Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 49
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 49 ✝ Hilmar H. Gests-son fæddist í Reykjavík 13. októ- ber 1924. Hann lést á líknardeild Landspít- alans á Landakoti 13. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gestur Hannesson pípulagningameist- ari, f. 14.2. 1901, d. 25.5. 1997 og Guðrún Ólafsdóttir húsmóð- ir, f. 23.8. 1898, d. 26.4. 1979. Systkini Hilmars eru Ólafur, f. 29.1. 1927, d. 25.9. 1992, maki Inga Axelsdóttir, Gyða, f. 24.1. 1930, Viðar, f. 14.11. 1933, maki Halldóra Karlsdóttir og Erla, f. 25.12. 1942, maki Skarphéðinn Njálsson. Hilmar kvæntist hinn 26. ágúst 1960 Hönnu Kristinsdóttur hús- móður, f. 3. ágúst 1933, d. 28. des- ember 2001. Foreldrar hennar voru Kristinn Ottason skipasmið- ur og Guðlaug Eiríksdóttir hús- móðir, þau eru bæði látin. Börn Hilmars og Hönnu eru: 1) Kristinn skrifstofumaður, f. 15 nóvember 1960, kvæntur Patriciu Albuquerque, og eru synir þeirra Kristinn A, f. 1997 og Hilmar A., f. 2002. 2) Gestrún flugfreyja, f. 11. ágúst 1964, gift Garðari Vil- hjálmssyni, f. 21. september 1965, synir þeirra eru Hilmar Blöndal, f. 1985, Vilhjálmur Árni, f. 1990 og Unn- dór Kristinn, f. 1992. 3) Eiríkur markaðs- stjóri, f. 24. maí 1971, maki Linda Björk Helgadóttir, f. 22. júní 1971, börn þeirra eru Einar Örn, f. 1992, Guð- laug, f. 1999 og Ísa- bella Hanna, f. 2002. Fyrir átti Hilmar soninn Jóhann Óla fuglafræðing, f. 26. desember 1954 og á hann eina dóttur, Oddnýju Össu, f. 1987. Hilmar lærði til vélvirkjunar hjá Vélsmiðjunni Héðni og lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1946. Þaðan lá leið hans í Vél- skólann og lauk þaðan vélstjórn- arprófi árið 1950. Hilmar var vél- stjóri á skipum Skipaútgerðar ríkisins (Ríkisskip) frá árunum 1950-1966 og á skipum Jökla hf. frá 1966-1969. Frá janúar 1969 var hann vélstjóri á skipum Eim- skipafélags Íslands og starfaði þar sleitulaust þar til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1991. Útför Hilmars fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku hjartans pabbi minn, mikið óskaplega er sárt að kveðja þig en nú ertu kominn til hennar mömmu og ég veit að ykkur líður vel saman. Fyrir örfáum vikum varstu hraustur og fínn, fórst í þínar venju- legu göngu- og hjólaferðir tvisvar á dag, sama hvernig viðraði og borð- aðir bara hollan mat. Svona varst þú, hugsaðir alltaf vel um heilsuna og varst sannur reglumaður í einu og öllu og einstakt snyrtimenni. Það er því sárara að kveðja þig nú þar sem þú áttir að eiga svo mikið inni. Þú varst ekki bara pabbi minn heldur vinur minn líka og mikill fé- lagi strákanna minna. Þú varst besti pabbi sem hægt er að hugsa sér. Þú lifðir fyrir okkur börnin þín og barnabörnin og fylgdist vel með öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og tókst mikinn þátt í okkar daglega lífi. Þú varst umburðarlyndur, hlýr og vildir allt fyrir alla gera, þú varst drífandi og hvattir okkur systkinin til dáða í hverju sem við tókum okk- ur fyrir hendur. Þú varst kletturinn okkar þegar hún mamma dó og hjálpaðir okkur í gegnum sorgina og söknuðinn og sýndir af þér mikinn kraft, þor og dugnað þá sem og nú í veikindum þínum, elsku pabbi minn. Nú hefur enn á ný myndast tóma- rúm í hjörtum okkar sem ekki verð- ur fyllt en við yljum okkur við allar fallegu minningarnar um þig og þökkum þér fyrir allt, elsku pabbi minn. Guð geymi þig. Þín dóttir Gestrún. Mér er minnisstæð sú stund fyrir um átta vikum þegar ég og Gestrún systir mín fórum með pabba upp á slysavarðstofu, þar sem jafnvægis- skynið var eitthvað skrítið hjá hon- um og önnur höndin var hálf mátt- laus. Pabbi ætlaði ekki að fást til þess að fara þennan dag, það var sunnudagur, hann sagði við okkur „förum bara á morgun“. Í mínum huga hlaut þetta að vera eitthvert minniháttar vandamál, eitthvað sem hann myndi jafna sig á fljótt og vel. Hann var í frábæru líkamlegu ástandi miðað við aldur, og ég sá hann alltaf fyrir mér sem rúmlega níræðan heilsuhraustan mann, svo vel fór hann alltaf með sig. En svo þegar hjúkrunarfræðingur kemur til okkar og ber þær fréttir til okkar að útlitið sé ekki gott, pabbi sé með æxli við heila, þá leið mér eins og ég væri staddur í mjög vondum draumi, og ég vildi vakna hið snarasta. En ör- lögin voru víst óumflýjanleg. Ég hugsaði með sjálfum mér, það er greinilega verið að kalla elsku pabba minn inn til einhverra góðra verka hjá almættinu, og brátt yrðu foreldr- ar mínir sameinuð á ný. Pabbi sýndi ekki nein merki þess að hann hefði verið að fá verstu fréttir lífs síns, heldur hélt hann ró sinni en sagði fátt. Ég veit að hugur hans hefur fyllst af mörgum hugsunum á þess- ari stundu þó svo hann hafi ekki deilt þeim með okkur systkinunum. Þetta var líkt honum pabba, hann sýndi aldrei nein merki um veikleika, við- urkenndi meira að segja aldrei að hann væri kvefaður þó augljóst væri, hvað þá heldur ef eitthvað alvarlegra bjátaði á. Hann passaði ávallt upp á að halda reisn sinni, og var alltaf sá sem klappaði á bakið og hughreysti á erfiðum stundum. Pabbi var alveg frábær fyrirmynd, hann var heiðar- legur, traustur, trúr þeim sem hon- um þótti vænt um. Vildi allt fyrir alla gera og var mjög liðtækur þegar eitthvað þurfti að laga hjá hans nán- ustu. Natni hans og snyrtimennska í því sem hann tók sér fyrir hendur er algjörlega fáheyrð, enda þoldi hann aldrei óhreinindi eða óreiðu í kring um sig. Í huga mínum nú er mikið þakk- læti, þakklæti fyrir allt sem pabbi kenndi mér og gerði fyrir mig í lífinu og ég er líka þakklátur almættinu fyrir að fá að eiga Hilmar Hans Gestsson fyrir föður. Ég veit að þetta er engin kveðjustund, heldur skiljast leiðir eitt andartak, þar til við hittumst aftur, ég og foreldrar mínir. Eiríkur Hilmarsson. Elsku tengdapabbi. Ekki er allt sem sýnist í þessari veröld. Fyrir átta vikum síðan varst þú á þinni daglegu göngu um Vest- urbæinn og nesið, stökkst síðan uppí bílinn og kíktir í heimsókn, lagaðir vatnsleka í krönunum hjá mér, fékkst þér molasopa og spjallaðir, en nú ertu allur. Þú þessi heilbrigði og hrausti maður sem aldrei varst veik- ur. Það gagnast þér nú að þú ert ferðavanur maður, vanur langferð- um um heimsins höf og úfinn sæ, vanur ókunnugum slóðum og vanur löngum fjarverum frá þínum nán- ustu. Þú ert nú að leggja upp í þína hinstu og lengstu ferð til þessa á ókunn mið og ég veit að það er bæði lens og sléttur sjór í þessari ferð þinni elsku kallinn minn og vel verð- ur tekið á móti þér í þinni nýju heimahöfn. Fyrir aðeins tveimur mánuðum síðan varstu „eitthvað slappur í hendinni“ og fórst hikandi á spítalann til að láta kíkja á þetta smáræði. Þaðan komstu ekki aftur. Strax á fyrsta degi á spítalanum fékst þú þær voðalegu fréttir um að ekki væri von á bata. Þú tókst þess- um fréttum af fádæma yfirvegun og hugrekki og veittir meir að segja þínum nánustu huggun og von. Þú háðir hetjulega baráttu við vágest- inn, vitandi það að hann var betur vopnum búin og miskunnarlaus. Ég mun sakna þess að fá þig ekki í sunnudagslambið og þessar skemmtilegu stuttu heimsóknir oft í hverri viku. Þú fylgdist vel með öllu sem var að gerast hjá okkur öllum, hafðir áhuga og varst vel inní málum okkar. Í veikindum þínum varstu meir að spá í hverdagsleg málefni okkar allra en stöðu þína og veikindi. Það sýndi styrk þinn og áræði Hilm- ar minn að síðustu dagana varst þú að stjórna aðgerðum og ganga frá ýmsum málum og tryggja að allt væri í röð og reglu þegar kallið kæmi. Þú hafðir alltaf lúmska kími- gáfu og þeir sem þekktu þig vel skildu hana vel og þú beittir henni snilldarlega fram á síðustu stundu. Þú hefur alltaf verið harðduglegur og ósérhlífinn, látið verkin tala og ekki verið mikið fyrir tuð og orða- gjálfur og þú barst harma þína aldr- ei á torg. Þú hefur alla tíð verið ein- stakur reglumaður í einu og öllu og hef ég heyrt því fleygt frá gömlum samstarfsmönnum þínum hjá Eim- skip að vélarúmið hjá þér hafi oftar en ekki verið hreinna en matsalirnir á skipunum og það lýsir þér vel. Þú varst hreinskiptinn, horfðir alltaf fram á veginn og leist aldrei um öxl. Þú varst kletturinn sem brimið hræddist. Ég mun minnast sérstaklega sam- ræðna okkar núna um daginn á Landakoti þegar þú varst að rifja upp gömlu góðu dagana á sjónum. Ég er þér þakklátur að þú kaust að hafa mig hjá þér síðustu dagana, mínúturnar og sekúndurnar sem þú lifðir hér á jörðu niðri og eru þessar stundir ljósi umluktar í minningu minni. Ég er einnig þakklátur al- mættinu að hafa þrautagöngu þína ekki lengri úr því sem komið var og ég veit að þín er brýn þörf annars staðar. Minnig þín mun lifa með okk- ur öllum um aldur og ævi. Takk kær- lega fyrir samfylgdina elsku kallinn minn og góða ferð. Þinn tendasonur, Garðar Vilhjálmsson. Kær kveðja frá vinum. Vorið er að vakna, farfuglar á leið til okkar og blóm farin að sjást. Enn á ný hefur verið höggvið stórt skarð í vinahóp okkar. Góðvinur okkar Hilmar lést á Landakotsspít- ala eftir stutt veikindi. Hans góða eiginkona Hanna hvarf okkur fyrir aðeins tveimur árum, hennar er sárt saknað af vinahópn- um og ekki síst af eiginmanni sínum og börnum. Hanna og Hilmar voru frábær og góð hjón, samhent og dugleg. Þeirra er minnst með þakklæti og hlýju og þakkað fyrir góða margra áratuga vináttu og skemmtun. Nú verður þess saknað að rauði stífbónaði sportbíllinn rennur ekki oftar í hlað- ið að Þinghólsbraut. Hilmar okkar var glæsilegur, góð- ur eiginmaður faðir og sannur vinur sem aldrei talaði illa um náungann. Við minnumst þess hve annt hon- um var um heimili sitt, ekkert var of gott fyrir Hönnu og börnin. Fagrir hlutir prýddu heimili þeirra, var það ekki síst Hilmar sem stóð fyrir því að færa í bú ýmislegt fallegt og nytsam- legt. Öll verk léku í höndum þessa góðmennis. Því er fagnað að þau Hanna og Hilmar séu nú saman á ný, hún tek- ur á móti eiginmanni sínum, það er vissa okkar. Fjölskyldunni allri sendum við kæra kveðju og samúð. Guð geymi Hilmar og Hönnu. Sunneva og Guðmundur Snæhólm. Elsku Hilmar. Með örfáum orðum langar mig að þakka þér samfylgdina í gegnum líf- ið. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Hönnu í Granaskjólið og alltaf tekið svo vel á móti mér – alveg eins og ég væri ein af ykkar börnum. Ég var heppin að fá að kynnast þér og geymi yndislegar minningar um þig. Takk fyrir allt. Í hjarta mínu veit ég að þér líður vel núna – þú ert kominn til Hönnu og ég veit að þar viltu vera og hún hefur tekið vel á móti þér. Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum frið og styrk sem ekkert buga má. Auk mér trú og haltu huga mínum helgum lífsins vegi þínum á, svo að ég af hjartaþeli hreinu, hvað sem mætir, geti átt með þér daginn hvern eitt andartak í einu, uns til þín í ljóssins heim ég kem. (Sigurbjörn Einarsson.) Elsku besta Gestrún mín og fjöl- skylda. Guð varðveiti ykkur og gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg. Ykkar vinkona, Gróa. Þegar við Ingi Þór keyptum íbúð- ina okkar í Granaskjólinu fyrir 16 ár- um þá tókum við strax eftir þessum indælu nágrönnum, Hilmari og Hönnu. Þessum samrýndu hjónum á besta aldri sem bjuggu í næsta húsi. Frá fyrsta degi var samgangurinn mikill. Hanna var mikil húsmóðir og átti mörg góð ráð að gefa, og Hilmar sérfræðingur í að dytta að. Betri ná- granna var ekki hægt að hugsa sér. Hilmari féll aldrei verk úr hendi og eftir að hann komst á eftirlaun þá skipulagði hann daginn í þaula, hann var að mála húsið, steypa tröppurn- ar, klippa runnana, bóna bílinn eða uppi á þaki. Útiverkin og fram- kvæmdir voru hans líf og yndi og þá var Hilmar í essinu sínu. Ef eitthvað stóð til að gera í garð- inum eða einhverjar framkvæmdir stóðu yfir í húsinu hjá mér þá var hann alltaf mættur til skrafs og ráðagerða og þessi nærvera góðra nágranna var mér svo mikils virði. Við Hilmar fundum fljótt út að bæði vorum við mjög vanaföst og vildum hafa allt í föstum skorðum og fannst báðum gott að vita hvort af öðru og margan fundinn áttum við úti við girðingarstaurana þar sem við röbb- uðum saman um heima og geima og gáfum hvort öðru skýrslu um það sem á dagana hafði drifið undanfar- ið. Honum fannst alltaf gaman að heyra ferðasögurnar úr ferðunum okkar á húsbílnum, hvert við hefðum farið um helgina og hvort við hefðum fiskað eða gengið á fjöll. Ég gat nánast stillt klukkuna eftir honum Hilmari, því alla morgna kl. 11:00 fór hann í göngutúrinn sinn og svo aftur kl. 11:00 um kvöldið í þann seinni. Það var svo notalegt að sjá hann leggja í hann, alltaf með der- húfuna og veðrið hafði engin áhrif, hann bara klæddi sig eftir veðri og í göngutúrinn skyldi haldið, alltaf svo reffilegur og sportlegur. Ég spurði Hilmar eitt sinn hvort hann værir ekki bara til í að flytja sig um eitt hús og yfir til mín því mig vantaði nefnilega svona athafna- mann í sameignina hjá mér. Þá brosti hann þessu kímna brosi sem náði alla leið til augnanna og sagði svo margt. Fá orð en miklar mein- ingar, það var stíllinn hans. Svo dundi reiðarslagið yfir. Hilm- ar fór í myndatöku vegna slappleika í hendi og var greindur með ólækn- andi krabbamein í höfði og lagður inn á líknardeild. Þvílíkt áfall, hann sem kenndi sér ekki neins meins og nú bara bið. Þetta var stutt bið, að- eins tveir mánuðir. Stundum er lífið óréttlátt. En hann var sáttur í lokin og ánægður með aðbúnaðinn á deild- inni og nærveru hjúkrunarfólksins og það var mér mjög mikils virði. Við ræddum oft um hana Hönnu, hversu missirinn var mikill og hvað lífið var tómlegt án hennar. Nú ertu kominn til hennar aftur, elsku Hilm- ar minn. Guð geymi þig. Hanna Birna. HILMAR H. GESTSSON Þú skilur eftir auðlegð þá sem enginn tekið fær. Ást í hjarta, blik á brá, og brosin silfurtær. Mesta auðinn eignast sá er öllum reynist kær. (G.Ö.) Hinsta kveðja, Gyða systir og fjölskylda. HINSTA KVEÐJA Ástkær eiginkona mín, dóttir okkar, systir, mágkona, frænka, barnabarn og tengdadóttir, ÁSTA SYLVÍA BJÖRNSDÓTTIR, Eskihlíð 35, Reykjavík, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki miðvikudaginn 3. mars, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 20. mars kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsfélagið. Kristján Örn Jóhannesson, Oddný Finnbogadóttir, Björn Friðrik Björnsson, Emma Sigríður Björnsdóttir, Iain D. Richardson, Alma Emilía Björnsdóttir og systrabörn, Emma Hansen, Friðrik J. Friðriksson, Þóra Kristjánsdóttir. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, LAUFEYJAR JAKOBSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Vestur- götu 7 og Hrafnistu, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Edda Magnúsdóttir, Páll Jónsson, Inga Magnúsdóttir, Birgir Björnsson, Erlendur Finnbogi Magnússon, Elín Björg Magnúsdóttir, Finnur Torfi Hjörleifsson, Sigurbjörg Kristín Magnúsdóttir, Helga Hafdís Magnúsdóttir, Hinrik Einarsson, Jakob Skafti Magnússon, Þorleifur Magnús Magnússon, Guðlaug Steinsdóttir, barnabörnin og fjölskyldur þeirra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.