Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 57
SAMHERJI vill koma á framfæri
hugheilum þökkum til allra þeirra
sem gerðu þann draum að veruleika
að ná Baldvin Þorsteinssyni EA á flot
að nýju, segir í tilkynningu frá fyr-
irtækinu.
„Erfitt er að draga einhverja út úr
þeim stóra hópi sem kom að aðgerð-
unum en þó skulu nokkrir aðilar
nefndir sérstaklega:
Áhöfn Baldvins Þorsteinssonar
EA og aðrir starfsmenn Samherja
Landhelgisgæslan, og þá sér í lagi
þyrlusveit hennar.
Björgunarsveitin Víkverji í Vík í
Mýrdal.
Björgunarsveitin Kyndill á Kirkju-
bæjarklaustri.
Björgunarsveitin Lífgjöf í Álfta-
veri.
Björgunarsveitin Stjarnan í Skaft-
ártungu.
Þyrlusveit Varnarliðsins á Kefla-
víkurflugvelli.
Seabrokers Chartering í Noregi
og áhöfn dráttarskipsins Normand
Mariner.
Umhverfisráðuneytið.
Utanríkisráðuneytið.
Sýslumannsembættið og lögreglan
í Skaftafellssýslu.
Sveitarstjórnir Skaftárhrepps og
Mýrdalshrepps.
Jarðvegsfyrirtækin Framrás og
Netey ásamt Guðmundi Hjálmars-
syni sem hafði yfirstjórn þess
verkþáttar með höndum.
Eigendur og starfsfólk Hótels Vík-
ur og Víkurskála.
Landeigendur á Meðallands-
sandi.“
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, segir í tilkynning-
unni að nánast sé útilokað að tiltaka
alla þá sem komu að aðgerðinni. „Það
eru t.d. ónefndir fjölmargir þjónustu-
aðilar sem komu að björguninni en
undantekningarlaust brugðust þeir
skjótt og vel við þegar til þeirra var
leitað, hvort sem var að nóttu eða
degi. Þá vil ég sérstaklega þakka fjöl-
miðlum fyrir það hve frábærlega þeir
stóðu sig í því að halda þjóðinni upp-
lýstri um gang mála. Síðast en ekki
síst vil ég þakka þann ótrúlega mikla
og dygga stuðning sem við fundum
fyrir úti í samfélaginu. Við hjá Sam-
herja viljum þakka allar þær kveðjur
og stuðningsyfirlýsingar sem okkur
hafa borist meðan á þessu máli stóð
og eru enn að streyma inn. Þessi
stuðningur er hreint út sagt ómetan-
legur,“ segir Þorsteinn Már.
Reynsla sem við viljum
miðla til annarra
Þorsteinn Már segir að björgun
Baldvins Þorsteinssonar EA hafi ver-
ið mjög flókin aðgerð og fyrir sig sé
þetta reynsla sem hann vilji gjarna
deila með þeim aðilum sem að slíkum
málum koma. „Þegar um hægist
myndum við hjá Samherja gjarnan
vilja setjast niður með fulltrúum
Landsbjargar, Landhelgisgæslunn-
ar, tryggingafélaga, ráðuneyta,
sýslumannsembætta og öðrum sem
að slíkum björgunaraðgerðum koma
til að ræða málin og meta frá ýmsum
hliðum; bæði styrkleika og veikleika.
Allir sem komu að þessu verki lærðu
mjög mikið og þeirri reynslu viljum
við miðla áfram til allra sem að slík-
um málum koma. Okkar von er sú að
þessi reynsla geti orðið öðrum til
gagns í framtíðinni.“
Samherji sendir þakkir
vegna björgunar Baldvins
ÍSKAPPREIÐAR verða í Mývatns-
sveit nú á laugardag, 20. mars og
verður mótið haldið á Mývatni.
Mótið hefur verið haldið undan-
farin ár og stækkað ört ár frá ári
enda ófáir staðir í heiminum sem
bjóða upp á jafn glæsta umgjörð af
náttúrunnar hendi, segir í frétt um
mótið. Haldin verður töltkeppni
meðal atvinnumanna og einnig al-
mennings. Einnig verður keppt í
skeiðkeppni.
Keppnisbrautin er staðsett á Mý-
vatni fyrir framan Sel-Hótel Mývatn
og hefst mótið klukkan 11. um morg-
uninn.
Magnús Skúlason heimsmeistari í
skeiði mættir á mótið sem boðs-
knapi, en hann er búsettur í Svíþjóð
og mun Anna Skúladóttir fylgja hon-
um og taka þátt í keppninni. Auk
Magnúsar mættir sigurvegarinn frá
því í fyrra, Þórður Þorgeirsson, sem
boðsknapi til þess að verja titilinn.
Um kvöldið verður haldin upp-
skeruhátíð hestamanna úr Þingeyj-
arsýslum í félagsheimilinu Skjól-
brekku, og mun stórhljómsveitin
A-menn spila fyrir dansi á sannköll-
uðu hestamannaballi fram eftir
nóttu. Dansleikurinn er opinn öllum.
Ískapp-
reiðar á
Mývatni
I.O.O.F. 1 1843198 Sk.
I.O.O.F. 12 1843198½ Fr
ÝMISLEGT
Öryggi og mannréttindi?
Eykst öryggi og mannréttindi með vopnaðri,
grímuklæddri lögreglusveit? Nei, það eru
mannréttindi borgaranna að fá að sjá framan
í opinbera starfsmenn sem þeir skipta við og
að eiga síður á hættu að óhlutvandir menn
bregði sér í sérsveitargerfi. Hið sama á við um
opinbera samstarfsmenn grímuklæddu sér-
sveitarinnar.
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.
RAÐAUGLÝSINGAR
Í kvöld kl. 20.30 flytur
Þórður Snæbjörsson erindi:
„Norræn goðafræði og sjálfsvit-
undin“ í húsi félagsins, Ingólfs-
stræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Emils Björns-
sonar, „Spjallum hugrækt”
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 25. mars kl. 20.30
í umsjá Bjarna Björgvinssonar:
„Kyrrðarinnar hljóði fögnuður.”
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
www.gudspekifelagid.is
ATVINNU- OG
RAÐAUGLÝSINGAR
Ferðahátíð
Emblu í IÐNÓ
í kvöld
Ferðaskrifstofan Embla leggur undir sig
leikhúsið í Iðnó í kvöld föstudag 19. mars þar sem
saman koma ævintýraferðalangar úr ferðum Emblu
svo og áhugasamir um nýjar ævintýraferðir.
Meðal þess sem í boði er:
Glæsilegur þriggja rétta veislukvöldverður
Jakob Frímann og Ragga Gísladóttir koma fram
Tríóið Titanic leikur fyrir dansi
Nahiel Melgar frá Bolivíu leikur Andes-
fjallatónlist á þrenns konar blásturshljóðfæri
Michael Baker kynnir frábær tilboð frá
Radisson Seven Seas lúxusskipafélaginu
Sigurður Freyr Guðbrandsson skógfræðingur
fjallar í máli og myndum um Perú og Bolivíu
nýja áfangastaði Emblu í S-Ameríku
Hver miði gildir sem happdrættismiði.
Í boði glæsilegir vinningar m.a. ferð fyrir tvo til
Kaupmannahafnar eða London með Iceland Ex-
press. Enn eru lausir miðar, húsið opnar kl. 19:00
og skemmtunin hefst kl. 19:30. Miðasala og
borðapantanir hjá Ferðaskrifstofunni Emblu í síma
511 4080 eða á netfangi info@embla.is og hjá Iðnó,
veitingastaðnum Tjarnarbakkanum, í síma 562 9700.
Verð aðeins 5. 900 kr. Tryggið ykkur miða og njótið
ævintýralegrar skemmtunar í góðum félagsskap.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
40
52
03
/2
00
4
Nokia 3310
Einfaldur, ódýr og mjög góður sími.
Verð 9.900 kr.
Verslanir Og Vodafone: Kringlunni, Smáralind, Síðumúla 28, Skífunni Laugavegi 26,
Hafnarstræti Akureyri og umboðsmenn. Þjónustuver sími 1414, www.ogvodafone.is
Frítt að senda Myndskilaboð til 1. sept. 2004.
Símann er eingöngu hægt að nota með símkorti frá Og Vodafone.
Risapáskaegg fylgir!
M
yndskilab
oð
Frí
tt að senda
Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fasts. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími
588 4477
Vantar strax á
söluskrá okkar!
Allar gerðir eigna
á verðbilinu 15-25 millj.
Mikil sala: Hagstætt verð húsbréfa.
Nú er tækifærið.
Erum við símann.
Áratugareynsla
tryggir fagleg vinnubrögð.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU
www.fyrirtaekjasala.is
Síðumúla 15 • Sími 588 5160
Gunnar Jón Yngvason
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali