Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 19.03.2004, Blaðsíða 64
ÍÞRÓTTIR 64 FÖSTUDAGUR 19. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT HALLDÓR Jóhann Sigfússon, handknattleiksmaður hjá 2. deild- arliðinu Friesenheim í Ludwigs- hafen í Þýskalandi, leikur ekki með liðinu á næstu leiktíð. Það staðfesti Halldór í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann segist reikna frekar með því að leika áfram í Þýskalandi enda hafi honum líkað vel ytra þau tvö ár sem hann hefur dvalið í her- búðum Friesenheim. „Ég er að skoða ýmislegt í rólegheitum með umboðsmanni mínum. Þetta er á viðkvæmu stigi um þessar mundir en ég vænti þess þó frekar að vera áfram úti en að koma heim,“ sagði Halldór. „Það koma ýmsir kostir til greina og óneitanlega væri gott að komast í sterkara lið þannig að maður ætti kannski möguleika á að endurnýja kynnin við íslenska landsliðið,“ sagði Halldór sem sagði að ef allt um þryti flytti hann heim og þá vissi hann af áhuga síns gamla liðs, KA, sem missir ekki færri en þrjá menn eftir yfir- standandi keppnistíð. Halldór sagði að eftir að í ljós kom að hann yrði ekki áfram hjá Friesenheim hafi hann verið settur á ís hjá þjálfara liðsins. Hann hafi setið á bekknum í tveimur síðustu leikjum, síðast í 30:19 stórsigri Frisenheim á TSG Groß-Bieberau í fyrrakvöld. „Þetta er frekar óþægi- leg staða því það eru enn tveir mán- uðir eftir að keppnistímabilinu, en ég verð að taka þessu,“ sagði Hall- dór. Frisenheim er í 9. sæti af 18 liðum í suðurhluta 2. deildarinnar. Halldór endurnýjar ekki hjá Friesenheim KÖRFUKNATTLEIKUR KR - ÍS 52:62 DHL-höllin, Reykjavík, undanúrslit 1. deildar kvenna, annar leikur, fimmtudag- inn 18. mars 2004. Gangur leiksins: 0:2, 2:6, 6:8, 8:13, 16:17, 16:25, 24:27, 26:33, 28:36, 28:40, 34:40, 38:46, 40:50, 49:52, 49:55, 52:62. Stig KR: Katie Wolfe 26, Hildur Sigurð- ardóttir 6, Guðrún Sigurðardóttir 6, Georgía Kristiansen 5, Sigrún Skarphéð- insdóttir 4, Halla Jóhannesdóttir 4, Lilja Oddsdóttir 1. Fráköst: 27 í vörn – 14 í sókn. Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 18, Casie Lowman 12, Hagdís Helgadóttir 11, Svandís Sigurðardóttir 6, Stella Rún Kristjánsdóttir 5, Svana Bjarnadóttir 4, Lovísa Guðmundsdóttir 3, Guðrún Bald- ursdóttir 2, Jófríður Halldórsdóttir 1. Fráköst: 34 í vörn – 17 í sókn. Villur: KR 17 – ÍS 12. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Georg Andersen, mjög góðir. Áhorfendur: Um 60.  ÍS komið í úrslit, 2:0. Mætir Keflavík eða Grindavík. 1. deild karla Úrslitaleikur: Skallagrímur – Fjölnir ...................122:87  Skallagrímur varð sigurvegari 1. deild- ar 2004. Bæði liðin leika í úrvalsdeildinni keppnistímabilið 2004–5. NBA-deildin Úrslit í fyrrinótt: Boston – Denver............................ 104:100 Washington – Sacramento............ 114:108 Indiana – Portland ............................ 80:71 Toronto – Utah.................................. 85:81 New Orleans – Philadelphia........... 104:80 Dallas – Atlanta............................. 110:111 LA Clippers – LA Lakers ............ 103:106 Golden State – Orlando .................. 110:85 HANDKNATTLEIKUR ÍBV – Grótta/KR 27:28 Íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum, 1. deild kvenna, RE/MAX-deildin, fimmtu- daginn 18. mars 2004. Gangur leiksins: 1:0, 1:2, 3:2, 3:5, 5:5, 6:7, 7:9, 9:10, 11:11, 11:13, 13:14, 14:15, 14:16, 16:17, 18:19, 20:20, 21:20, 22:22, 24:23, 26:24, 26:26, 27:27, 27:28. Mörk ÍBV: Sylvia Strass 9/5, Alla Gor- korian 7/1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Birgit Engl 4, Nína K. Björnsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimurosa 17 þar af 3 aftur til mótherja. Utan vallar: 6 mín. Anja Nielsen var úti- lokuð fyrir kjaftbrúk í fyrri hálfleik. Mörk Gróttu/KR: Eva Björk Hlöðvers- dóttir 10/8, Eva M. Kristinsdóttir 5 Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4, Aiga Stefane 4, Ragna Karen Sigurðardóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir 2, Varin skot: Hildur Gísladóttir 16 þar af 1 aftur til mótherja. Utan vallar: 16 mín. Dómarar: Gísli H. Jóhannsson og Haf- steinn Ingibergsson. Áhorfendur: 180 Þriðji tapleikurinn í röð í Eyjum Þriðji tapleikur Eyjaliðsins í röð leit dagsins ljós og það allir á heimavelli. Liðsmenn Gróttu/KR sem komu siglandi til Eyja í gær virtust hafa eflst við sjó- ferðina því þær mættu ákveðnar til leiks og sýndu Eyjastúlkum strax í byrjun að þær ætluðu að berjast til loka. Eyjastúlk- ur virkuðu áhugalitlar og algjörlega hug- myndasnauðar í sóknarleiknum og voru gestirnir ekki í vandræðum með að stoppa sóknarlotur Eyjaliðsins. Eva Björk Hlöðversdóttir fór fremst í liði Gróttu/KR, gríðarlega örugg á vítalín- unni sem kom sér einkar vel í þessum leik og frábær baráttumanneskja sem aldrei gefst upp í vörninni. Eins átti Anna Úr- súla Guðmundsdóttir ágætan leik á lín- unni og skoraði hún sigurmarkið í leikn- um. Eyjaliðið er ekki burðugt um þessar mundir og engu líkara en að liðsmenn ÍBV séu nú þegar farnir að bíða eftir und- anúrslitum Evrópukeppninnar og hafi lít- inn tíma eða áhuga fyrir deildarkeppn- inni. Sylvia Strass stóð upp úr í slöku Eyjaliði. Sigursveinn Þórðarson Staðan: ÍBV 19 16 0 3 599:480 32 Stjarnan 22 15 0 7 542:498 30 Valur 21 14 1 6 498:444 29 Haukar 22 12 1 9 593:579 25 FH 20 11 0 9 525:484 22 Víkingur 22 9 1 12 508:520 19 Grótta/KR 21 8 3 10 507:530 19 KA/Þór 21 5 1 15 510:600 11 Fram 20 0 1 19 411:558 1  Fylkir/ÍR hætti keppni. KNATTSPYRNA Skotland Bikarkeppnin, 8-liða úrslit: Livingston – Aberdeen ..........................1:0 ÍSHOKKÍ Heimsmeistarakeppnin, 3. deild, leikið í Skautahöllinni í Laugardal: Írland – Armenía.................................15:1 Mexíkó – Tyrkland................................2:3 Ísland – Armenía.................................31:0 Staðan: Ísland 2 2 0 0 38:5 4 Írland 2 1 0 1 18:9 2 Mexíkó 2 1 0 1 10:6 2 Tyrkland 2 1 0 1 8:9 2 Armenía 2 0 0 2 1:46 0 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, RE/MAX-deildin: Austurberg: ÍR - HK ............................19.15 Ásgarður: Stjarnan - Haukar...............19.15 Framhús: Fram - Valur .............................20 KA-heimilið: KA - Grótta/KR ...................20 1. deild karla: Selfoss: Selfoss - ÍBV............................19.15 Varmá: Afturelding - Breiðablik..........19.15 Víkin: Víkingur - Þór A. ........................19.15 1. deild kvenna: Framhús: Fram - ÍBV ...............................18 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild, undanúrslit – fyrsti leikur: Stykkishólmur: Snæfell - Njarðvík .....19.15 1. deild kvenna, undanúrslit, oddaleikur: Keflavík: Keflavík - UMFG..................19.15 KNATTSPYRNA Deildabikarkeppni karla Efri deild B-riðill: Egilshöll: Fram - FH ............................18.30 Egilshöll: Þróttur R. - ÍBV...................20.30 Efri deild A-deild: Boginn: KA - KR ...................................19.15 Neðri deild C-riðill: Fífan: Afturelding - Skallagrímur ............21 Neðri deild D-riðill: Boginn: Fjarðabyggð - Völsungur.......21.15 ÍSHOKKÍ Heimsmeistarakeppnin, 3. deild: Laugardalur: Ísland - Írland.....................18 FIMLEIKAR Íslandsmótið í hópfimleikum, keppni á ein- stökum áhöldum í Laugardalshöll kl. 19.30. SUND Innanhússmeistarmót Íslands hefst í Vest- mannaeyjum í dag kl. 9.30 og verður keppt til úrslita í greinum dagsins kl. 16.30. Í KVÖLD FÓLK  KNATTSPYRNUSAMBAND Ís- lands hélt í gær sinn 2000. stjórn- arfund, en sambandið var stofnað 26. mars 1947. Í tilefni tímamótanna samþykkti stjórn KSÍ að efna til samkeppni um nýja bikara fyrir Ís- landsmeistara í meistaraflokki kvenna og karla. Þá samþykkti stjórnin reglugerð fyrir akademíu KSÍ en hlutverk hennar er að velja árlega knattspyrnumann og knatt- spyrnukonu ársins. Sæti í akademí- unni munu eiga fyrrum leikmenn, þjálfarar, dómarar, forystumenn í hreyfingunni og íþróttafréttamenn.  AUÐUN Helgason er kominn aft- ur á ferðina með liði Landskrona en hann hefur átti við nárameiðsli að stríða undanfarnar vikur og hefur ekkert leikið á undirbúningstíma- bilinu. Auðun lék sinn fyrsta leik í með varaliðinu gegn Bröndby.  KRISTJÁN Uni Óskarsson frá Ólafsfirði varð tíundi af 72 keppend- um á alþjóðlegu stigamóti í bruni í Hafjell í Noregi í gær, 2,80 sek. sig- urvegaranum. Sindri Már Pálsson, Breiðabliki, varð tuttugasti og Kristinn Ingi Valsson, Dalvík, fer- tugasta sæti. Guðrún Jóna Arin- bjarnardóttir, Víkingi, varð fimm- tánda af 24 keppendum í bruni kvenna á sama stað.  RIO Ferdinand, leikmaður Man- chester United og enska landsliðs- ins, verður í leikbanni fram til 20. september en áfrýjunardómstóll enska knattspyrnusambandsins hafnaði í gær áfrýjun leikmannsins. Átta mánaða keppnisbannið, sem hann var dæmdur í þann 20. janúar fyrir að mæta ekki í lyfjapróf í sept- ember, stendur óhaggað og draumur Ferdinands um að leika fyrir Eng- lands hönd á EM í Portúgal í sumar er því úti.  FRANK Sinclair verður ekki boð- inn nýr samningur hjá Leicester þegar núverandi samningur hans við félagið rennur út í vor, þetta stað- festi umboðsmaður hans í gær. Sinclair var einn þriggja leikmanna Leicester sem sat á bak við lás og slá í rúma viku á Spáni á dögunum vegna meints kynferðisofbeldis gegn þremur konum þegar leikmenn liðs- ins voru í æfingabúðum þar. „Atvikið á La Manga jók ekki líkurnar fyrir því að Sinclair verði boðinn nýr samningur,“ sagði umboðsmaðurinn í samtali við BBC.  HERMANN Hreiðarsson og fé- lagar í Charlton Athletic taka ekki þátt í Intertoto-keppninni í knatt- spyrnu næsta sumar, þó þeim mis- takist að komast í forkeppni Meist- aradeildar Evrópu eða í UEFA-bikarinn. Charlton er í fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar en fimm efstu liðin fá Evrópusæti, auk deildabikarmeistara Middlesbrough og annaðhvort Sunderland eða Mill- wall, eftir því hvort 1. deildarliðið kemst í bikarúrslitin. MIKKEL Drexel, danskur markvörður, er væntanlegur til reynslu til Víkings, nýliðanna í úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Drexel kemur til landsins í dag og æfir með Víkingum fram eftir næstu viku. Hann er 28 ára gamall og er varamarkvörður Esbjerg, efsta liðsins í dönsku úrvalsdeildinni. Drexel er á sínu þriðja ári hjá Esbjerg en hann hefur aðeins leikið einn úrvalsdeildarleik með félaginu. Áður lék hann lengst af með Köge í 1. deild en einnig með Herfölge. Samningur hans við Esbjerg rennur út í lok júní en hann getur losnað strax og hefur verið á sölu- lista dönsku leikmannasamtakanna frá því í desember. „Við Sigurður Jónsson þjálfari hittum Drexel í haust þegar við fórum til Esbjerg, og síðan kom þetta upp fyrir stuttu að hann hefði hug á að koma til Íslands. Hann mun æfa með okkur og spilar líklega æfingaleik næsta þriðjudag, og eftir það verður staðan skoðuð,“ sagði Aðalsteinn Guðjónsson, framkvæmdastjóri knatt- spyrnudeildar Víkings, við Morgunblaðið í gær. Danskur mark- vörður til Víkinga ÁRNI Stefánsson, þjálfari úrvalsdeildarliðs HK í hand- knattleik, var í gær leystur frá störfum hjá Kópavogs- liðinu. Vilhelm Gauti Bergsveinsson tekur við starfi Árna en fyrirliðinn er sem kunnugt er úr leik vegna meiðsla það sem eftir er leiktíðar. „Mér skilst að ástæðan sé slakt gengi liðsins í vetur en því er ég ekki sammála. Árangurinn fyrir áramót var ágætur en meiðsli hafa sett verulegt strik í reikn- inginn hjá okkur eftir áramótin. Uppsögnin kom flatt upp á mig og ég hundsvekktur. Ég er baráttumaður og ég hefði viljað fá að klára tímabilið og svo hefðu menn getað dæmt mín verk eftir það. Ég taldi vera hægt að koma liðinu í betri stöðu,“ sagði Árni við Morgunblaðið en undir hans stjórn náði liðið sýnum besta árangri frá upphafi. HK varð bikarmeistari og lenti í fimmta sæti í deildinni. „Það var rosalega gaman í fyrra en það er greinilega fljótt að gleymast,“ sagði Árni. HK, sem er í næst neðsta sæti úrvalsdeildarinnar, leikur fyrsta leik sinn í kvöld undir stjórn Vilhelms Gauta, gegn ÍR-ingum í Austurbergi. Árna sagt upp hjá HK – Vilhelm tekur við Hvort um var að kenna tauga-spennu er ekki gott að segja en mistök leikmanna beggja liða voru afar mörg og þá sér- staklega hjá KR-ing- um. Á löngum köfl- um í leiknum var þeim fyrirmunað að skora og til að mynda liðu fimm mínútur án þess að leikmönnum KR tækist að skora í upphafi annars og þriðja leikhluta. Stúdínur voru skárri í sókninni en varnarleikur þeirra var í ágætu lagi. ÍS hafði yfirhöndina allan leiktímann og þó svo að KR hafi nokkrum sinn- um náð að sauma að Stúdínum þá var sigri þeirra ekki ógnað. „Það var taugaspenna hjá báðum liðum enda mikið í húfi. Ég var ánægð með varnarleik okkar en við þurfum að bæta sóknina áður en við förum í úrslitarimmuna. Mér er al- veg sama hver andstæðingurinn í úr- slitunum verður. Ég reikna frekar með því að það verði Keflavík en það skyldi samt enginn afskrifa Grinda- vík,“ sagði Alda Leif Jónsdóttir, langbesti leikmaður ÍS, við Morgun- blaðið eftir leikinn. Hafdís Helga- dóttir átti ágæta spretti og sömuleið- is Casie Lowman þó svo að hittni hennar væri ekki neitt sérstök. Hjá KR var Katie Wolfe í sérflokki en það var skarð fyrir skildi að Hildur Sigurðardóttir náði sér ekki á strik enda í strangri gæslu. Morgunblaðið/Þorkell Alda Leif Jónsdóttir, lykilmaður ÍS, sækir að körfu í leik gegn KR, þar sem Tinna B. Sigmundsdóttir er til varnar. Stúdínur í úrslitin STÚDÍNUR komust í gærkvöld í úrslit á Íslandsmóti kvenna í körfu- knattleik þegar þær báru sigurorð af KR, 62:52, í öðrum undan- úrslitaleik liðanna. Leikur liðanna, sem fór fram í DHL-höllinni í Vesturbænum, var ekki í háum gæðaflokki. Guðmundur Hilmarsson skrifar Erla Hendriksdóttir, landsliðs-kona í knattspyrnu, mun leika með sínu gamla félagi, Breiðabliki, í sumar. Erla hefur undanfarin fjögur ár leikið með liði FV Köbenhavn en hún er á heimleið og að sögn Mar- grétar Sigurðardóttur, þjálfara Blik- anna, verður hún komin áður en flautað verður til leiks á Íslands- mótinu í maí. Erla er 27 ára og er komin í hóp reyndustu landsliðs- kvenna Íslands. Hún hefur spilað 41 landsleik og skorað 4 mörk og leik- irnir með Breiðabliki í efstu deild kvenna, þar sem hún hóf sinn ferilinn 1992, eru 87 talsins.  Tveir leikmenn Breiðabliks, lands- liðskonurnar Björg Ásta Þórðardótt- ir og Erna Sigurðardóttir, halda utan til Danmerkur á morgun þar sem þær verða til reynslu í átta daga hjá meisturum Fortuna Hjörring. Erla í Breiðablik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.