Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 55 Í næstu viku verða nokkuð óvenju- legir kyrrðardagar í Skálholti. Gunnar Eyjólfsson leikari, sem er kaþólskur maður, leiðir þar kyrrð- ardaga á virkum dögum í samvinnu við heimamenn. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem samkirkjulegir kyrrðardagar eru haldnir í Skál- holti. Allir eru velkomnir, hver sem kirkjudeild þeirra er. Þessir kyrrðardagar eru haldnir á virkum dögum, hefjast þriðjudag- inn 23. mars um hádegisbilið og lýk- ur síðdegis fimmtudaginn 25. mars. Stuðst við forna kínverska aðferð Qi Gong, sem er ævaforn kín- versk aðferð til þess að ná kyrrð hugans, innri sátt og ræktun lífs- orkunnar með ákveðnum öndunar og slökunaræfingum, liggur til grundvallar leiðsögn Gunnars um þessa Kyrrðardaga. Hann hefur um árabil leitt slíka hópa sem koma saman snemma morguns til und- irbúnings dagsverkinu. Á Kyrrð- ardögunum í Skálholti nýtir Gunnar Qi Gong sem verkfæri til þess að auðvelda þátttakendum að hvíla lík- ama og sál, endurnærast og uppbyggjast í samhengi Kyrrð- ardaganna, sem mótast af kyrrðinni og helgihaldi staðarins Farið í hvarf Á kyrrðardögum förum við í hvarf, tökum okkur hlé frá daglegri önn og amstri og njótum friðar og hvíldar – njótum þess að vera án áreitis. Kristur gefur fordæmið er hann sagði við lærisveina sína: „Komið þér nú á óbyggðan stað svo að vér séum einir saman og hvílist um stund.“ (Markús 6.31) Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum sér og Guði, að sjá líf sitt í nýrri vídd og láta uppbyggjast og endurnærast á sál og líkama. Ýmsir leita til kyrrð- ardaga til að takast á við erfiða ákvörðun eða þungbærar fréttir með stuðningi starfsfólksins, í hinni hlýju þögn. Boðið er upp á trún- aðarsamtöl og fyrirbæn. Dagskrá Kyrrðardagarnir hefjast með há- degisverði þriðjudaginn 23. mars, síðan er kynningarstund þar sem dagskrá og þátttakendur eru kynnt og þá tekur við hin hlýja þögn sem umvefur þátttakendur fram á síð- degi fimmtudagsins 25. mars. Gunn- ar leiðir þrjár samverur á dag, sum- ar á göngu, aðrar í fræðslustofu eða tengdar helgihaldi en fylgt er hinu daglega helgihaldi staðarins. Við máltíðir er leikin sígild tónlist. Boð- ið er upp á staðarskoðun. Ofangreind dagskrá er þó aðeins tilboð, þátttakendur ráða því hvern- ig þeir verja tíma sínum, hvað þeir sækja af dagskrárliðum. Úrval vandaðs lesefnis er til reiðu. Fólk kemur sem einstaklingar til kyrrð- ardaganna, þótt komið sé í litlum hópum vina eða vandamanna. Nánari upplýsingar og skráning er í Skálholtsskóla, sími 486 8870, netfang skoli@skalholt.is. Kristniboðssamkoma í Hallgrímskirkju Í kvöld kl. 20.00 verður kristniboðs- samkoma í Hallgrímskirkju. Þessi samkoma er í tilefni af Kristniboðs- viku sem nú stendur yfir í Reykjavík á vegum Sambands ísl. kristniboðs- félaga. Samkoman í kvöld verður með þvi sniði, að Guðlaugur Gunnarsson flytur hugleiðingu kvöldsins, en hann starfaði um árabil í Eþíópíu sem kristniboði. Konan hans Val- gerður Gísladóttir flytur ávarp og bæn, rætt verður við Heiðrúnu Kjartansdóttur um lífið í Kenýu, þar sem hún dvaldist með foreldrum sínum í nokkur ár. Kanga kvartettinn syngur nokk- ur lög ásamt Unglingakór Hall- grímskirkju undir stjórn Helgu Vil- borgar Sigurjónsdóttur. Allir eru velkomnir á samkomuna. Morgunblaðið/Þorkell Gunnar Eyjólfs- son leiðir kyrrð- ardaga í Skálholti Skálholt Hallgrímskirkja. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja,eldri borgara starf. Bridsað- stoð kl. 13. Kaffi kl. 15. Langholtskirkja. Lestur Passíusálma k. 18 í Guðbrandsstofu í anddyri Langholtskirkju. Allir velkomnir. Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10- 12. Kaffi og spjall. Grafarvogskirkja. Lestur Passíusálma kl. 18.15. 37. sálmur. Annað orð Kristí á kross- inum. Dagur Eggertsson borgarfulltrúi les. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri deild- arstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakkar á aldrinum 8-12 ára velkomnir. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, er í Lágafellsskóla. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Samkom- ur alla laugardaga kl. 11:00. Bænastund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíufræðsla all- an sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir velkomnir. Fríkirkjan Kefas. 13-16 ára starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Allir 13-16 ára velkomnir. Nánari uppl.3 á www.kefas.is Kristniboðsvikat. Samkoma í Hallgríms- kirkju kl. 20. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30 barnagospel fyrir krakka 4-12 ára. Kl. 10- 18 okkar vinsæli flóamarkaður opinn. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið samveru Kirkjuskólans næsta laugardag kl. 11.15- 12 í Víkurskóla. Rebbi refur í brúðuleikhús- inu, söngur, biblíusaga og litastund. Verið dugleg að mæta og bjóðið ömmu og afa, pabba og mömmu, frænda og frænku, eða bara vinum ykkar með. Prestur og starfsfólk kirkjuskólans. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF FRÉTTIR Fyrirlestur hjá Líffræðistofnun verður í dag, kl. 12.20, í Lögbergi, stofu 101. Erindi heldur Bjarni Diðrik Sigurðsson, Rannsóknastöð Skógræktar ríkisins, Mógilsá. Yf- irskrift fyrirlestrarins er: Áhrif hnattrænna umhverfisbreytinga á kolefnisupptöku og trjávöxt: nið- urstöður íslenskra rannsókna. Fjallað verður um íslenskar rann- sóknir á því hvað það er í umhverf- inu sem mest takmarkar trjávöxt, og hvernig breytingar á styrk kol- díoxíðs í andrúmslofti og hækkandi hitastig hafa áhrif þar á. Frítt helgarnámskeið í jóga og sjálfsvitund Í kvöld, föstudags- kvöld, kl. 20–22, hefst ókeypis helg- arnámskeið í jóga og sjálfsvitund þar sem verður kynnt jógaheim- speki og leiðir til að ná meiri ár- angri í lífi og starfi. Á morgun, laugardag og á sunnudaginn verður námskeiðið kl. 13–17. Námskeiðið fer fram í Tónskóla Sigursveins, Hraunbergi (við hliðina á Gerðu- bergi) og er á vegum Sri Chinmoy- miðstöðvarinnar. Íslensk menningarhelgi fyrir er- lenda skiptinema AFS Í dag föstudag hefst menning- arhelgi fyrir erlenda skiptinema sem dvelja hér á vegum AFS. Far- ið verður í Þjóðmenningarhúsið kl. 13 og í Listasafn Reykjavíkur/ Hafnarhúsið kl. 14. Síðan mun hóp- urinn fara á Snæfellsnes þar sem hann verður fram á sunnudag. Á mánudag kl. 11 verður farið í heim- sókn til forseta Íslands að Bessa- stöðum. Ferðahátíð Ferðaskrifstofunnar Emblu verður í Iðnó í kvöld, föstu- dagskvöldið 19. mars, kl. 19. Kynntar verða ferðir sem ferða- skrifstofan býður upp á, en aðal- áhersla verður á kynningu ferða til S-Ameríku. Meðal nýrra áfanga- staða hjá Emblu í ár er Japan og Fiji-eyjar, Perú og Bólivía, Costa Rica og Sikiley. Boðið verður upp á mat og skemmtiatriði. Meðal þeirra sem koma fram á skemmtuninni eru Jakob Frímann Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir og hljóm- sveitin Titanic og tónlistarmaður frá Bólivíu, Nahiel Melgar, sem spilar á þrenns konar blást- urshljóðfæði. Jafnframt mun Sig- urður Freyr Guðbrandsson skóg- fræðingur halda erindi um löndin og sýna myndir. Þá verða happ- drættisvinningar í boði fyrir mat- argesti, m.a. helgarferð fyrir tvo til Kaupmannahafnar eða London í boði Iceland Express. Einnig mun Michael Baker hjá Radisson Seven Seas í Bretlandi verða í Iðnó til að kynna Seven Seas-lúxus skemmti- ferðaskipin. Í DAG Ökukennsla Ökukennsla, endurhæfing, akstursmat og vistakstur. Upplýsingar í símum 892 1422 og 557 6722, Guðbrandur Bogason. Bifhjólanámskeið - bifhjólakennsla Námskeið í næstu viku. Upplýsingar gefur: Eggert Valur Þorkelsson, öku- kennari, s. 893 4744 og 565 3808. Akstursmat vegna tveggja ára endurnýjunar og aðstoð vegna endurnýjunar ökuréttinda. Kenni á Benz 220 C. Vagn Gunnarsson s. 894 5200 og 565 2877. Akstursmat vegna tveggja ára endurnýjunar og aðstoð vegna endurnýjunar ökuréttinda. Kenni á Benz 220 C. Vagn Gunnarsson s. 894 5200 og 565 2877. VW Golf GL 1400 árg. 1997, ek. 122 þ. km. Beinsk., sumar/vetr- ardekk, mikið búið að endurnýja. Verð 490 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Mercedes Bens ML 230 árg. 12/ 1999, ek. 52 þ., beinskiptur, ABS, álfelgur, spólvörn, dráttarbeisli, hiti í sætum, leður, þakbogar. Verð 2.890 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000. Til sölu Bee Trailers, 3 hesta kerra árgerð 1997, skoðuð '04 og er í toppstandi. Verð 500 þús. Uppl. í síma 892 9377 eða www.brun.is. Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22 sími 564 6415 - gsm. 661 9232. Jeppapartasala Þórðar, Tangar- höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum okkur með varahluti í jeppa og Subaru. Nýrifnir: Patrol '95, Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol '92, Legasy '92, og Vitara '91-'97 Gabríel höggdeyfar, sætaáklæði, ökuljós, spindelkúlur, stýrisendar, vatnsdælur, gormar, handbremsu- barkar og drifliðshlífar. GS varahlutir, Bíldshöfða 14, sími 567 6744. Aðalpartasalan Sími 565 9700, Kaplahrauni 11. Eigum varahluti í Hyundai, Honda, Peugeot, Mazda , MMC, Opel o.fl. Kaupum bíla til niðurrifs. Tunnuvagn. Nýr Eurotrailer til af- hendingar strax, gleiðöxla, smur- kerfi, yfirbreiðsla o.fl. Th. Adolfs- son ehf., s. 898 3612. Næst til af- hendingar í lok maí. Iðnaðarmenn Ford Escort van, árg. '92, ek. 106 þús., dráttarkrók- ur, toppgrind, góður bíll. Verð 195 þús. stgr. Upplýsingar í síma 661 0344. Peugeot 306 Symbio 1600 árg. 1998. Ekinn 107 þús. km, bein- skiptur. Verð 690. Tilboð 540 stgr. Bílabúð Benna - Notaðir bílar, Bíldshöfða 10 - sími 587 1000.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.