Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 61 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ Frances Drake FISKAR Afmælisbörn dagsins: Þú ert úrræðagóð/ur og staðföst/fastur. Leggðu hart að þér til að ná markmið- unum. Komandi ár mun marka nýtt upphaf í lífi þínu. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Leitaðu leiða til að hjálpa vin- um þínum í dag. Það er þér eðlilegt að finna til sam- kenndar með fólkinu í kring- um þig. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hæfileiki þinn til að koma auga á nýja möguleika í stöð- unni vekur aðdáun einhvers í vinnunni. Hikaðu ekki við að segja skoðun þína. Öll stór- virki hefjast á lítilli hugmynd. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Hugsjónir þínar eru vaktar í dag. Þú sérð hvernig sam- takamáttur fólks getur hrint breytingum í framkvæmd í heiminum. Þótt þú getir ekki hjálpað öllum ættirðu að hjálpa þeim sem þú getur. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú kemur auga á nýjar leiðir til að nýta þær auðlindir sem þér standa til boða. Mundu að nektin kennir naktri konu að spinna og hikaðu ekki við að gera alvöru úr hugmyndum þínum. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Vinur þinn gæti leitað til þín í trúnaði í dag. Þú þarft ekki endilega að taka undir það sem hann/hún segir. Nóg er að hlusta og sýna skilning. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú gætir komist að einhverju óvæntu í dag. Notaðu ímynd- unaraflið til að leita nýrra lausna. Treystu á sjálfa/n þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þú hefur þörf fyrir fegurð í kringum þig. Notaðu sköp- unargáfu þína til að fegra umhverfi þitt. Það þarf ekki alltaf stórar breytingar til að breyta yfirbragði hlutanna. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Réttu vini þínum eða vinnu- félaga hjálparhönd í dag. Það þarf einhver að tala við þig í trúnaði. Gættu þess að sýna viðkomandi algeran trúnað. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú hefur það í hendi þér að skapa eitthvað frumlegt og sérstakt í dag. Sjáðu heiminn með augum barnsins. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Einhver í fjölskyldunni þarf á hjálp þinni að halda. Gerðu það sem þú getur til að hjálpa viðkomandi. Hann/hún mun að öllum líkindum endur- gjalda þér greiðann. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Þú lítur heiminn óvenju- legum augum í dag. Þú vilt gæða umhverfi þitt meiri feg- urð og gleði. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Það sækja á þig dagdraumar. Þetta er því ekki rétti dag- urinn til að ráðast í verkefni sem krefjast einbeitingar. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. VORNÓTT Um jökla vafðist júnínóttin blá, úr jörðu spruttu silfurtærar lindir. Við áttum vor, sem aldrei líður hjá og elda sína bak við höfin kyndir. Eg þráði aldrei dagsins dyn og glaum, mig dreymdi líf, sem æðri fegurð spáir, og einni sál eg sagði þennan draum, og síðan á eg vin, er hjartað þráir. Hvort skilur nokkur betur vorsins vé en vinir tveir, sem hamingjuna erfa, er lífsmagn jarðar laufgar blóm og tré, og loftin verða blá, en skýin hverfa? Þá hvílir blessun yfir sæ og sveit, og sælan streymir út í fingurgóma, tvær þöglar sálir vinna heilög heit, og hjörtun skilja alla leyndardóma. - - - Davíð Stefánsson frá Fagraskógi. LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 21. mars verður fimmtugur Sigurður Steinþórsson, bóndi á Hæli. Af því tilefni tekur hann, ásamt fjölskyldu sinni, á móti gestum í hátíðarsal Gnúpverjaskóla á afmæl- isdaginn milli kl. 13 og 16. 60 ÁRA afmæli. Ámorgun, laugardag- inn 20. mars, verður sextug- ur Halldór Gunnarsson. Í tilefni dagsins verður opið hús fyrir vini og vandamenn að Hlíðasmára 19, sal Sjálf- stæðisfélags Kópavogs, frá kl. 17-21. Halldóri þætti vænt um að sjá sem flesta þessa kvöldstund. NOKKRIR spilarar Reykjavíkurmótsins lentu í sálarháska í glímunni við þetta spil: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♠G94 ♥Á763 ♦ÁK8 ♣ÁD10 Suður ♠K62 ♥K10852 ♦D ♣G982 Vestur Norður Austur Suður -- -- 2 spaðar Pass Pass Dobl Pass 4 hjörtu Pass Pass Pass Opnun austurs er veikir tveir (sexlitur og 6-10 punktar) og vestur kom út með einspilið í spaða, nán- ar tiltekið áttuna. Ef út- spil vesturs hefði verið þristurinn – lægsta spilið – hefði komið sterklega til greina að láta kónginn detta undir ásinn í fyrsta slag! Austur gæti vel trú- að því að útspilið væri frá þrílit og skipt yfir í annan lit. En slík blekking er vita vonlaus eftir áttuna út. Svo sagnhafi lætur lítið og vestur fær stungu í öðrum slag. Og spilar laufi. Það er á þessum tíma- punkti sem tvö öfl í sálinni takast á: Annars vegar þráin eftir öryggi (að tryggja samninginn), og græðgin hins vegar (löng- unin í yfirslag). Hvað myndi lesandinn gera? Bíðum við! Hvaða spaða spilaði austur í öðrum slag? Það skiptir höfuð- máli, ekki satt? Norður ♠G94 ♥Á763 ♦ÁK8 ♣ÁD10 Vestur Austur ♠8 ♠ÁD10753 ♥D94 ♥G ♦G96543 ♦1072 ♣K74 ♣653 Suður ♠K62 ♥K10852 ♦D ♣G982 Flestir spiluðu háum spaða nokkurn veginn um- hugsunarlaust, sem auð- veldar sagnhafa að taka svíninguna. En fáeinir eiturbraskarar fengu þá hugdettu að „öskra“ í laufi með spaðaþristinum! Og þá er erfitt að svína. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bc4 Db6 7. Rb3 e6 8. Be3 Dc7 9. O-O a6 10. a4 b6 11. f4 Be7 12. Be2 O-O 13. Bf3 Bb7 14. De2 Hac8 15. Df2 Rd7 16. Had1 Ra5 17. Rxa5 bxa5 18. Dg3 Bf6 19. Hd3 Rc5 20. e5 dxe5 21. Bxb7 Dxb7 22. fxe5 Bh4 23. Dxh4 Rxd3 24. cxd3 Dxb2 25. Re4 Dxe5 26. d4 Dd5 Staðan kom upp á Reykjavík- urskákmótinu sem lauk fyrir skömmu í Ráðhúsi Reykjavík- ur. Sigurður Daði Sigfús- son (2285) hafði hvítt gegn Sigurði Páli Steindórssyni (2218). 27. Rf6+! og svartur gafst upp enda fátt um fína drætti eftir 27... gxf6 28. Bh6. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. Fyrir flottar konur Bankastræti 11 • sími 551 3930 HLUTAVELTA Morgunblaðið/Helgi Jónsson Þessir hressu og duglegu krakkar héldu tombólu fyrir ut- an Úrval á Ólafsfirði á dögunum og söfnuðu kr. 6300 til styrktar Hetjanna, félagi langveikra barna. Þau heita Rebekka, Andri, Sandra og Aldís. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Offita • www.heilsuvernd.is Ertu með mat á heilanum? Ertu ofæta, búlimía eða anorexía? Þetta gætu verið fyrstu sporin til varanlegs bata. Stuðst er við 12 spora kerfi. Upplýsingar gefur Inga Bjarnason í síma 552 3132 og 866 1659 Á kyrrðardögum förum við í hvarf, njótum friðar og hvíldar án áreitis, látum uppbyggjast og endurnærast á líkama og sál Mars 23.–25. Kyrrðardagar tengdir Qi Gong: Innri sátt og ræktun lífsorku Leiðsögn: Gunnar Eyjólfsson, leikari. 26.–28. Kyrrðardagar tengdir tólf spora starfinu, en öllum opnir. Leiðsögn: Sr. Jakob Hjálmarsson, dómkirkjuprestur og Auður Bjarnadóttir, leikstjóri. Apríl 7.-10. Kyrrðardagar í Dymbilviku. FULLBÓKAÐ. Leiðsögn: Sigurbjörn Einarsson, biskup. 22.-25. Kyrrðardagar við sumarkomu - Áhersla á útiveru. Leiðsögn: Sr. Halldór Reynisson og dr. Sigurður Árni Þórðarson, verkefnastjórar á Biskupsstofu. Maí 30.4.-2.5. Kyrrðardagar með bænafræðslu. FULLBÓKAÐ. Leiðsögn: Sigurbjörn Einarsson, biskup. 13.-16. Kyrrðardagar hjóna. FULLBÓKAÐ. Leiðsögn: Dr. Sigríður Halldórsdóttir, prófessor, Margrét Scheving, sálgæsluþjónn, sr. Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur, og Þorvaldur Halldórsson, tónlistarmaður. Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla. Sími 486 8870, netfang: skoli@skalholt.is Svövusjóður styrkir þau er þess þurfa til þátttöku í kyrrðardögum. VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN Á KYRRÐARDAGA Í SKÁLHOLTI KYRRÐARDAGAR Í SKÁLHOLTI Í VOR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.