Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÍTALSKUR ráðherra rauf í gær
samstöðu ítölsku ríkisstjórnarinnar
um stuðning við stríðið í Írak. Sagði
Evrópumálaráðherrann Rocco Butt-
iglione í dagblaðsviðtali að innrásin í
Írak í fyrra kynni að hafa verið mis-
tök; hún hefði í það minnsta ekki ver-
ið það skynsamlegasta sem kostur
var á.
Þá virðist gagnrýni á Íraksstefnu
Bandaríkjamanna einnig vera að
koma upp á yfirborðið meðal ráða-
manna annars evrópsks aðildarríkis
„bandalags hinna staðföstu“. AFP-
fréttastofan hefur eftir Alexander
Kwasniewski, forseta Póllands, að
Pólverjar hafi verið „blekktir“ hvað
varðar gereyðingarvopnaeign Íraka.
„Við vorum beittir blekkingum varð-
andi gereyðingarvopnin, það er
rétt,“ tjáði forsetinn blaðamönnum í
Varsjá. Hann sagði hins vegar enga
skynsemi í því fólgna að kalla pólsku
hermennina í Írak heim.
Þessi ummæli pólska forsetans
eru fyrstu opinberu merkin um
gagnrýni af hálfu pólskra ráðamanna
á röksemdafærslu Bandaríkjamanna
fyrir innrásinni í Írak, en með henni
tókst þeim að fá Pólverja og fleiri
evrópskar bandamannaþjóðir eins
og Breta, Ítali og Spánverja til
stuðnings við stefnu sína í Írak. Um
2.500 pólskir hermenn eru nú í Írak.
Þessi ummæli Kwasniewskis féllu í
kjölfar þess að José Luis Rodriguez
Zapatero, verðandi forsætisráðherra
Spánar, boðaði að spænska herliðið í
Írak yrði kallað heim í sumar, tækju
Sameinuðu þjóðirnar ekki við yfir-
stjórninni þar.
Klofningur á Ítalíu
„Stríðið kann að hafa verið mistök.
Ef til vill voru til leiðir til að komast
hjá því,“ sagði Buttiglione í samtali
við dagblaðið Il Messaggero. „Víst er
að það var ekki það bezta sem hægt
var að gera,“ bætti hann við.
„Það er ekki hægt að ráða niður-
lögum hryðjuverka með vopnavaldi
einu saman, og ef við gefum þá mynd
af okkur að vopn séu til alls fyrst
munum við bara róta upp þjóðern-
issinnaðri andstöðu araba gegn okk-
ur,“ segir Buttiglione.
Þessi yfirlýsing ráðherrans er
fyrsta sýnilega sprungan í einingu
ítölsku stjórnarinnar í Íraksmálinu,
og kemur fram tveimur dögum fyrir
eins árs afmæli innrásarinnar sem
Silvio Berlusconi forsætisráðherra
hefur stutt með ráðum og dáð.
Klofningurinn í ítölskum stjórn-
málum hvað varðar afstöðuna til
íhlutunarinnar í Írak og stríðsins
gegn hryðjuverkum birtist einnig
með skýrum hætti í því að fjöldaúti-
fundur, sem boðað var til í Róm í gær
til að sýna samstöðu Ítala með bar-
áttunni gegn hryðjuverkaógninni í
kjölfar tilræðanna í Madríd, fékk
ekki stuðning vinstriflokkanna á
þingi, sem eru í stjórnarandstöðu.
Þeir boðuðu frekar til annars fundar
þar sem áherzla skyldi lögð á að
krefjast þess að ítölsku hermennirn-
ir í Írak yrðu kallaðir heim.
Eining Ítalíustjórnar
um Íraksstefnuna rofin
Róm, Varsjá. AFP, AP.
Póllandsforseti
segir blekkingum
hafa verið beitt
varðandi gereyð-
ingarvopn í Írak
A
llt starf Sameinuðu þjóð-
anna og annarra al-
þjóðastofnana í Kosovo
undanfarin fimm ár,
sem hefur miðað að því
að tryggja öryggi minnihlutahópa og
stuðla að friðsamlegri sambúð Albana
og Serba, kann að vera unnið fyrir
gýg eftir atburði síðustu daga í hér-
aðinu.
Ljóst er að a.m.k. þrjátíu og einn
hefur beðið bana í átökum og óeirðum
víðs vegar um Kosovo og um fimm
hundruð manns hafa særst. Þetta er
mesta mannfall í átökum í Kosovo frá
því að Júgóslavíustríðinu lauk í júní
1999.
Einn heimildarmaður Morg-
unblaðsins, hátt settur starfsmaður
alþjóðastofnunar í Pec, var ekkert að
skafa utan af hlutunum í gær: „Mér
líður eins og árið 1999 sé runnið upp
aftur. Ég get ekki ímyndað mér hvað
við gerum núna, allt það starf sem ég
var að skipuleggja, og miðaði að því
að kenna fólki umburðarlyndi gagn-
vart öðrum þjóðarbrotum, er farið út
um gluggann.“
Þessi heimildarmaður Morg-
unblaðsins hefur unnið með hléum í
Kosovo frá árinu 1999, hann segir að
það eina sem megi bóka um fram-
haldið sé „að menn muni ekki halda
aftur af sér telji þeir að sér vegið“.
Ástandið geti því enn farið versn-
andi, í öllu falli verði ekki hlaupið að
því að kæfa þá elda haturs sem nú
hafa kviknað á ný.
Árni Snævarr, sem starfar hjá Ör-
yggis- og samvinnustofnun Evrópu
(ÖSE) í Kosovo á vegum Íslensku
friðargæslunnar, tekur í sama streng.
Hann segir starfslið ÖSE í Pristina
niðurdregið, það viti sem er að þessir
atburðir munu draga dilk á eftir sér.
„Menn óttast mjög að allar tilraunir
til að styrkja stoðir lýðræðis, mjaka
málum hér áfram, séu farnar fyrir lít-
ið,“ segir hann.
Ástandið verst í Mitrovica
Í átökunum undanfarna daga hefur
ástandið verið sýnu verst í borginni
Mitrovica í Norður-Kosovo, þar dóu
a.m.k. átta Albanar og tveir Serbar í
óeirðum sem brutust út í fyrradag, í
kjölfar frétta þess efnis að tvö
albönsk börn hefðu drukknað í Ibar-
ánni eftir að Serbar höfðu ógnað þeim
og þvingað út í ána.
Fréttir hermdu í gær að í Pristina,
höfuðstað Kosovo, hefðu Albanar ráð-
ist á heimili Serba í borginni og að sjö
manns hefðu verið drepnir. Fáir
Serbar búa í Pristina og nú er búið að
flytja 100 þeirra, þ.e. meginþorra
þeirra, á brott.
Átök brutust einnig út í þúsund
manna Serbaþorpinu Caglavica,
skammt sunnan Pristina, og þar voru
nokkur hús brennd.
Í Kosovo Polje, sem er um hálftíma
akstur norðan við Pristina, skutu
Albanar af byssum sínum og brenndu
sjúkrahús í nágrenni heimila nokk-
urra Serba, sem þarna búa.
Í borginni Pec, í vesturhluta Kos-
ovo, kom einnig til óeirða, Albanar
skeyttu m.a. skapi sínu á starfsfólki
Sameinuðu þjóðanna, fjórir bílar
samtakanna voru brenndir og flytja
þurfti starfsfólk á brott.
Jafnvel í Gnjilane í Suður-Kosovo,
þar sem blaðamaður Morgunblaðsins
starfaði um skeið, kom til átaka en
þar hefur sambúð Serba og Albana
verið með skásta móti. Grjóti var
kastað að höfuðstöðvum SÞ, 17 bílar
brenndir og heimili um 200 Serba
sem búa í borginni brennd. Einn
Serbi beið bana, 31 er alvarlega slas-
aður, aðrir voru fluttir á brott af frið-
argæsluliðum.
Nokkrar af rétttrúnaðarkirkjum
Serba hafa verið brenndar og í Serbíu
hafa þarlendir svarað með því að
brenna moskur albanskra múslíma,
m.a. í borginni Nis í suðvesturhluta
Serbíu. Allt ber semsé að sama
brunni, hafi verið búið að bæta sam-
búð Albana og Serba í Kosovo á und-
anliðnum fimm árum er ljóst að hún
er aftur farin í sama farið.
Allt í bál og brand
Hvað veldur því að nú fer allt í bál
og brand í Kosovo?
Stutta skýringin er sú að rifja upp
að á mánudag var serbneskur ung-
lingur særður í skothríð í Caglavica,
daginn eftir ollu Serbar í Mitrovica
síðan dauða þriggja barna, eins og áð-
ur er lýst. Sá atburður kveikti mikla
heift meðal Albana sem á miðvikudag
stóðu fyrir mótmælum víða í Kosovo,
þ.m.t. við brúna sem skilur að hverfi
Albana og Serba í Mitrovica. Hinum
megin brúarinnar biðu Serbar og
laust hópunum saman, með þeim af-
leiðingum sem áður hefur verið lýst.
Lengri skýringin er hins vegar sú
að undir niðri kraumar óánægja og
reiði með ástand mála, bæði meðal
Albana og Serba. Sambúð þjóð-
arbrotanna hefur lengi verið erfið,
skálmöldin 1999 olli þar straum-
hvörfum. Hinn pólitíski veruleiki
mótast af því að Serbar réðu áður
ríkjum í Kosovo og eru ósáttir við
hlutskipti sitt nú um stundir sem lítill
minnihluti. Þeir vilja jafnframt koma
á tengslum við Serbíu á ný.
Albanar eru hins vegar óánægðir
með þá áherslu sem alþjóða-
samfélagið leggur á að tryggja öryggi
minnihlutans, Serba, og þeir eru
orðnir afar óþolinmóðir eftir sjálf-
stæði; sem alþjóðasamfélagið er þó
ekki viljugt til að veita þeim, a.m.k.
ekki enn um sinn.
Ekkert traust fyrir hendi
Til marks um vantraustið og hatrið
sem einkennir samskiptin er umfjöll-
un um atburðina tvo á mánudag og
þriðjudag sem kveiktu ófriðarbálið
nú. Albanar trúa ekki að Serbi hafi
verið skotinn í Caglavica, ogSerbar
telja fréttina um börnin tvö í Mitro-
vica, sem áttu að hafa drukknað,
hreina lygasögu.
Engin leið virðist til að komast til
botns í málinu, hver einasti atburður
staðfestir þannig einfaldlega þær fyr-
irfram mótuðu hugmyndir sem hvort
þjóðarbrot um sig hefur um hitt.
Blaðamaður fékk sorglega staðfest-
ingu á þessu í tölvubréfi frá fyrrum
samstarfsmanni í Gnjilane, albönsk-
um. Hann lýsir atburðunum á grein-
argóðan hátt en þó með þeim hætti,
að allt slæmt sem hefur gerst und-
anfarna daga virðist runnið undan
rifjum Serba. Svona er óvinurinn
málaður skýrum litum í Kosovo, nú
sem áður fyrr.
Allt starf SÞ í
Kosovo unnið
fyrir gýg?
Ólætin í Kosovo síðustu daga, sem kostað
hafa á þriðja tug manna lífið, eru alvarlegt
bakslag í viðleitni Sameinuðu þjóðanna til að
sætta Albana og Serba í héraðinu. Davíð
Logi Sigurðsson rýnir í stöðuna.
!"
#$ #% "&'(!$
"
!"'!#(!) *+
!
"#$
%&'(
)(*' +,-
david@mbl.is
’Menn óttast mjögað allar tilraunir til
að styrkja stoðir lýð-
ræðis, mjaka málum
hér áfram, séu farn-
ar fyrir lítið.‘
Reuters
Friðargæsluliðar beita táragasi gegn Albönum til að hindra að þeir komist inn í serbneska þorpið Caglavica.