Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 58

Morgunblaðið - 19.03.2004, Side 58
58 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ Svínið mitt Bubbi og Billi AFHVERJU ERTU AÐ GRÁTA ÞVÍ STÆRRA SEM PRIKIÐ ER ... © DARGAUD © DARGAUD ÞVÍ MEIRA AF SYKURMOLUM ... BÍDDU NÚ VIÐ ÉG HELDA AÐ ÉG HAFI DOTTIÐ Í LUKKU POTTINN BILLI HVERT ERTU AÐ FAR? KOMDU BILLI!! HAFÐU STÓRAN POKA AF SYKRI TILBÚNN ÞEGAR ÉG KEM TIL BAKA SJÁÐU, RÚNAR KOM TIL AÐ SÆKJA ÞIG BÖÖ! ÉG ER AÐ GRÁTA VEGNA ÞESS AÐ KENNARINN REFSAÐI OKKUR JÁ, HÚN ER EKKI GÓÐ GROÍNK REFSAÐI FYRIRHVAÐ? SNIFF! VIÐ ÁTTUM AÐ BEYGJA SÖGNINA AÐ HALDA Í ÖLLUM TÍÐUM... SNIFF OG HÚN REFSAÐI OKKUR JÁ SÖGNINA AÐ HALDA? GÁTU ÞIÐ ÞAÐ EKKI? JÚ AUÐVITA GÁTUM VIÐ ÞAÐ ÉG SKAL TALA VIÐ KENNARANN ÉG VISSI AÐ ÞÚ MYNDIR KOMA ÉG SKAL SÝNAÞÉR FLEIRI VERKEFNI NAUÐA LÍK REYNDAR ÉG HELD AÐ ÞAÐ SÉ SÓL. ÉG HELD AÐ ÞAÐ FARI AÐ RIGNA. ÉG HELD AÐ VINDURINN BLÁSI. ÉG HELD AÐ ÞAÐ KOMI STORMUR GRÉTAR BÆTIR VIÐ ÉG HELD AÐ ÉG SÉ MEÐ KVEF GERÐU ÞAU ÞETTA EKKI RÉTT EÐA HVAÐ? ÓH JÚ!! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FORVARNARNEFND Hafnar- fjarðar og SGI á Íslandi standa fyrir sýningunni „Gandhi King Ikeda. Friður fyrir komandi kynslóðir“ í Gamla bókasafninu í Hafnarfirði dagana 15.-28. mars. Sýningin er alþjóðleg sýning og var fyrst sett upp að frumkvæði Moorhouse College í Alabama í Bandaríkjunum árið 2001. Sýningin fjallar um líf þriggja ein- staklinga sem koma frá ólíkum þjóð- félögum, voru ekki sömu trúar en áttu sameiginlega þá hugsjón að all- ar manneskjur hafi rétt á að lifa virð- ingarverðu lífi. Gandhi og King hafa þegar skapað sér sess í sögunni með einstakri bar- áttu sinni og hugrekki. Gandhi tók á sínar herðar baráttuna fyrir sjálf- stæði og mannvirðingu indversku þjóðarinnar gegn breska heimsveld- inu. Martin Luther King hratt af stað einstakri mannréttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum gegn aðskilnaðarstefnu og kúgun banda- rískra yfirvalda gegn blökkumönn- um. Báðir mörkuðu þeir djúp spor með virkri en ofbeldislausri and- stöðu sinni gegn óréttlátu þjóðfélagi. Daisaku Ikeda, japanskur rithöf- undur og heimspekingur, hefur í meir en 30 ár sem forseti SGI haldið á lofti hugsjónum Gandhi og King. Hann hefur byggt störf sín á þeirri kenningu að allir menn hafi rétt á að lifa virðingaverðu lífi. Hann hefur með fordæmi sínu sýnt milljónum manna að einn einstaklingur getur með framlagi sínu, hugrekki og bar- áttuvilja skipt sköpum fyrir sam- félagið. Ikeda hefur helgað líf sitt baráttu fyrir friði, bættri menntun og menn- ingu. Hann hefur ferðast víða um heim í þeim tilgangi að opna fyrir menningarleg og stjórnmálaleg sam- skipti milli ólíkra þjóða og menning- arheima. Árið 1983 hlaut hann ma. friðarverðlaun Sameinuðu þjóðanna. Þó Ikeda hafi hlotið viðurkenn- ingu alþjóðasamfélagsins á sviði frið- ar menntunar og menningar þá hef- ur hann einnig þurft að standa af sér miklar ofsóknir í sínu heimalandi fyrir störf sín. Af völdum yfirvalda sem hafa gagnrýnt hann harðlega ma. fyrir að reyna að opna fyrir sam- skipti Japan, Kína og Sovetríkjanna á kaldastríðsárunum. Boðskapur þeirra Gandhi, King og Ikeda á sannarlega erindi til okkar í dag. Öll höfum við eflaust verið sleg- in óhugnaði vegna þeirra frétta sem hafa borist okkur frá Madrid, þar sem 200 manns voru myrt í hrylli- legri sprengiárás. Venjulegt fólk á leið til vinnu sinnar, skóla og ann- arra daglegra starfa. Þarna birtist fyrirlitning á mannslífi í sinni verstu mynd. Dóttir mín sem er skiptinemi við leiklistarháskóla í Madrid hringdi í mig snemma á fimmtudags- morgun og sagði. „ Mamma ég ætl- aði bara að láta ykkur vita að ég er á lífi. Ég fór ekki með lestunum í skól- ann í morgun.“ Mitt barn hefði alveg eins getað orðið eitt af fórnarlömb- um árásanna. Allt voru þetta börn einhverra sem þarna fórust, feður, dætur, synir og mæður. Við hér heima lifum oft í þeirri trú að við séum svo örugg, ofbeldi, stríð og annar hryllingur gerist í öðrum löndum. Raunin er þó önnur. Ofbeldi og vanvirðing gagnvart mannslífum er staðreynd í okkar þjóðfélagi og virðist hafa aukist undanfarin ár, ekki síst með aukinni neyslu fíkni- efna. Tilgangur sýningarinnar er fyrst og fremst að gefa ungu fólki von og sýna þeim með fordæmi þessara þriggja manna, hversu miklu einn einstaklingur getur áorkað ef hann gefst ekki upp frammi fyrir hindr- unum. Við viljum sýna ungu fólki að til eru friðsamlegar leiðir til að leita lausna á ósætti og óréttlæti og að of- beldi sé aldrei réttlætanlegt. Kennurum er boðið að koma með nemendur sína í vettvangsferð á sýninguna. ( www.simnet.is/meistar- ar) EYGLÓ JÓNSDÓTTIR, kennari og ábyrgðarmaður sýningarinnar, Hringbraut 52, Hafnarfirði. Friður fyrir komandi kynslóðir Frá Eygló Jónsdóttur: HINN 7. mars s.l. birtist í Morgun- blaðinu ályktun frá stjórn stang- veiðifélagsins Flúða á Húsavík. Reyndar leyfi ég mér að efast um að allir félagsmenn muni geta tekið undir téða ályktun. Stjórn Flúða telur það ágiskun eina að lífsskilyrði laxins í Laxá neð- an Laxárvirkjunar myndu batna ef sandburðurinn í ánni minnkaði, enda telur stjórnin engar rannsóknir liggja að baki þeirri fullyrðingu. Í meira en tvo áratugi hefur Veiði- félag Laxár keypt bæði ráðgjöf og rannsóknavinnu af Veiðimálastofnun Íslands, auk þess sem amerískur fiskifræðingur vann á vegum félags- ins tíma úr sumri og var þá jafnframt að skrifa doktorsritgerð. Öllum þeim fiskifræðingum sem unnið hafa á vegum Veiðifélags Laxár ber saman um að sandurinn sé bölvaldur lax- fiskanna í ánni enda hvergi skjól fyr- ir fiska þar sem sandurinn hefur náð að slétta botninn. Í sambandi við rannsóknir á seiða- stofni laxins í Laxá hefur komið í ljós að þéttleiki seiðanna er tíu sinnum meiri þar sem botninn er vel grýttur heldur en þar sem hann er að mestu sléttur af sandi. Heldur stjórn Flúða að það sé ein- hver tilviljun? Ég hef ekki annað heyrt en að vísindamenn séu sam- mála um að ef takist að stöðva sand- burðinn út í Laxá, þá sé það stór- kostleg vernd fyrir gjörvallt lífríki árinnar. Að framansögðu finnst mér ályktun vina minna í stjórn Flúða með hreinum ólíkindum og hélt ég þá kunnari málum en raun ber vitni. VIGFÚS B. JÓNSSON, form. Veiðifélags Laxár. Ný vísindi, eða hvað? Frá Vigfúsi B. Jónssyni:

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.