Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 32

Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 32
LISTIR 32 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hlégarður, Mosfellssbær kl. 20.30 Meðlimir Skólahljómsveitar Mosfellsbæjar frá upphafi fagna saman 40 ára afmæli lúðrasveit- arinnar. Árið 1963 stofnaði Birgir D. Sveinsson Drengjalúðrasveit Mos- fellsveitar. Hann hefur stjórnað og haldið utan um hljómsveitina frá upphafi. Félagar sem voru með á ár- unum 1963 til um það bil ársins 2000, hittast og gleðjast saman í Hlégarði. Meðal annars verða sýndar gamlar upptökur af hljómsveitinni og einnig sýnd heimildamynd sem Bjarki Bjarnason hefur gert um hljómsveit- ina. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.is Í DESEMBER hófst námskeið á vegum Tónskóla Þjóðkirkjunnar fyr- ir orgelleikara í túlkun barokktónlist- ar frá Norður-Þýskalandi. Leiðbein- andi var Eyþór Ingi Jónsson sem er organisti á Akureyri, en hann er meðal annars lærður í Tónlistarhá- skólanum í Piteå í Svíþjóð og hefur sérhæft sig í flutningi tónlistar frá þessu tímabili. Námskeiðinu lauk með opinberum tónleikum í Lang- holtskirkju í hádeginu á föstudaginn. Nótnahandrit frá barokktíma- bilinu innihalda nánast engar leið- beiningar um túlkun, enda var lengi talið að barokktónlist ætti að flytjast af vélrænni nákvæmni. Upp úr 1960 fóru að koma fram niðurstöður rann- sókna sem sýndu fram á allt annað, að nótnahandritin séu ekki endanleg stærð heldur aðeins beinagrind er túlkandinn eigi að klæða með alls- konar styrkleikabrigðum, hendinga- mótun, mismunandi áherslum og öðru. Svo furðulegt sem það er þá hafa ekki allir áttað sig á þessu og halda fast í löngu úreltar skoðanir. Greinilegt er að Eyþór Ingi veit allt um þetta og hefur haft góð áhrif á nemendur sína. Þrátt fyrir ýmsa tæknilega vankanta sem eiga sjálf- sagt eftir að slípast burt með aukinni reynslu lofaði túlkun þeirra almennt góðu. Tók maður sérstaklega eftir hve raddval var yfirleitt sannfær- andi, jafnvel frumlegt, en fyrir bragðið var tónlistin litríkari en ella. Fyrst á efnisskránni var Sigrún Magna Þórsteinsdóttir sem flutti sálmaforleikinn „Ein feste Burg ist unser Gott“ eftir Buxtehude. Leikur hennar var fallegur og skýr; tónlistin var þrungin hástemmdri yfirvegun sem hæfði sálmaforleiknum ákaflega vel. Andaktin fór þó aðeins yfir strik- ið er á leið; spilamennskan varð dálít- ið einsleit þegar á heildina er litið og hefði stígandin í túlkuninni mátt vera meiri. Magnificat eftir Weckmann var næst á dagskrá og var það Jón Bjarnason sem þá settist við orgelið. Eins og hæfir lofgjörð til Drottins var leikur Jóns ákafur og kraftmikill, en tæknilegu hliðina skorti nokkuð nákvæmni; hefði meiri skýrleiki og agaðri framsetning verið til bóta. Sama má segja um prelúdíu í e-moll eftir Bruhns sem Bjartur Logi Guðnason spilaði; hún var dálítið flaustursleg þó margt hafi verið prýðilega gert. Sálmaforleikurinn Nun komm der Heiden Heiland eftir Buxtehude í meðförum Aðalheiðar Þorsteinsdóttur kom aftur á móti ágætlega út, en ég er þó ekki frá því að raddval þar hefði mátt vera ögn fjölbreyttara. Þrátt fyrir hnökra í tónlistarflutn- ingnum var þetta samt áhugaverð stund; Eyþór Ingi kynnti hvert atriði og gerði það ákaflega vel, allt sem hann sagði var fróðlegt og var auð- heyrt að hann þekkti efnið út í ystu æsar. Ég er sannfærður um að nám- skeiðið eigi eftir að reynast þátttak- endunum, sem eru að stíga sín fyrstu skref á listabrautinni, hollt veganesti. Gaman að spila Tveimur dögum síðar var komið að Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, en hún bauð áheyrendum upp á nokkur verk eftir Beethoven og voru tónleik- arnir haldnir í Seltjarnarneskirkju. Fyrst á dagskrá var Prómeþeus- forleikurinn op. 43. Þrátt fyrir að vera ekki gallalaus var túlkun stjórn- andans, Tryggva M. Baldvinssonar, fyllilega í anda Beethovens, stórbrot- in og tignarleg, en jafnframt þrungin innri spennu og var þetta góð byrjun á tónleikunum. Þriðji píanókonsert tónskáldsins, sem Jón Sigurðsson lék ásamt hljóm- sveitinni heppnaðist síður vel þó heildarmyndin hafi verið sannfær- andi og öll helstu einkenni verksins hafi komist ágætlega til skila. Jón býr yfir ágætri tækni og er góður pí- anóleikari en skortir greinilega reynslu í að koma fram; nokkurt óör- yggi gerði vart við sig í leik hans. Tónmyndun var auk þess heldur daufleg og ómarkviss, en að sama skapi voru áherslur hér og þar óþarf- lega hörkulegar. Einnig var slæmt samband á milli hans og stjórnand- ans og var það þeim báðum að kenna. Jón týndi sér of oft í eigin heimi án þess að taka tillit til hljómsveitarinn- ar en Tryggva skorti sveigjanleika og fylgdi ekki einleikaranum af nægi- legri nákvæmni. Lokaatriði tónleikanna var fimmta sinfónían fræga, og þar var flutning- urinn alls ekki slæmur miðað við hverjir voru á ferðinni. Tryggvi sýndi að hann býr yfir djúpum skilningi á tónlist Beethovens, túlkunin ein- kenndist af snerpu og miklum átök- um, einmitt eins og hún átti að vera. Greinilegt var að hljóðfæraleikararn- ir höfðu líka gaman af því sem þeir voru að gera og þá er tilganginum með starfsemi hljómsveitarinnar auðvitað náð. Það er leikur að læra Jónas Sen TÓNLIST Orgeltónleikar LANGHOLTSKIRKJA Tónlist eftir Buxtehude, Weckmann og Bruhns. Flytjendur voru organistarnir Sig- rún Magna Þórsteinsdóttir, Jón Bjarna- son, Aðalheiður Þorsteinsdóttir og Bjart- ur Logi Guðnason. Föstudagur 12. mars. Sinfóníuhljómsveit áhugamanna Seltjarnarneskirkja Tónlist eftir Beethoven. Einleikari Jón Sigurðsson; stjórnandi Tryggvi M. Bald- vinsson. Sunnudagur 14. mars. HINN aðeins nítján ára gamli fiðluleikari Theresa Bokany þreytti íslenzka frumraun sína á þriðju- dag. Þ.e.a.s. ef að líkum lætur – því að seinni tíma venju var ekkert tekið fram um það. Orðið virðist nú jafnbannheilagt og hvalur var forð- um á fiskimiðum og persónunöfn úr Makbeð munu enn fyrir leik- húsfrumsýningu. Það er alltaf gaman að heyra efnilegt ungt fólk glíma við gömlu meistarana, hvað þá að heyra það í fyrsta skipti. Þar við bættist að stúlkan, er býr í Lyon og stundar framhaldsnám í Sviss, var hálfís- lenzk – dóttir Jónu Dóru Óskars- dóttur víóluleikara og ungverska kontrabassistans Ferencs Bokany. Ekki dró heldur úr forvitni tón- leikagesta að Theresa hefði til skamms tíma verið nemandi ung- verska fiðlusnillingsins Tibors Varga, er lézt í fyrra í Sviss. Enda var eftirvæntingin gizka áþreifan- leg, ef marka má nærri því and- aktuga þögnina er mætti flytjend- um eftir upphafsklappið. Fátt er óöfundsverðara fyrir óharðnaðan ungling en að þurfa að standa undir slíku. Flestir hefðu sjálfsagt farið meira eða minna á taugum í sömu sporum. En það er ástæðulaust að ýfa flosnaða tauga- enda lesandans frekar en orðið er, því í stuttu máli sagt bar hvergi á minnsta stressi í fiðluleik Theresu, er segja má að hafi farið fram úr öllum vonum. Þó að úthverfum virtúósaflugeldum væri stillt í hóf í fágaðri spilamennskunni, var und- irstaðan tvímælalaust einhver sú þroskaðasta sem maður hefur áður upplifað úr hendi jafnungs hljóm- listarmanns, þar sem pottþétt tækni og þaulmúsíkalskt upplag sameinuðust um að draga tand- urskýrt fram kosti og sérkenni verkanna með að virtist hverfandi fyrirhöfn. M.ö.o. lifandi sýni- kennsla í list hins innsæja mús- íkants að „fela“ list sína til ágóða fyrir sköpun tónskáldsins – til óblandinnar ánægju fyrir bæði al- menna hlustendur, og ekki síður lærdómsríkt fyrir fjölda ungra fiðlunemenda er mættir voru með fiðlukassann í eftirdragi. Slíkan galdur er sjaldan að finna nema hjá margfalt reyndara hljóm- listarfólki, og ætti því að vera óhætt að spá Theresu Bokany glæsilegri framtíð, þegar aukinn kraftur og persónulegri mótun færist í leikinn. Verður þess varla langt að bíða, miðað við þá gegn- heilu „middle-of-the-road“ túlkun sem maður fékk að heyra, er náði samt að gæla við ótal áhugaverðra atriða, smærri sem stærri, í óvenjulifandi og dýnamískri mótun. Svo notað sé í virðingarskyni ung- æðislegt orðbragð frá elztu skrif- um, lék Theresa eins og gömul rotta í faginu. Slík undirstaða er óneitanlega betri en engin í upp- hafi ferils. Erfitt er að gera upp á milli tón- leikaatriða, því heita má að hvergi hafi séð í snöggan blett. Djöfla- trillusónata Tartinis rann ljúflega niður eins og lindarvatn með smá- votti af ekki óviðeigandi upphafs- hyggjustíl. D-dúr fiðlusónata Beethovens bar heillandi keim af áhyggjulausum innblæstri fyrstu Vínaráranna, og sýndi Anna Guðný Guðmundsdóttir þar svo ekki varð um villzt hversu frábær Beet- hoventúlkandi hún er, fyrir utan afbragðsgóðan og samstilltan með- leik í hvívetna. Hin hnausþykka síðrómantíska sónata Césars Franck í lokin fékk á sig svífandi loftkenndan blæ sem fór krefjandi verkinu afar vel og stórjók við sjarma úthaldskrefjandi tónsmíðar, er sjaldan nær flugtaki í lakari flutningi. Aukalagið, er minnti sterklega á vals úr Rosenkavalier Richards Strauss, bauð síðan upp á sallaöruggt neistaflug. Geri aðrir – og eldri – betur. Bravissimo! Bravissimo! TÓNLIST Salurinn Tartini: Sónata í g. Beethoven: Sónata nr. 1 í D Op. 12. Franck: Sónata í A. Theresa Bokany fiðla, Anna Guðný Guðmunds- dóttir píanó. Þriðjudaginn 16. marz kl. 20. KAMMERTÓNLEIKAR Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Ásdís „Óhætt að spá Theresu Bokany glæsilegri framtíð,“ segir m.a. í um- sögninni. BIRGIR Andrésson sýnir nú ný verk í i8, Klapparstíg 33. Í aðalsal gallerísins eru til sýnis raunsæjar blýantsteikningar af ólgandi sjó, textaverk þar sem útliti hesta er lýst nákvæmlega og eru í framhaldi af mannlýsingum Birgis. Ennfremur eru til sýnis gamlar og grófkornóttar eftirmyndir af ljósmyndum af kapp- reiðum. Á neðri hæð má sjá litskrúð- ug lítil málverk eftir listamanninn. Auk þess er að finna á sýningunni höggmynd eftir Kristin E. Hrafns- son sem var gerð að beiðni Birgis. Samtímis sýningunni í i8 er sýning á verkum Birgis í galleríi Niels Stærk í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar um lista- manninn má finna á www.i8.is Sýningin er opin fimmtudaga og föstudaga 11-18, laugardaga 13–17 og eftir samkomulagi. Sýningin stendur til 30. apríl. Morgunblaðið/Jim Smart Birgir Andrésson sýnir í i8 KURT Kopecky tekur nú við hljómsveitarstjórasprotanum úr hendi Christophers Fifield, sem stjórnaði fyrstu fjórum sýningun- um á Brúðkaupi Fígarós í Íslensku óperunni. Kurt, sem hefur verið aðstoðarhljóm- sveitarstjóri og æfingastjóri uppfærslunnar, er tónlistarstjóri Íslensku óper- unnar. Hann mun stjórna þeim fimm sýn- ingum sem eftir eru á Brúðkaup- inu, þeirri fyrstu í kvöld, föstudagskvöld. Kurt Kopecky hefur stjórnað ýmsum óperuuppfærslum í Aust- urríki, Þýskalandi og víðsvegar í Sviss og einnig komið víða fram sem meðleikari á píanó. Í byrjun þessa árs kom hann fram sem gestastjórnandi með sinfóníu- hljómsveitunum í Oulu og Kuopio í Finnlandi. Kurt Kopecky Kopecky tekur við sprotanum ♦♦♦ HJÁ Kvennaskólanum eru glæsilegir tímar í leiklistinni, nú sem oft áður, en leiksýning Fúríu er sannarlega ein sú besta sem býðst um þessar mundir. Ber þar margt til; góð leikgerð af vel völdu verki, vönduð vinna við umgjörð, hæfileikaríkir leikarar og síðast en ekki síst afburða vönduð leikstjórn. Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri hefur búið til leikgerð eftir spænsku kvikmyndinni Belle époq- ue sem sækir greinilega sitthvað til rússneska meistarans Antons Ték- hofs. Verkið fjallar í stuttu máli um Friðrik, ungan mann sem lendir í litlu sveitaþorpi fyrir tilviljun, kynnist þar sérvitringnum Magn- úsi og systrum hans fjórum og ílendist hjá þeim í sumarfríinu þeirra. Margar aðrar persónur koma við sögu; til dæmis prest- urinn á staðnum, lögregluþjónar og kærasta Magnúsar og auk þeirra ungur maður að nafni Jón og tví- burasystur hans tvær. Andi verks- ins er fallegur og fyndinn með sorglegu ívafi í anda rússneska leikskáldsins en væntingar og ást á lífinu er meginefnið. Bergur segir í pistli sínum í leikskránni að „… til þess að ná settu marki þurfti sagan að fjalla um krakkana sjálfa … fólk sem nýtur lífsins … sem sér hlut- ina í björtu ljósi … sem er að upp- götva sjálft sig og hvert annað … Lifandi fólk …“ Þessi trú leikstjór- ans á leikurunum sínum smitaði sýninguna frá upphafi til enda. Í pistli sínum segir Bergur einnig að hann hafi sagt krökkunum að „… leika alls ekki – heldur vera. Njóta – ekki sýna. Upplifa og bregðast við“. Aldrei að „leika“. Orð Bergs segja það sem segja þarf um sýninguna; undirrituð man ekki eftir annarri eins afslöppun í leik hjá framhaldsskólanemum og hér var raunin. Að vera þau sjálf og slaka bara á gekk algerlega upp sem meginaðferð eða lögn þar sem þau notuðu auk þess eigið orðfæri og sýningin ríghélt frá upphafi til enda. Fyrrnefnd aðferð gerði auk þess að verkum að hlutverkaskipan var rétt og sönn en auðvitað hjálpaði þar til hvað aðalleikararnir voru flinkir. Þar fór fremstur í flokki Hilmar Guðjónsson í hlutverki Friðriks en það var hrein unun að sjá hann fara með hlutverkið. Per- sónan er einlæg og hrekklaus, upp að vissu marki, og Hilmar var hríf- andi í mikilli gleði og depurð Frið- riks. Í hlutverki vinar hans, Magn- úsar, var Benedikt Karl Gröndal sem lék alveg sérstaklega vel og ekki hægt að sjá að hann væri að leika upp fyrir sig í aldri eins og raunin var. Systurnar fjórar léku þær Unnur Tómasdóttir, Rósa Björk Bergþórsdóttir, Anna Þór- hildur Sæmundsdóttir og Jóna Guðný Arthúrsdóttir. Þær hvíldu hver um sig mjög skemmtilega í ólíkum hlutverkunum og samleikur þeirra var afbragð. Vonbiðilinn Jón lék Theódór Sölvi Thomasson af kómískri nákvæmni og systur hans túlkuðu þær Hrönn Guðmunds- dóttir og Hrefna Lind Lárusdóttir mjög skemmtilega. Aðrir leikarar stóðu sig með prýði en skauta- drottningarnar átta settu punktinn yfir i-ið í sýningunni, komu inn á ólíklegustu stöðum eins og átta glitrandi sólir í gulu göllunum sín- um og sýndu vel það hugrekki leik- stjórans að búa til skemmtilegt leikhús án annarrar sýnilegrar ástæðu en að sem flestir fengju hlutverk. Af sama meiði voru til- færingar leikaranna með stórt borð og stóla og hvernig það varð hluti af sýningunni að draga upp og niður rúllugluggatjöldin sem dreifðust um sviðið og þjónuðu ýmsum hlutverkum. Lýsingin var einnig fallegur hluti af heildinni. Það er sama hvar litið er á; Glæstir tímar er leiksýning sem gengur fullkomlega upp. Hinn töfr- um slungni þráður einlægninnar sem Bergur hefur léð unga fólkinu með vinnu sinni skilar sér beint inn í hjörtu áhorfenda sem ganga glað- ir út frá nemendasýningu Kvenna- skólans. Glæsileg Kvennaskólasýning LEIKLIST Fúría – leikfélag Kvennaskólans Leikstjóri og höfundur leikgerðar: Bergur Þór Ingólfsson. Búninga- og sviðs- hönnun: Elma Jóhanna Backmann. Ljós: Halldór Örn Óskarsson. Frumsýning í Loftkastalanum 10. mars. GLÆSTIR TÍMAR Hrund Ólafsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.