Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Aðalfundur SÍF hf. kl. 14 á Rad- isson SAS Saga Hótel. Aðalfundur Hf. Eimskipafélags Íslands kl. 14 í Borgarleikhúsinu. Aðalfundur Medcare Flögu hf. kl. 16 í Síðumúla 24. Í DAG ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● TAP af rekstri Tæknivals hf. nam 289 milljónum króna árið 2003 og er það nærri 60 milljóna króna betri af- koma en árið áður. Sala dróst sam- an um 17% á milli ára en rekstrar- gjöld dróg- ust hins vegar sam- an um 20% sem skilaði sér í betri rekstrar- afkomu en árið áður. Eigið fé Tæknivals í lok ársins 2003 var sem fyrr nei- kvætt, um 608 milljónir króna, en eigið fé fé- lagsins var neikvætt um 300 millj- ónir í upphafi ársins. Meðal eigna í efnahagsreikningi Tæknivals er reiknuð skattinneign að fjárhæð 374 milljónir króna vegna yfirfæranlegs taps félagsins. Í áritun endurskoðenda segir að forsendur þessarar eignfærslu séu þær að fé- laginu takist að nýta tapið á móti hagnaði á næstu árum. Í janúar síðastliðnum var versl- unarsvið Tæknivals selt frá félaginu og er þess getið í reikningum félags- ins að fyrir áhrif af sölunni muni, að öðru óbreyttu, eigið fé félagsins verða jákvætt um 303 milljónir króna. Eigið fé Tæknivals neikvætt um 600 milljónir            !"# " ! $%  ● VERÐBRÉFASTOFAN skilaði tæp- lega 90 milljóna króna hagnaði í fyrra, sem er mikil aukning frá árinu 2002 þegar hagnaðurinn var 14 milljónir króna. Arðsemi Verð- bréfastof- unnar var 38% í fyrra. Hluthöfum var greiddur 23% arður, en hlut- hafar eru 80 og enginn þeirra á yfir 10% hlut í fyr- irtækinu. Aukning hagnaðarins skýrist að- allega af auknum sölu- og umsýsluþóknunum, en að auki jukust fjármunatekjur nokkuð. Rekstrartekjur voru samtals 302 milljónir króna í fyrra og jukust um 61%. Rekstrargjöld námu 192 millj- ónum króna og jukust um 13% milli ára. Aukningin var öll í launum og tengdum gjöldum, sem jukust um 52% og námu 108 milljónum króna í fyrra. Starfsmönnum Verðbréfastof- unnar fjölgaði hins vegar lítið, með- alfjöldi starfa fór úr 12,5 árið 2002 í 13 í fyrra. Eignir Verðbréfastofunnar jukust um 48% milli ára og námu 931 millj- ón króna í árslok í fyrra. Eiginfjárhlutfall, reiknað sam- kvæmt lögum um verðbréfafyrirtæki, lækkaði úr 51% í 47% milli ára. Hagnaður Verðbréfa- stofunnar eykst mikið milli ára &   '( )          !* # $! #! ERFITT er að segja til um hvort heppilegra er að taka húsnæðislán til kaupa á íbúðarhúsnæði nú eða að bíða fram yfir að ný lög um húsnæð- ismál og útlán Íbúðalánasjóðs taka gildi hinn 1. júlí næstkomandi. Frumvarp félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um húsnæðis- mál, sem kynnt var fyrir rúmri viku, miðar að því að auka seljanleika íbúðabréfa á verðbréfamarkaði, sem gefin verða út til að fjármagna hús- næðislánin í stað húsbréfa. Almennt er talið að fjármögnunar- kostnaður lántakenda muni lækka í kjölfar fyrirhugaðra breytinga á húsnæðislánakerfinu. Það hefur að sjálfsögðu í för með sér lækkun á greiðslubyrði af húsnæðislánum. Ef húsnæðisverð hækkar hins vegar í kjölfar þessara breytinga, þá getur hluti þess hagnaðar sem kaupendur njóta með lækkun á greiðslubyrði ét- ist upp að hluta eða öllu leyti, þar sem kaupendur þyrftu þá væntan- lega að taka hærra lán til að fjár- magna sambærileg kaup. Þeir sem standa frammi fyrir því að taka ákvörðun um hvort þeir eiga að ráðast í íbúðarkaup fyrir 1. júlí, og notfæra sér húsbréfakerfið, eða bíða eftir nýju húsnæðislánakerfi, verða því væntanlega að vega og meta þessa tvo þætti, þ.e. hugsanlega lægra lán en hærri greiðslubyrði, eða hugsanlega hærra lán með lægri greiðslubyrði. Greining Íslandsbanka er ekki í vafa um hvað sé heppilegast að gera. Í Markaðsyfirliti deildarinnar í fyrradag er íbúðakaupendum ráð- lagt að fresta lántökum hjá Íbúða- lánasjóði fram yfir 1. júlí. Kaupend- ur hér á landi hafa ekki áður verið hvattir með eins skýrum hætti til að fresta lántökum eins og þar kemur fram. Slíkar ráðleggingar heyrðust jafnvel ekki hátt þegar afföll við sölu húsbréfa mældust í tveggja stafa prósentutölum. Fram kemur í Markaðsyfirlitinu að Greining ÍSB telur að ólíklegt sé að vextir af hinum væntanlegu pen- ingalánum Íbúðalánasjóðs verði hærri en ávöxtunarkrafa á markaði í dag, og þess vegna sé hagstæðara að bíða með lántökur hjá sjóðnum. Hærra verð Formaður Félags fasteignasala hefur lýst undrun sinni á ráðlegg- ingum Greiningar ÍSB og sagði í samtali við Viðskiptablað Morgun- blaðsins í fyrradag að ekki væri ann- að hægt en setja spurningarmerki við þær. Vísar hann til þess að í Markaðsyfirliti Greiningar ÍSB sé því spáð að húsnæðisverð muni halda áfram að hækka. Að ganga út frá því að við slíkar aðstæður sé heppilegra að bíða með íbúðakaup, hljóti því að stafa af því að Greining ÍSB gangi út frá því að yfirverð á húsbréfum nýt- ist ekki kaupendunum, en það sé röng ályktun hjá deildinni. Ekki að mæla með frestun á kaupum, bara lántökum Guðbjörg Anna Guðmundsdóttir, hjá Greiningu ÍSB, segir að deildin geri í mati sínu ráð fyrir því að lán- takendur/íbúðakaupendur njóti yfir- verðsins af húsbréfunum að fullu, enda miðist útreikningarnir við ávöxtunarkröfu á markaði að við- bættu vaxtaálagi (4,35%+0,35%) í stað nafnvaxta bréfanna (4,75%+0,35%). Hún segir að ef gert væri ráð fyrir því að seljendurnir nytu yfirverðsins að hluta væri enn frekari ástæða fyrir íbúðakaupendur að bíða með lántöku. „Vissulega spáum við því að fast- eignaverð muni hækka á næstu ár- um, segjum hins vegar ekkert um það í okkar spám hver þróunin verð- ur á næstu mánuðum. Auk þess er- um við ekki að mæla með því að ein- staklingar fresti íbúðakaupum heldur fresti lántöku hjá Íbúðalána- sjóði. Síðan verður auðvitað að hafa í huga að það eru fleiri sjónarmið en fjármögnunarkostnaður sem ein- staklingar hafa í huga við íbúða- kaup,“ segir Guðbjörg Anna. Engin uppgreiðsluþóknun Í frumvarpi félagsmálaráðherra um breytingar á lögum um húsnæð- ismál eru tvö atriði með öðrum hætti en áður hafði verið greint frá við undirbúning frumvarpsins. Í fyrsta lagi er í meginatriðum vikið frá því að lántakendur greiði uppgreiðslu- þóknun til Íbúðalánasjóðs vilji þeir greiða upp lán sín. Hins vegar er gert ráð fyrir því að hægt sé að grípa til slíkrar þóknunar ef allt fer á verri veg hjá Íbúðalánasjóði. Þessi breyt- ing stuðlar að því að vextir af hús- næðislánum verði lægri en ella. Hitt atriðið sem er nýtt frá því sem áður var gert ráð fyrir er að vaxtaálag, sem Íbúðalánasjóður leggur á húsnæðislánin, verður eins og verið hefur til að mæta rekstr- arkostnaði sjóðsins og til að standa undir hugsanlegum útlánatöpum, en við bætist nýr liður í vaxtaálagið, sem ætlað er að dekka það ef upp- greiðslur á lánum sjóðsins verða miklar. Þetta ætti að draga úr líkum á aukaútdrætti og að uppgreiðslu- álag, þ.e. mismunur á milli ávöxtun- arkröfu hús- og húsnæðisbréfa verði minni. Markaðurinn verður þá vænt- anlega ekki eins hræddur við auka- útdrátt og vextir gætu því lækkað vegna þessa. Kauptækifæri nú? Verð á fasteignamarkaði er í sögu- legu hámarki um þessar mundir. Sérfræðingar á fjármála- og hús- næðismarkaði, sem blaðamaður ræddi við, eru flestir sammála um að fyrirhugaðar breytingar á lögum um húsnæðismál vinni a.m.k. gegn lækkun á fasteignaverði. Þarna spil- ar inn í að gert er ráð fyrir að kaup- máttur launa haldi áfram að vaxa á komandi árum, en það ýtir undir fasteignaverð. Stór hluti íbúðakaupenda notfærir sér hið opinbera húsnæðislánakerfi til að fjármagna íbúðarkaup. Því fleiri sem fara eftir ráðgjöf Grein- ingar ÍSB þeim mun meiri verður spennan á fasteignamarkaðinum þegar hið nýja húsnæðislánakerfi tekur gildi og verðhækkun verður þá væntanlega meiri en ella. Ef ráðgjöf Greiningar ÍSB er skynsamleg, og heppilegast er að bíða með lántökur hjá Íbúðalánasjóði, vaknar spurning hvort það geri ekki að verkum að nú sé þrátt fyrir allt gott tækifæri til að kaupa íbúðarhúsnæði. Á að bíða með hús- næðiskaup eður ei? Morgunblaðið/Ingibjörg Fréttaskýring Fyrirhugað er að ný lög um útlán Íbúðalánasjóðs taki gildi 1. júlí næst- komandi. Deildar meiningar eru um hvort það sé heppilegra fyrir íbúðakaupendur að ráðast í kaup nú eða að bíða með kaup fram yfir að hin nýju peningalán taka við af húsbréfalánunum. Grétar Júníus Guðmundsson skoðaði málið. gretar@mbl.is VIÐHORF almennings og fagfjár- festa til Kauphallar Íslands var svip- að í desember síðastliðnum og það var í febrúar á síðasta ári. Þetta eru niðurstöður könnunar sem stjórn Eignarhaldsfélagsins Verðbréfa- þings hf. lét gera, en félagið er móð- urfélag Kauphallar Íslands og Verð- bréfaskráningar Íslands. Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka og formaður stjórnar Eignarhalds- félagsins Verðbréfaþings, greindi frá þessu á aðalfundi félagsins í gær. Bjarni sagði að niðurstöður nýju könnunarinnar væru varnarsigur í ljósi erfiðrar umræðu um fjármála- markaðinn undir lok síðasta árs. Samkvæmt könnuninni bera 70% fagfjárfesta mikið traust til Kaup- hallarinnar á móti 71% í febrúar 2003. Um 50% almennings bera mik- ið traust til hennar samanborið við 48% í fyrri könnuninni. Þeim hefur fjölgað sem telja að Kauphöllin sinni eftirlitshlutverki sínu illa, úr 19% í 38% meðal fagfjár- festa og úr 23% í 26% hjá almenningi. Sagði Bjarni þessa niður- stöðu í sam- ræmi við hugmyndir stjórnarinnar, sem hafi fundið fyrir því að hlutverk Kauphallarinnar í eftirliti á verð- bréfamarkaðnum sé í mörgum tilvik- um misskilið og talið víðtækara en það er. Í stjórn Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hf. voru endurkjörn- ir eftirfarandi stjórnarmenn: Bjarni Ármannsson, Þorkell Sigurlaugsson, Þorgeir Eyjólfsson, Ingólfur Helga- son, Björgólfur Jóhannsson og Yngvi Örn Kristinsson. Nýir í stjórn voru kjörnir þeir Finnur Svein- björnsson, Tryggvi Pálsson og Gylfi Magnússon. Lítil breyting á viðhorfum til Kauphallarinnar Aðalfundur Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hf. var haldinn í gær raði sér í stjórn Eignarhaldsfélags Verðbréfaþings á sama tíma og um- ræða fer fram hér á landi um að bæta stjórnarhætti í félögum. „Menn verða að hafa í huga að starfsemi Kauphallarinnar er mjög sérstaks eðlis. Kauphöll er til að miðla viðskiptum á almennum markaði og verðbréfaskráning er til að sjá um rafræna skráningu í þessum efnum. Það er því full- komlega óeðlilegt að menn sem eiga mikilla hagsmuna að gæta í stafseminni sitji jafnframt í stjórn- um og séu þar með yfirmenn for- stjóra Kauphallarinnar.“ Eftirlitsskylda í höndum forstjóra Bjarni Ármannsson, formaður stjórnar Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings, segir að stjórn fé- lagsins endurspegli hluthafahóp hans, sem í eðli sínu beri ábyrgð á rekstrinum. Tvö ár séu liðin frá því verkaskiptingu hafi verið breytt þannig að málefni er lúti að eft- irlitsskyldum hafi alfarið verið færð í hendur forstjóra félagsins. Með því telji stjórnin að brugðist hafi verið við mögulegum hags- munaárekstrum. ÁGÚST Einarsson, prófessor við Háskóla Íslands, segir að sér finnist fullkomlega óeðlilegt að í stjórn Kauphallarinnar og Verð- bréfaskráningarinnar sitji ráðandi framkvæmdastjórar í fjármálafyr- irtækjum. Hann segir að hagsmun- irnir séu allt of ríkir til að eðlilegt geti talist að þessir aðilar sitji í stjórnum félaga, sem annars vegar sér um markaðsstarfsemina eins og Kauphöllin, og hins vegar skrán- ingarfyrirtækinu Verðbréfaskrán- ingu. Þetta sé ekki sú aðferð sem farin sé víða erlendis. Þar séu hlut- lausari aðilar í þessum stjórnum. „Einnig er víða mun skýrari að- skilnaður milli kauphallar og verð- bréfaskráningar en er hér á landi,“ segir Ágúst. „Þessi aðferðafræði Eignarhaldsfélags Verðbréfaþings að setja þessa ráðandi fram- kvæmdastjóra í stjórn er til þess að rýra traust á markaðinum. Ég hef gagnrýnt þetta áður og margir hafa tekið undir þá gagnrýni. Þetta hefur einnig verið gagnrýnt af lög- fræðingum eins og Áslaugu Björg- vinsdóttur.“ Ágúst segir einkennilegt að stjórnendur fjármálafyrirtækjanna Fullkomlega óeðlilegt hverjir sitja í stjórn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.