Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 46

Morgunblaðið - 19.03.2004, Page 46
MINNINGAR 46 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Jóhann G. Sig-urðsson fæddist á Akureyri 25. júní 1958. Hann lést á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri 12. mars síðastliðinn. Foreldrar Jóhanns eru Sigurður Jó- hannsson og Svava Valdimarsdóttir. Systkini hans eru þau Lovísa Rúna, búsett á Þorlákshöfn, Valdi- mar, búsettur á Ak- ureyri og Bjarki, bú- settur í Reykjavík. Jóhann hóf sambúð með Jó- hönnu Hartmannsdóttur árið 1981 og giftust þau 27. maí 1995. Saman eiga þau dótturina Díönu, f. 27. maí 1982 og stjúpsoninn Tryggva Rúnar Jónsson, f. 19. nóvember 1977. Fyrir átti Jóhann dótturina Svan- borgu Önnu, f. 3. janúar 1980. Jóhann ólst upp í Ólafsfirði. Hann lauk námi í rafvél- virkjun frá Iðnskól- anum í Reykjavík ár- ið 1978 og rafiðnfræði frá Tækniskóla Íslands árið 1982. Starfaði hann hjá Rafveitu Akureyrar sem for- stöðumaður tækni- deildar í fjögur ár og stofnaði síðan sitt eigið ráðgjafafyrirtæki sem hann starfaði hjá í tvö ár. Hann starfaði hjá og var einn af eigendum verk- fræðistofunnar Raftákns frá 1988. Útför Jóhanns verður gerð frá Akureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi og afi, þá er komið að kveðjustund, þó svo að við vild- um að stundirnar hefðu verið fleiri. Við munum alltaf sakna þín. Þú sem varst rétt að kynnast litlu afastelp- unni þinni og ég veit að þú hefðir viljað eyða fleiri stundum með okk- ur. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði’ er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (Valdimar Briem.) Að eilífu sofðu rótt, elsku pabbi og afi. Svanborg Anna, Vala Karen og Ingólfur. Við erum öll áhorfendur að hinu eilífa tifi tímans, lífi og dauða. En þegar ástvinur deyr þá erum við samt alltaf óviðbúin að taka miss- inum og sorginni, jafnvel þótt ljóst sé að hverju stefnir. Frændi minn, hann Jóhann, er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúk- dóm og þær eru margar minning- arnar sem koma upp í hugann á þessari stundu. Jóhann var alltaf mjög hress og hann gat alltaf litið á björtu hlið- arnar á málunum og fengið fólkið í kringum sig til að brosa og líta björtum augum á lífið. Á þessari stundu hugsum við til hans með það í huga. Ferðin sem við fórum saman til Benidorm sumarið eftir að við Díana fermdumst var ógleymanleg og höfum við oft rifjað upp og hlegið að því þegar við gengum búð úr búð í leit að réttum sokkum sem tónuðu við buxurnar hans Jóhanns. Ekki eru nema nokkrar vikur síðan þú hringdir í mig og sagðist hafa sent mér tölvupóst með mynd af þér í nýjum buxum þar sem ég átti að segja til um hvort sokkarnir tónuðu við nýju buxurnar þínar. Jói frændi skilur eftir sig margar góðar minningar og það eru kannski ekki stóru atburðirnir sem standa eftir heldur eru það þessir litlu at- burðir sem eru tærari í minning- unni og munu þessar minningar lifa með mér alla ævi. Í hjarta mínu lifir góð minning um góðan mann og mun hún lifa svo lengi sem ég lifi. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín frænka, Helga Rúna. Í dag, 19. mars, verður til grafar borinn vinur okkar og vinnufélagi Jóhann G. Sigurðsson. Enn einu sinni hefur hinn skelfi- legi sjúkdómur krabbamein lagt góðan dreng að velli. Þar er skarð fyrir skildi. Jóhann kom til starfa hjá Raf- tákni árið 1988 og gerðist fljótlega meðeigandi í fyrirtækinu. Auk þess að vera góður vinur og félagi var hann sérstaklega skipulagður og góður fagmaður. Verk hans voru þannig unnin að viðskiptavinir leit- uðu aftur og aftur til hans þegar þeir þurftu á aðstoð að halda. Í tvö og hálft ár barðist hann við sjúkdóminn og aldrei kom til greina að gefast upp. Fram á síðasta dag setti hann sér markmið um að byggja upp þrek og alltaf hafði hann opin augun fyrir verkefnum og tækifærum fyrirtækinu til handa. Það verður erfitt að fylla hans skarð. Um leið og við þökkum Jóhanni samfylgdina vottum við Jóhönnu, Díönu, Tryggva og öðrum aðstend- um okkar dýpstu samúð. Starfsfólk Raftákns. Í örfáum orðum langar okkur að minnast skólabróður okkar, Jó- hanns Sigurðssonar, sem fallinn er nú frá langt um aldur fram. Leiðir okkar lágu saman strax í barnæsku og saman áttum við leið í gegnum Barnaskólann í Ólafsfirði og síðar Gagnfræðaskólann. Öll minnumst við Jóhanns sem ljúfmennis og góðs drengs sem okkur þótti öllum vænt um. Þegar hugurinn leitar til bernskuáranna finnst okkur að allt- af hafi sólin skinið skært og fjöllin í firðinum okkar hafi speglast í speg- ilsléttum haffletinum. Allir krakk- arnir úti langt fram á kvöld að leika sér. Mitt í þessum minningum er minningin um Jóhann og í hjarta okkar allra mun hann ávallt eiga vísan stað. Þegar við hittumst síðast skólasystkinin fyrir tveimur árum kom Jóhann þrátt fyrir erfið veik- indi. Núna erum við fegin að hafa þetta tækifæri til þess að kveðja hann hinsta sinni. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Ástvinum sendum við okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Guð geymi þig kæri skólabróðir. Árgangur 1958 í Ólafsfirði. Raftákn ehf. verkfræðistofan á Akureyri hefur misst góðan dreng langt um aldur fram. Ég minnist áhuga og metnaðar Jóhanns fyrir vandaðri vinnu og bestu lausnum í allri hans fagmennsku. Fyrir mörgum árum kvatti Tóm- as Kaaber rafhönnuður mig til að mæta á fund Ljóstæknifélagsins, en þar átti að veita viðurkenningu fyrir bestu lýsingar það árið. Mér er helst minnisstætt, þegar þeir bestu voru kallaðir til, að þar steig á senuna ungur, glæsilegur maður sem var vel máli farinn og þakkaði fyrir sig af kunnáttu. Ég spurði Tómas hver þessi ungi maður væri. ,,Hann er að norðan, frá Akureyri, frá fyrirtækinu Raf- tákn.“ Þá var Jóhann á þrítugsaldri. Ég átti því láni að fagna að kynn- ast Jóhanni til margra ára varðandi lýsingarmál. Óþrjótandi metnaður hans til að kynnast lýsingarlausnum við allar aðstæður tryggði vináttu okkar fyr- irtækja til margra ára. Nú er Jóhann farinn til orku- heima trúar og kærleika þar sem allir mætast um síðir. Jóhanns verð- ur sárt saknað. Við vottum fjölskyldu og vinum Jóhanns innilega samúð. Gísli Holgersson. Það er sárt að kveðja góðan vin og félaga sem fellur frá í blóma lífs- ins. Lífið er oft ósanngjarnt og það er dauðinn líka og þó að við leitum að tilgangi og skýringum á erfiðum veikindum og ótímabæru andláti þá finnast þær ekki auðveldlega. Það er þó oft sagt að máttarvöldin leggi byrðarnar á herðar þeirra sem hafa styrk til að bera þær og Jói hafði sannarlega styrk og skapfestu til að axla þungar byrðar. Fyrstu kynni mín af Jóa voru gegnum Alþýðuflokkinn en Jói var mikill jafnaðarmaður og virkur í flokksstarfinu. Sökum mannkosta og mikils áhuga var hann oft feng- inn til trúnaðarstarfa á vegum Al- þýðuflokksins og síðar Samfylking- arinnar. Jói sat meðal annars í stjórn Jafnaðarmannafélags Eyja- fjarðar og hann tók einnig sæti í fyrstu stjórn Samfylkingarinnar á Akureyri. Jói var ötull talsmaður samstarfs og síðar sameiningar jafnaðarmanna og taldi að við hefð- um auðvitað átt að vera búin að þessu fyrir löngu. Á síðasta kjörtímabili var Jói for- maður Húsnæðisnefndar Akureyrar og tók einnig við formennsku í Vetr- aríþróttamiðstöð Íslands sem hann gegndi þar til nú fyrir skömmu. Hann átti þó sæti áfram sæti í stjórn VMÍ allt til dauðadags. Jói var mikill áhugamaður um vetraríþróttir, ekki síst skíðaíþrótt- ina, en hann var sjálfur mikill skíða- kappi á yngri árum. Yfirburðaþekk- ing hans á þeirri íþrótt kom að góðu gagni í stjórn VMÍ ásamt framsýni og skipulagshæfileikum. Jói var mikill áhugamaður um snjógerð í Hlíðarfjalli og taldi að ef byggja ætti upp eftirsótt skíðasvæði til framtíðar væri nauðsynlegt að tryggja skíðafólki snjó í brekkurnar allan veturinn. Snjógerðin var Jóa efst í huga í okkar síðasta spjalli og ég lofaði honum því að styðja eftir mætti við hugmyndina. Samfylkingin hefur mikið misst við fráfall Jóa. Við, félagar hans, sem kveðjum hann núna, höldum minningu hans best á lofti með því að starfa áfram í hans anda og með sömu hugsjón að leiðarljósi. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Jóa og notið vináttu hans og stuðnings. Fjölskyldu Jóa, sem hefur staðið styrk við bakið á honum, votta ég innilegustu samúð mína. Oktavía Jóhannesdóttir. Jóhann G. Sigurðsson kvaddi okkur langt um aldur fram. Hann var búinn að heyja hetjulega bar- áttu við krabbamein í nokkurn tíma. Kynni okkar Jóhanns byrjuðu er undirrtaður fluttist til Akureyrar árið 2000 er Jóhann var formaður Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands. Jóhann var einn af mínum traustu vinum á Akureyri. Það var ávallt gott að ræða við Jóhann, hann var góður hlustandi og gat sett sig í spor annarra. Hann var einstakur maður að vinna með. Sem formaður Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á árunum 2000-2004 var Jó- hann einn af hvatamönnum nýrrar stólalyftu sem reis í Hlíðarfjalli og tekin í notkun árið 2002. Ég minnist þess sérstaklega þeg- ar ég fór heim til Jóhanns með fyrsta stólinn, en þá hafði hann ein- mitt verið nýkominn heim úr sinni fyrstu aðgerð, jákvæðni til lífsins var afgerandi þrátt fyrir veikindin. Hann var metnaðargjarn, nákvæm- ur og þótt ekki bæri mikið á honum var hann fullur eldmóðs og hann átti sér stóra drauma sem hann lét rætast, að gera Akureyri að mið- punkti vetraríþrótta. Það var gam- an að fylgjast með Jóhanni þegar hann fór að kynna sér framtíðar- verkefni VMÍ, meðal annars snjó- framleiðslu. Það verkefni tók hann alvarlega og var einn af helstu tals- mönnum þess. Fyrir hönd Vetraríþróttamið- stöðvar Íslands votta ég eftirlifandi konu hans Jóhönnu og fjölskyldu dýpstu samúð. Guðmundur Karl Jónsson. JÓHANN G. SIGURÐSSON ✝ Ingibjörg Arn-fríður Helga- dóttir fæddist á Geiteyjarströnd í Mývatnssveit 30. mars 1930. hún lést á heimili sínu Dalbæ á Dalvík 9. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríð- ur Ásmundsdóttir húsfreyja á Geiteyj- arströnd, f. 25. sept. 1896 d. 26. maí 1985 og Helgi Þorsteins- son bóndi þar, f. 15. sept 1889 d. 16. febrúar 1978. Ingibjörg var önnur í röð þriggja 1975, síðast búandi á Karlsá við Dalvík. Ingibjörg og Haraldur eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Helga Dýrleif, f. 27. janúar. 1950, maki Ragnar Reykjalín Jóhann- esson, þau eiga fjögur börn og tvö barnabörn. 2) Ingvar, f. 23.desember 1953, maki Ásrún Aðalsteinsdóttir og eiga þau fimm börn og eitt barnabarn. 3) Guðmundur, f. 18. október 1966, hann á eina dóttur. 4) Hjörleifur Mar, f. 11. nóvember 1967. 5) Sigríður Björg, f. 26. mars 1969, maki Þorsteinn Eyfjörð Friðriks- son, þau eiga þrjú börn. 6) Har- aldur Örn, f. 12. ágúst 1970, maki Elísabet Guðmundsdóttir. Fyrstu sambúðarár sín bjuggu Ingibjörg og Haraldur á Karlsá með foreldrum Haraldar en fluttu svo til Dalvíkur og bjuggu lengst af í Grundargötu 1 en síð- ustu árin í Bjarkarbraut 23 og síðast á Dalbæ. Útför Ingibjargar verður gerð frá Dalvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. systra, hinar eru Kristjana, f. 5. maí 1927 d. 26. júní 1927 og Sigurlína, f. 4. sept. 1933. Eiginmaður Ingi- bjargar var Haraldur Ingvar Guðmundsson rafvirkjameistari, f. á Knappstöðum í Holts- hreppi í Skagafirði 28. apríl 1920 d. 17. júní 2001. Foreldrar hans voru Guðmund- ur Guðmundsson, f. 29. ágúst 1886 d. 11. febrúar 1966 og Sig- urbjörg Stefanía Hjörleifsdóttir, f. 10. mars 1898 d. 22. október Nú er kveðjustundin komin elsku mamma mín og þú fengið lausn frá þeirri þrautagöngu sem sjúkdómur þinn var. Þú fórst skyndilega, eins og kölluð, með bros á vör til að vitja skapara þíns. Það er margs að minnast, þú varst hæfileikarík kona og mikið fyrir handverk, hljóðlát og barst ekki mikið á. Þegar ég hugsa um þig dettur mér í hug fallegur dúk- ur, útsaumuð mynd eða önnur handavinna, blómahafið í stofunni, berjatínsla á Karlsá á haustin og löngunin til að njóta og skoða land- ið okkar Ísland. Ég varð þeirra forréttinda að- njótandi í uppvextinum að hafa n.k. einkahönnuð því að allt sem ég bað um eða teiknaði á blað gast þú saumað, prjónað, heklað eða útbúið á annan hátt. Í mínum augum gastu ,,allt“. Þú sveitastúlkan varst ekkert að amast við vængbrotnum fuglum, músum, veikum sel eða öðru sem við krakkarnir bárum heim, tókst því með jafnaðargeði og kenndir okkur að elska og virða náttúruna. Þú varst góð manneskja, gjafmild og umfram allt ótrúlega þolinmóð við þennan krefjandi barnahóp þar sem oft gekk mikið á. Ég er þakklát fyrir tímann okkar saman og starfsfólki og heimilis- fólki Dalbæjar sem bjó þér ástríkt og öruggt heimili þar sem þér leið vel síðustu árin. Guð geymi þig Sigríður Björg. Eitt af því dýrmætasta sem til er í heiminum eru ömmur. Sagt hefur verið að ömmur séu englar í dul- argervi og það er svo sannarlega satt. Það er svo sárt að þurfa að kveðja þig, elsku amma. Þú stóðst alltaf sem klettur við hliðina á afa og þegar hann fór þá hvarf líka stór hluti af þér. Nú eruð þið saman á ný þar sem við vitum að ykkur líður best. Þær voru ófáar stundirnar sem INGIBJÖRG ARNFRÍÐUR HELGADÓTTIR tja. ra- m í við ar, axa og ðar til að um akó átu ild. oða du- öð- mas ík- Þar og ðra gja frá nu em um æk- og háa úf- lu- oft yr- . Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.