Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 45

Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 45 svífa yfir Stafnfurðubrú um ókomna tíð og væntanlega mun Ómar, ásamt þeim Sveini og Gylfa, horfa oft þar yfir að handan, með velþóknun von- andi. „Now even heaven is blue today, you should hear the Chelsea roar, hear the Chelsea roar…“ Fyrir hönd félaga í Chelsea- klúbbnum á Íslandi þakka ég Ómari viðkynninguna og óska honum alls hins besta á því ferðalagi sem hann hefur nú lagt í. Fjölskyldu Ómars sendi ég og okkar innilegustu sam- úðarkveðjur um leið og við kveðjum góðan dreng með þakklæti og virð- ingu, hans verður sárt saknað. Karl H. Hillers. Ég kynntist Ómari Jóhannssyni þegar ég var nýfluttur í bæinn á Njálsgötuna og datt inná hverfisví- deóleiguna Heimabíó sem hann og Guðný kona hans höfðu þá nýopnað. Fór svo að eftir þetta fyrsta innlit mitt réð hann strákinn sem sinn fyrsta starfskraft á leigunni. Starf- aði ég þar í aukavinnu í góðu yfirlæti næstu árin með mislöngum hléum allt fram í nóvember 2002, þegar ég ásamt foreldrum mínum tók við rekstri leigunnar af þeim hjónum þegar þau hugðust breyta til og snúa sér að öðru. En stuttu síðar gripu ör- lögin harkalega í taumana hans Óm- ars og erfið glíma hans hófst. Ómar var sterkur og skemmtileg- ur karakter, orðheppinn með meiru, sérvitur nokkuð, með ákveðnar skoðanir og þverhaus þegar þannig lá á honum, stakt ljúfmenni og drengur góður. Ófáar stundirnar fóru hjá okkur í spjall um heima og geima og þá sérstaklega um kvik- myndir enda áhugamál og lifibrauð okkar beggja og oftar en ekki skaut hann mann í kaf ef þurfti að rökræða eitthvað. Hann hafði einstakt lag á að ná til kúnnanna sinna með sínu vingjarn- lega og persónulega viðmóti, sérlega mannglöggur og minnugur og þekkti flesta kúnnana með nafni, enda voru margir sem söknuðu þeirra hjóna þegar þau hættu á leigunni eftir öll þessi ár. Þau hafa oft reynst mér afskap- lega vel í gegnum tíðina og stutt við bakið á stráknum sem Ómar kallaði stundum í gríni „uppeldið sitt“ og kann ég þeim báðum bestu þakkir fyrir það. Elsku Guðný og fjölskylda, megi Guð blessa ykkur og styrkja á þess- um erfiðu tímum og um ókomna tíð. Ómar minn, ég vona að þeir séu með almennilegar vídeóleigur fyrir þig á himnum. Annars opnarðu bara útibú af Heimabíó, eða kannski bara Himnabíó, hver veit? En eitt veit ég þó kæri félagi, að við sjáumst aftur í næsta framhaldsmyndalífi. Þangað til, takk fyrir mig, þinn lærlingur og vinur, Ásgeir Óskarsson. Í dag kveðjum við félaga okkar til margra ára, Ómar Jóhannsson. Okk- ur langar með þessum orðum að þakka honum fyrir revíuskrifin sem urðu til þess að Leikfélag Keflavíkur hefur átt velgengni að fagna. Ómar skrifaði sína fyrstu revíu fyrir félagið árið 1989 en alls urðu þær fjórar talsins. Ómari tókst einstaklega vel að koma inn á menn og málefni úr bæj- arlífinu á léttan og meinfyndinn hátt sem bæjarbúar kunnu svo sannar- lega að meta og sýndi það sig á met- aðsókn á allar revíurnar. Við minnumst Ómars um ókomin ár og víst er að fáir munu feta í hans fótspor. Okkur langar að ljúka þess- um orðum okkar á broti úr texta sem Ómar samdi fyrir eina af Keflavík- urrevíum sínum og um leið votta eig- inkonu hans, börnum og öðrum að- standendum okkar dýpstu samúð. Svo kom að því að ég hélt á burt ég hefði betur verið hér um kjurt því aldrei fann ég mér annan stað en Keflavík, Keflavík. Ég gjald mitt greiddi fyrir litla lóð þar logar nú mín ævislóð í leiði sem að mín liggja bein í Keflavík, Keflavík. (Ómar Jóhannsson.) Minning Ómars mun lifa með okk- ur um ókomin ár. Félagar í Leikfélagi Keflavíkur Kæri vinur. Þegar litið er um öxl og rifjað upp hvernig lífið gefur og tekur alla daga verður mér minnisstætt hvernig okkar leiðir lágu saman fyrir all- mörgum árum. Við áttum dætur í sundi og störfuðum sem ábyrgir for- eldrar í öllum hugsanlegum fjáröfl- unum, mótsferðum, æfingabúðum og aldrei máttum við missa af neinu sem sundfélagið var að aðhafast, þetta var allt svo gaman. Samhugur þeirra sem störfuðu með börnunum sínum á þessum árum var til mikillar fyrirmyndar og skapaði geysilega skemmtilegan hóp af þróttmiklum foreldrum sem lögðu allt undir svo árangur barnanna yrði sem mestur. Ekki stóð á árangri sunddeildarinn- ar sem setti Íslandsmet nánast í hvert sinn sem mætt var á mót. Þeg- ar mikið stuð var komið í sundkrakk- ana okkar og við að tapa okkur með hvatningarópum og söngvum á laug- arbökkunum var oft sem keppnis- andinn bæri okkur ofurliði. Minnist ég þess á Akranesi 1988 að við full- orðna fólkið fórum í keppni í frjáls- um. Þú stökkst lengst í langstökki og sagðir að þetta væri í genunum. Pabbi þinn var jú heimsmeistari öld- unga í íþróttum og eitthvað hefur þú nú fengið þaðan. Ég gleymi aldrei harðsperrunum sem fylgdu þessarri uppákomu en við þráuðumst lengi við hinir foreldrarnir að reyna að slá metið þitt. Einu sinni bjargaðir þú mér úr algjörri krísu þegar stelpurn- ar okkar voru að slá enn eitt metið og ég var kominn á rangan laugarbakka og gekk á varðarkofann svo glumdi í öllu. Mótsstjórnin vildi kæra þetta en þú sagðir að fyrst stelpurnar settu met mætti ekki eyðileggja það fyrir þeim og þú lofaðir því að þetta kæmi ekki fyrir aftur. Takk Ómar, þetta voru ógleymanlegir tímar og lífið gaf okkur gleði alla daga. Mann- leg samskipti þín voru ávallt með léttu ívafi húmorsins og blandað með hóflegri kímni raunveruleikans. Revíurnar þínar um bæjarbraginn okkar eru meistarastykki. Þú og Leikfélagið fóruð hreinlega á kost- um og gerðuð margan bæjarbúann ódauðlegann, Árni Óla sem Gvendur þribbi, HBBMEGABEIB og Palli Bjútí, Sprelli bæjó, Steini á hótel- inu…, ég bara tárast við að rifja þetta upp. Kæri vinur, hafðu þökk fyrir sam- ferðina og alla hjálpina sem þú veitt- ir mér er pabbi minn dó, Guð verndi þig og blessi. Heiðurstónleikarnir um daginn voru frábærir, ég komst og sat aftast. Ég náði ekki að kveðja þig fyrir mannmergðinni en trega- blandin er þessi kveðja, fjölskyld- unni sendi ég einlægar samúðar- kveðjur, Tómas J. Knútsson. Fallinn er frá góður vinur minn langt um aldur fram, Ómar Jóhanns- son. Ég man vel þegar Jói og Anna fluttu í Garðinn með barnahópinn sinn og fóru að búa í skólanum. Ég man eftir hægum og prúðum dreng, ljósum yfirlitum sem bauð af sér góðan þokka það má segja að hann hafi verið hvers manns hugljúfi, þessi lýsing átti við hann alla tíð. Kynni okkar urðu nánari eftir sem árin liðu og við urðum nágrannar en við bjuggum sinn hvorum megin við Sunnubrautina og var hann því nefndur eftir það Ommi á móti. Þeg- ar á unglingsárunum hans fórum við að spila saman fótbolta með Knatt- spyrnufélaginu Víði í Garði. Ómar var flinkur með boltann og góður knattspyrnumaður, hann gerði allt með lipurð en ekki krafti og látum, hann skipti sjaldan skapi og var ávallt jákvæður. Sem unglingur var hann einn af aðalgæjunum, alltaf með gítarinn að spila og syngja. Ég man hvað eldri dóttur okkar fannst mikið til þess koma að fá ásamt öðrum krökkum að hlusta á hann spila og syngja. Það var stæll á honum þegar haldið var út á lífið, ávallt klæddur eins og töff- ararnir í síðum frakka og háum skóm eins og tískan bauð uppá í þá daga. Einn þáttur í starfi Knattspyrnu- félagsins Víðis var að halda árshá- tíðir og voru þær vinsælustu skemmtanir sem haldnar voru í Garðinum á þeim tíma. Í sönghópn- um fyrir árshátíðarnar hjá Víði vor- um við yfirleitt fjórir. Nú eru tveir gengnir og ég er viss um að Júlli og Ommi byrja fljótlega að æfa söng. Við störfuðum mikið saman eða í tæp 20 ár, sungum, lékum og var und- irbúningurinn þó nokkur því skemmtiatriðin voru öll frumsamin og kom sér þá vel að hafa þá feðga Ómar og Jóhann báða talandi skáld. Það voru samdir heilu vísnabálkarn- ir á einni kvöldstund, það að búa til eitt leikrit var ekkert mál, ég sé um það, var hann vanur að segja og hafið þið ekki áhyggjur. Svo kom leikritið nokkrum dögum fyrir árshátíð og alltaf gerði það stormandi lukku. Þetta tímabil þegar við komum í samkomuhúsið til að æfa söng og leiki var oft skemmtilegasti tíminn á árinu, þá var ekki spáð í það hvað klukkan var og oft var komið mjög seint heim. Það var mikið hlegið og var það ekki síst fyrir framlag Omma, þetta eru ógleymanlegar stundir sem ég vil þakka fyrir. Ég vil líka þakka fyrir störf hans fyrir Knattspyrnufélagið Víði í þau ár sem ég var formaður og veit ég að ég tala fyrir munn okkar allra sem störfuðum með honum á þeim tíma. Ég þakka einnig vináttu hans við mig og mína fjölskyldu sem ávallt hefur haldist. Kæra fjölskylda, við Didda vottum ykkur öllum okkar dýpstu samúð og biðjum algóðan Guð að geyma góðan dreng. Sigurður Ingvarsson. Kæri vinur, þá er komið að leið- arlokum í þessari umferð. Eftir erfið veikindi, sem þú barðist við af krafti, er komið að því að þú hvílist. Ég hef undanfarna mánuði fylgst með bar- áttu þinni við illvígan sjúkdóm og verð að segja að hugrekki þitt og æðruleysi var aðdáunarvert. Nú þegar ég sest niður til að skrifa þér nokkrar línur hrannast upp minningarnar. Þær voru margar góðu stundirnar sem við áttum sam- an og ekki hægt að setja það allt í stutt bréf. Man eftir því þegar þú komst fyrst í Gaggó í Keflavík. Þú varst þá strax nokkurs konar bóhem, þótt hvorugur okkar vissi þá hvað það orð þýddi. Það var bara þinn stíll. Alla tíð síðan hefur þú verið al- vöru bóhem og lifað lífinu sem slíkur. Snemma tók ég eftir því að þú varst að setja niður orð á blað, þú hugsaðir og talaðir stundum í gátum að okkur fannst hinum krökkunum. Það var þín gæfa að hafa erft þennan eiginleika frá pabba þínum, honum Jóa kennara. Áhugi þinn á skriftum var svo bakkaður upp af músíkáhuga. Manstu þegar við stofnuðum hljóm- sveitina, sem átti að gera út frá Garði? Þú safnaðir saman nokkrum vinum til að spila með þér, en komst að því að ekki var mikil framtíð í þeirri útgerð strax á fyrstu æfingu. Seinna rættist músíkdraumurinn með hljómsveitinni HA þar sem þú söngst með tilþrifum. Allir vita svo hvernig þú sameinaðir skriftir og músík í revíunum þínum góðu. Þar naut sín líka húmorinn, sem þú varð- veittir fram á síðasta dag. Íþróttamaður varstu góður. Það fékk ég að reyna bæði sem andstæð- ingur og samherji. Upp í hugann koma árin sem við vorum samherjar í fótbolta með Víði. Það voru skemmtilegir tímar. Oft eftir æfing- ar var komið við hjá Önnu og Jóa kennara til að fá flatkökur með hangikjöti. Alltaf var hægt að koma til þeirra hjóna og spjalla um hluti sem ungt fólk talaði ekki auðveldlega um við annað fullorðið fólk. Svo æxlaðist það þannig að við fór- um að vinna saman í Verzlunarbank- anum í Keflavík. Þar varst þú sá, sem hélst húmornum og góða mór- alnum í topplagi. Á þeim tíma lét sjúkdómur sá sem að lokum lagði þig að velli fyrst á sér kræla. Í það sinnið vannst þú þinn stærsta sigur og rakst hann á flótta. Manstu árið 1978, þegar við gerð- um samninginn um að hætta að reykja og nota peninginn sem í það fór heldur til að fara saman á heims- meistarakeppnina í handbolta í Dan- mörku? Allir vissu að við reyktum báðir í laumi en þó gátum við ein- hvern veginn falið þetta hvor fyrir- öðrum þar til kom að því að leggja upp í ferðina. Á fríhafnarbarnum rétt fyrir útkall í vélina horfðumst við í augu og orðalaust gengum við saman inn í fríhöfn og keyptum kart- on af sígarettum. Þegar þeim við- skiptum var lokið brostum við hvor til annars og gengum hamingjusamir um borð. Þessi ferð var einhver sú skemmtilegasta, sem ég hef farið, og oft höfum við skemmt okkur við að rifja upp óborganleg atvik úr henni. Lífið var ekki alltaf dans á rósum hjá þér. Slagurinn við sjúkdóma og Bakkus gamla setti mark sitt á þig, en allt þar til nú hefur þú staðið uppi sem sigurvegari. Það var þér líkt að þegar lokadómurinn kom varstu pollrólegur og ég fann æðruleysið streyma frá þér. Efst í huga þínum var að koma hlutum þannig fyrir að fjölskyldu þinni væri borgið. Það tókst þér, með aðstoð fjölskyldunnar og ótalmargra vina þinna. Þær voru blendnar tilfinningar mínar þegar kom að lokastundinni hjá þér Ómar minn. Annars vegar gleði yfir því að þjánigum þínum var loks lokið og hins vegar ósætti við að missa góðan vin, sem ég var alls ekki tilbúinn að vera án. Svona er þetta bara, það hefur enginn lofað okkur því að lífið sé alltaf sanngjarnt. Guðný, Sella, Lúlli og Hjördís, þið voruð Ómari vini mínum ómetanleg í veikindunum. Ég votta ykkur samúð mína. Við sjáumst síðar Ómar minn. Ragnar Marinósson. Nú er góður vinur minn farinn. Hann Ómar Jóhannsson. Hann var einn traustasti vinur sem ég hef átt. Ég kynntist honum fyrir um 12 ár- um, þegar þau hjón Ómar og Guðný ráku videoleiguna Heimabíó við Njálsgötu. Kynni okkar byrjuðu á að ég var búinn að versla við hann í nokkurn tíma, þegar við komumst að því að við höfðum báðir áhuga á enska bolt- anum, og ekki var það verra að við komumst báðir að því að við vorum Chelsea-menn. Það var eins og við værum báðir hissa á að finna hvor annan sem stuðningsaðila þessa liðs. Eftir þetta var ekki aftur snúið, við áttum margt sameiginlegt. Það sem mér fannst kærast við Ómar var að við gátum treyst hvor öðrum fyrir flestu. Alltaf var ég sem og aðrir velkom- inn á heimili þeirra Ómars og Guð- nýjar. Það var alltaf gaman að koma í kaffi til þeirra hjóna á Skelja- granda. Fljótlega eftir að þau seldu sölu- turninn greindist Ómar með sjúk- dóminn sem fylgdi honum til loka. Bjartsýni var mikil eftir að hann gekkst undir aðgerð, og honum gefið jákvætt svar með framhaldið. Fjórum mánuðum eftir aðgerðina fórum við austur á Egilsstaði, þar sem ég var við jarðarför æskuvinar míns, og fórum við akandi. Guðný hvatti hann til að fara ef hann treysti sér. Þá tók ég eftir því hvað honum þótti vænt um landið sitt. Hann rakti fyrir mér sveitalífið á Suðurlandi þar sem hann var í sveit sem ungur drengur, og var það merkilegt hvað hann var minnugur á staðhætti og heiti bæja og fólkið sem þar bjó. Þetta var mér yndisleg ferð. Í júní í fyrra fórum við aðra ferð. Ég þurfti að fara til Egilsstaða og spurði Ómar hvort hann vildi koma með. Ekki um annað að ræða! Og Guðný hvatti hann til að fara. Við flugum austur og keyrðum norðurleiðina heim. Þá komst ég að því hvað hann var vel inn á andlegu leiðinni. Þar vorum við í sameigin- legu áhugamáli. Við vorum ekki allt- af sammála, en það treysti okkar vin- áttu að tala af hreinskilni. Ómar samdi margar revíur og setti saman vísur eins og að drekka vatn. Hann fékk mig til að koma með sér á generalprufu á revíunni ,,Í bænum okkar er gott að búa“ og skemmti ég mér vel. Hann átti svo auðvelt með að koma frá sér því sem hann hugsaði, og það á fyndinn hátt. Hann var með í huga að semja leikrit sem hann sagði mér frá. Ég hefði vilja sjá það á blaði, þetta var frábær hugmynd. En honum entist ekki tími til þess. Eftir síðustu áramót var séð hvert stefndi. Hann tók því af stakri ró, og fylgdist með öllu allan tímann. Ég er svo þakklátur fyrir að hafa verið hjá honum og horft með honum á síðasta leik okkar með Chelsea kvöldið áður en hann kvaddi, og þeg- ar við kvöddumst sagði ég ,,við sjáumst aftur,“ hann brosti og sagði ,,við sjáumst“ og brosti til mín. Ég veit að við sjáumst seinna. Ég tel mig vera heppinn mann, að hafa kynnst Ómari. Mig langar til að segja svo margt um vin minn Ómar, sem ég sakna og finn til mikils missi í lífi mínu, en það sem honum var svo létt, er mér erf- itt. Það er að skrifa. Elsku Guðný, börn og ættingjar, af vanmætti hef ég svo lítið að segja, nema: Guð veri með ykkur. Ég kveð þig vinur með bæninni: Guð gefi mér æðruleysi … Það bið ég guð minn að gefa mér. til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt, … Það er þar sem vanmáttur minn er, en Guð hjálpar mér. kjark til að breyta því sem ég get breytt … Það að hugsa um allar góðu stund- irnar með Ómari. og vit til að greina þar á milli. Þar bið ég svo sannarlega Guð að hjálpa mér, vanmáttugum manni. Ávallt ykkar vinur. Björgvin. Elskuleg móðir okkar, RÓSA GUNNLAUGSDÓTTIR fyrrum húsfreyja á Ártúni, Langanesi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnhlíð í Kópavogi miðvikudaginn 17. mars. Börn hinnar látnu. Elskuleg systir mín, ARNLEIF JÓNSDÓTTIR, Vitastíg 8, Hafnarfirði er látin og hefur útför hennar þegar farið fram. Fyrir hönd vandamanna, Bryndís Jónsdóttir, Vitastíg 8.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.