Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 19
ÝMSIR hagfræðingar hafa var-
að dönsku stjórnina við þeim
fyrirætlunum að lækka skatt-
ana og benda á, að flest bendi
til, að efnahagslífið sé á uppleið,
jafnt í Danmörku sem annars
staðar. Skattalækkanir undir
þeim kringumstæðum myndu
því verka sem olía á eld og vinna
efnahagslífinu meiri skaða en
gagn. Tilgangur stjórnarinnar
með væntanlegum skattalækk-
unum er að draga úr atvinnu-
leysi, sem hefur verið að aukast
að undanförnu, en bent er á, að
fjármálastefna stjórnarinnar
stuðli nú þegar að þenslu auk
þess sem vextir séu í sögulegu
lágmarki. Þá nefna sumir, að
hætta sé á, að kjósendur muni
líta á væntanlegar aðgerðir
stjórnvalda sem nokkurs konar
mútu, njóti þær ekki stuðnings
efnahagssérfræðinga. Fyrri
skattalækkanir hafi heldur ekki
skilað sér í auknu fylgi við við-
komandi stjórnarflokka.
Nota trúna
sem skálka-
skjól
RÍKISSTJÓRNIR í múslíma-
ríkjum nota trúna til að réttlæta
mannréttindabrot. Kom þetta
fram í gær
hjá írönsku
konunni
Shirin
Ebadi, frið-
arverðlauna-
hafa Nóbels,
á ráðstefnu
um íslam og
almenn gildi
í Jakarta,
höfuðborg
Indónesíu. „Íslam heldur fram
jafnrétti og er ekki í neinni mót-
sögn við almenn mannréttindi,“
sagði Ebadi.
Ebadi benti á, að íslömsk ríki
hefðu undirritað flesta alþjóða-
samninga um mannréttindi en
samt reyndu þau að sniðganga
þá með tilvísan til trúarinnar.
Tugir farast
með ferju
OFHLAÐIN ferja sökk í fyrra-
dag við Maldív-eyjar í Indlands-
hafi og er óttast, að tugir manna
hafi drukknað. Í gær var búið
að finna lík 17 manna en meira
en 50 var saknað. Þá hafði tekist
að bjarga 99 manns. Þegar ferj-
an sökk var veðrið mjög gott og
sjórinn spegilsléttur en svo yf-
irhlaðin var hún, að þegar fiski-
skip sigldi hjá henni, dugðu öld-
urnar frá því til að hvolfa henni.
Slakað á
tyggjóbanni
YFIRVÖLD í Singapore hafa
slakað nokkuð á 12 ára gömlu
tyggigúmmíbanni í borgríkinu
og þá aðallega gagnvart reyk-
ingamönnum. Þeir mega sem
sagt nota nikótíntyggjó svo
fremi þeir séu orðnir 18 ára og
hafi um það uppáskrift frá
lækni. Áður höfðu yfirvöld leyft
notkun tveggja tegunda af Orb-
it-tyggjói frá Wrigley en hvorri
tveggja er ætlað að bæta tann-
heilsuna. Aðeins 13,8% af íbú-
um Singapore, 4,1 milljón,
reykja en reykingar hafa þó
verið að aukast meðal ungs
fólks.
STUTT
Varað við
skatta-
lækkunum
Shirin Ebadi
AÐ minnsta kosti tíu manns biðu bana í nokkrum
árásum í Írak í gær, þeirra á meðal fjórir í
sprengjutilræði í borginni Basra í sunnanverðu
landinu.
Óþekktur tilræðismaður sprengdi bíl sinn í loft
upp nálægt hóteli í Basra þegar breskir hermenn
óku framhjá honum. Þrír vegfarendur og tilræð-
ismaðurinn létu lífið.
Daginn áður féllu sjö menn, sex Írakar og
Breti, þegar öflug bílsprengja sprakk nálægt hót-
eli í Bagdad. 35 aðrir særðust í sprengingunni.
Áður höfðu bandarískir embættismenn í Írak
sagt að allt að 28 manns hefðu beðið bana.
Bandaríski ofurstinn Jill Morgenthaler sagði að
þetta hefði verið sjálfsmorðsárás en hún hefði lík-
lega ekki átt að beinast að hótelinu þar sem bíll
tilræðismannsins sprakk á miðri götunni og ekki
fyrir framan hótelbygginguna.
Ekkert lát var á árásunum í gær og þrír íraskir
fréttamenn létu lífið í skotárás í Baqouba, um 55
km norðaustan við Bagdad. Fréttamennirnir
störfuðu fyrir sjónvarpsstöð sem Bandaríkja-
menn og bandamenn þeirra hafa styrkt. Níu aðr-
ir starfsmenn stöðvarinnar særðust.
Sprengjum var einnig skotið á tvær bandarísk-
ar herstöðvar og urðu þær þremur hermönnum
að bana, auk þess sem níu særðust.
„Heimurinn er betur settur“
George W. Bush Bandaríkjaforseti varði í gær
þá ákvörðun sína að fyrirskipa innrásina í Írak og
lagði áherslu á að hann hygðist hvergi hvika í
baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi í heimin-
um.
„Heimurinn er betur settur og bandaríska
þjóðin öruggari,“ sagði Bush þegar hann ávarp-
aði bandaríska hermenn og fjölskyldur þeirra í
tilefni af því að um helgina verður ár liðið frá því
að stríðið í Írak hófst.
„Stjórn mín kannaði leyniþjónustugögnin um
Írak og sá yfirvofandi hættu. Þingmenn könnuðu
gögnin og sáu yfirvofandi hættu. Öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna kannaði gögnin og sá
hættu,“ sagði forsetinn. „Ég varð að velja: ann-
aðhvort að trúa orðum brjálæðings eða að taka
hættuna alvarlega og verja Bandaríkin. Þegar ég
stend frammi fyrir slíku vali ver ég alltaf Banda-
ríkin.“
Minnst tíu falla í Írak
Bagdad. AP.