Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 19.03.2004, Síða 28
DAGLEGT LÍF 28 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Samkvæmis- fatnaðurinn kominn 1 4 4 4 Ertu að leita þér að nýjum skóm? karma í svörtum fötum laugardag föstudag19. mars 20. mars STÓRT DANSGÓLF - BOLTINN ALLTAF Í BEINNI - FRÁBÆR MATSEÐILL Bæjarlind 4 KópavogiKÖ -H Ö N N U N 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s BARNSHAFANDI konur vilja auð- vitað, líkt og aðrar konur, tolla í tískunni þó þær séu breiðari um sig en endranær. Ólíkt því sem áður tíðkaðist þegar helst var gripið til saumaskapar heima fyrir þegar svo var ástatt um konur, geta konur nú gengið að tískufatnaði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Daglegt líf fór í búðaráp á dögunum og spurðist fyrir um tískustrauma í fatnaði fyrir barnshafandi konur. Í ljós kom að úr vöndu var að velja enda úrvalið bæði mikið og fjölbreytt. Hvort sem þær eru að leita eftir buxum, bolum, pilsum eða kjólum er af nógu að taka, en í samtölum við nokkra verslunarmenn kom fram að fötin eru löguð að þeirri tísku, sem viðgengst hverju sinni þó svörtu bux- urnar séu alltaf lang- vinsælastar. Verðandi mæður virð- ast hinsvegar skiptast í tvö horn þegar kemur að vali á víðum eða þröngum óléttufatnaði því á meðan sumar konur kjósa að fela bumbuna í víðum fötum, hafa aðrar ekkert að fela og klæðast gjarnan þröngum bolum til að bumban fái að skína skært og njóta sín. Kúlan bara viðbót „Það er allt í tísku hjá ófrískum konum, rétt eins og hjá öðrum kon- um,“ segir Guðrún Möller, sem rek- ið hefur sérverslunina Thyme Mat- ernity í Kópavogi frá haustinu 2001, en þar verslar hún með óléttufatn- að, framleiddan í Montreal í Kan- ada. „Hönnuðir fyrirtækisins fylgj- ast með tískustraumum um allan heim, fylgja þeim síðan eftir, en gera bara ráð fyrir kúlunni. Þeir passa sig á því að hafa alltaf eitt- hvað fyrir alla því á meðan sumar vilja vítt, vilja aðrar þröngt og þegar maður er að reka tísku- vörusérverslun og þarf að stíla inn á ákveðinn markhóp, sem í mínu tilfelli eru konur frá 16 ára aldri og yfir fertugt af öllum stærðum og gerðum, þarf að kaupa inn pínulítið af öllu. Það er því erfitt að alhæfa um hvað sé ná- kvæmlega í tísku meðal ófrískra kvenna. Efnin þurfa að vera góð og sniðin þægileg, að sögn Guðrúnar. „Svartar buxur og gallafatnaður er vin- sæll árið um kring. Kvartbuxur eru vinsæl- ar þegar nær dregur sumri og pils og kjólar verða þá jafnframt sumarlegri. Bolirnir okkar eru svo örlítið síðari að framan til að koma í veg fyrir að bol- urinn togist upp með stækkandi kúlu. „Við erum með klass- ískar svartar buxur sem njóta mik- illa vinsælda og eru heldur fyrir þær, sem vilja sýna bumbuna þar sem þær eru ekki háar upp, segir Katrín Halldórsdóttir hjá H&M Rowells. Hún bætir við að gallabux- ur og síðu gallapilsin njóti alltaf vin- sælda og sumar vilji joggingfatnað á óléttutímum sem einnig sé fáan- legur auk sundbola fyrir barnshaf- andi konur. „Svo erum við með ljós- bleikar og hvítar túnikur, hnepptar að framan, en það eru sumarlegar hörskyrtur, sem ná niður fyrir nára.“ Þægilegt og vandað „Við erum með úrval af þægileg- um, vönduðum og fallegum fötum fyrir barnshafandi konur sem eru úr mjúkum bómullarefnum,“ segir Kristín Guðmundsdóttir hjá Polarn & Pyret í Kringlunni. „Verðandi mæður geta fengið hjá okkur stutt- erma- og langermaboli svo og peys- ur úr mjúkri bómull og svo erum við bæði með bláar og svartar galla- buxur og buxur úr bómullarefnum. Í næstu viku eru svo væntanlegar sígildar svartar buxur fyrir konur sem bera barn undir belti. Þær eru sparilegar og hægt að nota við vinnu eða fínni tilefni.“ Kristín segir að Polarn & Pyret sé einnig með svört hugguleg pils og von er á gallapilsum í næstu viku svo og kjólum, skyrtum og buxum úr hör í næsta mánuði. „Við erum einnig með brjósta- gjafaboli og peysur en þá er stykki á miðjum bol eða peysu sem hægt er að opna og lyfta upp við brjósta- gjöf. Margar barnshafandi konur hafa keypt slíka boli því það er svo góð teygja í þeim að auðveldlega er hægt að vera í þeim líka á með- göngunni. “ Einbeita sér að buxum „Í óléttudeildinni ætlum við í framtíðinni að einbeita okkur að buxum þar sem okkur hefur fundist barnshafandi konur ekki ginkeyptar fyrir óléttubolum eða toppum, sem við höfum líka verið með. Þær kaupa buxurnar, en svo nota þær ýmist þá boli, sem þær eiga í skáp- unum eða kaupa sér boli í venjuleg- um tískubúðum enda vilja þær bara nú orðið að kúlan sé bara vel sýni- leg,“ segir Rosmary Bergmann hjá Stórum stelpum. „Við erum með svartar buxur, gallabuxur og flauelsbuxur frá Danmörku, en af hverjum tíu buxum, sem við seljum, fara níu svartar. Við höfum verið lengi með sama vörumerkið, en tökum auðvitað inn ný snið eftir því sem tískan er hverju sinni. Aðalmálið í dag er víddin á buxnaskálmunum. Þær eiga að vera víðar eða útvíðar.“  TÍSKA | Misjafnt hvort konur vilja þröngan eða víðan meðgöngufatnað Fatnaður fyrir verðandi mæður fylgir tískunni join@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Brúnir tónar: Útvíðar buxur og bol- ur við. Stórar stelpur. Sumarlegt: Ljósar buxur og skyrta í stíl. Thyme Maternity. Sígild: Blár bómullarbolur og sígilt svart pils. Polarn og Pyret. Hvítt: Sumarleg skyrta og galla- buxur. H & M Rowells. Brjósta- gjafabolur: Hentar vel á meðgöngu líka. Polarn og Pyret. Svörtu buxurnar vinsælastar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.