll. Þverfagleg ráðstefna um tækni og samfélag sett í Háskóla Íslands Morgunblaðið/Jim Smart „Tækni er að hætta að vera bara vélar, verksmiðjur, tæki og tól og fara inn í nýtt skeið þar sem tækni og líffræði tengjast í sífellt meiri mæli,“ sagði W. Brian Arthur í samtali við Morgunblaðið. Hann var einn fyrirlesara á ráð- stefnunni í gær. Hér má sjá, frá vinstri, Pál Skúlason, Ágúst Einarsson, W. Brian Arthur og Þráin Eggertsson. Undir okkur sjálfum komið hvert tæknin leiðir okkur ÞORGERÐUR Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra undirritaði í gær samninga við fimm fræðsluaðila um þátttöku þeirra í tilraun um vinnustaða- nám. Tilraunin byggist á ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá desember 2002 og er til- gangur hennar að leiða í ljós hvort vinnustaðanám, skipu- lagt með ákveðnum hætti, sé heppilegur valkostur við nú- verandi fyrirkomulag, segir í fréttatilkynningu. Samkvæmt ákvæðum fram- haldsskólalaga fer starfsnám bæði fram í skóla og á vinnu- stað eða eingöngu í skóla. Lög- in kveða einnig á um gerð námskrár fyrir allt nám á framhaldsskólastigi. Hingað til hefur ekki verið hugað sér- staklega að inntaki vinnu- staðanáms, en með tilrauninni verður breyting þar á. Ritaðar hafa verið lýsingar fyrir vinnu- staðanám í allmörgum grein- um og verður leitast við að fylgja þeim í starfsnámi fyrir sex greinar: hársnyrtiiðn, kjöt- iðn, prentsmíð, sjúkraliðanámi, starfsnámi fyrir verslunar- stjóra og vélvirkjun. Valin verða 18 fyrirtæki til þátttöku í tilrauninni og munu þau fá greiðslu fyrir að fylgja lýsingu á vinnustaðanámi markvisst eftir. Tilraunin stendur yfir næstu tvö árin og verði árang- ur góður má ætla að hugað verði að breytingum á núver- andi fyrirkomulagi vinnustaða- náms. Sérstökum starfshópi hefur verið falið að gera tillögu um framtíðar fyrirkomulag vinnu- staðanáms, fjármögnunarleiðir og skiptingu kostnaðar. Þeir fræðsluaðilar sem taka þátt í tilrauninni eru: Fræðslu- miðstöð málmiðnaðarins, Fræðsluráð hótel- og matvæla- greina, Prenttæknistofnun, Sjúkraliðafélag Íslands og Við- skiptaháskólinn á Bifröst. Samningar um vinnustaðanám Átján fyrirtæki taka þátt í tilraun STÚDENTARÁÐ hefur leitað eft- ir áliti umboðsmanns Alþingis varðandi ákvörðun Háskóla Ís- lands um að innheimta skráning- argjöld fyrir næsta skólaár á vor- mánuðum, en til þessa hafa nemendur getað greitt skráning- argjöldin í júlí. Ráðið hefur farið þess á leit við umboðsmann að hann flýti afgreiðslu málsins, eins og kostur er, og óskað eftir því við yfirvöld skólans að beðið verði með innheimtu gjaldanna þar til álit Umboðsmanns liggur fyrir. Jarþrúður Ásmundsdóttir, for- maður Stúdentaráðs HÍ, segir að allt kapp sé lagt á að fá greiðslu- frestinn. Skráningargjaldið er 32.500 krónur og alls eru um 8.000 stúdentar við nám í skólanum. Jar- þrúður segir ótækt að 260 millj- ónum króna, sem sé lauslega áætl- uð upphæð skráningargjalda, sé velt á yfirdráttarlán stúdenta, en það verði þrautalendingin fyrir marga. Það sé áfellisdómur yfir stjórnendum skólans vilji þeir leysa fjárhagsmál skólans með þessum hætti. Venjan hefur verið sú að nem- endur hafa getað greitt þetta gjald í júlí. Eftir það hefur lagst á 15% álagningargjald, en hægt hefur verið að greiða gjöldin þar til 20. ágúst. „Núna aftur á móti krefjast þau þess að við göngum frá okkar greiðslum strax í mars. Stúdentar munu fá afhenta greiðsluseðla sem renna út 2. maí. Það er ljóst að þá er prófavertíðin á fullu og fólk ekki farið að njóta sinna sumartekna eftir sumarvinnu, þannig að þetta kemur sér mjög illa fyrir marga. Í raun eru margir í mjög alvarlegum vandræðum vegna þessa, fyrir ut- an hvað það er hróplega ósann- gjarnt að gera þetta svona,“ segir Jarþrúður. Nemendur skólans eiga að skrá sig í námskeið fyrir næsta vetur dagana 22.–26. mars og var síðasta föstudag send út tilkynning um að gjalddagi fyrir skráningargjöld yrði fyrr en undanfarin ár. Jar- þrúður segir að gangi nemendur ekki frá þessari greiðslu, segi skólayfirvöld að þeir missi sitt sæti í skólanum. Stúdentar HÍ vilja álit umboðsmanns Beðið verði með innheimtu gjalda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.