Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 24
SUÐURNES
24 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Reykjanesbær | „Þegar ég fer að
hugsa um það núna þá eru rúm tíu ár
síðan ég fékk þessa hugmynd fyrst.
Þá lagði ég til að steinfígúrum yrði
komið fyrir á uppfyllingunni sem
ráðgert var að hlaða meðfram fjör-
unni á Fitjum,“ sagði Áki Gränz í
samtali við Morgunblaðið. Ekki er
útséð um að sú hugmynd verði að
veruleika, nema hvað uppfyllingin
sem verið er að reisa nú til verndar
landbroti við Fitjar er úti í hafi. Sam-
kvæmt teikningum sem blaðamaður
fékk að líta á hjá Áka er í nýjustu
hugmynd hans líkt og tvær konur
standi vörð sín á hvorum tanganum.
Áki Gränz er maður verkanna.
Hann leggur sig fram við að koma
hugmyndum sínum í framkvæmd og
af hugmyndum á hann nóg. „Ég geri
þetta svona í gamni mínu,“ sagði
hann lítillátur við blaðamann og rétti
honum umslag fullt af teikningum
þar sem hann hefur dregið upp
myndir af mörgum hugmynda sinna.
Þar má m.a. sjá minnisvarða um
Hallgrím Pétursson, Hólmfast í
Hólmfastskoti auk margra teikning-
anna af þeim fígúrum sem hann er
búinn að koma upp víðsvegar um
bæinn.
– En hvernig byrjaði þetta æv-
intýri?
„Ég byrjaði nú að huga að þessu
eftir að Árni Sigfússon bæjarstjóri
hafði kynnt þá hugmynd sína að raða
stórum steinum meðfram Reykja-
nesbrautinni, til að gera bæinn sýni-
legri. Hins vegar fékkst ekki leyfi
fyrir því hjá Vegagerðinni, þar sem
svona steinar verða að vera í að
minnsta kosti 30 metra fjarlægð frá
veginum.“
Þar með var Áki kominn á flug og
fyrstu fígúrurnar risu út á Stapa á
sama tíma og bæjarmerkið var upp-
lýst. „Ég lét þrjár fígúrur við landa-
mörk Reykjanesbæjar og Voga, en
þau höfðu ekki verið rétt staðsett.
Hins vegar stóð ein fígúran ekki
lengi, þar sem þyngdin á þessum
steinum er gríðarleg og jarðveg-
urinn gefur eftir ef hann er ekki
nógu harður. Menn hafa verið að
kalla þetta Stapadrauga.“
– Á draugunum eftir að fjölga
meira?
„Ég er nú alveg hættur í bili, þetta
er orðið gott. Ég ætla aðeins að hvíla
mig á þessu. Mér finnst líka að það
megi ekki vera of mikið af þessu. Á
sumum stöðum myndi ég vilja að að
komið væri fyrir fallegum steinum,
ekki allsstaðar fígúrunum“, svaraði
Áki og blaðamaður hefur lúmskan
grun um að fleiri en þær tíu sem nú
eru komnar eigi eftir að bætast í
hópinni, ef ekki úr steinum, þá úr
járni.
Tróna á örnefnum
Áki hefur haft frjálsar hendur í
grjótinu í Helguvík, þar sem verið er
að rýma svæði fyrir stálpípuverk-
smiðju, sem fyrirhugað er að reisa
þar. Áka finnst grjótnámið mik-
ilfenglegt og segist vera búinn að
stinga því að mönnum að þeir kvik-
myndi þetta fyrir seinni tíma. Þetta
hefur allt með áhuga hans á fortíð-
inni og sögunni að gera og í bíltúr um
svæðið fékk blaðamaður að sjá þau
svæði sem Áki hefur áhuga á að
friða.
„Ég hef nú ekki alltaf verið
ánægður með hvernig hlutum hér
hefur verið stjórnað,“ sagði Áki sem í
áraraðir starfaði í bæjarstjórn
Njarðvíkurbæjar, m.a. sem forseti
bæjarstjórnar. „Mér finnst að það
megi ekki rífa allt og eyðileggja og
ég vil gera meira af því að varðveita.
En ég er nú af gamla skólanum.“
Hann sagðist einna ánægðastur með
friðjun Fitja og blaðamaður heyrði á
máli hans að hann ber mikla um-
hyggju fyrir svæðinu. „Mér finnst
sérstaklega gaman að sjá fuglinn þar
á vorin og haustin og hef gert mikið
af því að ganga þarna um.“
Áki segir það mikið vandaverk að
velja rétt grjót í fígúrurnar, en hann
þverneitar að þetta sé listaverk.
„Steinarnir þurfa að vera með
réttri lögun og þegar ég sé steina
sem henta þá bið ég strákana í nám-
inu að taka þá til hliðar. Það er ekk-
ert grín að flytja þetta, hver steinn
getur vegið allt að 40 tonn og sumir
brotna í flutningunum. Þeir eru svo
stökkir.
Fígúrunum hefur Áki valið stað
hjá gömlum örnefnum, sem hann vill
forða frá glötun. Fjölskyldan sem
trónir efst á Grænásbrekkunni og
horfir til hafs stendur til að mynda á
hól sem heitir Grænás og þar trúðu
menn að væri álfakirkja. Þessar fíg-
úrur hefur Áki líka mun minni en
hinar. „Það er svo auðvelt að gefa
ímyndunaraflinu lausan tauminn í
öllum þeim álfa- og tröllasögum sem
við eigum. Hjá fjölskyldunni verður
komið fyrir flötum steinum svo gest-
ir og gangandi geti tyllt sér niður og
notið útsýnisins með „álfafjölskyld-
unni“.“
Steinafígúrur Áka Gränz hafa vakið athygli og gert bæinn sýnilegri
Álfar og tröll til að minna á söguna
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Fjölskyldan í Grænási: Steinafígúrur Áka Gränz eru nú orðnar tíu talsins og honum finnst vera komið nóg í bili.
Hér er hann með fjölskyldunni sem trónir efst í Grænási. Menn ræða mikið um fígúrurnar og einhverjir vilja
meina að konan sem er önnur frá hægri sé ófrísk og að unglingurinn, lengst til hægri, sé að sligast undan byrðum.
Allt fer þetta eftir því hvernig menn horfa á verkin og hvernig birtuskilyrðin eru.
Njarðvík | Fyrsta stóra hnefaleika-
keppni ársins fer fram í Íþróttahúsi
Njarðvíkur, Ljónagryfjunni, næst-
komandi laugardag. Félagar úr
Hnefaleikafélagi Reykjaness (HFR)
taka á móti keppendum úr Hnefa-
leikafélagi Reykjavíkur (HR) og er
þetta fyrsta sinn í tæplega fimmtíu
ár sem íslenskir boxklúbbar mætast.
Alls verða fimm viðureignir í
keppninni. Að því er fram kemur í
fréttatilkynningu verður reynt að
gera keppnina að skemmtun fyrir
alla fjölskylduna, meðal annars með
skemmtiatriðum milli viðureigna.
Hápunktur keppninnar verður
viðureign í þungavigt, þar sem
Grindvíkingurinn Tómas Guð-
mundsson (HFR) og Ísfirðingurinn
Lárus Mikael Knudsen, sem keppir
fyrir hönd HR, mætast. Þetta er í
annað sinn sem þeir mætast og hefur
Tómas harma að hefna frammi fyrir
sínu heimafólki, því Lárus vann fyrri
bardagann.
Í öðrum viðureignum eigast þeir
við Vikar K. Sigurjónsson (HFR) og
Þórir Fannar Þórisson (HR), Heiðar
Sverrisson (HFR) og Gunnar Óli
Guðjónsson (HR), Örn Jónasson
(HFR) og Birkir Guðbjartsson (HR)
og að síðustu Árni Páll Jónsson
(HFR) og Einar Sverrisson (HR).
Box í Ljóna-
gryfjunni
Keflavík | Sjö sóttu um stöðu skóla-
stjóra Myllubakkaskóla í Keflavík sem
nýlega var auglýst laus til umsóknar.
Umsóknirnar voru lagðar fram í
bæjarráði Reykjanesbæjar og þar var
fræðslustjóra falið að gefa umsögn um
þær.
Umsækjendur eru þessir: Björgvin
Þór Þórhallsson, Björn Víkingur
Skúlason, Brynja Árnadóttir, Daði V.
Ingimundarson, Leifur Ísaksson, Sig-
urður Þ. Ingimundarson og Sigurlín
Sveinbjarnardóttir.
Sigurður Ingimundarson var ráðinn
tímabundið til að gegna stöðu skóla-
stjóra eftir fráfall Vilhjálms Ketilsson-
ar.
Sjö sækja
um skóla-
stjórastöðu
Grindavík | Grindvíkingar ráðast
ekki á garðinn þar sem hann er
lægstur og á það einnig við um
árshátíðarleikritið í Grunnskóla
Grindavíkur. Litla hryllingsbúðin
var sett upp að þessu sinni og stýrir
Jakob Þór Einarsson leikari verk-
inu. Eins og áður er bæjarbúum
boðið á þrjár aukasýningar sem
verða án efa vel sóttar því krakk-
arnir standa sig vel auk þess að öll
umgjörð er glæsileg. Alls taka um
70 nemendur þátt í sýningunni.
„Þetta er búið að vera strembið
en skemmtilegt. Ótrúlega góður
hópur, mikil orka í honum og mitt
hlutverk er að beina orkunni í rétta
átt. Hæfileikarnir hreinlega drjúpa
af hverju strái hér og vel að þessu
staðið að hálfu skólans að öllu leyti
undir styrkri stjórn Kristbjargar
Hermannsdóttur, kennara. Það er
frábært að gefa nemendum tæki-
færi til að gera alla þessa hluti því
þau sjá um að hanna og gera allt
sjálf. Ég held að þau hagnist á
þessu starfi þó það taki örlítinn
tíma frá hinu hefðbundna námi,“
sagði leikstjórinn, Jakob Þór, rétt
fyrir frumsýningu.
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Árshátíð: Tannlæknirinn spjallar við blómið í Litlu hryllingsbúðinni.
Sýna Litlu hryllingsbúðina
♦♦♦
Sandgerði | Ólafur Þór Ólafsson hef-
ur ákveðið að segja upp starfi sínu
sem íþrótta- og tómstundafulltrúi hjá
Sandgerðisbæ
vegna bókana full-
trúa meirihluta
bæjarstjórnar.
Ólafur Þór hef-
ur verið átta ár
íþrótta- og tóm-
stundafulltrúi. Við
síðustu kosningar
var hann kosinn í
bæjarstjórn sem
fulltrúi Sandgerð-
islistans og er þar í minnihluta.
Á síðasta fundi bæjarstjórnar lýsti
hann andstöðu við tillögur meirihlut-
ans um aðild að Eignarhaldsfélaginu
Fasteign hf. og viðræðum um sölu á
Samkomuhúsi og mannvirkjum á
skólalóð til félagsins. Í opnu bréfi sem
Ólafur Þór skrifar Sandgerðingum á
fréttavef Víkurfrétta kemur fram að í
ljósi bókana fulltrúa meirihlutans á
þessum fundi telji hann sér ekki leng-
ur vært í starfi íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa.
„Það er umhugsunarefni þegar
meirihluti bæjarstjórnar notar póli-
tískt vald sitt á þann hátt sem hér hef-
ur verið gert. Ég er ekki reiðubúinn
til að starfa við slík skilyrði og hef því
tekið þá erfiðu ákvörðun að segja upp
starfi mínu,“ segir í bréfi Ólafs Þórs.
Segir upp
starfi hjá
bænum
Ólafur Þór
Ólafsson