Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.03.2004, Qupperneq 23
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 23 Amino Acids Fyrir fólk undir miklu álagi www.islandia.is/~heilsuhorn SENDUM Í PÓSTKRÖFU Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889 fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum, Fjarðarkaupum Árnesaptóteki Selfossi og Yggdrasil Kárastíg 1. LANDSMÓT Ungmennafélags Íslands verður haldið á Akureyri árið 2009 og ljóst að fyrir þann tíma þarf að ráðast í umfangsmikla uppbyggingu á íþróttaaðstöðu í bænum og þá sérstaklega fyrir frjálsar íþróttir. Hins vegar er ekki ljóst á þessari stundu hvar sú aðstaða verð- ur byggð upp og sýnist sitt hverjum. Frjálsíþróttafólk hefur haft aðstöðu á Akureyrarvellinum til langs tíma en ef nota á völlinn áfram, þarf að gera þar miklar breyt- ingar og endurbætur. Þá hefur Íþróttafélagið Þór boðið svæði sitt við Hamar undir frjálsíþróttaðastöðu, en þar þyrfti einnig að ráðast í umfangsmiklar framkvæmdir. Guðný Jóhannesdóttir formaður Íþrótta- og tóm- stundaráðs sagði að þetta mál væri á umræðustigi, að mörgu væri að hyggja og skoðanir skiptar. Engin ákvörðun hefði verið tekin en ljóst að niðurstaða þyrfti að liggja fyrir síðar á þessu ári. Guðný sagði að það sem komið hefði fram í umræðunni núna væri hvort byggja ætti upp Akureyrarvöll eða ekki. Ekki væri búið að stað- setja völlinn annars staðar „og það er ljóst að það eru ekki mörg svæði á Akureyri sem bera völl af þessari stærðargráðu. Ef völlurinn verður færður, er gáfulegast að vera með hann nærri öðru íþróttamannvirki. Þetta er mikil framkvæmd og samhliða henni þarf að ráðast í uppbyggingu á knattspyrnustúku sem yrði yfirbyggð að hluta,“ sagði Guðný. Leikvangurinn þarf að vera sýnilegur og bænum til sóma Haukur Valtýsson formaður Ungmennafélags Ak- ureyrar sagði að félagið hefði ekki sett fram nein skilyrði varðandi framtíðarstaðsetningu íþróttavallarins. Slíkur leikvangur þurfi þó að vera sýnilegur og bænum til sóma. Haukur sagðist ekki vera búinn að afskrifa upp- byggingu á félagssvæði Þórs en hins vegar yrði erfiðara að byggja slíkan völl upp á félagssvæði KA vegna pláss- leysis. „Við höfum lagt áherslu á það að fá aðstöðu þar sem er fullbúin æfinga- og keppnisaðstaða fyrir frjáls- íþróttafólk.“ Haukur sagði að einnig þyrfti að horfa til aðstöðu fyrir knattspyrnumenn og því væri nauðsynlegt að samræma væntanlegar aðgerðir. Akureyrarvöllur barn síns tíma Ragnar Sverrisson formaður Kaupmannafélags Ak- ureyrar sagði að Akureyrarvöllur væri barn síns tíma, bæjaryfirvöld eigi að leggja völlinn af og byggja í staðinn upp íþróttaaðstöðu á félassvæðum Þórs og KA. Þórsarar hafi boðið sitt svæði undir frjálsar íþróttir og eftir 10–15 ár væri svo hægt að byggja upp slíka aðstöðu fyrir KA í Naustahverfi. „Ef bæjaryfirvöld vilja halda úti Akureyr- arvelli, vona ég að þau beri gæfu til að byggja hann upp annars staðar en á dýrasta byggingasvæðinu í miðbæ Akureyrar. Þar er ég að horfa einhverja áratugi fram í tímann. Miðbærinn hefur átt undir högg að sækja og ein leiðin til að snúa þeirri þróun við, er að taka Akureyr- arvöll undir miðbæjarstarfsemi og byggja þar versl- unarhúsnæði og íbúðir,“ sagði Ragnar. Eins og fram hefur komið er til skoðunar að færa Ak- ureyrarvöll til suðurs um 6,5 metra, þannig að hægt verði að gera boðlega gönguleið milli miðbæjarins og Glerártorgs, austan vallarins. Bæði Haukur og Ragnar eru sammála um að sú framkvæmd sé alls ekki fýsilegur kostur. Landsmót UMFÍ á Akureyri 2009 Morgunblaðið/Kristján Íþróttavöllur eða miðbæjarstarfsemi? Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort ráðist verður í endurbætur og uppbyggingu Akureyrarvallar fyrir Landsmót UMFÍ árið 2009. Einnig hafa komið upp hugmyndir um að leggja völlinn af og byggja verslunarhúsnæði og íbúðir á svæðinu. Óvíst hvort Akureyrarvöll- ur verður byggður upp Atvinnuleysi | Atvinnulausum á Akureyri fjölgaði nokkuð á milli mánaða samkvæmt yfirliti frá Vinnumálastofnun. Meðalfjöldi atvinnulausra í síðasta mánuði var 319, 141 karl og 178 kon- ur og hafði fjölgað á atvinnuleys- isskránni um 16 frá mánuðinum á undan. Í Dalvíkurbyggð, Ólafsfirði, Hrísey og Eyjafjarðarsveit fækkaði atvinnulausum hins vegar lítillega á milli mánaða, þó mest í Hrísey. Atvinnuástandið í síðasta mánuði er jafnframt betra í öllum öllum þess- um sveitarfélögum nema Eyja- fjarðarsveit, miðað við sama tíma í fyrra. Meðalfjöldi atvinnulausra í Dal- víkurbyggð í síðasta mánuði var 14, 5 karlar og 9 konur, meðalfjöldi í Ólafsfirði var 32, 10 karlar og 22 konur, í Hrísey 8, 3 karlar og 5 kon- ur og í Eyjafjarðarsveit 12, 8 karlar og 4 konur.    Ár liðið frá upphafi stríðs | Bar- áttuhópur gegn stríðsyfirgangi held- ur almennan fund laugardaginn 20. mars á Kaffi Amour við Ráðhústorg á Akureyri kl. 15.00. Ræðu flytur Pétur Pétursson, læknir. Ávarp flyt- ur Guðrún Þórsdóttir, þá verður söngur og ljóðalestur. Þennan dag er liðið eitt ár frá því stríðið í Írak hófst. Í NÝJU ljósi á ári fatlaðra, nefnist málþing sem haldið verður í Ketil- húsinu á Akureyri í dag. Þar verður fjallað um ýmislegt sem tengist fötl- uðum, aðgangur er ókeypis og öllum frjálst að mæta sem áhuga hafa. Kristján Þór Júlíusson, bæjar- stjóri, setur málþingið kl. 13. Fyrirlestrar eru svo eftirfarandi: Atvinnumál fatlaðra: Breytinga er þörf. Kristján Valdimarsson, for- stöðumaður Örva í Kópavogi og for- maður samtaka um vinnu og verk- þjálfun. Starfsendurmenntun fatlaðra. Geirlaug G. Björnsdóttir hjá Félags- og skólaþjónustu Þingeyinga, Húsa- vík. Menntunarframboð fatlaðra á Ak- ureyri. Rögnvaldur Símonarson, umsjónarmaður starfsdeildar VMA og Lilja Sæmundsdóttir, deildar- stjóri Fjölmenntar og kennari við VMA. Starfsendurhæfing á Akureyri: Hvað má bæta? Ólöf E. Leifsdóttir, iðjuþjálfi og forstöðumaður Plastiðj- unnar Bjargs-Iðjulundar á Akur- eyri. Eftir fyrirlestrana verður unnið í starsfhópum boðið upp á skemmti- atriði, auk kaffis og meðlætis. Ráð- stefnustjóri er Karólína Gunnars- dóttir, þroskaþjálfi hjá Fjöl- skyldudeild Akureyrar. Í nýju ljósi í Ketilhúsinu SÖNGLEIKURINN Honk! eftir George Stiles og Anthony Drewe verður frumsýndur í Gryfjunni í VMA á í kvöld kl. 20. Leikstjóri er María Sigurðardóttir og tónlistar- stjóri Arnór Vilbergsson. Öll hlut- verk eru í höndum nemenda Verk- menntaskólans og hljómsveitin samanstendur af bæði nemendum og kennurum skólans.Yfir 15 söngatriði eru í sýningunni, en verkið byggir á ævintýrinu um Ljóta andarungann eftir H.C. Andersen og höfðar bæði til barna og fullorðinna. Næstu sýn- ingar verða á sunnudag kl. 17, næsta fimmtudag og föstudag kl. 19, laug- ardaginn 27. mars kl. 13 og þá verða sýningar á miðvikudag, 31. mars og fimmtudag 1. apríl kl. 19. Miðar seld- ir í skólanum (Gryfjunni) sýningar- dagana kl. 16-17 og við innganginn. Honk! í VMA ♦♦♦ 4 4 4 a l i n a n . i s FRAMUNDAN 15 % kynningarafsláttur af öllum vörum 12. - 20. mars Sjón er sögu ríkari hjá okkur! Frábært úrval Bláu húsin v/Fákafen • 568 2662
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.